Morgunblaðið - 25.09.1968, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 25.09.1968, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKU'DAGUR 25. SEPT. 1968. 13 Stórframkvœmdir á Akranesi: Hafnargarður stækkaður - stífla gerð fyrir vatnsveitu Akranesi 18. sept. 1968. f sumar hefur verið unnið að tveim framkvæmdum á vegum Akranesbæjar, upp við Akrafjall og út við Krossvík, sem hvor á sínu sviðf munu bæta og líf manna og veita þeim öryggi. Því verki er ætlað að þjóna tvenn'um tilgangi, vera til vatns- miðl'unar og grófhreinsunar. Öfl- ug stífla hefir verið steypt þvert yfir igilið ásamt miðlunarkeri og úr því gengur þil, sem skiptir gilinu í tvennt. Ætlast er til að um malar- og sandhreinsara. Á- ætlað er að verk þetta kosti um fjórar milljónir króna. — Tutt- ugu menn hafa unnið við það, en því lýkur í næsta mánuði. Þessar framkvæmdir eru einn ig áfangi í víðtækara kerfi. Á- framhald á þeim verður fullkom- in hreinsistöð niðri í bænum, og mun þá að öllum líkindum verða blandað klóri í vatnið og ef til vill „fluor“. Verkstjóri við þess ar framkvæmdir er Leifur Ás- Unnið við hafnarbætur á Akranesi. Akraneshöfn áður en framkvæmdir hófust. Ljósm. HJÞ. Efri hluti hafnargarðsins, sem er aðal brimvörnin og afgreiðslu svæðið fyrir skipin, hefir verið breikkaður um fimm metra á tvo mikið vatnsmagn safnist þarna fyrir og þau grófustu óhrein- indi, sem í því eru, botnfalli. Eftir það rennur vaitnið í gegn- grímsson, en í upphafi verksins varð hann að sjá um vegalagn ingu upp að fjallinu. Sá veg- ur hefur verið mikið farinn af heimamönnum og ferðafólki, því þarna er dásamlega fagurt út- sýni og fjallið er heillandi. Með fullri nýtingu er talið að Berjadálsá geti fullnægt fimmtán þúsund manna bæ með vatn. Berjadalsá rennur ofan jarðar á Akrafjalli þrjá til fjóra kíló- metra áður en hún fer í rörin, sem liggja til bæjarins. Á þeirri leið er bæði fugl og fénaður. Veiðibjalla verpir þar í þús- unda tali, og hefir vatnið því verið mettað af gerlum. Frysti- húsin hafa t.d. orðið að blanda klóri í fiskþvottavatnið, svo vel færi, þegar 'kaupendur skoða framleiðsluna í smásjá. — Það er því ekki óeðlilegt að íbúar Akraness horfa nú með vaxandi bjartsýni til Berjadalsins með bergvatnslindinni Bæði eru þessi verk unnin með nýjustu tækni-aðferðum, og líta þau mjög traustlega út, og lofa meistarana. Teikningar gerði Verkfræði- og tei'knistofan að Skagabraut 35 hér á Akranesi, Njörður Tryggvason og Björgvin Sæmundsson verkfræðingar. H.J.Þ. Á Akrafjalli er unnið við vatnsveituframkvæmdir. hundrað lengdar metrum, og hátt og öflugt þil verið steypt og stað sett ti'l varnar úthafsöldunni. Garðurinn hefir einnig verið hækkaður með nýju slitlagi. — í útsynningi og stór-brimum hef ir sjórinn gengið óbrotinn yfir garðinn á þessu svæði og oft valdið erfiðleikum og stöðvun- um í sambandi við afgreiðslu skipa. — og einu sinni tveim dauðaslysum. Þegar þessum kafla verksins er lokið, sem verður um næstu mánaðamót, mun athafnasvæðið aukast verulega og garðurinn verða alhliða öryggari. Verk þetta mun kosta um sex millj- ónir króna. Fimmtán til tuttugu menn hafa unnið við það í sum- ar. Annars eru þessar fram- kvæmdir áfangi í áætlun, sem mun kosta tuttugu ti'l þrjátíu milljónir króna, og verður unn- ið við þær næstu þrjú til fjög- ur sumur. Verkstjóri við hafn- arframkvæmdirnar er Pétur Baldursson frá Þingeyri. Vatnsveitan sem á uppsprettu sína í Berjadal í Akrafjalli hef- ir einnig verið endurbætt með nokkurskonar ,,Aswan-stíflu“ á okkar mælikvarða og er hún í Berjadalsárgili Jnnritun 25. september til 1. október. Innritun fer fram í Miðbæjarskólanum kl. 5—7 og 8—9 síðdegis, í stofu nr. 2. Gengið inn um dymar á norðurhlið. Nýjar námsgreinar: Heimilishagfræði, þjóðfélags- fræði, sænska,. mengjareikningur. Aðrar námsgreinar: íslenzka, danska, enska, franska, spánska, þýzka. Öll tungumá'in eru kennd í flokkum bæði fyrir byrj- endur og þá, sem lengra eru komnir. Leikhúskynning, bókmenntir, foreldrafræðsla, sálar- fræði, vélritun, bókfærsla, reikningur, algebra, kjóla- saumur, barnafátasaumur, sniðteikning, föndur. fslenzka fyrir útlendinga (kennt verður á ensku og þýzku). Frekari upplýsingar gefnar á innritunarstað. Ekki verður innritað í síma. Innritunargjald er kr. 250 fyrir hverja bóklega grein og kr. 400 fyrir hverja verklega grein. Vinsamlega geymið auglýsinguna. I þeim fjölda kúlupenna, sem eru á markaðinum, er einn sérstakur — BALLOGRAP, sem sker sig úr vegna þess, hversu þægilegur hann er í hendi. Hið sígilda form pennans gerir skriftina auðveldari, svo að skrifþreyta gerir ekki vart við sig. • BALLOGRAF- EPOCA blekhylki endast til að skrifa 10.000 metra (sem jafngildir eins árs eðlilegri notkun). Skriftin er ætíð hrein og mjúk, vegna þess að blekoddurinn er úr ryðfríu stáli, sem ekki slitnar. Þessir pennar eru seldir um allan heim í milljóna tali. Alls staðar njóta þeir mikilla vinsælda. ffAUOGftA epoca HINN HEIMSFRÆGI SÆNSKI KÚLUPENNI

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.