Morgunblaðið - 25.09.1968, Síða 5

Morgunblaðið - 25.09.1968, Síða 5
MORGUNBLAÐEÐ, MIÐVIKU'DAGUR 25. SEPT. 196S. 5 Hún losar til okkar daglega Haferninum, 20. september. M.B. GUÐBJÖRG ísafirði er það skipsnafn, sem oftast er talað um og skrifað hér um borð í Haferninum, og þó fyrst og fremst vegna þess, að ekki líður sá dagur, að m.b. Guðbjörg fái ekki einhverja síld, stundum lítið, stundum mikið, en alltaf eitthvað. Og Guðbjörg hefur komið daglega til okkar í þessari fimmtu ferð okkar, þann tíma sem við höfum verið á miðunum, m.a.s. sama daginn og hún losaði síld í m.s. Síld- ina, kom hún með um 100 tunnur til okkar, siím við skip verjar keyptum og söltuðum. Guðbjörg er nú bráðum bú- in að vera á miðunum í þrjá mánuði, án þess að koma til íslands. Aðeins einu sinni á þessu tímabili hafa skipverjar stigið á land, en það var í Faereyjum. Þangað fóru þeir snemma í sumar með síld. All an þennan tíma hefur Ásgeir skipstjóri haft konu sína með sér um borð, og >akki er hægt að segja, að hún sé nein fiski- fæla, því að Guðbjörg er með þeim aflahæstu og nálgast óð- um toppinn. Eiginkona Ásgeirs, eða Geira, eins og hann er oftast kallaður, heitir Sigríður Svein björnsdóttir, og ástæðan fyrir veru hennar um borð er sú, að hún axlabrotnaði fyrir nokkru og var á Norð- firði í læknisaðgerð, er hún féllst á að fara með bónda sínum til sjós sér til upplyft- ingar og bsilsubótar, en hún er óvinnufær. Hún sagði, að það hefði ver ið 15. júní, sem þau lögðu af stað á miðin. Henni finnst þetta skemmtileg tilbreyting, þótt tíminn sé orðinn heldur lengri, heldur en hún gerði ráð fyrir. Annars þurfti hún engu að kvíða. Þau eiga fjög- ur nær fullvaxin börn. Það yngsta, 15 ára, ier ráðskona heima, en sá elzti, 19 ára, er með þeim á sjónum. Hann heitir Bjartur. Sigríður Sveinbjörnsdóttir, eiginkona skipstjórans á Guðbjörgu ÍS., Ásgeirs Guð- bjartssonar. hún, þótt handlama sé, hjálp- ar skipverjum. Er það sérstak lega þegar þeir eru þreyttir og sofa meðan látið er reka. Þá st:ndur hún vakt i brúnni. — Steingrímur. Asgeir Guðbjartsson, skipstjóri á ms. Guðbjörgu ísafirði Bátsmaðurinn á Haferninum, Sigurður Jónsson sést Iíka á m.vndinni til hægri. Guðbjörg ÍS. Hún var búin að veiða 2400 tonn 20. september sl. (Ljósm. Steingrimur). Rekn dagheimili fyrir börn stúdento FÉLAGSSTOFNUN stúdenta Há- skóla íslands hefur fengið leyfi til að starfrækja dagheimili a3 Norðurmýrabletti 35 og er gert ráð fyrir að fjöldi barna á dag- heimilinu verði einhvers staðar milli 20 og 30. Hér er um að ræða gamalt hús, sem menntamálaráðuneytið festi kaup á af borginni. Þegar hefur verið ráðin forstöðuköna, og hef- ur hún frjálsar hendur um ráðn- ingu starfsfólks. Áformað er að hefja rekstur þessa dagheimilis í október og er nú verið að vinna að endurbótum á húsnáeðinu. Hér er þó um algjört bráðabirgðahús- næði að ræða, og hafa heilbrigðis yfirvöld veitt leyfi til starfrækslu á þessu dagheimili í eitt ár. Ferðaritvélar • í skólann • Á heimilið • Á vinnustað HAGSTÆTT VERÐ Ólafur Gíslason & Co. hf, Ingólfsstræti 1 A - Sími 18370 Stúlka óskast nú þegar til símavörzlu og vélritunar. Eiginhandarumsóknir, er tilgreini aldur, menntun og fyrri störf, sendist afgr. Mbl. merktar: „Símavarzla — 8999“. Fiskbúð til sölu Tilboð óskast í fiskbúð á góðum stað. SKIP & FASTEIGNIR Austurstræti 18 III. hæð Sími 21735. Eftir lokun 36329. M. P. miðstöðvarofnar Sænsku Panel-ofnarnir frá A/B Felingsbro Verk- stáder, eru ekki aðeins tæknilegt afrek, heldur einnig sönn heimilisprýði. Verð hvergi lœgra. LEITID TILBOÐA Einkaumboð: HANNES ÞORSTEINSSON heidlverzlun, Hallveigarstíg 10, sinit: 2-44-55. DANSSKÓLI Innritun nýrra nemenda ÁSTVALDSSONAR Reykjavík: Símar 2 03 45 og 1 01 18 kl. 10—12 og 1—7 daglega. Árbæjarhverfi: Kennum börnum 4ra—6 ára og 7—9 ára og 10—12 ára i gamla barnaskóltanum. Innritun í sima 3-8126 kl. 10—12 og 1—-7 daglega. Kennsla hefst mánudaginn 7. október. Kópavogur: Sími 3-81-26 kl. 10—12 og 1—7 daglega. Hafnarfjörður: Sími 1-01-18, kl. 10—12 og 1—7 daglega. Keflavík: Upplýsingarit liggur Sími 2097, kl. 1—3 daglega. frammi í bókabúðum.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.