Morgunblaðið - 25.09.1968, Side 1
209. tbl. 55. árg. MIÐVIKUDAGUR 25. SEPTEMBER 1968_________________________________PrentsmiSja MorgunblaSsins.
Enn er Moskvuför
Dubceks frestað
Rússar taka sér trest til gagnasöfnunar
— Óvíst að Tékkar losni við þá á þessu ári
Prag og Moskva 24. sept NTB
Góðar heimildir í Prag hermdu
í kvöld að Rússar óski þess að
enn verði frestað frekari viðræð
nm Tékka og Sovétmanna til
þess að tækifæri gefizt til þess
í Moskvu að kanna fjölmörg
gögn, sem send hafa verið frá
Prag til Moskvu sem viðræðu-
grundvöllur. Er nú sagt, að Du
beck, flokksleiðtogi og menn
hans muni ekki fara til Moskvu
fyrr en á föstudag, en ýmsir
telja þó, að viðræðurnar hefj-
ist ekki fyrr en í næstu viku.
Þeim hefur þegar verið frestað
f jórum sinnum.
útbúnað og dvöl hernámsliðsins.
Síðastl. laugardag sagði Oldrich
Cernik, forsætisráðherra, að Var
sjárbandalagsríkin myndu eftir
nokkra daga hefja fyrstu brott-
flutninga liðsins, en þeir ættu að
gerast í nokkrum áföngum.
Sovézka sendiráðið í Prag
heldur áfram þeim hætti að senda
biaðaúrklippur úr tékkneskum
blöðum til tékkneska útanríkis-
ráðuneytisins. Hefur ritskoðari
sendiráðsins farið höndum um
úrklippurnar, og merkt xæki-
lega við með rauðum blýanti,
þau ummæli, sem Rússar telja
fjandsamleg Sovétríkjunum.
Trollbátur í aðgerð. — Ljósm. Sigurgeir.
Sagt er, að Sovétmenn hafi lát
ið að því liggja, að þeir vildu
helzt hafa kommúnista af gamla
skóianum í sendisveit Dubceks,
en í Prag er sagt, að þetta geti
orðið erfitt, því leitun sé á slík-
um mönnum í landinu!
Taugastríðið milli Moskvu og
Prag heldur enn áfram. f dag
var tekið til við enn eina hug-
myndafræðilotuna, og máttu
Tékkar enn verjast atlögum frá
sovézkum blöðum. Upplýst var í
Prag í dag, að nú sé svo komið,
að ekki sé reiknað með að her-
námsliðið verði á brott úr land-
inu á þessu ári.
Sagt er, að Martin Dzur, varn
armálaráðherra Tékkóslóvakíu,
hafi síðustu daga átt viðræður
við Gretchko, varnarmálaráð
herra Sovétríkjanna, um vetrar-
Oeiröirnar í Mexikó taka á sig
alvarlegri mynd
— Skotvopnum beitt á báða bóga —
Óttazt að stúdentar grípi til hreinna
hryðjuverka til að stöðva Olympíuleikana
Mexíkóborg, 24. sept.
— NTB-AP —
ÞRÍR menn, lögreglumaður,
Mótmælum friðar-
sinna fálega tekið
Brezk stúlka og ungur Bandaríkjamaður
handtekin í Moskvu — 4 Danir í Varsjá
Moskva, 24. sept. — AP
MOSKVULÖGRELAN hand-
tók í dag unga, brezka stúlku
og ungan Bandarikjamann
fyrir að hafa dreift bækling-
um með mótmælum gegn inn
rás Sovétríkjanna í Tékkó-
slóvakíu. Vicky Rovere frá
New York og Andrew Pap-
worth frá Bretlandi voru
handtekin aðeins nokkrum
sekúndum eftir að þau hófu
að dreifa bæklingunum Bækl
ingamir, sem voru á rúss-
nesku, prentaðir í Englandi,
hvöttu sovézka borgara til að
beita „öllum þeim friðsam-
legu mótmælum, sem tök eru
á“.
Svonefnd „Samtök strfðs-
andstæðinga" í New York
sögðu í dag, að ungfrú Rov-
ere hefði farið til Moskvu til
dreifingar bæklinganna með
fullum stuðningi samtakanna.
Sömuleiðis sögðu samtök
þessi, að Papworth væri með-
limur svipaðrar hreyfingar í
Bretlandi.
Bæklingarnir, sem dreift
var á Pushkintorginu í
Moskvu, báru yfirskriftina
„Hjálp“. Auk þeirra ummæla,
sem áður eru tilgreind, sagði
í þeim m.a.: „Baráttan fyrir
friði hefur beðfð alvarlegan
hnekki vegna aðgerða þeirra,
sem ríkisstjórn yðar hefur
viðhaft gegn Tékkóslóvakíu.
Líklegt er, að hægrisinnaður
maður verði næsti forseti
Bandaríkjanna. Vígbúnaður
Bandaríkjanna mun verða
aukinn og herir NATO-ríkj-
anna efldir. Það er algjör-
lega nauðsynlegt, að herir
Varsjárbandalagsins verði
kvaddir heim frá Tékkósló-
vakíu ef styrkja á frfð og
sósíalisma í Tékkóslóvakíu
og heiminum öllum.“
Til ámóta mótmæla var
reynt að efna í Varsjá, Búda-
pest og Sofia í dag, og munu
sömu aðilar hafa staðið að
baki þeirra og mótmælatil-
raunanna í Moskvu.
