Morgunblaðið - 10.09.1968, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 10. SEPTEMBER 1968
3
á Skólavörðuholti
Útisýning
ÖNNUR útisýning Myndlistar-
skólans í Reykjavík á lóðinni
fjrrir framan Asmundarsal á
Skólavörðuholti var opnuð á
sunnudag. Sýning þessi er helg-
uð 40 ára afmæli Bandalags ís-
lenzkra listamanna og flutti for-
maður þess, Hannes Davíðsson,
ræðu við opnim sýningarinnar.
Tuttugu og einn listamaður og
kona sýna þama 32 höggmynd-
ir og gætir mikillar fjölbreytni
í efnisvali.
Mjög mikil aðsókn var að sýn-
ingunni á sunnudag og góð að-
sókn í gær, en aðgangur er ó-
keypis og öllum heimill. Sýning-
in verður opin að minnsta kosti
út þennan mánuð.
Hér fer á eftir skrá yfir verk-
in á sýningunni og höfunda
þeirra:
Sigurjón Ólafsson: 1. Kona;
grásteinn. 2. Eiturspýta; tré.
Guðmundur Elíasson: 3. Frum-
drög að minnismerki um Franc-
ois Villon; jám og polyester.
4. Tilbrigði um stef; trefjagler.
5. Tilbrigði um stef; trefjagler.
Diter Rot: 6. Kassi; járn, gler
og súkkulaði. 7. Umslög; pappír.
8. Dót; ýmislegt efni. Þorbjörg
Pálsdóttir: 9. Grænt form; gips
og jám. Gunnar Malmberg: 10.
Tvíburar; gips. Jón Benedikts-
son: 11. Með nýju lífi; tré og ál.
12. Gutti; jám og ál. Guð-
mundur Ármann Sigurjónsson:
Velti jeppo og
viðbeinsbrotnoði
PILTUR ofan úr Borgarfirði
vielti jeppabifreið í Svínadal í
gær. Viðbeinsbrotnaði pilturinn
og var fluttur í sjúkrahúsið á
Akranesi.
NORRÆNA listiðnaðarsýningin í
Norræna húsinu hefur verið
mjög vel sótt, hafa nær 9000
manns séð hana. Ivar Eskeland,
framkvæmdastjóri hússins, tjáði
Mbl. áð hún myndi startda eitt-
hvað lengur, en ekki lengi. Sýn-
dngin er opin kl. 5—10 daglega
og 2—10 um helgar.
Nú er verið að athuga um að
senda sýninguna til Akureyrar
og kannski víðar' út á land. Er
13. Eva fullsköpuð og þó; tré og
vír. Einar Hákonarson: 14.
Organic; tré. Jóhann Eyfells: 15.
Skúlptúr; járnbent steinsteypa.
Magnús Tómasson: 16. Sjálfsag'ð
ur hlutur; lakkað járn. 17.
Flower Power; járn. Kristín
Eyfells: 18. Skúlptúr; gips.
Magnús Á. Árnason: 19. Abstrakt
form; sandsteinn. Jón B. Jónas-
son: 20. Timburmaður; tré og
járn. Gunnsteinn Gíslason: 21.
Glermynd; gler. Ingi Hrafn
Hauksson: 22. Fallinn víxill;
SÝNINGARGESTUM í kvik-
myndlahúsum í Reykjavík og ná-
grannabæjum fækkaði um tæp
60 þúsund á fyrsta ári íslenzka
sjónvarpsins. Flestaar voru kvik-
myndir þær, sem hér voru sýnd-
ar bandarískar, en brezkar komu
næst í röðinni. Að meðaltali fór
hver landsmaður 12,5 sinnum í
kvikmyndahús og er sú tala um
og yfir helmingi hærri en á
hinum Norðurlöndunum.
Upplýsinigar þessar er að finna
í ágústhefti Hagtíðinda, og eru
■byggðar á skýrslu, „bæði vegna
innlendra þarfa og vegna þess að
'ísland gerðist árið 1964 aðili að
Menningar- og fræðslustofnun
SÞ (UNESCO)“. Sú S'tofnun ger-
ir allmikilar kröfur um skýrslu-
gerð frá hendi aðildarríkjanna
og eru niðurstöðurnar birtar í
•ritum hennar.
í skýrálunni, sem nær yfir
starfsemi kvikmyndahúsa á ár-
unum 1965—’66 kemur fram, að
í 11 kvikmyndahúsum í Rvík,
Kópav. og Hafnarf. var tala sýn-
iingargesta 1.610.837 fyrra árið,
en 11551.338 árið ’66. í skýrsl-
Eskeland á förum norður til að
athuga með húsnæði fyrir hana
á Akureyri.
Næsta sýning í Norræna hús-
inu er geysiumfangsmikil bóka-
sýning, sem áformað er að opna
um miðjan nóvember. Er ætlun-
in að reyna að fá á þá sýningu
allar bækur, sem gefnar hafa
verið út á árinu 1968 — barna-
bækur, skáldsögur, fræðirit og
yfirleitt allt.
gips, plast, tré og járn. 23. 1
tröppu undir stiga; gips, plast,
tré og járn. Jón Gunnar Árna-
son: 24. Sólstafir; ryðfrítt stál
og granít. Magnús Pálsson: 25.
