Morgunblaðið - 10.09.1968, Blaðsíða 26
26
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 10. SEPTEMBER 196«
Túkall er Akureyring-
um ekki happapeningur
Valur vann á hlutkesti fyrir norðan
Frá setningu ÍSÍ. þings á laugardaginn. Gísli Halldórsson forseti ÍSÍ. í ræðustóli.
íþróttaforystan endurkjörin
Miklar umrœður á íþróttaþingi, þar sem
eining ríkti um framgang mála
Tveggja krónu peningur
dæmdi Val sigur yfir Akureyr-
ingum á sunnudaginn, eftir
skemmtilegan framlengdan leik
sem fram fór í blíðskaparveðri,
Það mun flestra manna mál, að
Valur megi hrósa miklu happi
yfir þessum úrslitum, því að
lengst af réðu Akureyringar lög
um og lofum á vellinum. Mark-
varslan hjá þeim var hins vegar
léleg og einnig vantaði tilfinn-
anlega góðar og ötular skyttur.
Samleikur liðsins á vellinum var
sérstaklega skemmtilegur og vel
unninn.
Akureyringar byrjuðu leikinn
með mjög harðri sókn, sem end
aði með stangarskoti. Þaðan
hrökk boltinn fram aftur og var
umsvifalaust spyrnt hársbreidd
framhjá marki Vals. Marktæki-
færi Akureyringa urðu fleiri en
tölum verða talin og sýnir þetta
dæmi, hvernig ,þau nær öll runnu
út í sandinn, ýmist fyrir hik,
mistök eða hreina óheppni. Það
átti ekki fyrir Akureyringum að
liggja að skora í fyrri hálfleik,
heldur átti Valur frumkvæðið að
því.
LJÐ Benfica, sem kemur til
Reykjavíkur, er skipað þessum
mönnum:
Adolfo António da Luz Calisto
Alfredo José Henriques
Nascimento
António Simoes Costa
Carlos António Vieira Marques
Domiciano Barrocal Comes
Á 17. mínútu skaut Halldór
Einarsson bakvörður í átt að
marki af 45 metra færi, og datt
engum í hug að mark yrði úr,
sízt honum sjálfum, en hann
hafði snúið sér við og var á leið
í stöðu sína, þegar boltinn smaug
um greipar Samúels markvarð
ar og inn í markið. Halldór sá
því ekki sjálfur þetta einstæða
mark sitt. Þagar 15 mín voru
svo liðnar af síðari hálfleiík sótti
Ingvar Elísson fram völlinn með
knöttinn og Hermann fylgdi á
hæla hans. Var ekki að sökum
að spyrja. Ingvar sendi knött-
inn til Hermanns sem ekki var
seinn á sér að afgreiða hann í
netið.
Nú töldu allir að úrslit væru
fengin, en Akureyringar misstu
þó ekki kjarkinn og skömmu síð
ar akoraði Númi Friðriksson fall
egt mark eftir sendingu frá Þor-
móði Einarssyni. Ekki voru marg
ar mínútur liðnar, þegar Kári
skallaði í mark Valsmanna eftir
áigæta hornspyrnu frá Valsteini,
og jafnaði þar með leikinn. Eftir
þetta lá leikurinn mjög á Vals-
Framhald á bls. 27
Mário Esteves Coluna
Raul Martins Machado
Antonio José Conceicao Olivera
(Toni).
íþróttaþing ÍSÍ var haldið á
laugardag og sunnudag í Rekja
vik Var fjölmenni á þinginu 65
fulltrúar frá 10 sérsamböndum
og 18 hérðassamböndum Fjör-
ugar umræður urðu um ýmis
mál en andi þeirra allra var að
efla mætti samtökin og koma mál
efnum þeirra fram á veg.
Þingforsetar voru kjörnir Úlf
ar Þórðarson og Vilhjálmur Ein
arsson og fundarritarar Þórður
B. Sigurðsson og Hannes Þ. Sig-
urðsson.
í upphafi fundar minntist Gfeli
Halldórsson Benedikts G. Waage
sem var í stjórn ÍSÍ um 47 ára
skeið lengst af sem formaður, Er
lings Pálssonar og Benedikts
Jakobssonar. Minntist hann
hinna mörgu verkefna er þeir
höfðu unnið í þágu íþróttahreyf
ingarinnar og óeigingjarns starfs
þeirra fyrir samtökin. Risu fund
armenn úr sætum í virðingar-
skyni við hina látnu forystu-
menn og brautryðjendur.
Gisli Halldórsson setti þingið
og drap á ýmis aðkallandi verk
efni í setningarræðunni og gat
þeirra áfanga er iþróttahreyf-
ingin 'hefði náð á undanförnum
árum og er þar merkast mál
bygging íþróttamiðstöðvar að
Laugarvanti. Fóru þingfulltrú-
ar í ferð þangað síðdegis álaug
ardag og var sú ferð hin ánægju
legasta og fróðleg. Þar eystra
eru risin glæsileg mannvirki sem
eftir eiga að eila íþróttalífið í
landinu mjög.
Stjórn samtakanna var 611
endurkjörin svo og varastjóm
og íþróttadómstóll. Nánar verður
rætt um ýmis mál þinigsins næstu
daga.
22 KR-ingar eiga næsta leik
Lið Benfica
Covém
Eusébio da Silva Ferreira
Femando da Conceicao Cruz
Humberto da Silva Fernandes
Jacinto José Martins Godinho
dos Santos
Jaime da Silva Graca
José Augusto da Costa Sénica
Torres
José Augusto Pinto de Almeida
José Henrique Rodrigues
Marques
KR-Selfoss 5-3
Á sunnudaginn fór fram leik
ur a Selfossi milli fslandsmeist-
ara KR og 2. deildar liðs Sel-
foss. Sigraði KR með 5.3 eftir
skemmtilegan leik. í hálfleik var
staðan 3.2 KR-ingum í vil.
