Morgunblaðið - 29.08.1968, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 29.08.1968, Qupperneq 1
28 SÍÐUR 186. tbl. 55. árg. FIMMTUDAGUR 29. ÁBUST 1968________________________________ Prentsmiðja Morgunblaðsins Hernámið ólöylegt EIIMU SIIMNI VAR — segir tékkóslóvakíska þjóðþingið — Husek segir sig úr miðstjórninni Þessi fallega stytta stenður í safni einu í Bratislava i Slóvakíu og á að sýna slóvakískan skæruliða fagna rússneskum frelsara árið 1945. Við getum aðeins sagt: „Kinu sinni var ....“ Myndina fékk Morgunblaðið frá norska ljósmyndaranum T. Höeg. Prag, Moskvu, Belgrað, London, New York og víðar, 28. ágúst. AP-NTB. TÉKKÓSLÓVAKÍSKA þjóð- þingið samþykkti í dag ein- róma ályktun þar sem segir að hernám landsins af hálfu Varsjárhandalagsríkjanna 5 sé ólöglegt og hvatti stjórn landsins til þess að vinna að því með öllum ráðum að hernámsliðin hverfi á hraut úr landinu sem allra fyrst, því að hér sé um að ræða brot á Varsjárbandalags- samningnum, sáttmála Sam- einuðu þjóðanan og öðrum alþjóðasamningum. Álykt- unin er í 8 liðum og er svo- hljóðandi. 1. Áfram'haldandi hernám Ték'kóslóvakíu er ólöglegt og brot á sáttmála Samei'nuöu þjóð- an.ma og Va rs j á r ban d ala gss am n- iinginium. 2. Tékkóslóvakískiu sendinef.nd in.ni eru þakikaðar tilrauinir henn air í Moskvu til að binda endi á ihið óeðlilega ástamd, sem nú rík- ir í Tékkóslóvaikíu. 3. Tékkóslóvakíska þjóðþingið er fuLivíst um að Ték'kóslóvakía verður að vera innan sósíalíska samfélagsiins áfram. 4. Tékkóslóvakíska þjóðþingið er fullvíst um að tékkóslóvakís'ki herinn er einfær um að verja vesturlandamæri laindsins án að- stoðar erlendra herja og skorar á stjórnina að hún seti ákveðin tímatakmörk fyrir brottflutningi erlendiu herjanna hið allra fyrsta. 5. Þjóðþingið krefst þess að öll stjórnarmálgögn og fjölmiðlunar tækí fái að taka upp eðlileg og frjáls störf að nýju og 'krefst þess einnig að allir þeir þegnar sem ólöglega hafi verið hamd- téknir af erlendum og immlendum leyniþjónustumönnum verði þeg- ar í stað látnir lausir. 6. Þjóðþiingið krefst þess að frjálslyndis- og lýðræðiisþróunin í landiinu fái í öliurn grundvan- aratriðum að halda áfram hindr- unarlaust eins og miðstjórn kommúnistaflokksins og lögleg ■stjórn landsins ákveði. 7. Þjóðþingið mun næstu daga ræða efni þeirraæ skýrslu sem sendinefndin frá Moskvu hefur lagt fram. 8. Skorað er á ték'kóslóvakísku þjóðina að viðhaida stillingu sinni og einingu og forðast allar ögranir se mgætu leitt til nýrrar íhlutunar í mál þjóðar og ríkis. Stjómmálafréttaritarax telja að ástandið í landinu sé að þró- ast í þá átt að ógerlegt verði fyr- ir Dubcek aðalritara að fá nægi- legan.stuðning við samningiana í Moskvu áður en sovézku hersveit irnar hverfi úr landinu. — Velta margir því fyrir sér hvort svo kunni að fara að eiina úrræði Sovétstjórnarinnar verði að setja á stofn herstjórn í landinu. Telja miangir að Sovétstjómin verði að fara þessa leið vegna hinnar miklu hættu sem algjör