Morgunblaðið - 10.09.1968, Síða 13
MORGUflNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 10. SEPTEMBER 196«
13
Eftir Macolm
Muggeridge
HVER sá, sem séð hefur
áður liðsmenn Rauða hers
ins, á auðvelt með að
skapa í huga sínum mynd
af þeim, þar sem þeir
sækja inn í Prag í hinum
risavöxnu skriðdrekum;
klæddir einkennisblússum,
háum stígvélum og hálf-
gerðum pokahuxum; á
breiðleitum, slavneskum
andlitunum bryddir stund
um á brosi eða yglibrún.
Það er eitthvað tröllslegt
við allt atferlið.
Slíkt er eðli hinnar rúss-
nesku stríðsvélar, sem í
heimsstyrjöldinnni fyrri var
þannig lýst, og ekki með
röngu, að hún væri líkust
valtara. Hún sækir fram með
þunganum eirnwn saman
fremur en að snilldar gæti í
skipulagi. Hægt væri að láta
sér detta í hu.g risadýr forn-
aldar varin þykkri skelplötu
húð — líkari hugarórasögu
eftir H. G. Wells um innrás-
araðila frá annari reiki-
stjörnu fremur en sveitir í
her á 20. öld.
Ef einhver hermannanna
aðhefst eitthvað, sem er í lík
ingu við að hann sé mannleg-
ur, t.d. fleygir epli að nær-
stöddum eða gefur stúlku
hýrt auga, verða allir furðu
lostnir. Hann er þá maður,
þegar öllu er á botninn
hvolft!
Og að því er tekur til her-
mannsins sjálfs, verður hann
einnig furðu lostinn er hann
kemst að raun um að hann
sjálfur er ekki sérstaklega
vinsæll. Slavneska andlitið
hleypist brúnum, sem lesa má
úr undrun.
Honum hefur verið sagt, að
starf hans sé að frelsa Tékkó
slóvaka. Það hefxxx fyrr verið
gert, nú þarf að gera það aft-
ur. Svo hann trúir þessu að
nokkru leyti. Eða hvað?
Það er einn af þeim hlut-
um, sem aldrei verður kom-
izt til botns í, ekki fremur
heldur en því, hvort bónda-
konan, sem signir sig fyrir
framan mynd heilagrar
Maríu trúir því í raun og
veru, að hún mxxni fara til
himna.
Hvað var það eiginlega,
sem kom mönnunum í Kreml
til þess að takast á hendur
þessa herför inn í Tékkósló-
vakíu 30 árxim eftir að herir
nazista gerðu slíkt til sama?
Ríkisstjórnir eru stöðugt að
framkvæma hluti, sem mér
sýnast fullkomlega brjálæðis-
kenndir.
Manni kemur í hug för
okkar (Breta) til Súez,
Mussolini til Abyssiníu, og
þá reyndar einnig för Hitl-
ers til Rússlands sama dag
árs og Napóleon, til þess eins
að mæta þær sömu örlögum
og Napóleon 129 árum áðxxr.
Ég hefi enn engar ákveðn-
ar hugmyndir, þrátt fyrir allt
sem sagt hefur verið og rit-
að, um hvernig á því stó'ð að
þeir lögðu upp í þetta ævin-
týri, sem svo greinilega hef-
ur leitt þá í hinar verstu ó-
göngur.
Varðandi Rússa sjálfa er
engar upplýsingar af þeim að
hafa, og ólíklegt að það breyt
ist, við umræður þær og
deilur, sem áttu sér stað,
skýrslxxrnar, sem menn fóni
höndum um, aðrar leiðir, sem
ræddar voru áðub en skip-
unin var gefin um að ráðast
yfir landamæri Tékkósló-
vakíu og hernám höfuðborg-
arinnar.
Vorxi bæði ,,haukar‘ og
„dúfur" á ferðinni?
Stóð rifrildi langt fram á
nótt, urðu menn hásir, og
kannski eilítið þvoglumæltir
af vodka?
Hver veit.
Gera verður ráð fyrir því,
að Rússar hafi gert sér grein
fyrir óhagræði því, sem
hljótast mxmdi af gjörðum
þeirra. Þetta mundi verða
hnefahögg á álit erlendra
kommúnistaflokka á þeim
sjálfum, einkum flokkanna í
Ítalíu og Frakklandi; ískalt
bað fyrir „frjálslyndar skoð-
anir“ (hvað svo sem það er)
xxm heim allan; vinir mxmdu
glatast og óvinir kætast.
Gera verður ráð fyrir, að allt
þetta hljóti vissulega áð hafa
verið yfirvegað.
Þeir muna, við ekki
En með þeirra augum hef-
ur það verið gert með nokk-
uð öðrum hætti en við mynd
um hafa gert.
Þeir muna, sem við gerum
ekki, að þeir hafa gert ýmsa
hluti áður fyrr, sem kölluðu
á nákvæmlega sömu and-
mæli og nú, án þess að hafa
af slíku nokkur óþægindi
þegar fram í sótti.