Kjóll; tau, gips og málning.
Hállsteinn Sigurð.sson: 26. Vegg-
skúlptúr; ei. Ragnar Kjartans-
son: 27. Frigg; gips og epoxy
sandsparsl. Finnbogi Magnússon:
28. Skúlptúr; trefjagler o.fl. Sig-
urður Steinsson á fjórar nafn-
lausar höggmyridir, sem eru
númer 29—32 á sýningunni.
unmi er þess getið til, að fækk-
unin stafi af starfrækslu sjón-
varpsins, sem tók til staTfa í
septemberlok það ár. Langflest-
ar kvikmyndanna, sem sýndair
voru hér á landi voru bandarísk-
ar eða 246 árið 1966. Næst komu
brezkar eða 49, því næst ítalskar
31 og franskar einni færri. Af
norrænum kvikmyndum höfðu
danskar forystu með 18 en
sænskar voru 13. Alls voru sýnd-
ar 416 kvikmyndir á árinu, og
er þá miðað við „langar rnyndir”
(þ.e. yfir 58 mín. með 70 mm
f ilmu).
Bíóin vinsælust á íslandi
Á ölilu landinu er gert ráð
fyrir röskum tveiimur milljónum
sýniingargesta. Þetta svarar til að
Bonn, 9, september NTB—• AP.
Adolt von Thadden, leiðtogi
vesturþýzka þjóðemissinna-
flokksins, lýsti því yfir í dag,
að innrás Varsjárbandalagsins í
Tékkóslóvakiu myndi auka á
möguleika flokks hans í kosn-
ingunum til vesturþýzka sam-
bandsþingsins, sem fram eiga að
fara á næsta ári. Sagði von
Thadden, að stefna vesturþýzku
stjórnarinnar gagnvart ríkjum
Austur-Evrópu hefði orðið gjald
þrota og myndi þetta koma sér
illa fyrir þá flokka, sem sæti
eiga á sambandsþinginu, en inn-
rásin myndi koma þjóðernissinna
flokknum að gagni.
Von Thadden neitaði hins veg
ar að segja nokkuð um, hve
mörg þingsæti hann gerði sér
vonir um, að flokkur hans myndi
vinna, en í maí sl. sagði hann,
að vonandi myndi flokkur hans
fá um 50 þingmenn kjörna.
Á fundi í þjóðernissinna
flokknum, sem haldin var á
sunnudag, var samþykkt álýkt-
Þjóðii S-flmeríku
SJÓNVARPIÐ hefur í kvöld sýn
ingar á flokki heimildarkvik-
mynda um 6 lönd í Suður-Ame-
ríku. Er hér um að ræða nýjan
myndaflokk, sem tekinn er af
þýzkum sjónvarpsmönnum og
fjalla myndirnar um þjóðfélags-
ástand þar syðra. Sýningartími
hverrar myndar er um 45 mínút
ur og verða þær sýndar framveg
is á þriðjudögum.
Myndirnar eru um Argentínu
(sýnd í kvöld), Chile, Perú, Col-
ombíu, Venezuelu. og Brasilíu.
Texta með myndunum gerði frú
Sonja Diego Thors.
á árinu 1966, hafi hver landsbúi
farið 12,5 sinnum á bíó að meðal-
tali. 1 Danmörku vaT samsvar-
andi tala 7,1, Finnlandi 3,7, í
Noregi og Svíþjóð 4,8. Hefur þró-
unin í þessum löndum, eftir að
sjónvarpið kom tii skjalanna,
verið sú, að þessar tölur hafa
farið hríðlækkandL
Stjörnubíó var fremst í röð
hvað gnerti fjölda sýndra kvik-
mynda í Rvík. Þær voru 46, næst
kom Gamla bíó með sex færri.
Taia sýndra kvi'kmynda í hverju
kvikmyndahúsi fer annars hækk
aindi, þegar út fyrir borgartak-
mörkin er kom'ið, enda oft ekki
mema um eitt hús að ræða.
Þamnig sló Egilsbíó í Neskaupst.
metið í fjölda sýmdra mymda.
Það sýndi 159 myndir á árinu.
Seyðisfirðiinigar nutu mæst flestra
mynda eða 166.
un, þar sem áherzla var lögð á
bandalag við Frakkland og því
lýst yfir, að þjóðir Vestur-Ev-
rópu geti sjálfar séð, um að frið
ur og frelsi 'haldist.
Þá hefur von Thadden lýst
ánægju sinni yfir því, hve vel
hafi til tekizt með aðra vetnis-
spremgju Frakka. Sagðist hann
telja það heppilegt, að önnur
sprengja Frakka hefði verið
sprengd og að hún myndi koma
Vestur-Þjóðverjum að gagni.
