Morgunblaðið - 25.09.1968, Side 2

Morgunblaðið - 25.09.1968, Side 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 25. SEPT. 196«. Þjófunum og eigandan um ber ekki saman - — um upphæð þýfisins TVEIR ungir menn brutust inn í verzlunina að Minni-Borg í Grímsnesi aðfaranótt sunnudags og stálu rúmlega 40.000 krónum, að því er þeir sjálfir segja, en eigandi verzlunarinnar telur, að um 50 þúsuind kr. hafi verið stolið. Þjófamir vom handteknir á sunnudag og gátu þeir skilað rúmum 28 þúsund kr. aftur. Mennirnir tveir fóru á dans- leik í félagsheimilinu Borg á laugardagskvöld ásamt þrem- Ur félögum sínum, en að lokn- um dansleik heimsóttu þeir kunningjafólk, sem bjó í tjaldi rétt hjá verzluninni. Síðar um nóttina fóru þessir tveir menn og brutust inn í verzlunina. Eftir nokkra leit fundu þeir lyklakippu þar í skúffu. Reynd- ist einn lykiHinn ganga að pen- Fyrsta spila- kvöldið í Garðaholti FIMMTUDAGSKVÖLD byrjar Bridgefélag Garða- og Bessa- staðahrepps hauststarfið en þá verður fyrsta spilakvöld félags- ins og 'haldinn aðalfundur í sam- komuhúsinu á Garðaholti. Félag- ið hóf starfsemi sína í fyrravet- ur. Bar það þá til tíðinda er lokið var sveitarkeppni tvímenn- ings- og einmenningsfceppni, að einn og sami bridgespilarinn vann til fyrstu verðlauna í öll- um þessum spilakeppnum og var það formaður Bridgefélagsins, Einar bóndi á Setbergi. ingaskáp verzlunarinnar og opn uðu mennimir skápinn og tóku úr honum peningana, en einnig stálu þeir einhverju af tóbaki. Eigandi verzlunarinnar svaf á næstu hæð fyrir ofan, en varð einskis var fyrr en á sunnudags- morgun. Þjófarnir héldu svo til Reykja- víkur og skiptu þýfinu á milli sín heima hjá öðrum þeirra, en að því loknu skildust leið- ir. Rannsóknarlögreglan handtók annan þeirra klukkan þrjú á sunnudag og skilaði hann aftur 19.600 krónum, en hinn, sem var handtekinn þremur tímum seinna gat skilað 8.500 krónum. Stór - bingri ri Snuðórkróki SJALFSTÆÐISKVENNAFÉ- LAG Sauðárkróks heldur stór- bingó í félagsheimili Bifröst á Sauðárkróki föstudaginn 27. sept kl. 9 e.h. Aðalinngangurinn er tann. bergs-sjónvarpstæki að verð- mæti kr. 21.000,00 auk átta ann- arra góðra vinninga. Er enginn vafi á að fjölmennt verði á skemmtunina og margir freisti gæfunnar. Mynd þessa tók Sveinn Þormóðs son af mannvirkjunum á Skálafelli, þar sem kotnin er endur varpsstöð sjónvarpsins fyrir Norðurland. Ný endurvarpsstöð sjónvarps — á Skálafelli — Sendir til Eyjafjarðar og Skagafjarðar Á SKÁLAFELLI í Mosfellssveit er nú risið endurvarpsstöðvar- hús fyrir sjónvarpið og er unnið að uppsetningu sendis þar, en hann á að senda mynd sjón- varpsins norður í Eyjafjörð. Pét- ur Guðfininsson, framkvæmda- stjóri sjónvarpsins sagði Mbl. í gaer, að gert væri ráð fyrir að hægt verði að taka stöðina í notkun fyrir lök þessa árs, von- andj fyrir jól. Skálafellsstöðin verður ein af stærstu endurvarpsstöðvunum í sjónvarpskerfinu, 10 kw og verð- ur hún notuð meira síðar. Nú getur hún, samtímis því að end- urvarpa norður, bætt aðstöðuna Verkstæðisbygging SVR Athugasemd frá Innkaupastofnun Reykjavíkurborgar VEGNA bréfs Einars Ás- mundssonar, forstjóra Sindra- smiðjunnar h.f., til borgarráðs Reykjavíkur, dags. 16. sept. s.l. og birt var í blaði yðar í gær, er hérmeð óskað eftir, að Morg- unblaðið birti eftirfarandi at- hugasemdir: Tilboð í stálgrindahús fyrir verkstæðisbyggingu S.V.R. að Kirkjusandi voru opnuð þann 21. júní s.l. Alls bárust 12 tilboð, þar af 2 innlend og var tilboð Sindrasmiðjunnar lægst innl. tilboða. Umsögn arkitekts og verkfræðings um tilboðin er dags. 13. júlí sL Endanleg ákvörðun um kaup- in var hins vegar ekki tekin fyrr en á borgarráðsfundi hinn 27. ágúst s.l. Ástæðan fyrir þess um drætti er eingöngu að reynt var margsinnis, en árangurslaust, á tímabilinu 17. júlí til 27. ágúst að fá hjá Sindrasmiðjunni upp- lýsingar um skiptingu tilboðs- ins í innlend vinnulaun og efn- iskostnað. í bréif Einars Ásmundssonar segir m.a.: „Umbeðnar upplýs- ingar, þ.