Morgunblaðið - 03.08.1968, Síða 24

Morgunblaðið - 03.08.1968, Síða 24
RITSTJÓRN • PRENTSMIÐJA AFGREIÐSLA»SKRIFSTOFA SÍMI 10.100 LAUGARDAGUR 3. ÁGÚST 1968 RITSTJÓRN • PRENTSMIÐJA AFGREIOSLA'SKRIFSTOFA 5ÍIV1I 1Q*1DO Mikil viðhöfn við opn- un Norræna hússins BÚIZT er við nærri 300 gest- um við opnun Norræna hússins í Reykjavík, laugardaginn 24. ágúst n.k. Gestimir verða frá öllum Norðurlöndunum og eru meðal þeirra ýmsir þekktustu Imenn landanna á stjómmála- ! og menningarsviðum. Ivar Eske land, forstöðumaður Norræna hússins, skýrði á fundi með blaða mönnum í gær frá dagskrá opn- unarathafnarinnar en ræddi um leið um þær vonir, sem hann byndi við framtíð Norræna húss ins og á hvern hátt íslendingar gætu fært sér tilveru þess í nyt. Norræna húsið verður opnað 24. ágúst kl. 10 með því að fán- ar allra Norðurlandanna verða dregnir að húni fyrir utan hús- ið, en áður mun Lúðrasveit Reykjavíkur leika nokkur lög. Að öðru leyti mun athöfnin fara fram innan dyra. Athöfnin inni í húsinu hefst með því að forstöðumaður húss- ins, Ivar Eskeland. flytur nokk ur ávarpsorð, en síðan mun for- seti íslands, herra Kristján Eld járn taka til máls. --------------------------- Tveir drengir bíl Að loknu máli forseta fslands leikur íslenzkur strengjakvart- ett, en hann mun leika milli ræðna þeirra, sem haldnar verða. Þá tekur til máls formaður Norð urlandaráðs, stórþingmaðurinn Svenn Stray ,en síðan flytur Halldór Laxness, rithöfundur iyrir TVEIR drengir á reiðhjólum urðu fyrir bifreið á móts við Lágafell í Mosfellssveit í gær. Þeir voru fluttir á Slysavarð- stofuna en meiðsli þeirra voru ekki fullkönnuð þegar blaðið fór í prentun. Slysið mun hafa orðið með þeim hætti að drengirnir, sem hjóluðu á undan bílnum, sveigðu fyrir hann rétt í því að hann var að fara framúr. Fram- rúðan brotnaði svo að a.mk. ann ar þeirra hefur kastast upp á vél arhlífina. Séð út um glugga Norræna hússins yfir mýrina, þar sem verið er aðgera nýja tjörn eft ir fyrirmælum arkitekts húss- ins. (Ljósm. Ól. K. M.) Forstöðumaður Norræna húss- ins. Ivar Eskeland, á tröppum hússins. ræðu, en hann er eimn af þrem- ur íslendingum í stjórn Nor- ræna hússins. Næstir tala formaður bygging amefndar hússins, Eigil Thrane, Gylfi Þ. Gíslason, menntamála- ráðherra, Ármann Snævarr, há- Framhald á bls. 23 Norræni sumarháskólinn settur í Reykjavík í dag Jarðvegshrær- ingar við Öskju — Benda til þess að eldgos sé í vœndum — Um 200 þátttakendur frá hinum Norðurlöndunum komu r gœrkvöldi og í nótt BÚAST má við að Askja gjósi einhverntíma á næstu árum. Eysteinn Tryggvason, jarðeðlisfræðingur, sem er ný kominn úr rannsóknarleið- angri þaðan, hefur skýrt frá því að landið hafi risið í Báts hrauni við Öskjuvatn, nánar tiltekið á norðausturbakka þess. Hækkunin er fjórir metrar og sextíu sentimetrar miðað við vatnsborð, eins og það var fyrir síðasta gos. Þá lækk aði vatnið um tvo metra þann ig að hæðin yfir vatnsborði er nú sex metrar og sextíu sentimetrar. Þetta er á um 2 km löngum kafla og hefur gerst hægt, á löngum tíma. Þetta er nokkuð öruggt merki þess að eldgos sé í að sigi en ógerlegt er að segja til um hvort það verður á næstunni eða eftir nokkur ár- Jarðfræðingum þykir þó ástæða til að fylgjast vel með breytingum sem