Morgunblaðið - 29.08.1968, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 29.08.1968, Blaðsíða 18
MORGUNRLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 29. ÁGÚST 1968 Tómas Nikulásson — Minningarorð Þann 12. þ. m. var í Rieykjavík gerð útför Tómasar Nikulás- sonar, Rauðalæk 41. Hann var íæddur að Teigagerði við Reyð- arfjörð 12. ágúst 1880, og hefði því orðið 88 ára daginn, sem hann var lagður til hinztu hvíld- ar. Foreldrar hans voru hjónin Sigríður Jónsdóttir og Nikulás Gíslason. Hann var stór barna- hópurinn í Teigagerði, og ungur að árum missti Tómas foreldra sína. Elzta systir hans, Anna, sem gift var Jens Olsen, tók hann þá til fósturs, og ólst hann þar upp á mætu heimiii þeirra hjóna. Tómas byrjaði ungur að vinna fyrir sér og stundaði aðal- lega sjóróðra þar eystra. Þann 4. marz 1901, kvæntist hann Þorgerði Jónsdóttur frá Sómastaðagerði í Reyðarfirði Var hjónaband þeirra með þeim ágætum að fágætt var, en hann t Eiginkona mín, Severine Sörheim Valtýsson Hafnarstræti 93, Akureyri, andaðist aðfaranótt 22. ágústs sl. Bálför hefur farið fram. Fyrir hönd allra aðstandenda. Helgi Valtýsson. t Eiginkona mín og móðir min, Edith V. Guðmundsson, lézt 27. þ.m. Eggert F. Guðmundsson, Thor B. Eggertsson. missti sína mikið góðu konu árið 1954. Þau eignuðust 7 börn, tvo drengi misstu þau unga, en fimm komust til fullorðins ára. Þau eru: Sigríður, gift Vilbergi Pét- urssyni, Jón, er lézt 1964, Arthur, ’kvæntur Þóru Kristins- dóttur, Jens, ókvæntur og bjó alla tíð með föður sínum, og Ásta gift Einari Sigurðssyni, en með þeim áttu þeir feðgar fafnan heimili utan 6 ára, sem Jóhanna Olsen, fóstursystir Tómasar, annaðist þá. Árið 1929 fluttist Tómas með fjölskyldu sína til Reykjavíkur, og stundaði hann hér ýmsa atvinnu, vann lengst af hjá Agli Vilhjálmssyni, eða í u.þ.b. 17 ár. Var hann vel liðinn þar eins og allsstaðar, og senni- lega ekki tilviljun ein, að hann fékk hvílustað rétt hjá sinum fyrrverandi vinnuveitanda, sem skömmu var horfinn á undan honum. Elsku afi minn, þakklát minn- ist ég allra okkar góðu stunda saman, þegar við gengum saman yfir Öskjuhlíðina í kafaldsbyl og ég faldi hönd mína í traust- um, hlýjum lófa þínum. Þegar þú komst til mín á Þorláks- messu ár eftir ár og reyttir fyrir mig jólarjúpumar, og núna s.l. vor, þegar við fengum öll að vera hjá þér og annast þig í í eina viku. Þú varst svo yndis- iegt og hugljúft gamalmenni og skarðið, sem þú skilur eftir, verð- ur aldrei fyllt. En við megum ekki vera eigingjörn. Amma leyfði okkur að hafa þig í 14 dásamleg ár, og við samgleðj- umst henni öll að vera búin að fá þig til sín aftur. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir a'llt og allt. Svava. Stúlko óskost ú skrifstofu Tilboð er greini menntun og fyrri störf leggist inn á afgreiðslu Morgunblaðsins fyrir 3. sept. n.k. merkt: „6993“. Röskur og úbyggilegur sendisveinn sem getur vei'ið áfram næsta vetur óskast nú þegar. H/F Ölgerðin Egill Skallagrímsson Laugavegi 172. t Fósturmóðir okkar og systir, Margrét Bjarnadóttir Bólstaðarhlíð 34, lézt í Landsspítalanum 27. ágúst. Erla K. Bjarnadóttir, Gunnlaug B. Jónsdóttir, og systkin hinnar látnu. t Bálför bróður míns, Garðars Söebeck Jónssonar frá Bíldudal, fer fram frá Fossvogskirkju föstudaginn 30. ágúst kl. 10.30. Fyrir hönd ættingja. Guðný Jónsdóttir Bieltvedt. Innilegar þakkir færum við hjónin öllum þeim er færðu okkur hlýjar kveðjur, gjafir, heillaskeyti. blóm og heim- sóttu okkur vegna 50 ára hjú skaparafmælis okkar og 80 ára afmælis konu minnar. Guð blessi ykkur ölL Rósa Jónsdóttir, Sigurpáll Þorsteinsson. t Konan mín, móðir okkar, tengdamóðir og amma, Anna Guðjónsdóttir Reynistað í Leiru, verður jarðsungin frá Kefla- víkurkirkju föstudaginn 30. ágúst kl. 2 e.h. — Þeim sem vildu minnast hennar er bent á Slysavamafélagið. Fyrir hönd vandamanna. Ingólfur Sigurjónsson. t Þökkum innilega auðsýnda samúð og vinarhug við and- lát og útför, Guðjóns Péturssonar bónda, frá Gaul í Staðarsveit. Una Jóhannesdóttir, börn og tengdabörn. Innilegar þakkir færi ég öll- um þeim sem á svo margan hátt sýndu mér góðvild og elskusemi á 70 ára afmæli mínu. Kærar kveðjur til ykkar allra. Sveinn Þórðarson, Túngötu 49. Kona óskast íslenzk eða erlend, til að annast fjögurra manna heimili fyrri hluta dagsins. Nýtízku ibúð, öll þægindi. Kaup eftir samkomulagi. Baldur Ingólfsson, Háaleitisbraut 24, sími 35664 eftir kl. 16. Úrslitaleikur um réttindi til að leika í 7. deild árið 7969 fer fram á Laugardalsvelli kl. 7.15 í kvöld milli Akranes og Keflavík Mótanefnd. Skólotöskur flllt ú börnin í skólnnn Miklatorgi, Lækjargötu 4, Akureyri, Vestmannaeyjum, Akranesi Húsmæður! Húsmæður! Fimmtudagar — innkaupsdagar Matvörur — hreinlœtisvörur Aðeins þekkt merki Flestar vörur undir búðarverði OPIÐ TIL KL. 10 í KVÖLD t Þökkum auðsýnda samú'ð og vináttu við andlát og útför, Óskars Þorvarðarsonar frá Eystri-Tungu. Fyrir hönd bræðra og fóstur- systra. Sigrún lsaksdóttir. t Innilegar þakkir fyrir auð- sýnda samúð og vinarhug við andlát og jarðarför, Sigurlínu Jónsdóttur frá Hlíð, Austur-Eyjaf jöllum. Sömuleiðis þökkum við öll- um þeim sem heimsóttu hana og glöddu í veikindum hennar undanfarin ár. Vandamenn. Alúðarþakkir færi ég öllum, sem minntust mín og sýndu mér margvíslega vinsemd og hlýhug í sambandi við 75 ára afmæli mitt 20. þ.m. — Guð blessi ykkur ölL Margrét Jónsdóttir, rithöfundur. Innilegar þakkir til allra fjær og nær, fyrir auð- sýnda samúð og hlýhug við andliát og jarðarför eigin- manns míns, föður okkar, tengdaföður og afa, ÞÓRÐAR H. JÓHANNESSONAR frá Viðey. Sérstakar þakkir eru færðar Olíufélaginu h.f. Sólveig Sigmundsdóttir, Kristjana Þórðardóttir, Sigrún Þórðardóttir, Ásgeir Einarsson, Sigmundur Þórðarson, Asgerður Kristjánsdóttir, Sigríður Þórðardóttir Smith, Magnús Smlth, Sigurður Þórðarson, Hildur Vilhjálmsdóttir og barnaböm.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.