Morgunblaðið - 08.08.1968, Page 17
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 8. ÁGÚST 1968
17
Kom með um 60 nýjar jurtateg. frá Genf
Gróðursetur þœr í Grasagarðinum á Akureyri
JÓN Rögnvaldsson, forstjóri
Grasagarðsins á Akureyri, er
nýkominn frá Genf þar sem
voru n-ægir til að flytja fyrir-
lestrana því áð þarna voru
staddir forstjórar frá grasgörð
um um allan heim. Hátíðin
hófst mánudaginn 29. júlí og
þeir voru margir sérfræðing-
arnir sem tóku til máls.
Raunar talaði næstum hver
einasti á sínu eigin tungu-
máli, og þar sem túlkar voru
ekki við hendina er hætt við
að einhver hluti fyrirlestr-
anna hafi farið fyrir ofan
garð og neðan hjá sumum. En
þegar hugsa þarf um víðáttu-
mikinn grasagarð þarf tölu-
verðan fjölda garðj'rkju-
manna. Þá er og annað að
garðarnir eru flestir í ná-
grenni borga og það líður
ekki á löngu þar til einhver
gráðugur kaupsýslumaður fer
að gefa fegurðinni auga og
hugsa um hverskonar dýrðar
steinbákn mætti nú byggja
þarna. Vegna vaxtar í borg-
um og mikilla byggingafram
kvæmda er því landsvæ'ði það
ur fjallshlíðar eins og kinda-
hópur. Þetta var í Alpafjöll-
unum, og landslagið mjög fag
urt. Við byrjuðum auðvitað
strax að safna jurtum og ég
náði í einar 50—60. í raun-
inni hefði ég þurft að hafa
prívat bíl við þessa söfnun,
það var dálítið erfitt um vik
að vera í rútubíl þar sem allir
voru safnandi og hvergi mátti
tylla niður fæti án þess að
eiga á hættu að einhver tæki
upp skaðræðisöskur vegna
þess að maður var að merja
einhverja jurtina hans.
— Ég ætla að gróðurseta
þessar plöntur um leið og ég
kem til Akureyrir. Fyrst set
ég þær í sólreit til að sjá
hverjar þeirra lifa af vetur-
inn, svo kem ég mér upp
Alpareit.
— Hvað er garðurinn á Ak-
ureyri stór, og hvað ertu með
af jurtum þar?
— Hann er um 3 hektarar.
Eins og þú veizt, eða ættir að
vita, er talið að hér vaxi um
440 tegundir. Á Akureyri er-
um við með um 2400 tegund-
ir í garðinum, þar af eru um
2000 erlendis frá. Við höfum
t.d. ræktað Grænlandsreit,
Noregsreit og lækningajurta-
reit svo að eitthvað sé nefnt.
— Fyrst við erum að tala
um tegundir þykir mér rétt
að geta þess að ég sá mikið
af jurtum þarna úti, sem vaxa
hér og þrífast engu verr. Ég
tók líka sérstaklega. eftir því
— mér til mikillar ánægju —
að margir garðar hér í Reykja
vík og á Akureyri, gefa ekkert
eftir þeim sem ég sá úti í
Genf. Þar tel ég auðvitað ekki
skrautgarðana með, skraut-
garðarnir í Genf voru margir
hverjir ólýsanlega fallegir.
Er. húsagar'ðarnir hér eru
sumir boðlegir hvar sem er í
heiminum.
Jón Rögrívaldsson.
hann var viðstaddur hátíða
höld vegna 150 ára afmælis
grasagarðsins þar.
Jón kom ekki alveg tóm-
hentur til baka, þótt tíminn
væri naumur tókst honum að
krækja sér í einar 50-60
jurtategundir sem ekki vaxa
hér á landi. Morgunblaðið
átti stutt samfal við Jón nú
í vikunni.
— Þessi hátíðahöld tóku
alls sex daga. Þrír dagiar fóru
í viðræður og fyrirlestra, það
Biómaklukka í Genf.
flestir þeirra voru með lit-
skuggamyndir og menn drtógu
svo sínar ályktanir af þeim.
— Það kom fram að grasa-
garðar um allan heim eiga nú
í miklum erfiðleikum, eink-
um vegna skorts á vinnuafli
og landrými. Vinnuaflið er nú
or'ðið mun dýrara en það var
fyrir bara nokkrum árum, en
fæst undir grasagarða mjög
takmarkað.
— Þú komst svo með tölu-
vert af jurtum til landsins?
— Já, ég gat safnað nokkru,
þótt aðstaðan væri ekki góð.
