Morgunblaðið - 08.08.1968, Side 20
20
MORGUNiBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 8. ÁGÚST 1968
nokkurt okkar með öllum mjalla
þegar tilfinningarnar verða fyr-
svona áfalli? Seinna meir lítur
maður um öxl til þess, sem mað
ur hefur gert og spyr: — Gæti
ég hafa sagt þetta? Gæti ég hafa
hagað mér svona?
Pam vissi að Phyllis fór alltaf
niður í káetuna sína hálftima fyr
ir hádegisverð, til þess að laga
sig til. Hún fór nú þangað, en
fann káetuna mannlausa og hurð
ina í hálfa gátt, svo að hún sett-
ist niður og beið. Ásakanir,
skammir og meinlegar setning-
ar voru i einni hringiðu í huga
hennar. Hún skyldi færa Phyll-
is heim sanninn um það, að hún
gæti ekki auðmýkt hana opin-
berlega án þess að þurfa að svara
fyrir það. Hún skyldi segja henni
afdráttarlaust álit sitt á henni,
þó svo ætti að deyja!
Hún þurfti ekki lengi að bíða.
Eftir nokkrar mínútur kom Phyll
is. Hún kom eftir ganginu.m með
þrjár nýjar skáldsögur og kon-
fektkassa í hendinni. Hún át
nú aldrei sætindi, af hræðslu við
af aflaga á sér vaxtarlagið, en
bar samt alltaf stóran kassa með
sér. Og hún las nú heldur ekki
skáldsögurnar, en þær gátu gef-
in henni um ræðuefni. Hún gat
sagt við einn karlmann og síðan
við annan: „Hafið þér lesið þessa
bók? Það sú nýjasta hans N.N“
Og svo stóð alveg á sama, hvort
hann hafði lesið hana eða ekki.
Phyllis stanzaði í dyrunum og
starði á Pam. Sem snöggvast
fölnaði hún ofurlítið, kannski
hefur það verið vegna svipsins
á Pam. En á næsta andartaki
var hún farin að brosa og sagði
glaðlega:
— Halló, Pam, hvað ert þú að
vilja hérna? Ertu ekki að vinna?
— Nei, ég hef ekkert unnið í
allan morgun, frú Bevan, svar-
aði Pam.
Phyllis gekk inn og lagði frá
sér bækiurnar.
— Nú, heíurðu það ekki? —
Það hlýtur að hafa verið þægi-
legt fyrir þig, því að það er
alltaf gaman af fá frí svona
óvænt. En ég hélt bara, að þú
hefðir fleiri viðskipt'avini en þú
gætir sinnt.
—Tvær þeirra voru sjóveikar
í morgun, sagði Pam. — Ég átti
þess vegna frí í klukkustund og
hugsaði mér að fara út að
ganga á þilfarinu. Það vildi svo
til, að ég var þar stödd um ell-
efuleytið, frú Bevan.
Hún sagði þetta síðasta með
áherzlu, og það svo, að ofur-
lítill roði kom í kinnar Phyllis.
Og hún tók líka eftir því, að
Pam hafði tvisvar kallað hana
frú Bevan en ekki Phyllis, Hana
tók að gruna erindi stúlkunnar.
Og enda þótt hana grunaði sem
snöggvast, að Pam hefði orðið
áheyrandi að því, sem hún hafði
sagt, datt henni ekki í hug að
láta undan. Hún stóð upp kæru
leysislega og gekk að snyrtiborð
inu og fór að púðra sig.
Pam endurtók orð sín: — Ég
sagði, að ég hefði verið stödd
uppi á þilfari klukkan ellefu í
morgun.
Phyllis leit ofurlítið við.
— Varstu það, Pam? En ég sé
bara ekki hvað það getur komið
mér við?
—É er nú s'amt hrædd um
að það komi yður talsvert við,
frú Bevan, svaraði Pam — Þér
skiljið . . .ég heyrði það, sem
þér sögðuð um mig við einhverja
kunningja yðar. Þér sögðuð, að
eini áhugi Jeffs á mér væri vork
unnsemi, af því að Hugh hefði
svikið mig vegna systur hans.
