Morgunblaðið - 08.08.1968, Qupperneq 10
10
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 8. AGÚST 1868
ERLENT YFIRLIT
★ Somið um vopnuhlé í Bratisluvo
★ Auknor efusemdir í gurð Nixons
★ Dregið úr stríðsuðgerðum í Vietnum?
Nýjar hömlur
á prentfrelsiÖ?
ALEXANDER DUBCEK, leið-
togi tékkóslóvakíska kommúniata
flokkaina, hefur fullvissafS þjóð-
ina í sjónvarpsræðu, að engir
leynisamningar hafi verið gerð-
ir á Bratislava-fu'n'dinum, þar
aem kommúnistaflokkar Sovét-
ríkjanna, Póllands, Austur-
Þýzkalands, Ungverjalanda og
Búlgaríu viðurkenndu jafnrétti,
fullveldi og þjóðlegt sjálfatæði
kommúnLstaríkja. Þó hefurtékk
óslóvakíakum leiðtogum gengið
erfiðlega að eyða grunsemdum
um, að þeir hafi orðið að slaka
til á fimdinum.
Skömmu áður en Dubcek flutti
raeðu sína efndu nokkur hundr-
uð stúdenta til mótmælaaðgerða
í Prag til þess að láta í ljós
ugg um, að þjóðin fengi ekki
að heyra allan sannleikann um
viðræðurnar í Bratislava. Það
ðem Tékkóslóvakar óttast mest
er, að ritfrelsi verði takmarkað
á nýjan leik. Þess vegna hafa
blaðamenn lýst því yfir við Cem
ik fonsætisráðherra að óheilbrigt
ástand mundi skapast ef málefna
leg gagnrýni yrði bönnuð á nýj
an leik.
Tortryggni vekur, að í Bratis-
lava-yfirlýsingunni er sérstak-
lega tekið fram, að gagnkvæm-
um ásökunum deiluaðiLa verði að
ljúka. Afleiðing þeasa getur orð
ið sú, að blöð í Tékkóslóvakíu
muni eiga mjög erfitt um vik í
framtíðinni að láta í ljós skoðan
ir sínar á ástandinu í öðrum
kommúnistaríkjum og gagnrýna
stjómir þessara landa. Líta mætti
svo á, að slík skrif brytu í bága
við Bratislava-yfirlýsinguna.
Óbein ritskoðun?
Ljóst er, að stjórnarvöld í
Tékkóslóvakíu hyggjast ekki
koma á beinni ritskoðun á nýjan
leik, en hins vegar bendir margt
til þess að vegna Bratislava-yfir
lýsingarinnar verði blöðin sjájf
að viðhafa ritskoðun og gæta
hófs í skrifum sínum um önnur
kommúnistaríki. Athyglisvert er
í þessu sambandi, að eftir fund-
inn í Bratislava sagði tékkóslóv
akískur ráðherra, að hann væri
þess fullviss að tékkóslóvakísk-
ir ritstjórar mundu sýna fyllstu
ábyrgðartilfinningu í framtíðinni
Þessi ummæli virðast staðfesta
að tékkóslóvakískir leiðtogar
hafi heitið því á fundinum í Brat
islava að draga úr árásum sín-
um á aðra kommúnistaflokka.
Kommúnistaflokkar Varsjár-
ríkjanna óttast prentfrelsið í
Tékkóslóvakíu vegna þess að það
'getuT leitt til aukinnar ólgumeð
al menntamanna í öðrum komm-
únistaríkjum. Prentfrelsið í
Tékkóslóvakíu h/efur leitt til op-
inskárrar gagnrýni á Varsjár-
bandalagið og Comecon (efna-
hagsbandalag Austur Evrópu-
ríkjanna) og jók það á ótta
Rússa um, að Tékkóslóvakar
mundu draga sig út úr samvinn-
unni við önnur kommúnistaríki.
Þess vegna var það ein aðal-
krafa Varsjár-bréfsins alræmda,
sem svo mikla reiði vakti í
Tékkóslóvakíu þar sem með því
var reynt að segja tékkóslóvak
ískum leiðtogum fyrir verkum,
að ritskoðun yrði aftur komið á.
Minna svigrúm.
Tékkóslóvakískir leiðtogar hafa
nú lýst því yfir, að Varsjár-
bréfið sé dautt og ómerkt, og
mikilvægt er að hvergi er minnzt
á það í Bratislava-yfirlýsingunni
í meginatriðum virðist yfirlýs-
ingin staðfesta þá staðhæfingu
Dubceks, að hann hafi ekki hvik
að frá stefnu sinni í hinum erf-
iðu samningaviðræðum, þrátt
fyrir efasemdirnar um hugsan-
legai takmarkanir á ritfrelsi.
Með hliðsjón af hinum víðtæku
þvingunaraðferðum Rússa og sam
herja þeirra hefur Dubeck unn-
ið mikinn sigur.