Framh. á hls. 27
stúdent og áhorfandi, voru
skotnir til bana og 28 særð-
ust er mexikanska lögregl-
an og hermenn tóku nokkra
verkfræðiskóla hér í dag og
eru nú óeirðirnar orðnar hin-
ar mestu, sem orðið hafa frá
því Mexíkó varð sjálfstætt
ríki fyrir 40 árum. Lögregl-
an réðist til atlögu við skól-
ana eftir að hundruð stúd-
enta höfðu velt strætisvögn-
um, kastað benzínsprengjum
og skotið að lögreglumönn-
um. Aðeins eru nú þrjár vik-
ur þar til Olympíuleikarnir
eiga að hefjast í Mexíkóborg.
í kvöld höfðu lögregla og her
menn náð öl'lum verkfræðiskól-
um höfuðborgarinnar á sitt vald.
Jafnfnamt hefur ótti manna auk-
izt varðandi að hinir herskáu
stúdentar borgarinnar muni
grípa til nýrri og enn ofsafengri
aðgerða, svo sem hryðjuverka.
Talið er, að verði framhald á
óeirðum stúdenta, geti það orð-
ið til þess, að svo fari að aflýsa
verði Olympíuleikjunum. Þó
telja góðar heimildir að svo fremi
að ástandið verði ekki verra, sé
leikjunum ekki hætta búin.
Mikill fjöldi ungmenna er nú
til meðferðar í sjúkrahúsum Mexi
kóborgar vegna brunasára og
annara meiðsla, sem þau hafa
Framh. á hls. 27
iHandrítomól'
inu enn frestnð
Kaupmanahöfn.
Hinu svonefnda staðfesting
armáli, sem ríkisstjórnin hef-
ur höfðað til þess að fá rétt-
arlega staðfestimgu á því, aðy
| ekki þurfti að greiða skaða-
. bætur vegna afhendingar ís-
lenzku handritanna í Árna-
I safni, hefur enn verið frestað.
I Kemur málið fyrir Eystri
I landsrétt 15. nóvember nk.
Frestunin mun stafa af því,
' að enn þurfti að afla ákveð
| inna upplýsinga.
NTB — 23. september.
Að minnsta kosti 10 sovézk
skip hafa fylgzt ofansjávar með
flotaæfingum Atlantshafsbanda-
lagsins á Norður-Atlantshafi og
við þau bætast kafbátar, sem
ekki er Vitað, hve margir eru.
Auk þess fylgjast sovézkar
flugvélar daglega með ferðum
flotans.
Smærri lönd verða að taka
höndum saman -
— ef koma á í veg fyrir hörmungar
um heim allan, segir Tító —
Belgrad, 24. sept. — NTB
TÍTÓ, Júgóslavíuforseti, hefur
hvatt öll smærri lönd til þess
að mynda heild til andstöðu við
þá þróun, sem forsetinn telur
gæta í alþjóðastjómmálum, og
nú ógni heiminum með nýrri
stórstyrjöld. Jafnframt greindi
Mika Spiljak, forætisráðherra,
frá því í júgóslavneska þinginu,
að hafizt hefði verið handa um
að auka baráttuhæfni hers lands
ins, og reyndar þjóðarinnar
allrar.
Spiljak lagði höfuðáherzlu á
mnrás Varsjárbandalagsland-
anna í Tékkóslóvakíu í ræðu
sinni, og sagði að innrásin hefði
gert öryggisvandamál hinna
smærri þjóða meir aðkallandi en
nokkni sinni fyrr. Hefði þetta
komið bezt í ljós í Tékkósló-
vakíu þar sem gripið hetfði ver-
íð til vopnaðrar valdbeitingar í
því skyni a'ð hindra sjálfstæða
og frjálsa þróun mála í fullvalda
ríki.
Spiljak sagði, að Júgóslavía
hefði ávallt verið andsnúin vald-
beitingu í öllum hlutum heims,
af þeirri ástæðu, að me'ð slikri
stefnu tryggði landið bezt eigið
sjálfstæði. Spiljak bætti því við,
að júgóslavneska þjóðin hefði
vilja og þrótt til þess að verja
eigið sjálfstæði og leiðir í sósíal-
istiskum efnum og í sambandi
við þetta ræddi hann um hvem
skilning Júgóslavar leg*ðu í þjóð-
legt varnarstríð.
Þá sagði júgóslavneski for-
sætisráðherrann, að rót hins illa
í alþjóðastjórnmálum, væru stór
veldablokkirnar. Þær væru
helzti þröskuldur á vegi þess, að
mál Evrópu gætu þróast á eðli-
legan hátt. Benti hann síðan á
hinar hatrömmu árásir, sem
haldið hefur verið uppi í garð
Júgóslava í Sovétríkjunum, Pól-
landi og Búlgaríu. Hann sagði
að Júgóslavar hefðu áhuga á
samvinnu við Sovétríkin og
önnur sósíalísk lönd á grund-
velli Moskvu-Belgrad-yfirlýsing-
anna frá 1955 og 1956.
Ummæli Tító forseta komu
fram í ræ'ðu, sem hann hélt í
kvöldverðarboði til heiðurs
Haile Selassie á Brioni-eyju á
mánudagskvöld. Selassie er þar
í orlotfi.
Titó sagði, að þróunin í al-
þjóðamálum væri sú, að smærri
og meðalstórum þjóðuni stæði
Framhald á bls. 27