á.m. sundurliðun á inn- lendum og erlendum kostnaði og vinnulaunakostnaði, voru látnar f té, þótt ekki sé vitað að slíkt hafi verið krafizt af bjóðanda hins erlenda stálgrindahúss". Umræddar upplýsingar um skiptingu tilboðsins í vinnu- og LEIÐRÉTTING í ritdómi Sigríðar Björnsdótt- ur um ljóðabók Þórhildar Sveins dóttur, sem birtist s.l. sunnudag, varð prentvilla í upphafslínu fyrstu ljóðatilvitnunar greinar- innar. Rétt er ljóðlínan þannig: Kambanna klið ég man. Leiðrétt- ist þetta hér með. efniskostnað bárust daginn eft- ir að endanleg ákvörðun um kaup á stálgrindahúsinu var var tekin af borgarráði og voru þá liðnar um 6 vikur frá dag- setningu umsagnar arkitekts og verkfræðings. Er því vísað á bug ummælunum um „hina lang dregnu útreikninga hlutaðeig- anda borgarstjórnardeildar". Tregða Sindrasmiðjimnar til að láta í té upplýsingar um skiptingu tilboðsins á efnis- og vinnukostnað er óskiljanleg, þeg ar haft er í huga, að ef um samninga við Sindrasmiðjuna hefði orðið að ræða, hefði hvort sem er þurft að skipta samnings upphæðinni (tilboðsverðinu) í efni og vinnu með tilliti til þeirrar verðbreytingargrein- ar sem ávallt eru að finna í verksamningum. Hið nýálagða innflutningsgjald 20 prs., sýnir glöggt nauðsyn þess, að svo sé. Tel ég að hérmeð sé einnig svar að hvers vegna skiptingu tilboðs í efnis- og vinnukostnað hefur „ekki verið krafizt af bjóðanda hins erlenda stálgrindahúss." f bréfi Einars Ásmundssonar segir að tilboð Sindrasmiðjunn ar muni vera um 20prs. hærra en tilboð hins erlenda bjóðanda. Þetta er rangt. Hið rétta er, að tilboð Sindra smiðjunnar h. f. nemur kr 2.995.000.00. en tilboð Hannesar Þorsteinssonar f.h. Stran Steel Corp. kr. 2.334.000.00 Mismunur kr. 661.000.00 eða 28.3prs. í tilboði Sindrasmiðjunnar frá 21. júní s.l. segir um uppsetn- ingarkostnað hússins: „Við höf- um gert kostnaðaráætlun um uppsetningu á stálgrindahúsinu og er uppsetningarkostnaðurinn samkvæmt áætluninni kr. 950.000.00“. Til samanburðar skal tekið fram að áætlaður uppsetningar- kostnaður á stálgrindahúsi frá Hannesi Þorsteinssyni er um kr. 550.000.00. Heildarverð á stál- grindahúsi Sindrasmiðjunnar yrði þannig með uppsetningu kr. 3.945.000.00., en heildarverð stálgrindahúss Hannesar Þor- steinssonar kr. 2.884.000.00. Mis- munur kr. 1.061.000.00. eða 36.8 prs. Að gefnu tilefni í bréfi Sindra smiðjunnar skal tekið fram að alla tíð hefur staðið til að ís- lenzkir aðilar mundu annast upp setningu hússins. Þá skal tekið fram að hið nýja innflutningsgjald 20% af tollverði innfluttra vara, sem ekki er meðreiknað í verðsam- anburði hér að framan, mun falla krónulega nokkuð jafnt á tilboðin, þar sem reikna má með að allt efni til smíðis Sindra- hússins þurfi að flytja inn sér- staklega, ef um pöntun yrði að ræða. Þann 4. apríl var eftirfarandi tillaga samþykkt á borgarstjórn arfundi. „Borgarstjórn Reykja- víkur telur rétt að taka jafnan tillit til þjóðhagslegs gildis þess að verk séu framkvæmd af inn lendum aðilum í stað erlendra samkeppnisaðila með því að taka tilboðum innlendra bjóðenda einkum þegar atvinna er ónóg í viðkomandi atvinnugrein, þótt tilboð þeirra séu nokkuð hærri en erlendra tilboðsgjafa, að jafnaði þó eigi meir en 5-10prs. hærri, enda sé að öðru leyti um sambærilega vöru og þjónustu að ræða.