En þótt Varsjárbréfið sé úr
sögunni virðast tékkóslóvakísk-
ir leiðtogar hafa orðið að sætta
sig við það að svigrúm þeirra í
utanríkismálum verði takmark-
að. Dubeck og samstarfsmenn
hans hafa að vísu margoft lýst
yfir því, að vinátta við Rússa
og aðildin að Varsjár-bandalag-
inu verði enn sem hingað til
Jhornsteinar utanríkisstefnu
Tékkóslóvakíu. Hins vegar hafa
þeir haft áhuga á viðakiptum við
vestræn ríki, en ekki er víst
hvort þeir hafi nógu mikið svig
rúm til þess eftir Bratislava-
fundinn.
Það sem Dubeck hefur tryggt
þjóð sinni fyrst og fremst, er að
samþykkt hefur verið að umbót-
unum í innanlandsmálunum verði
haldið áfram Dubeck hefur tek-
izt að sannfæra Rússa um, að
frjálsræðisstefnan sem hann hef
ur fylgt nýtur nær einróma
stuðnings þjóðarinnar. ALmenn-
ingur í Tékkóslóvakíu hefur stað
ið svo fast á kröfum sínum um,
að Dubcek framkvæmi gefin lof
orð um úrbætur að hann hefði
ekki haldizt við völd ef hann
hefði ekki hlýtt vilja þjóðarinn-
ar. Þetta hafa Rússar gert sér
grein fyrir.
Kommúnismi á tímamótum.
Rússar hafa einnig gert sér
grein fyrir því að þeir gátu held
ur ekki staðið gegn frjálsræðis-
stefnu Tékkóslóvaka vegna hins
öfluga stuðnings sem þeir hafa
hlotið í kommúnistahreyfingunni
Tékkóslóv'a'kar hafa ekki aðeing
notið stuðnings Rúmena og Jú-
góslava, sem ekki þurfti að koma
á óvart vegna þjóðernisstefnu
þeirra, heldur einnig kommún-
istaflokka Frakklandis og Italíu
og annarra vestrænna kommún-
istaflokka. Mikilvægi Bratislava
yfirlýsingarinnar er ekki hvað
sízt fólgið í því að hún sýnir
að sovézkir leiðtogar sjá sig til-
neydda að taka tillit til skoðana
annarra kommúnistaflokka.
Ógnað bœði trá
hœgri og vinstri
ÞÓTT Richard Nixon fyrrum
varaforseti hafi alltaf verið
langsigurstranglegastur * þeirra
sem keppt hafa um að verða til-
nefndir forsetaframbjóðandi re-
búblikana við forsetakosningar
nar í haust hefur hann mætt
nokkrum mótbyr síðustu dagana
fyrir flokksþingið. sem nú stend
ur yfir í Miami Beach. Þrátt fyr-
ir það er talið að hann eigi vís-
an stuðning meirihluta fulltrú-
anna á landsfundinum í fyrstu
atkvæðagreiðslunni, sem fram fór
í nótt, eða í annarri atkvæða-
greiðslu.
Ástæðurnar til þess að nokk-
urra efasemda hefur gætt í garð
Nixons eiga einkum rót sína að
rekja til þesis að vafi þykirleika
á að hann sé sigurstranglegur
frambjóðandi. Hann beið ósigur
í forsetakasningunum 1960 og
sigurlíkur hans eru síður en svo
betri að þessu sinni.
Rockefeller: vinsælastur
Nýleg skoðanakönnun sýnir, að
ef Nixom hlýtur útnefninguna er
líklegt að hann tapi í forseta-
kosningunum, hvort sem mót-
frambjóðandi hans verður Hu-
bert Humphrey varaforseti eða
Eugen McCarthy öldungadeild-
arþingmaður.
Rockefeller vinsælastur.
Hins vegar sýndi þessi sama
skoðanakönnun að NeLson Rocke
feller, ríkisstjóri í New York,
er langvinsælastur þeirra sem
sækj ast eftir tilnefningunni í Mi
ami, og getur hamn auðveldlega
sigrað hvern þann stjórnmálaleið
mm
Nixon segir við Humphrey: —þegar við höfum verið útnefnd-
ir skulum við hefja umræður um nýjar og kraftmiklar úr-
bætur á vandamálum þjóðféla gsins.
toga, aem demókratar velja I
forsetaaframboðið. Vinsældir
Rockefeller hljóta að hafa veru
leg áhrif á afstöðu landsþings
fulltrúanna, þótt eftir eigi að
’koma í ljós hvort þær ráði út-
slitum, enda eru átta ár liðin
síðan repúblikani sat í forseta-
stóli og repúblikanar eiga aér
enga ósk heitari en að sigra að
þessu sinni.