þarna kunna að verða á landslagi. Búist er við að ef af verður, verði þetta lítið gos. NORRÆNI sumarháskóliim verður settur í dag kl. 9.30 í hátiðasal Háskóla íslands í 18. sinn. Er þetta fyrsta sinni sem skólinn er settur á íslandi, enda þótt íslendingar hafi verið með frá byrjun 1950. Norræna sum- arháskólann sækja að þessu sinni 215 útlendingar og 50 ís- lendingar — háskólaborgarar á öllum aldri. Þátttakendurnir voru væntaniegir til landsins í gærkvöldi með tveimur leigu- flugvélum. Þór Vilhjálmsson, prófessor, formaður íslandsdeildar Nor- ræna sumarháskólans, sagði í viðtali við Mbl. í gær, að skól- inn starfaði í öllum háskólaborg um Norðurlanda. í vetur störf- uðu 102 hópar í 18 háskólaborg- um og fjölluðu þeir um verk- Landsíminn kaupir Sjálfstæðishúsið NYLEGA hafa gengið saman samningar milli Landssíma ís- lands og eigenda Sjálfstæðis- hússins við Austurvöll um að Landssíminn kaupi húsið. Telur Landssíminn sig þurfa þess til áframhaldandi útfærslu starf- semi sinnar. Samningaumleitan- ir hafa staðið alllengi, en kaup- verð hússins mun vera röskar 16 milljónir króna. Er það ákveð ið með hliðsjón af söluverði sam bærilegra eigna í miffbænum að undanförnu. efni, sem stjóm skólams hefur valið. Að því er stefnt að koma á samvinnu manna, sem leggja stund á sem flestar fræðigrein- ar, til að ræða um vandamál, sem sameiginleg eru fyrir þær allar. Það er einnig tilgangur skólans að efla skilning á grund- vallaratriðum vísindastarfsemi skólans og á sérkennum rann- sóknaraðferða hinna ýmsu vís- indagreina. Við Norræna sumarháskólann munu að þessu sinni sex fyrir- lestarar fluttir. Fyrirlesarar verða: Ólafur Björnsson, prófess or; Bjarni Guðnason, prófessor; Erik Allardt, prófessor; Einar Thorsrud, dósent; Joadhim Israel, prófessor og Ole Lando, prófessor. Umræðuefni hópanna frá hinum 18 háskólum verða 12 og munu hóparnir bera saman bækur sínar og lýsa niðurstöð- um frá hverjum hinna 18 skóla. Norræni sumarháskólinn hef- ur aldrei gengizt fyrir rannsókn- um, en nýlega fékk hann 4 millj Framhald á bls. 19 Mýr H-miði SLYSAVARNAFÉLAGIB minn- ir ökumenn á að nú er rétti tím inn til að skipta um H-miða á bílnum, og setja rauðann í stað- inn fyrir þann græna. Miðarnir fást í öllum benzínstöðvum. (Slysavarnaf élagið). 26 ðverðlaunuð Ijóð BÓKIN „Hátíðarljóð 1968“ kom út í gær og er undirtitill hennar „26 óverðlaunuð ljóð“. Með bók- inni fylgir atkvæðaseðill og eru kaupendur beðnir að greiða at- kvæði um hvort þeir telji eitt- hvert eitt ljóðanna vert 10 þús- und króna verðlauna. Ef svo verður, ætlar útgefandinn, Sverrir Kristinsson, að veita verðlaunin. Þeir sem eiga ljóð í bókinni eru: Maríus Ólafsson, Kristinn Reyr, Filippía Kristjánsdóttir (,,Hugrún“), Ámi G. Eylamds, Jónas S. Jakobsson, Bjarni Guð mundsson frá Hörgsholti, Þór- oddur Guðmundsson frá Sandi, Einar J. Eyjólfsson, Ragnar Jó- hannesson, Þorsteinn Valdimars son, H. J. Þórðarson, Lárus Saló monsson (á fjögur ljóð í bók- inni), Björn H. Björnsson, Ár- mann Dalmannsson, Jón G. Pálsson, Tryggvi Emilsson, Pét- ur Affalsteinsson, Ragnar Jó- hannesson, Kristján frá Djúpa- læk, Hannes H. Jónssom, Katrín Jósepsdóttir og Benedikt Gísla- son frá Hofteigi.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.