Morgunblaðið - 25.09.1968, Side 12
12
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 25. SEPT. 1968.
Húsbyggjendur alhugið
Getum bætt við okkur smíði á eldhús og svefn-
herbergisskápiun, sólbekkjum o. fL
Upplýsingar í síma 34959.
TRÉSMIÐJAV K. 14.
KEFLAVÍK - KEFLAVÍK
Opinbert uppboð á óskilamunum í vörzlum lögregl-
unnar í Keflavík, verður haldið laugardaginn 28.
september 1968 og hefst kl. 14 við geymsluhúsnæði
lögreglunnar við Hafnargötu gegnt Ungmennafélags-
húsinu.
Bæjarfógetinn í Keflavík.
^Qallettlúíf in
Ballett-skór
Ballett-búningar
Leikfimi-búningar
Dansbelti
Buxnabelti
Netsokkar
Netsokkabuxur
Sokkabuxur
Margir litir
~fr Allar staerðir
Ballett-töskur
v
R Z L U H I M
UGtllÚniGtUt
3 rh- SlMI 1-30-76
Bræðraborgarstíg 22
21 árs stúlka
vön skrifstofustörfum og afgreiðslu óskar eftir vinnu.
Tilboð sendist Morgunblaðinu merkt: „Vinna — 6976“.
Miðskólinn Seyðisfirði
tilkynnir
Enn er rúm fyrir nemendur í 3. bekk.
Umsækjendur snúi sér til skólastjóra fyrir 1. okt.
Fræðsluráð Seyðisfjarðar.
Herbert Cuðmundsson:
Lýðræði og líf í stjúrnmálum
íslenzka þjóðin, fámenn á stórri
fjallaeyju norður við heimskautsbaug,
hefur verið önnum kafin við það und-
anfarna áratugi, að komast frá barn-
ingi til búsældar. Fyrir aðeins fáum
áratugum hafði hún á engu að byggja
öðru en ótrúlega þrautseigri menningu
og eðli veiðimannsins. Nú stendur hún
jafnfætis þeim langþróuðu þjóðfélögum,
sem búa við beztu lífskjör, andleg og
veraldleg.
Þetta er ekki aðeins Grettistak, held-
ur nánast kraftaverk .
En eins og að líkum lætur, stendur
þjóðin ekki óbogin eftir. Og enda þótt
það hljómi ótrúlega, þegar höfð er í
huga löng og hörð barátta fyrir endur-
heimt sjálfstæðis til að grundvalla bætt
lífskjör, þá er það samt staðreynd, að
stjórnarfarið sjálft hefur setið á hakan-
um.
Allt frá stofnun lýðveldisins fyrir
tæpum aldarfjórðungi hefur þjóðin stað
ið í byltingarkenndri framfarabaráttu
og náð einstæðum árangri á ýmsum svið
um menningar og efnahags. En allan
þennan tíma hefur stjórnarfarið verið
óbreytt í grundvallaratriðum. Liggur þó
ljóst fyrir, að forsendur stjórnarhátta
eru allt aðrar nú en þær voru í upp-
hafi.
Og nú er stjórnarfarið orðið svo úr-
elt, að til vandræða horfir, nema gagn-
ger endurskoðun fari fram og róttækar
breytingar verði gerðar.
Það er eðlilegt að menn velti því fyr-
ir sér, hvernig það hefur atvikazt, að
jafn mikilsvert atriði og sjálft stjórnar-
farið í okkar unga lýðveldi hefur setið
á hakanum. Á því eru ýmsar skýring-
ar, en tvær tel ég veigamestar. Annars
vegar að stjórnarfarsmálin höfðu tekið
hug og orku þjóðarinnar um áratuga-
skeið fram að lýðveldisstofnuninni og
hins vegar að síðan tók við ofurkapp í
lífskjarabaráttunni.
Ráðandi stjórnmálamenn síðasta ald-
arfjórðung ýmist tóku þátt í sjálfstæðis
baráttunni eða uxu úr grasi í hennar
tíð. Þá var það höfuðmarkmið að fá
sjálfsforráð til að hrífa þjóðina úr viðj
um erlends og skilningsvana valds og
sárri fátækt. Markmiðið var langþráð,
þegar það náðist. Það má segja, að sig-
urvíman og lífskjarabaráttan, sem átti
að fylgja og fylgdi í kjölfarið, hafi
dregið athygli stjórnmálamannanna frá
nauðsyn sífelldra umbóta í stjórnarhátt
um.
Um þetta er í rauninni ekki við neinn
að sakast. En þjóðin er reynzlunni rík-
ari og nauðsynlegt að hún færi sér
hana í nyt á þeim tímamótum í stjórnar-
háttum okkar, sem óhjákvæmilega eru á
næstu grösum.
En hverjir eru þá annmarkarnir í
stjórnarháttum okkar?
Þeir eru margir og eins og oft vill
verða, leiða þeir hver af öðrum.