Þegar fyrirlestrunum lauk
var farið með okkur í ferða-
lag og næstu þrjá daga vor-
um við rennandi upp og nið-
t þessum hlíðum safnaði Jón jurtunum sem hann kom með
— Róðurinn þungur
Framhald af bls. 8
var kominn til borgarinnar væri
ekki hægt að láta hjá líða að sjá
þennan leik.
— Ég sé flesta leikina, sem
fram fara í Vestmannaeyjum,
sagði Jónas, — enda hæg heima
tökin hjá mér, þar sem ég á
heima í gagnfræðaskólanum sem
er rétt við knattspyrnuvöllinn.
— Það er mikill áhugi á knatt
spyrnu í Eyjum og hann hefur
stóraukist við það að strákam-
ir náðu sæti í I. deild.
— Ég held að Vestmannaeying-
ar verði ekki neðstir í deildinni,
þeir hafa nú fjögur stig á móti
tveimur stigum Keflvíkinga.
Annars hafa strákarnir ekki
staðið sig eins og vonir stóðu
til eftir fyrsta leik þeirra, en
þá sigruðu þeir Íslandsmei'star-
ana.
Er hér var komið sögu var
leikurinn að byrja og við spurð-
um Jónas að lokum að því hvort
hann héldi að þjóðhátíðin sæti
nokkuð í fótunum á Vestmanna
eyingunum:
— Ja, hún hefur náttúrulega
ekki haft góð áhrif á þá alla,
sagði Jónas, — en þetta eru nú
ungir og hraustir menn sem senni
lega eru búnir að jafna sig.
Það verður sennilega ein sýning-
in til
Haraldur Einarsson sagðist allt
af fara á völlinn þegar KR væri
að keppa, og hann hefði séð alla
KR leikina í sumar. Og hann var
ekki í vafa hvaða lið mundi
sigra í fslandsmótinu: Ef við höf
um Þórólf er ekki vafi á því að
KR sigrar í mótinu sagði hann.
— Hvað heldur þú um leik
Vals og Benfica í haust?
— Æ, ég veit ekki. Ætli það
verði ekki ein sýningin í viðbót.
Ég ætla að horfa á Benfica í
sjóinvarpi'nu í kvöld, fyrst þeir
voru svona almennilegir að láta
láta þennan leik byrja
svona snemma.
Úrslitaleikurinn á Akureyri
Jón Einansson kvaðst vera
KR-ingur og hafa það að fastri
reglu að mæta á vellinum þegar
þeir spiluðu. Hann sagðist telja
að KR-ingar væru sigurstrang-
legir, ef þeir yrðu ekki fyrir
meiri skakkaföllum vegna
meiðsla leikmanna.
Um leik Vals og Benfica sagði
hann:
Ég hef hugsað mér að fara á
völlinn. Ég hugsa að þeir leggi
ekki mikla áherzlu á að sigra
stórt hér í Reykjavík, sennilega
svona 5-6 mörk. Þeir spila senni
lega á fullu fyrsta korterið og
slappa síðan af.
Það verður erfiður róður
Að lokum ræddum við svo við
Þorstein Karlsson og Ddnald
Rader. Báðir sögðust þeir fara
oft á völlinn, en Þorsteinn sagð-
ist • þó fara sjaldnar en áður.
Þeir voru sammála um að KR-
ingar mundu sigra í mótinu, „þó
að ég sé síður en svo KR-ing-
ur,“ sagði Þorsteinn.
— Hvernig lýst ykkur á heim-
sókn Benfica?
Donald: Það fara allir á völl-
inn þegar þeir koma.
— Hvað haldið þið um úrslit-
in?
Donald: Ætli þeir vinni ekki
með svona 3-4 marka mun hér
í Reykjavík.
Þorsteinn: Þeir mega tæplega
vinna stærra hér, ef þeir ætla
að fá einhverja aðsókn úti.
Donald: En í Portúgal verður
erfiður róður fyrir Val og ekki
ósennilegt að Benfica sigri með
10-15 marka mun.
Þorsteinn: Já, ef þeir nota
sína beztu menn.
Lengur gátum við ekki spjallað
við þá félaga, því nú var leikur-
inn byrjaður af fullum krafti og
áhorfendur voru farnir að láta til
sín heyra. Og auðvitað vildu
þeir af engu missa.
— stjl^
- NÍGERÍA
Framhald af hls. 1
viku, að Frakkar styddu Biafra.
Ekkert hefur enn heyrzt um við-
brögð Biaframanna við tillög-
unni, en Ojukow dvelst nú á
Fílabeinsströndinni. Brottför
hans frá Addis Abeba dró mjög
úr bjartsýni manna um að ár-
angur kynni að nást.
