Morgunblaðið - 29.08.1968, Side 21

Morgunblaðið - 29.08.1968, Side 21
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 29. ÁGÚST 196« 21 Datt þetta ekki í hug — það bara kom svona HÉR á ferð er Árnl Egilsson, sonur hjónanna Ástu Norð- mann og Egils Ámasonar, stórkaupmanns, en Ámi er einleikari á kontrabassa með Sinfóníuhljómsveitinni í Hou ston í Texas, undir stjóm Sir John Barbirollis og Andre Prevens. Hann er þar búsettur ásamt konu sinni, þýzkrar ættar. Frúin er einnig listakona, for stjóri í lei'klistardeild Houst- on Háskóla, og kennari í leik- list og látbragðsleik (ásamt því, að veira kjaimorkueðlis- fræðingur), en hún lærði lát- bragðsleik hjá Marcel Mar- oeau. Árni er að koma úr hljóm- leikaför á Listavikunni í Klosters í Sviss. 'Hann leit inn á Morgunblað, og svaraði nokkrum spurningum. — Hvenær komstu hingað, Árni? — Sunnudaginn 1«. ágúst, — með seinkun! — Svo? — Já, það er algild regla, virðist vera, ég var einum og hálfum degi of seinn til Evr- ópu á leiðinni í hljómleikaför ina. — Með hvaða hljómsveit lékuð þið þar? — Með Ostsohweitzer Kammeirorohester undir stjórn Urs Schneider, sem er fyrrverandi nemandi Otto Klemperers. — Hvemig voru hljómleik- arnir fyrir þig? — Ég lék níu einleikskon- serta og sjö með öðrum, alls sextán á einni viku. — Vel gert! En þetta eru allt svo stórmerk nöfn í mús- íklheimimum, sem þú hefur þegar nefnt. Hvað er með Anctré Preven? — Hann er jazz- og kvik- myndatóniistarmaður, en er að taka við Houston Symfón- íuhljómsveitinni, sem ég hef ieikið hjá í s.l. 3 ár og verður aðal stjórnandi hjá Houston Sinfóníunni og Lundúnasin- fóníunni. — Hefurðu leikið mikið með Pireven? — Já, í maí lauk ég við fjóra jazzkonserta með Preven á píanó, og Jimmy Simon, á trommur. — í>ú skrifar iíka tónlist frá eigin brjósti? — Ég spi-la meira en ég skrifa, en ef ég skrifa, þá er það aðallega fyrir sjálfan mig og konuna mína, og þá tón- liist eingöngu fyrir látbragðs- leik hennar. Hún átti að fara til Prag á aiþjóðlegt mót lát- hragðsleikara, en mér lízt ekki á svoleiðis ráp núna! — Þegar við komium heim, eigum við að koma fram í sjónvarpsþætti Johnny Car- sons og eigum bæði að leggjar eitthvað af mörkum til skemmtunar áhorfenda. Það er gaman að geta unn ið saman. — En hvað hyggstu svo fyr ir í fánlistinni? — Fyrst fer ég að spila jazz og síðan klassík, það er dálít- ið skemmtilegt. — Er þetta ekki dálítið sjaldgæf íþrótt, sem þú iðk- ar? — Jú, það eru aðeins tveir aðrir í Bandaríkjunum, sem leika einleik á kontrabassa, þeir Gary Carr og Turetsky. En enginn gerir það í Evr- ópu. — Hverslags hugmyndaflug var þetta þá eiginlega hjá þér? Árni Egilsson, einn af þremu einleikurum heimsins á kontra bassa! — Nú, mér datt þetta ekk- ert í hug, það bara kom svona .... — Ég fier iíka að spila 7 mínútna langam kon- sert fyrir kontrabassa og elek trónískt segulband, þegar ég kem heim, eftir Whitenberg. Annars finnst mér miklu fall egra að kalla þetta tónband, eins og Þjóðverjinn. — Samþykkt! Fyrir hvem ertu að leika þetta? — Fyrir nútímamúsík- klúbb í útvarpið. Þeir sjá um kynningar á nútímamúsík. — Og