Á hinn bóginn mælir margt
með Nixon í augum sannra
flokksmanna. Hann var varafor
seti Eisenhowers og nýtur etuðn
ings hams nú. Auk þess hefur
það bætt aðetöðu hans, að hon
um er ógnað bæði a-f hægri og
vinstra armi flokksims — hægri
sinnanum Ronald Reagan og um
bótasinnanum Rockefeller. Hörð
um repúblikönum er meinilla við
Rockefeller því að þeim finnst
hann of vinstrisinnaður. Rsagan
®tendur mjög langt til hægri í
flokknum og er illa þokkaður
af framfarasinnum.
Þannig stendur Nixon í miðj-
unni og ef til vill er hann eimi
maðurinn sem sameinað getur hin
andstæðu öfl í flokknum.
Demókratar næstir.
Það sem gerist á landsfundi
repúblikana í Miami getur haft
mikil áhrif á landsfundi demó-
krata og val hans á frambjóð-
anda flokksins við forsetakosn-
ingarnar. Ef repúblikanar út-
nefna Nixon má telja vist
að demókratar útnefnd
Humphrey, en hins vegar
hefur því verið spáð að demó-
kratar tilnefni McCarthy forseta
efni ef repúblikanar tilnefna
Rockefeller og að þá mundi
þriðji frambjóðandinn, George
Wallaoe frá Alabama, fá geysi-
mikið fylgi, og jafnvel ráða úr-
slitum í kosningunum.
Veik von um
samkomulag?
Almenningur í Brno undirritar
fyrir viðræðumar í Ciema.
áskoranir til forystu tékkósióvakíska kommúnistaflokksins
ÝmisLegt hefur þótt benda
til þess að undanförnox, að Norð
ur Víetnamar hugleiði þann mögu
lei'ka að draga úr stríðsaðgerð-
um sínum til þeas að koma því
til leiðar að Bandaríkjamenn
hætti öllum loftárásum sínum á
Nor ður-Vietnam.
Þessar fréttir hafa veriS dregn
ar í efa í Washington, og í þvl
sambandi er minnt á yfirlýsing-
ar þær er Johnson forseti og
Dean Rusk utanríkisráðherra
gáfu um Vietnammálið í síðustu
viku. Johnson vísaði á bug til-
lögum um, að loftárásum sunnan
við 20. breiddarbaug yrði hætt
á þeirri forsendu, að Norður-
Vietnamar hefðu stóraukið liðs-
flutninga sína suður á bóginn,
sennilega í því augnamiði að
hefja nýja stórsókn í Suður-Viet
nam. Rusk mæltist til þess, að
ábyrgir aðilar í Hanoi stegðu
beint eða óbeint hvað gerast
mundi ef öllum loftárásum á
Norður-Vietnam yrði hætt.
Sérsamningnr?
Síðan hafa samningamenn Han
oi-stjórnarinnar í Parísar- við-
ræðunum svarað þessum yfirlýs
ingum á þá lund, að bandarísk
ir leiðtogar sér „fyrirlitlegir lyg
arar“ og reyni að herða á stríð-
inu um leið og þeir tali um
frið. Hins vegar hafa norður-vi
etnamskir fulltrúar í París gef-
ið í skyn í einkasamtölum að
dregið hafi vierið úr stríðsað-
gerðum í Suður-Vietnam, að það
beri vott um stillingu og hafi
pólitíska þýðingu. Norður-Viet-
namar hafa krafizt þes», að
Bandaríkjamenn hætti öllum loft
árásum áður en viðræður verði
hafnar um önnur mál á Parísar-
fundinum. Rusk hefur sagt, að
Bandarí'kjamenn séu fúsir að
hætta loftárásum ef vissa fáist
fyrir því að Norður-Vietnamar
dragi úr stríðsaðgerðum og megi
gera um þetta sérstakan samn-
ing.
Á því er enginn vafi, að drteg
ið hefur til muna úr bardögum
í Suður-Vietnam á undanförn-
um vikum, og hefur mannfall í
liði Bandaríkjamanna minnkað.
Tæpur einn og hálfur mánuður
er nú liðinn síðan síðustu eld-
flaugaárásirnar voru gerðar á
Saigon. En Bandaríkjamenn segja
að skýringin sé sú að Norður-
Vietnamar endurskipuleggi nú
lið sitt af kappi og segja að af-
staða þeirra hafi ekki breytzt.
Þeir eru sannfærðir um, að Norð
ur-Vietnamar búi sig nú und
ir þriðju stórárásina á Saigon
og aðrar borgir í Suður Viet-
nam síðar í þessum mánuði. Eft-
ir á að koma í ljós, hvort þessi
spá reynist rétt. í þessu sam-
bandi er athyglisvert að því hef
ur verið fleygt að Johnson for-
seti hyggist stöðva allar loftár-
ásir á N-Vietnam fyrir flokks-
þing demókrata í Chicago. .