Morgunblaðið - 25.09.1968, Síða 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 25. SEPT. 1^68.
*
»
BÍLALEIGAN
AKBRAUT
SENDUM
SÍMI 82347
BILALEIGAN
- VAKUR -
Sundlaugravegl 12. Simi 35135.
Eftir lokun 34936 og 36217.
Simi 22-0-22
Rauðarárstig 31
1-44-44
ý&ó&s&eigcz,
Hverfiseötu 103.
Simi eftir lokun 31160.
MAGNÚSAR
skiphoiti21 s«mar21190
oftirlolgm t'-~S 40381
LITLA
BÍLALEIGAN
Bergstaðastræti 11—13.
Hajrstaett leieugjald.
Sími 14970
Eftir lokun 14970 eða 81748.
Sigurður Jónsson.
I>ar sem salan er mest
eru blómin bezt.
Gróðrarstöðin við Miklatorg.
Símar 22822 og 19775.
FÉLAGSLÍF
Víkingur .knattspymudeild.
Innanhúsæfingar hjá elztu
aldnrsflokkum verða á
fimmtudögum. Meistara- og 1.
flokkur kl. 7,50, 2 flokkur kl.
8,40. Nýir félagar velkomnir.
Þjálfari.
Ráðskona óskast
Barnlaus kona óskast til að
feugsa um heimili í Rvík.
öll þægindi. Sérherb. Svar
merkt: „Ráðskona 0000“ til
afgr. Mbl. fyrir laugardag.
Aukavinna
Ungur maður, vanur út-
keyrslu, enskum bréfaskrift
um og öðrum störfum við
heildv., óskar eftir vinnu f.
hád. Tilb. til Mbl. f. 1. okt.
merkt: „2005“.
Au pair
stúlka óskast á heimili í
London. Góð reynsla ís-
lenzkra stúlkna. Uppl. í
sima 84447 eftir fcl. 7 á
kvöldin.
§ Réttur maður á réttum
stað
Reykvíkingur skrifar og kem-
ur víða við:
„Velvakandi góður!
Um síðustu áramót, var útval-
inn nýr ræðismaður íslands, í Se-
attle á vesturströnd Bandaríkj-
anna, ungur og glæsilegur lög-
fræðingur Jón Marvin Jónsson.
Hann er einn hinna fjölmörgu
íslendinga vestra, sem vilja
beita sér fyrir nánari samskift-
um menningarlegum milli þjóð-
arbrotanna í austri og vestri.
Hefur Jón ennfremur sjálfur
brennandi áhuga fyrir öllu því
sem islenzkt er, og hefur komið
hingað tvívegis, til þess að geta
af eigin raun kynnzt landi og
þjóð.
Hefur hann þvf um leið bund-
izt sterkari og sterkari böndum
við skyldfólk sitt hér, en for-
eldrar hans bæði voru fædd hér
á landi. Og með fágaðri fram-
komu sinni hefur hann áunnið
sér, hug og hjarta allra, sem hon
um kynnast.
£ Merk kona
Hinn 17. okt. næstkomandi, á
íslenzk skáldkona í Seattle frú
Jakobína Johnson 85 ára afmæli.
Vonandi verður þessarar
merku listakonu minnzt á verð-
ugan hátt þann dag bæði í út-
varpi og blöðum, því svo mikið
verk hefur hún unnið sem nokk-
urs konar menningarfulltrúi
lands síns í Vesturálfu.
Hún hefur flutt ógrynni fyrir-
lestra um land og þjóð á mismun
andi mannfundum.
• Lögberg
og Heimskringla
Fátt myndi gleðja landa okkar
í Vesturheimi meir en ef íslend-
ingar stuðluðu að meiri út-
breiðslu á blaði þeirra, Lögberg
og Heimskringlu, hér á landi.
Blaðið flytur okkur hérna að
austanverðu fréttir af löndum
okkar vestra, sem reglulega gam-
an er að fylgjast með, auk þess
sem stuðlað yrði að því, að blaða
útgáfa þeirra leggist ekki niður.
Ég veit hins vegar að það er
aðeins framtaksleysi hjá mörg-
um að gerast ekki áskrifendur,
ekki áhugaleysi.