ætlarðu nú að halda áfram á þessari breiðu braut? — Já, eins og bandvitlaus. Það tilheyrir nú! Annars lang ar mig að kyrnna íslenzka tón list fyrir vestan. Nútíma, það er að segja. Ég ætla upp í Tónskálda- félag íslands og athuga málið þar. — Svo já? — Já, ég kanmagt sjálfsagt við þá þar. Einu simni lék ég Sögusinfóníuna eftir Jón Leifs. — Já, þú ert bara svona hress! En heyrðu annars, af hverju valdirðu Bandaríkin sem aðsetur? — Ég fór út að læra til Hamborgar, og giftist þar kon unni minni, sem er þýzk. Nú það var lítið að gera hér. Þeir buðu mér aldrei stöðu hér. — Var það svona etutt og laggott? — Nei, kannske ekki, en eft ir fimm ár í Þýzkalamdi lang aði mig til Bamdaríkjanma. Fyrst fór ég til Dublin og lék þar í Sinfómíuhljómsveit írska útvarpsins og síðam aftur til Þýzkalands og þaðan til Bandaríkjamma. — Þetta var nú varla svoma einfalt? (við vitum nefnilega að hamn hafði þegar hlotið fram í tónllistarheimimum, leikið bæði með Sinfóníu- hljómsveit Hamborgar og Norðvesturþýzku Fílharmón- íuhljómsveitinni, svo að nókk uð sé mefnt!). — Ne-ei, kannske ekki, en sannleikurinn er sá, að ég spilaði fyrir Sir John Barbir olli árið 1964, og hann gaf mér tvo kosti, að koma og leika með Hallé Sinfóníu- hljómsveitinni í Mamehester, eða Houston Sinfóníúhljóm- svei'tinni í Texas. Ég tók þann síðari. Mér leizt betur á Bandaríkim þá, og hef gert æ síðan. — Þegar ég kem vestui byrjar leikár Sinfóníuhljóm- sveitarinmar, og í vetur, n.k. verð ég líka í jazztríóinu. Annað er eiginlega óráðið. — Þú 'hefur það þá gott? — Já, ég lifi miklu betra lífi fyrir vestan, em ég gerði, meðan ég var í Evrópu. Ég myndi segja, langt fyrir ofian meðallag, þó ég dragi tekjur konunnar frá! Ég sé auðvitað, að fólk býr afskaplega vel hérna, það ég bezt veit.....en ég veit bara ekki, hvernig það lifir! Fljótsagt, á skyri, á fiski, og hrennivíni (því síðastnefnda til að gleyma því, að það hef- ur lítil ráð á kjöti!) — Já, og svo fiskast ekkert, og hvað þá. Nei, mér lízt vel á mig þama fyrir vestan, en .... það væri gaman að geta kom ið heim og spilað hér öðru hverju! — Vonum það. En hvenær ferðu vestur? — Næstkomandi miðviku- dagskvöld. Og þá beint heim. — Auðviað er alit óbanmað landflæmi utan Texas, en lang ar þig ekki í alvöru að koma heirn? — ísland er fallegasta land í heimi, og ég mymdi búa hér frekar en nokkums staðar ann ars staðar — ef tækifæri væri til þess, en það virðist því miður ekki vera fyrir hemdi! Við kveðjum þenmam ágæta; umga (þrítuga!) full- trúa ÍSlands í Texas, og öllu ókönnuðu landfilæmi þar ut- an, í von um að einhvem tíma rætist úr vonum hams um heimkomu, og við óskum homun góðs gengis. M. Thors. - FORMAÐUR F.B. Framhald aí bls. S Meistarar skila þeim húsum, sem þeir reisa, undantekningarlaust máluðum að utan. Ekki bætir þetta málstað J. Þ. og var þess þó ærin þörf. Hitt mun rétt hjá J. Þ., að meistarar leggja ekki til tún- þökur á lóðir, en gjama má bera fram þá spumingu, hvort honum finnist lánsfé til íbúða- bygginga svo mikið, að vert sé að veita mönnum húsnæðislán til kaupa á túnþökum. Er það þjóðhagslega