Miklar deilur urðu í gær, er
fulltrúi Nígeríu lýsti því yfir
að engir útlendingar skyldu sitja
fundinn, en fulltrúar frá Gabon
sitja með sendinefnd Biafra. Þess
ir fulltrúar fóru með Ojufeow til
Fílabeinsstrandarinnar. Ifiegwu,
upplýsingamálaráðherra Biafra
sagði í morgun að þessi krafa
Nígeríumanna, væri óbein skip-
un til Biaframanna að hafa sig
heim. Hann sagði áð krafan hefði
verið sett fram í þeim tilgangi
að tefja fundarhaldið, svo að
Nígeríuher gæti unnið hernaöar
legan sigur áður en hægt væri
að ljúka friðarviðræðum. Hann
sagði að fulltrúamir frá Gabon
hefðu aðeins veri’ð áheyrnarfull-
trúar og ráðgjafar og að það
hefði verið Enahoro sjálfur, sem
lagt hefði til að báðir aðilar
fengju að hafa með sér ráð-
gjafa. Eke sagði einnig að ástand
i'ð í Biafra færi nú dagversnandi
og hét á alla að flýta hjálpar-
starfinu í Biafra, til þess að
koma í veg fyrir að milljónir
létuzt úr hungri.
Næsti fundur verður haldinn
á morgun, föstudag og munu
fulltrúarnir því hafa einn dag
til að ræða tillögu Nígeríu og
annað sem fram kom á fundin-
um í dag.
• ------------♦ ♦ ♦-------
- ÍÞRÖTTIR
Framh. af hls. 22
Ásgeir Ragnarsson, ÍR 5,90
Hannes Guðmundsson, Á 5,85
STÚLKUR.
100 m. hlaup:
Kristín Jónsdóttir, UBK 12,9
Þuríður Jónsdóttir, HSK 13,4
Sigríður Þorsteinsdóttir, HSK 13,5
Unnur Stefánsdóttir, HSK 13,6
80 m. grindahlaup:
Þuríður Jónsdóttir, HSK 13,1
Bergþóra Jónsdóttir, ÍR 13,6
Unnur Stefánsdóttir, HSK 13,6
Sigurlaug Sumarliðad., HSK 15,2
Kringlukast:
Ingibjörg Guðmundsd. HSH 31.41
Guðbjörg Sigurðard., UMSB 28,30
Sigurlína Hreiðarsd., UMSE 27,95
Kristjana Guðmundsd., ÍR 28,52
Hástökk:
Ingunn Vilihjálmsdóttir, ÍR 1,50
Hafdís Helgadóttir. UMSE 1,50
ína Þorsteinsdóttir, UMSK 1,44
Stangarstökk:
Guðjón Magnússon, ÍR 3,10
200 m. hlaup:
Kristín Jónsdóttir, UBK 27,2
Þuríður Jónsdöttir, HSK 28,0
Sigríður Þorsteinsd., HSK 28,2
Pnnur Stefánsdóttir, HSK 28,2
Unnur Stefánsdóttir, HSK 28,8
Kúluvarp:
Sigurlína Hreiðarsd., UMSE 9,85
Hildur Hermannsd., HSK 9,33
Kristjana Guðmundsdóttir, ÍR 8,92
Kristín Davíðsdóttir, UMSK 8,36
Spjótkast:
Alda Helgadóttir, UMSK 31,26
Eygló Hauksdóttir, Á 30,25
Sólveig Þráinsdóttir, HSÞ 28,56
Hrefna Sigurjónsdóttir, ÍR 27,21
Langstökk:
Kristín Jónsdóttir, UMSK 5,02
Þuríður Jónsdóttir, HSK 4,93
Unnur Stetfánsdóttir, HSK 4,67
Hafdís Helgadóttir, UMSE 4,64
Meðvindsárangur:
Guðrún Jónsdóttir, KR 4,88
RITSTJÓRN • PRENTSMIÐJA
AFGREIÐSLA*SKRIFSTOFA
SÍMI 10*100
CARÐUR - KEFLAVÍK
Til sölu er glæsilegt einbýlishús í Garði. Skipti á húsi í
Keflavík eða Njarðvík koma til greina.
Fasteigisaaala ViKhjánus og Guðfinius,
sími 237-6, Keflavík.
Ung þýzk hjón
með eins árs barn, óska eftir lítilli íbúð í Hafnarfirði,
Kópavogi eða Reykjavík. Æskilegt eldhús, svefnherb.
og stofa með húsgögnuni. Tilboð sendist í box 243
í Hafnarfirði.
Spánn — ísland
Ms. Arnarfell
lestar í Vallencia kringum 21. ágúst og einnig er áform-
uð viðkoma í Atmeria.
Flutningur óskast skráður sem fyrst.
Skipadeild S.Í.S.