Það varð andartaksþögn. And
litið á Phyllis var orðið dökk-
rautt. En samt missti hún ekki
þessa furðulegu sjálfsstjórn sína
— Nú, jæja, sagði hún loks,
með nokkrum erfiðismunum, —
þetta er víst ekki nema satt.
— Jú, það er satt, að ég
sleppti Hugh og skömmu ssinna
giftist hann systur Jeffs. svar-
aði Pam. — Én hvað eigið þér
við með því að segja frá því opin
berlega, að Jeff sé góður við
mig, aðeins vegna þess að hann
vorkenni mér? Röddin hálfbilaði
á síðasta orðinu.
Phyllis yppti öxlum. Nú var
hún komin í fullt jafnvægi aft-
ur.
— Ég veit ekki annað en það,
sem satt var, sagði hún. Jeff
sagði mér í gærkvöldi, að hann
væri bara góður við þig vegna
þess hwe illa Hugh og systir
Jeffs hefðu farið með þig. Hann
sagðist vera að reyna að bæta
úr því, þó í iitlu væri. Ég skal
játa, að ég hefði ekki átt að
vera að endurtaka það, sem
hann sagði við mig en maður seg
ir nú svo oft ýmislegt í svona
samtali, sem maður sér eftir
seinna.
22
♦ ♦♦-f
— Það kemur ekki málinu við
sagði Pam. — Mér er alveg sama
hvort þér sjáið eftir því eða
ekki. Og mér er lika sama, hvað
fólk heldur, en mér er ekki sama
um, hvort Jeff hefur sagt þetta
við yður eða ekki. Röddin varð
loks argamdi.
Eldri konan sneri sér hægt að
henni og röddin var köld og
ósvífin er hún sagði: — Hvers-
vegna hélztu þá, að hann væri
að vera almennilegur við þig?
Þú ert væntanlega ekki svo vit-
laus að halda það? Hún hló um
leið og hún sagði þetta. Þetta
var léttur hlátur en orkaði samt
illa á taugarnar í Pam. Og hún
fann að blóðið steig henni til
höfuðs.
— Jú, ég sé, að það hélztu,
hélt Phyllis áfram með þessari
ertandi uppgerðarsamansemi.
— Veslings krakkinn, þetta er
alveg stórfurðulegt! Skilurðu
ekki, að við Jeff. . . Hún gerði
þýðingarmikla þögn.
— Eg trúi því ekki, sagði Pam
með ákafa. Þér segið þetta bara
til þess að stía mér frá honum.
Þér eruð gift. Hvað gæti svo
sem verið milli ykkar Jeff?
Phyllis leit upp og á Pam
brosandi, eins og hún skemmti
sér.
— Þú ert væntanlega ekkial-
v'eg svona mikill sakleysingi?
sagði hún, háðslega.
Þessi hálfyrði komu eins og
hneíahögg framan í Pam. Og
juku enn á réiði hennar.
NÝTT - NÝTT
Það þarf ekki iengur að
fínpússa eða mála loft
og veggi ef þér notið
Somvyl.
Litaver
Grensásvegi 22—24.
Somvyl veggklæðning.
Somvyl þekur ójöfnur.
Somvyl er auðvelt að þvo.
Som\ryl gerir herbergið
hlýlegt.
Somvyl er hita- og hljóð-
einangrandi.
Það er hagkvæmt
að nota Somvyl.
Á lager hjá okkur
í mörgum litum.
Klæðning hf.
Laugavegi 164.
Mtúsmœður T
Óhreinindi og blettir, svo
sem fitublettir, eggja-
blettir og blóSblettir,
hverla ð augabragði, ef
notað er HENK-O-MAT f
forþvottinn eða til að
leggja í bleyti.
Siðan er þvegið á venju-
legan hátt úr DIXAN.