hagkvæmt að hans dómi, eða er fé húsnæðismála- stjómar ætlað til slíkra kaupa? í sumum tilfeHum leggja meist arar til þvottavélar. en annars etaðar, eins og I íbúðunum við Eyjabakka, em sérþvottahús með sérlögnum í hverri íbúð. Ætli húsmæður vilji það ekki frekar en sameiginlegt þvottahús með sameiginlegum vélum? Raunar hefir FB þegar viðurkennt þetta, því að í Vísisviðtali því, sem getið var hér að framan, er ein- mitt sagt, að hætt sé við sam- eiginleg þvottahús og tekin verði upp sérþvottahús fyrir hverja íbúð, svo að fbúar geti sjálfir komið me’ð þvottavélar. J. Þ. hefir því ekki átt að nefna þetta atriði, en svo ringlaður er hann orðinn á flóttanum, að hann er nú sjálfur farinn að rétta and- stæðingimum vopn á sig, Hafi hann þökk fyrir. f næstsíðustu málsgrein segir J. Þ. að Byggingarsjóður ríkisins hafi aðeins veitt 87 miUj. kr. til framkvæmda á sl. ári og sé það aðeins 18% af heHdarframlögum sjóðsins. Meistarar hafa ekki grefðan aðgang að opinberum gögnum og verður því að láta nægja — á þessu stigi — að æskja svara J. Þ. við eftirfar- andi spurningum: 1. Hve mikið fé var búið að greiða FB 1. maí 1967, og hvem- ig var því fé varið? Hversu miklu námu framlög til nefnd- arinnar 1. janúar sl. og hversu mikið fé hafði hún fengið til um ráða, þegar fyrstu íbúðimarvoru afhentar? 2. Hafa Seðlabankinn og Atvinnuleysistryggingasjó'ður lán að FB fé til starfseminnar? Ef svo er, hversu mikið fé hefir FB þá fengið frá hvorum aðila, og hvernig á að haga endurgreiðslu á því? Að endingu ritar J. Þ. nokkur „hjartnæm" kveðjuorð og er sjálfsagt að þakka þau, þótt ein- hverjir kunni að frýja honum einlægni, því að gegnum ÖU skrif hans skín gremja þess, sem finn- ur vanmátt sinn og vanþekkingu á þeim málum, sem um er fjaU- að. J. Þ. segir m.a., að „með já- kvæ’ðu, einbeittu framtaki gætu þeir (meistarar) gert islenzkum byggingariðnaði mikið gagn . . Á venjulegu máli þýðir þetta, að meistara eiga að hafa sig hæga, meðan FB stundar tilraunastörf sfn og eyðir almannafé á margan hátt af miklu kappi, en þeim mun minni fyrirhyggju. Væri það einlægur vilji J. Þ. að stuðla að lækkun byggingar- kostnaðar mundi hann vera bú- inn að segja við þá, sem fólu hon um forsjá FB, áð hann átti sig nú á því, að hann kunni ekki mannganginn í þessu byggingar- málatafli og sé því bezt að fela það mönnum með reynslu og þekkingu. Hann ætti m. ö. o. að viðurkenna vanmátt sinn og biðja um lausn í náð — óska eftir að aðrir fái að spreyta sig með sömu aðstöðu og sjóm FB hefir haft. Það kann vel áð vera, að J. Þ. hafi einlægan vilja tH að láta gott af sér leiða, en hon- um hefir þó ekki tekizt að sanna hið fornkveðna, að viljinn dragi hálft hlass — þvert á móti, þvi að honum heftr næstum tekizt að sanna. að undir vissum kring umstæðum geti góður vilji gert iUt verra. Stjórn Einhamars. STÓRIÍTSAIAJ Gó&templarahúsinu | 30-60% AFSLÁTTUR TERYLENEKÁPUR DRAGTIR PEYSUR NÝJAR VÖRUR TÁNINGAKJÓLAR KVÖLDKJÓLAR JERSEYKJÓLAR ULLARKÁPUR TÆKIFÆRISKJÓLAR BLÚSSUR DAGLEGA SUMARKJÓLAR CRIMPLENEKJÓLAR VEKÐLiSTIMM

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.