— KR b sigraði Akranes 1-0
f næstu umferð bikarkeppni
K.S.Í. munu a og b lið KR
keppa um áframhaldandi þátt-
töku í keppninni um hikarinn.
Hefur slíkt reyndar komið fyrir
áður og lauk þeirri viðureign
með sigri a-liðsins, hvað sem nú
verður. KR b, sló hið nýja 1.
deildarlið Akurnesinga út úr
keppninni á sunnudaginn, er
þeir sigruðu á Melavellinum með
einu marki gegn engu. Voru KR
ingar mjög heppnir að gaiigameð
sigur af hólmi í viðureigninni,
þar sem Skagamenn áttu mun
meira í leiknum, sérstaklega þó
ef miðað er við hættuleg tæki-
færi.
KR-ingar léku undan vindi í
fyrri hálfleiik og skoruðu þá sitt
eina mark. Baldvin Baldvinsson
og Jóhann Reynisson unnu isam
an að því og batt Jóhann enda-
hnútinn með fallegu skoti.
í síðari hálfleik sóttu Skaga-
menn miklu meira, en voru mis-
tækir við markið. KR-vörnin
veitti þeim líka varmar móttök-
ur, gaf þeim aldrei frið til að
athafna sig og leikmenn brutu
-hiklaust af sér. Högnuðust KR-
ingar á brotunum, þar sem dóm
arinn, Róbert Jónsson, sá oftast
í gegnum fingur við þá. Sleppti
’hann t.d. tvívegis vítaspyrnum á
KR, er varnarleikmenn stopp-
uðu boltann með höndum innan
vítateigs. KR-ingar áttu ekki
EVRÓPUKEPPNI MEISTARALIÐA 1968:
BEMFICA
VALIiR
Forsala aðgöngumiða
hefst
í DAG KL. 13.00
í TJALDI VIÐ LTVEGSBAIMKANIM
VERÐi
stúka 150.- stæði 100.- börn 25.-
VALUR
nema eitt umtalsvert tækifæri í
síðari hálfleik, er þeir skutu í
I stöng hjá Skagamönnum eftir
mikla pressu fyrir framan mark
ið.
B-lið KR hefur marga ágæta
einstaklinga, en lítið fór fyrir
samvinnu þeirra á milli. Samt er
ekki að efa að keppni milli
þeirra og a-iliðsins getur orðið
skemmtileg, og eitt er víst að í
þeim leik verður varla hægt að
tala um KR-heppnina. Skaga-
menn eiga ungu og bráðefnilegu
liði á að skipa, en framlínan var
óvenju isundurlaus í þessumleik
Beztu menn liðsins voru Hreinn
Elliðason og Benedikt Valtýrs-
son.
Sem fyrr segir dæmdi Róbert
Jónsson leikinn, og átti maður
svo sannarlaga von á öðru og
betra frá hans hendi. stjl.
Þjólfaranám-
skeið í hand-
knattleik
Handknattleikssamband ís-
lands mun gangast fyrir þjálfara
námskeiði í handknattleik í
Reykjavik dagana 13.-15. septem
ber.
Tækninefnd handknattleiks-
sambandsins mun sjá um fram-
kvæmd námskeiðsins. Kennarar
verða Jón Erlendsson, Birgir
Björnsson og Karl Benediktsson.
Þátttökutilkynningar berist
stjórn H.S.Í., Pósthólf 6, fyrir 11.
þ.m.
ÍBV vann í víta-
spyrnukeppni
ÍBK ag ÍBV mættust í Keflavík
á sunnudaginn í sögulegum bik-
arlei'k. Eyjaskeggjar sigruðu í
vítaspyrnukeppni eftiir jafntefli
1 : 1 að framlengdum leik lokn-
um. Dómarion Ragnar Magnús-
son vísaði eranþá einu sinni leik-
manni út af, og er nú rætt um
það manna á meðal, hvort Ragn-
ar muni ekki eiga heimsmetið í
þessum efnum.
Keflvíkingar voru ákveðnari
aðilinn í þessum leik, og oft
óheppnir að skora ekki, en Páll
markvörður ÍBV varði oft mjög
vel. Sem dæmi um ólán ÍBK
má nefna er Sigurður Albertsson
hafði skallað knöttinn, sem
stefndi í mark, þegar dómarinn
flautaði til hálfleiks. Knöttur-
inn hafnaði í netinu, en Kefl-
víkingar urðu af marki sem
e. t. v. hefði nægt þeirn til sigurs.
Snemma í fyriri hálfleik átti
Einar Gunnarsson, Kefla'viking-
ur, í útistöðum við Vestmanna-
eying, og lauk þeirri viðureign
með því, að dómarinn benti Ein-
ari á búningsklefann og léku
Keflvíkiragar tíu það sem eftir
var leiksins. Að leiktíima loknum
hafði hvorugu liðinu tekizt að
skora, og var þá framlengt í
2x15 mín. í fyrri framlenging-
unni skoraði Jón Ólafsson fyriir
ÍBK, en Eyjameran jöfnuðu
skömmu fyrir leikslok í síðari
framleragiragurani
Var nú tekið til við víta-
spyrnukeppni, og höfðu bæði
liðin skorað fjögua- mörk, þegair
Páll markvörður ÍBV varði 5
skot Keflvíkinga, og síðan inn-
sigluðu Eyjamenn sigurinn með
því að skora hjá ÍBK úr fimmta
skoti sírau.
— B.Þ.