Gerum það sem í okkar valdi
stendur itl þess að bönd vináttu
haldist milli þjóðarbrotanna, ger-
umst strax í dag áskrifendur hjá
umboðsmanninum, Sindra Sigur-
jónssyni, póstafgreiðslumanni á
Pósthúsinu í Reykjavík.
Ritstjóri Lögbergs og Heims-
kringlu er frú Ingibjörg Jónsson,
mágkona séra Sigurjóns Jónsson-
ar, fyrrum prests á Kirkjubæ.
0 Encyclopædia
Britannica
Alfræðiritið „Encyclopædia Brit
annica" átti 200 ára afmæli á
þessu ári, var stofnsett í Edin-
borg í Skotlandi.
Það er einkennilegt að afmæli
þessarar merku stofnunar, sem
gefur út elzta og fullkomnasta
alfræðiritið í heimi, skuli ekki
hafa verið minnzt í íslenzkum
blöðum, ennfremur vegna þess að
það mun líka 1 dag vera út-
breiddasta alfræðiritið á íslandi.
Verkið er dýrmæt eign, auk þess
að vera traustur vörður, á heim-
ilinu eða í skólanum, fyrir þá
sem vilja fá vitneskju um eitt og
annað, sem ókunnugt er.
Enginn vinur er tryggari en ein
mitt góð bók.
0 Sálarrannsóknarfélögin
Það er ánægjulegt að áhugi
manna fyrir dulrænum efnum
mun fara vaxandi, enda sýnir
gróskan í Sálarrannsóknarfélag-
inu í Hafnarfirði og félögum á
Selfossi og Akureyri þess
merki ennfremur. En leitt er til
þess að vita, að elzta félag sálar-
rannsóknarmanna „félagið" hér I
Reykjavík, skuli ekki starfa nema
endrum og eins. Hvað veldur því?
Margir ungir menn og konur
myndu fúslega vilja leggja eitt-
hvað af mörkum til starfs í fé-
laginu, ef það væri opnara.
Hið eina, sem sýnir líf meðal
félagsins hér í borg er þegar hinn
merki miðill er fenginn til þess
að halda skyggnilýsingar, en þar
á ég auðvitað við Hafstein
Björnsson.
Tímarit Sálarrannsóknarfélags
ins, „Morgunn", kemur út tvis-
var á ári, og er ritstjóri þess
hinn kunni snillingur séra
Sveinn Víkingur. Flytur tímarit-
ið margar góðar greinar um dul-
ræn mál, mest þó erlent efni og
þá þýtt, en vissulega mætti vera
meira efni eftir íslenzka menn.
Sálarrannsóknarfélögin í land-
inu gætu orðið öflugustu félög-
in í landinu ef vel er á málun-
um haldið. Ég legg hér til eftir-
farandi:
T.d. að „Sálarrannsóknarfélag
íslands" hefði erindreka, sem
ferðaðist um landið og flytti er-
indi og aðstoðaði við félagsstofn
anir á ýmsum stöðum á landinu,
bendi ég m.a. á afburðáhæfileika
menn, sem myndu ef til vill vilja
taka slíkt að sér, séra Benjamín
Kristjánsson fræðimann frá Lauga
landi í Eyjafirði, eða séra Pál
Þorleifsson fyrrum prófast á
Skinnastað.
Gerði sér far um að fá fólk
með dulræna hæfileika, með til-
liti til að þrozka hæfileika þess
undir stjórn strangra manna.
Opið hús, þar sem fólk geti
komið saman.
Bókasafn félagsins verði stór-
lega eflt.
Að minningu frumherjanna, sem
stofnuðu „félagið" verði veglega
minnzt á hátíðarsamkomu í sam-
bandi við 50 ára __ afmæli Sálar-
rannsóknarfélags íslands, í des-
ember.
Reykvíkingur"
ÚTBORGUN
Á MÁNUÐI
ÞANNIG EIGNIZT ÞÉR
HEILT GLÆSILEGT
BORÐST OFUSETT
SELST EINNIG STAKT
MEÐ BEZTU FÁANLEGUM
GREIÐSLUSKILMÁLUM
KOMIÐ OG SKOÐIÐ OKKAR
GLÆSILEGA ÚRVAL AF
BORÐSTOFUHÚSGÖGNUM
ÚR EIK OG TEKKI
ff
UIU
I 1
n i i 11
Simi-22900 Laugaveg 26
•X