brottflutningur hernámsliðamma Framhald á bls. 17 Bondoríski ambassadorinn í Guolemaln skotinn til bnnn Guatemala, 28. ágúst AP ÓÞEKKTIR ódæðismenn skutu í nótt til bana John Gordon Mein, ambassador Bandaríkj- anna i Guatemala. Ambassador- inn var á leið heim til sín í bif- reið er önnur bifreið ók í veg fyrir hann og stöðvaði. Reyndi ambassadorinn að komast und- an en var skotinn niður nokkra metra frá bifreið sinni. Ódæðis- mennimir komust undan. 16. jan úar sl. voru tveir aðrir banda- rískir diplómatar skotnir niður skammt frá staðnum sem atburð urinn í dag átti sér stað. Banda ríkjaforseti og stjórn hans hafa látið í ljós harm og hrylling yf- ir ódæðisverkinu og krafist taf arlausrar aðgerðar og rannsókn ar í málinu. Stálvilji Svoboda brást ekki Svaraði úrslitakostum Rússa með eigin úrslitakostum — Prag, 28. ágúst (NTB) VINCENT Buist, fréttamað- ur Reuters-fréttastofunnar í Prag, hefur átt viðtöl við fulltrúa úr miðstjórn tékkó- slóvakíska kommúnistaflokks ins og fengið hjá þeim ýms- ar upplýsingar um atburði undanfarinna daga, sem ekki hafa áður borizt fréttir af. Skýrðu þessar heimildir Bu- ists meðal annars frá hand- töku Dubceks daginn sem sovézkar hersveitir raddust inn í Prag, og frá frábærri frammistöðu tékkóslóvakísku fulltrúanna í viðræðunum í Moskvu. Alexander Dubcek var staddur in-ni í einkaherbergi sínu í aðalstöðvum kommún- istaflokksins í Prag þegar sovézkir fabhlífahermenn umkringdu húsið, segja þess- ar heimildir. Var Dubcek að tala í síma og reyna að afla sér upplýsinga um innrásina í landið, þegar foxingi úr ör- yggissveitunum sovézku og tveir sovézkir hermenn, vopn aðir hríðskota'byssum, rudd- ust inn í herbergi hans. Hrifs uðu þeir símann úr höndum Dubceks og slitu simaleiðsl- una. Voru þeir Dubcek og nánustu samstarfsmenn hans síðan læstir inni í herbergi einu í aðalstöðvunum. Heimildarmaður Buists um þetta atriði var staddur í að- alstöðvunum þegar Dubcek var handtekinn. Segir hann, að þar hafi þá einnig verið staddir þeir Josef Smrkov- sky, þingforseti, og Oldrich Cernik, forsætisráðherra. Greip Smrkovsky nokkra sykurmola, stakk þeim í vasa sinn, og sagði: „Ég kem til með að þurfa á þeim að halda“. Heimildin hermir að Dubcek hafi verið ógnað í að- alstöðvunum, en síðan hafi hann verið fluttur nauðugur ásamt þeim Smrkovsky og Cernik með sovézkri herflug- vél til leynilegrar sovézkrar herstöðvar í Slóvakíu þar sem þremenningarnir voru hafðir í haldi í sólarhring. Sat Dubcek á gólfi flugvélar- innar á leiðinni þangað. HÓTANIR Eftir að þremenningarnir voru handteknir, hélt Ludvik Svoboda forseti, flugleiðis til Moskvu, segja þessar heim- ildir ennfremur. Þar voru honum settir úrslitakostir. Ef hann ekki féllist á breytingar á ríkis- og flokksstjórnunum í Tékkóslóvakíu, yrði Sló- vakía gerð að sérstöku Sov- étlýðveldi, og Bæheimur og Mæri að sjálfstjórnarríkjum undir sovézku eftirliti. Stálvilji Svoboda brást Frarahald á Hs. 12.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.