HENK-O-MAT, ÚRVALS VARA FRÁ
— Nei, ég er enginn sakleys-
ingi, sagði hún. — Og ég held
ég þekki Jeff. Hann mundi
aldrei sýna yður ástaratlot með
an þér eruð enn gift manninum
yðar.
En Phyllis brosti bara aftur,
eins og sá, s^m valdið hefur.
— Jæja, mundi hann það?
Mikið telurðu hann vera full-
kominn. Ekki svo að skilja, að
ég telji ekki Jeff fullkominn á
allan hátt, en góða mín, hann er
nú samt aldrei nema maður. Auk
þess bætti hún við dræmt, —þá
| veit hann hvað ég er óhamingju
söm í hjónabandi mínu.
Nú varð aftur þögn, en þá
sagði Pam: — Ef þér eruð svona
óhamingjusöm í hjónabandinu,
hvernig vitið þér þá, að Jeff sé
ekki bara að vera góður við
yðui af eintómri meðaumkun?
Ég var svikin af félaga hans.
Þér hafið, skilst mér, sætt illri
meðferð af manninum yðar. Ég
LITAVER
Teppi — teppi
Befgísk, þýzk og ensk gólfteppi.
Verð pr. ferm. frá kr. 255,—
Góð og vönduð teppi.
7 8. ÁGÚST
\ Hrúturinn Zl. marz — 19. apríl.
i Hugsjónir þínar ná fram að ganga í dag. Eitthvað er misvinda
/ samt í vonarheimi og vina. Farðu varlega í fjölmenni.
* Nautið 20. apríl — 20. maí.
1, Gerðu fullar varúðarráðstafanir, þótt það kunni að valda þér
smávegis óþægindum. Láttu ekki ókunnuga vera að fara með þín
einkamál, og haltu þig heima í kvöld.
Tvíburarnir 21. maí — 20. júni
Reyndu að sýna betri hliðina á þér í dag. Vertu ekki um of í
fjölmenni. Haltu þig við dagleg störf í stað þess að troða ókunnar
slóðir.
Krabbinn 21. júni — 22. júlí.
Kröftug eðlisávísun þín nær sér á strik, þótt þú skiljir það ekki
fyrr en fram í sækir. Gleymdu ekki daglegum störfum.
\ Ljónið 23. júlí — 22. ágúst.
Samvinna, eða hjúskapur, er stofnað er til í dag, á sér góða
framtíð. Opinber sambeppni verður erfið vegna óviðráðanlegra
hindrana. Haltu þig að háskaminni áformum, og hafðu háttvísina
í
hugfasta.
Meyjan 23. ágúst — 22. sept.
Þú verður að skipuleggja öll þín áform hárnákvæmlega, þvi
mikið er í húfi. Láttu ekki mikilvægi aiugnabliksins glepja þig
til hroðvirkni.
Vogn 23. sept. — 22. okt.
Áherzla er lögð á skapandi möguleika, einkamál og ungviði.
Þér verður einveran varanlegri hagnaður en samvinna við aðra.
Sporðdrekinn 23. okt. — 21. nóv.
í dag gefst þér sérlega gott tækifæri á að endurskipuleggja hlut
ina heima fyrir. Ef einihver andspyma finnst, þá er ekki ólíklegt,
að vinur taki sinnaskiptum.
Bogmaðurinn 22. óv. — 21. des.
Eitthvað lögu liðið minnir á sig, kannske dálítið óþyrmilega
Rasaðu ekki um ráð fram.
Steingeitin 22. des. — 19. jan.
Þetta verður þér góður dagur. Þér ætti að græðast eitthvað fjár,
þótt það kunni að kosta þig dálitla fyrirhöfn. Njóttu kvöldsins í
hópi þinna kærustu vina.
Vatnsberinn 20. jan. — 18. febr.
Athugaðu vel yfirborð og áferð hlutanna í dag. Kepptu að eigin-
hagsmunum.
Fiskarnir 19. febr. — 20. marz.
Hafðu hugann v:ð það sem þú ert að gera. Gerðu ráð fyrir ein-
hverju afar óvæntu.