Sem gamall höfundur rit-
stjómargreina (fremur ógeð-
feldur starfi, sem ég hafði
á'ðxxr fyrr), koma mér dæm-
in fyrir hugskotssjónir hvert
af öðnx.
Það var ekkert smáræði,
sem leiðarahöfxmdar skömm-
uðust eftir samning Sovét-
ríkjanna og nazista. Eftir
þennan svívirðilega og
skammarlega samning sögð-
um við að aldrei aftur myndi
sá dagur koma, að orð Sovét-
stjórnarinnar yrðu tekin trú-
anleg o.s.frv. o.s.frv.
Nú, jæja, kommúnistaflókk
ar Vestur-Evrópu voru í tnol
um um stundarsakir, en ekki
leið á löngu þar til röð og
regla komst á liðið; frjáls-
lyndir fjarlægðust kommún-
ista að sjálfsögðu en að mjög
skömmum tíma liðnum komu
þeir skríðandi til baka.
Þetta heitir á Moskvumáli,
að ælan skili sér aftxxr í hund
inn.
Hið sama gerðist fyrir 20
árum, er kommúnistar hrifs-
uðu völdin í Prag, eftir að
hafa fleygt Jan Masaryk út
um glugga. Sovétstjórnin
hafði útilokað sig úr mann-
félaginu; aldrei aftur o.s.frv.,
o.s.frv.
En enn einu sinni urðu
hlutimir harla líkir því, sem
áður hafði verið, eftir nokk-
um umþóttunartíma.
Frjálslyndir ráku áró’ður
fyrir friðsamlegri sambúð og
stöðugt fjölgaði í sveitum
Framhald á bls. 17
&
RIKISINS
Ms. Blikur
fer austur um land í hring-
ferð 16. þ.m. Vörumóttaka
þriðjudag, miðvikudag og
fimmtudag til Homafjat'ðar,
Breiðdalsvíkur, Stöðvafjarð-
ar, Fáskrúðsfjarðar, Reyðar-
fjarðar, Eskifjarðar, Norðfjarð
ar, Mjóafjarðar, Seyðisfjarð-
ar, Borgarfjar'ðar, Vopnafjarð
ar, Bakkafjarðar, Þórshafnar,
Raufarhafnar, Kópaskers,
Húsavíkur, Akureyrar, Siglu-
fjarðar, Norðfjarð»r, Isafjarð
ar, Bolungarvíkur, Súganda-
fjarðar, Flateyrar, Þingeyrar,
Bíldudals, Tálknafjarðar og
Patreksfjarðar.
TIL SÖLL
Consul Corsair ’64, sjálfsk.
Rambler ’63.
Citroen ’63.
Pontiac ’64. Má greiðast með
skuldbréfi.
Ford Zodiac ’58.
Dodge ’58.
Buick ’57, 2ja dyra.
Edsel ’59.
Bílasalan Ármiíla 18
Sími 84477
BILAR
1968 Fiat 125 ,,Berlina‘‘, ekinn
10 þús. km, má greiðast
með skuldabréfxxm.
1968 Fiat 124, ekinn 7 þ. km.
1967 Fiat 1100 station, 23 þ.
km.
1966 Fiat 850 „Conpe“, blár,
klæðning gul, 25 þ. km.
Öryggisbelti.
1966 Fiat 850, rauður, 25. þ.
km.
1966 Fiat 600, rauður, 11 þ.
km.
1967 Plymouth Valiant, 2ja
dyra, 25 þ. km. Skipti mögu
leg á nýl. minni bíl.
1966 Taunus 17M, 2ja dyra.
1966 Volvo Amazon, station.
Skipti mögul. á ódýrar bíl.
1965 Daf. Hagstæð lán.
1963 Chevrolet Nova.
1962—4 Opel Rekord.
1959—66 Volkswagen.
1966 Bronco, klæddir.
1962—6 Land-Rover.
1942—66 Willys Jeep.
1956 og yngri Rússa jeppar.
Sendibilar, benzín og dísil.
1965 Benz, 1418, vörubíll
Höfum kaupendur að nýl. bíl-
um. Skoðið bílana við Hafnar
bíó, Skúlagötu 40, símar:
15-0-14 og 1-91-81.
ADA ^OLASALAN
Símar: 15-0-14 og 1-91-81.
Thorshaffnar
skipasmiðja
hefur nú hafið framleiðslu á hristivél fyrir reknet
og hafa færeyskir reknetabátar vél þessa í notkun
og hefur hún reynzt með afbrigðum vel.
Hristivél þessi sparar 5 menn af 11 manna
áhöfn og léttir vinnu áhafnar. Vélin er knúin
rafmagni eða vökvakrafti eftir vali.
Nánari upplýsingar hjá umboðsmönnum okkar
á íslandi, I. PÁLMASON H.F. Sími 22235.
Thorshafnar skipasmiðja
Thorshafn