Stærsti annmarkinn er tvímælalaust
fólginn í uppbyggingu og starfsemi
stjórnmálaflokkanna. Uppbygging þeirra
er ólýðræðisleg, þar sem valdið jafnt í
kjördæmunum og í heild er í höndum
fámennra hópa, sem eru í reynd óháðir
almennum flokksmönnum og kjósendum.
Almenn flokk-sstarfsemi hefur því lít-
inn tilgang, enda er hún rekin af al-
geru áhugaleysi allra aðila. Og fjöldi
flokksbundinna kjósenda minnkar frem-
ur en hitt, þótt kjósendum fjölgi um
þúsundir árlega. Það segir sína sögu.
Val alþingismanna, þ.e. forystuliðs
þjóðarinnar, mótast af þessu. Fámennir
hópar í kjördæmunum ákveða framboð.
Við þá ákvörðun gilda oft í og með
og allt eins annarleg sjónarmið, eins og
rótgróin vináttutengsl, kaup kaups eða
viðkvæmni, svo nokkuð sé nefnt af
mörgu. Kjósendur eru ekki spurðir fyrr
en við kjörborðið, og þá þegar er raun-
ar búið að ráðstafa mörgum þingsætum,
þar sem þau mega teljast örugg við nú-
verandi kjördæmaskipun. Og hið tak-
markaða val sitt miða kjósendur svo iðu
lega engu síður við persónulega fyrir-
greiðslu en hæfni frambjóðenda til for-
ystustarfa, enda er ekki auðvelt að koma
auga á erindi flestra alþingismanna inn
á Alþingi í þeim tilgangi, þar sem þeir
Jtoma fram eins og meðlimir í aðeins
misjafnlega raddsterkum kórum.
f kjölfar þessa fyrirkomulags hefur
leitt margs konar spillingu bæði innan
flokkanna og í opinberum störfum
þeirra.
Allt þetta og fleira þessu líkt hefur
orðið til þess, að stjórnmálamenn eru að
verða fámennur, fábreytilegur og
einangraður hópur. Þeirri vá verður að
bægja frá.
En annmarkarnir í stjórnarháttunum
eru á fleiri sviðum. Skipting landsins í
umdæmi er t.d. löngu orðin úrelt með
öllu og stendur uppbyggingu strjálbýl-
isins stórlega fyrir þrifum.
Það er höfuðnauðsyn, að stjórnmála-
flokkarnir geri sér grein fyrir því, að
þeir eru baráttutæki kjósenda. Það er
jafn brýn nauðsyn, að þeir geri sér ljóst,
að forsendur og eðli stjórnmálastarfs-
Framhald á bls. 16
!
%
%
Matreiðslukona
Hótel á Norðurlandi vantar góða matreiðslukonu frá
1. okt. n.k.
Upplýsingar gefnar á skrifstofu okkar.
Samband veitinga- og gistihúsaeigenda
Tryggvagötu 8, sími 2-2801.
Framkvœmd arstjóri
Vel menntaður, reglusamur og ábyggilegur maður
óskast til að v'eita innflutningsfyrirtæki forstöðu frá
1. október næstkomandi. Um mikla framtíðarmögu-
leika og há laun er að ræða.
Tilboð ásamt upplýsingum um menntun og fyrri
störf svo og meðmælum sendist afgr. Mbl. fyrir hinn
27. þessa mán. merkt: „Framkvæmdastjóri — 2002“.
Með öll tilboð verður" farið sem trúnaðarmál.
Bridgelólk í Hafnuriirði
og nugrenni
Vetrarstarfsemi Bridgefélags Hafnarfjarðar hefst í
kvöld með tvímenningskeppni. Spilað verður í Al-
þýðuhúsinu og hefst keppnin kl. 20.
Mætið vel og stundvíslega.
STJÓRNIN.
LAUST STARF
Barnaverndarnefnd Reykjavíkur óskar eftir að ráða
fulltrúa til þess að fara með málefni afbrotabama.
Laun skv. launareglum starfsmanna Reykjavíkurborg-
ar. Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun og
fyrri störf berist til skrifstofu barnaverndamefndar,
Traðarkotssundi 6, eigi. síðar en miðvikudaginn 2.
október n.k.
Félagsmálastofnun Reykjavíkurborgar.
Berja- og ávaxtapressan
BRflun
MuItÍDress
pressar á augnabliki hreina
saft og hreinan safa úr
berjum og ávöxtum.
Útsölustaðir í Rvík og nágr.:
Fönix s.f. Suðurg. 10. Lukt-
in, Snorrabr., Kron, Lauga-
vegi 18 a, Dráttarvélar h.f.
Hafnarstr. 23, Lampinn,
Laugavegi 87, Kaupfélag
Hafnfirðinga.
BRAUN-UMBOÐIÐ:
Raftækjaverzl. ísiands h.f.