Morgunblaðið - 10.09.1968, Page 21
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUD A.GUR 10. SEPTEMBER 1968
21
FRÉTTAIMYIMDIR
Alvopnaðir menn úr bandaríska þjóðvarðliðinu draga burt fallna þátttakendur í mótmælaaðgerð-
unum sem urðu vegna flokksþings demókrata í Chicago fyrir helgina. Yfir 300 manns slösuðust
í óeirðunum og hlaut lögregla og þjóðvarðliðið mikið ámæli fyrir hrottalega framkomu.
Borgarar í Prag standa við minnismerki um þá sem létu lífið í innrás Sovétmanna og aðstoðar-
manna þeirra. Minnismerkið var sett á fótstall styttu heilags Wenceslásar.
Bratislava: Syrgjendur standa við líkhörur fimm ára stúlku, Danka Kosanova, sem Rússar drápu.
Litla stúlkan var ásamt fjórtán ára bróður sinum utan í háskólann í Bratislava, eftir að horgin
var hertekin. Bróðir hennar hrópaði formælingar að rússneskum hermönnum í skriðdreka, en
þeir beindu þá vélbyssum sínum að systkinun um Gg drápu þau bæði.
Dr. Philip Blaiberg, langlífasti hjartaþeginn til þessa, hefur
nú fengið að fara úr sérstöku sótthreinsuðu herbergi, sem hann
hefur dvalizt í síðan hann fékk alvarlega lifrarveiki í síðasta
mánuði. Hann mun væntaniega verða útskrifaður úr sjúkra-
húsinu jafnskjótt og haim verður nógu styrkur í fótum eftir
leguna.
Lögreglumaður stumrar yfir líki ambassdors Bandaríkjanna
í Guatemala, sem myrtur var á götu í höfuðborg Guatemala
fyrir helgina. Ambassadorinn, John Gordon Mein, var fyrsti
ambassador Bandaríkjanna sem myrtur er.
MIGlYSINGiR
SÍMI SS*4«80