“ Reykjavík, 24. sept. 1968. Torben Friðriksson, forstjóri Innkaupastofnunar Reykjavík- urborgar. sums staðar í Reykjavík og ná- grenni, að því er Pétur tjáði okkur. Endurvarpsstöðin var byggð við hús, sem landssíminn hefur þarna á Skálafelli. Jafnframt Skálafellsstöðinni er unnið að smíði endurvarps- og móttökustöðvum í Skagafirði og Eyjafirðí og verða þær tilbúnar um svipað leyti og Skálafells- stöðin. Stöðin í Skipalóni í Eyja- fi.rði, tekur við frá Skálafelli og varpar upp á Vaðlaheiði, sem er stöð er varpar á Akureyri, en fleiri smástöðvar verða svo byggðar víðar í Eyjafirði. Eru þetta litlar stöðvar með loftnet- um. Móttökustöðin í Skagafirði er í Tungueggjum í Lýtingsstaða- hreppi og tekur önnur stöð í Hegranesi við sendingum þaðan. Skálafellsstöðin á að verða ómönnuð, en Pétur kvaðst þó búast við að fyrst um sinn yrði þó ‘hafður þar maður. Jeppa vegur liggur upp á fjallið, en hann er feikilega bnattur efst. Jrin Kjartnnsson heiur selt fyrir 8 milljrinir kr. í Þýzknlnndi JÓN Kjartansson, seldi sl. fimmtu dag 70 lestir af síld fyrir 49.970 mörk, en það eru um kr. 10 á kílóið. Jón Kjartansson er búinn að stunda síldveiðar í Norðursjó síðan 14. júní og hefur á þeim tíma selt síld í Þýzkalandi fyrir 8 milljón kr. Skipstjóri er Þor- steinn Gíslason. Jón Kjartansson er lang hæsti báturinn af þeim, sem síldveiðar hafa stundað á þessurn slóðum, enda verið lengst. Áður en Jón Garðar fór heim á síld 'hafði hann selt í Þýzkalandi fyrir 5 miiilj. kr. og Guðrún Þorkels- dóttir fyrir um 4 millj., áður en hún fór 'hieim. Sýning Vilhjrilms SYNING Vilhjálms Bergssonar í Bogasal Þjóðminjasafnsins hefur staðið síðan á laugardag og verið ágætlega sótt. Hafa 4 myndlr selzt, þar á meðal sú stærsta er nefnist Tenging, en hún kostaði 35 þús. kr. Sýngin er opin dag lega kl. 14-22 til sunnudagskvölds. VUjn leigjn Straumijarðorri 180 þús. kr. lœgra en boðið er EIGENDUR veiðiréttinda í Straumfjarðará í Miklaholts- hreppi héldu með sér fund sl. laugardag að Breiðabliki, en út- runninn er lieigus am ni ngur um ána. Voru opniuð tilboð í ána fyrir næstu fimm ár. Reyndust þau vera tvö. Maignús Magnús- son, sem áður hefur haft ána ásamt fleirum fyrir 350 þúsund kr., bauð nú 560 þúsund kr., en Valdimar Sigurðsson frá Hrísdal bauð 380 þúsund. Var samþykkt með meiri hluta atkvæða að leigja Valdimari ána fyrir 380 þúsund kr. Tólf lögbýli eiga veiðirétt í ánni. Minnihlutinin sem réði yfir 4 atkvæðum og um 40% land- eignar vildi taka hærra tilboðiniu, en 8 aðilar með um 60% af land- eignar vildi taka hærna tilboðinu, inu. Fylgdi bankatrygging hærra tilboðinu, og báðum tilboðunum ákvæði um að einungis flugu- veiði yrði í ánni. Aðnlíundur Sjrilfstæðisiélngs Fljótsdalshérnðs holdinn Aðalfundur Sjálfstæðisfélags Fljótsdalshéraðs verður haldinn í Egilsstaðakauptúni miðvikud. 25. sept. kl. 20.00. Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf Jónas Pétursson alþingismað- ur mætir á fundinum. Að loknum fundi Sjálfstæðisfé laganna, veður haldinn aðalfund ur fulltrúaráðs Sjálfstæðisfélag- anna í Norður-Múlasýslu og Aust ur-Héraði Stjórnir félaganna.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.