Bóf stolið
AÐFARANÓTT siðastliðins
sunnudags var stolið 10 feta
vatnabát frá sumarbústað í landi
Miðfells við Þingvallavatn. Bát-
urinn er hvítur að lit með blárri
rönd. Þeir sem geta gefið upp-
lýsingar um bátinn eru vinsam-
legast beðnir að láta lögregluna
á Selfossi vita eða rannsóknar-
lögregluna í Reykjavík.
STAKSTEINAR
Hægri snú!
Vinstii snú!
1 des. n.k. er 10 ára afmæli
þess, að vinstri stjórnin hrökkl-
aðist frá völdum við lítinn orð-
stír. A þeim áratug sem liðinn er
hefur Framsóknarflokkurinn rek
ið algjörlega áhyrgðarlausa
stefnu í utanrikis- og öryggis-
málum landsins. Að visu er það
ekkert nýtt fyrirbæri á þessum
síðustu 10 árum, er svo virtist
þó, sem Framsóknarflokkurinn
kynni að meta blóðbaðið í Ung-
verjalandi 1956 og áhrif þess á
aðstöðu íslands. Vera má þó, að
það hafi aðeins sýnst svo á yfir-
borðinu. StjórnarandstöðuferiU
Framsóknarflokksins hefur fynst
og fremst beinzt að þvi að fiska
atkvæði í gruggugum vötnum A1
þýðubandalagsins, jafnframt því
sem haldið hefur verið uppi
vörnum á hægri hlið flokksins.
Þannig hefur t.d. viss hluti Fram
sóknarmanna, bæði yngri og eldri
tekið þátt í starfi Samtaka um
vestræna samvinnu og starfi
Varðbergs en þessir menn
hafa jafnan verið í minnihluta
flokksins og augljóslega hafa
þeir aðilar innan Framsóknar-
flokksins verið áhrifameiri, sem
hafa viljað sveigja stefnu ís-
lands í utanrikis- og öryggismál
um til móts við afstöðu kommún-
ista. Á síðari árum má segja, að
Framsóknarmenn hafi getað fært
það fram sér til afsökunar, að
verulegar vonir hafa vaknað um
bætt samskipti austurs og vest-
urs og þess hafa glögglega sézt
merki, að ýmis aðildarríki Atl-
antsliafsbandalagsins t.d. hafi
ekki talið þörf jafn náins sam-
starfs á sviði vamarmála og áð-
ur, þegar kalda striðið geisaði
sem hæst. En í grundvallaratr-
iðum hefur Framsóknarflokkur
inn miðað stefnu sina í utanrik-
ismálum og varnarmálum við það
að þar væri eitthvað fyrir alla.
Hægri snú! Vinstri snú! hefur
verið eins konar kjörorð Fram- •
sóknarflokksins og í krafti þess
átti að veiða atkvæði til vinstri.
Breytt viðhorf
Viðhorfin í málefnum Evrópu
eru nú gjörbreytt. Innrásin í
Tékkóslóvakíu hefur í einu vet-
fangi fellt járntjaldið á ný. Mál-
gagn Framsóknarflokksins tók
þegar í stað þá afstöðu, að nú
yrðu lýðræðisöflin að snúa bök-
um saman. En aðeins þremur dög
um efitr að kommúniskar her-
sveitir ruddust inn í Tékkósló-
vakiu samþykktu „ungir“ Fram-
sóknarmenn ályktun um varnar-
málin, þar sem því er lýst yfir
að varnarliðið eigi að hverfa af
landi brott og jafnframt er tek- >
ið fram að „sem stendur" sé ekki
„ástæða til“ að ísland segi sig úr
Atlantshafsbandalaginu. Það fer
ekki á milli mála hver afstaða
„ungra“ Framsóknarmanna er.
Hún er nákvæmlega sú sama og
afstaða kommúnista. tsland skal
vera vamarlaust. En munurinn
á þessari afstöðu nú og áður er
sá, að þetta álykta „ungir“ Fram
sóknarmenn aðeins nokkrum dög
um eftir að árásarstefna komm-
únistarikjanna hefur skapað það
ástand í Evrópu, að enginn veit
hvenær upp úr sýður fyrir al-
vöru. Greinilegt er að hinir ^
„ungu“ Framsóknarmenn ganga
svo langt í tilraunum sinum til
að fiska í gruggugum vötnum
Alþýðubandalagsins, að þeir
skirrast ekki við að nota örygg-
ismál þjóðarinnar sem agn í
þeirri veiðimennsku. En um leið
gerast þeir jafn dyggir þjónar
ofbeldisaflanna í austri og þeir,
sem iðkað hafa dindilmennsku í
þeirra þágu í áratugi.
Fái ég að velja tek ég
BLANDAÐ
6RÆNMETI 06
6RÆNAR BAUNIR FRÁ
KEA
Heildsölubirgðir:
Birgðastöð SÍS.
Eggert Kristjánsson & Co. h.f.
Kjötiðnaðarstöð KEA.
KJÖIIONAOARSTÖÐ
Sýning Norræna húss-
ins flutt norður
— Nœst er geysistór bókasýning
Kvikmyndohús vinsælust á íslundi
— Aðsókn fer þó minnkandi
Innrdsin í Tékkóslóvnkíu
kemur þjóðernissinnum nð gugni