Morgunblaðið - 25.09.1968, Side 14

Morgunblaðið - 25.09.1968, Side 14
14 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 25. SEPT. 1068. Útgefandl Framkvæmdastjóri Ritstjórar Ritstjórnarfulltrúl Fréttastjóri Auglýsingast j óri Ritstjórn og afgreiðsla Auglýsingar Askriftargjald kr 120.00 1 lausasölu. Hf Arvakur, Reykjavík. Haraldur Sveinsson. Sigurður Bjarnason frá Vigur Matthias Johannessen. Eyjólfur Konráð Jónsson. Þorbjöm Guðmundsson. Bjöm Jóhannsson. Arni Garðar Kristinsson. Aðalstræti 6. Sími 10-100. Aðalstræti 6. Sími 22-4-80 á mánuði innanlands. Kr. 7.00 eintakið. STJÓRNARAND- STAÐAN OG FORTÍÐ HENNAR Ctjórnarandstæðingar, Fram ^ sóknarmenn og komm- únistar kenna nú ríkisstjórn- i'nni alla þá miklu erfiðleika, sem steðja að íslenzku at- vinnu- og efnahagslífi af völd um stórkostlegs verðfalls og aflabrests. Mikill meirihluti landsmanna sér í gegnum þennan yfirborðslega og á- byrgðarlausa málflutning. Fólkið veit að það er hið mikla verðfall sjávarafurða, ásamt aflabresti á síldveiðum og einstökum þorskvertíðum, sem fyrst og fremst hefur skapað vandræði hraðfrysti- húsanna og vélbátaútgerðar- innar. En það er ástæða til þess að rifja lítillega upp hvernig Framsóknarmenn og komm- únistar hafa brugðizt við til- lögum núverandi ríkisstjórn- ar, allt frá því að hún kom til valda. Hver var t.d. afstaða stjórn arandstæðinga þegar viðreisn arstjórnin flutti sínar fyrstu tillögur um víðtækar ráðstaf anir í efnahagsmálum lands- manna á Alþingi haustið 1959 og veturinn 1960? Framsóknarmenn og komm únistar snerust harkalega gegn þessum ráðstöfunum og sögðu, að með þeim væri ver ið að eyðileggja atvinnuveg- ina og leiða hörmungar yfir landslýðinn. En hvemig rættust þessar spár stjórnarandstæðinga? Þær rættust alls ekki, held ur sprungu í höfuð spámanna sinna. I kjölfar viðreisnarráð stafana ríkisstjórnarinnar komu einhverjir mestu upp- gangstímar, sem yfir íslenzka þjóð hafa komið. Framleiðsl- an jókst að miklum mun, sjávarútvegur og iðnaður eignuðust ný og afkastameiri framleiðslutæki og lífskjör alls almennings í landinu bötnuðu að miklum mun. Jafnhliða voru hafnar alhliða framkvæmdir til uppbygging ar á svo að segja öllum svið- um þjóðlífsins. Þessi þróun hélt áfram allt fram á árið 1967, þegar stórfellt verðfall varð á íslenzkum útflutnings- afurðum. Allt fram á þann tíma var hagur frystihúsanna góður og vélbátaútgerðin keypti stöðugt mikinn fjölda stórra og nýtízku fiskiskipa. Á það má einnig minna að Framsóknarmenn og komm- únistar hafa á öllu stjómar- tímabilinu barizt eins og ljón gegn hvers konar viðleitni ríkisstjórnarinnar til þess að skapa og viðhalda jafnvægi í efnahagslífi landsmanna. Þeir hafa reynt að kynda elda verð bólgu og dýrtíðar eftir fremsta megni, og því miður orðið of mikið ágengt. Þannig er þá ferill Fram- sóknarmanna og kommúnista á stjórnartímabili núverandi ríkisstjórnar. Það er ekki að furða þótt þessir herrar komi nú og ásaki ríkisstjórnina um það, að allt sem miður fer í þjóðfélaginu sé henni að kenna! Nei, kjarni málsins er sá að allt stjórnartímabil Við- reisnarstjórnarinnar hefur þjóðin verið í mikilli sókn til bættra lífskjara, þegar undan er skilið eitt og hálft sl. ár, eftir að verðfall og aflatregða skall yfir. Nú skiptir því mestu máli að þjóðin taki vandkvæðun- um af manndómi og festu og að öll ábyrg öfl í þjóðfélag- inu leggist á eitt um að sigr- ast á erfiðleikunum. FORVITNIR FYLGIFISKAR ¥»að hefur vakið mikla at- * hygli, að Rússar hafa fylgzt með flotaæfingum Norður-Atlantshafsbandalags ins af miklum áhuga undan- farna daga. Rússneskir kaf- bátar, tundurspillar, hafrann sóknarskip og „togarar" hafa fylgzt með herskipum NATO veldanna eins og lömb á eftir rollum. Er auðséð að Sovét- ríkin hafa vakandi áhuga á að kynna sér hvers konar nýj ungar í herbúnaði Atlants- hafsríkjanna. Við íslendingar þekkjum mjög vel þessa forvitni so- vézku flotastjórnarinnar. Rússnesk herskip eru hér ár- lega við landið og einstök skip rússneska flotans hika ekki við að fara inn í land- helgi og sigla jafnvel alveg upp að höfuðstöðvum NATO- vamarliðsins hér á landi. Það er af þessu auðsætt, að Sovétríkin, forysturíki Var sjárbandalagsins, sem réðist á Tékka, hafa sízt minni áhuga á því sem gerist við íslandsstrendur nú en áður. Kommúnistar hafa hins veg- ar haldið því fram, að vegna minnkandi hernaðarlegrar þýðingar Islands þá sé nú tími kominn til þess að hætt tÍiLfSl 117 'AM |jp 1 <.* t HFIMI \fii V U | Mli U1% 1 n c i iyi i Friðarviðleitni af húlfu ísraels UTANRÍKISRÁÐHERRA ísraels, Abba Eban, reynir nú einn einu sinni að fá stjómir Arabaríkjanna til þess að taka þátt i friðarviðræðum. Er haft eftir áreiðanlegum heimildum, að hann muni leggja fyrir Allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna nýjar tillögur til þess að koma deilu israels og Arabarikj- anna úr þeirri sjálfheldu sem i hún nú er í, og koma fram l með nýjar tillögur í því skyni / að finna endanlega lausn á \ flóttamannavandamáli Araba. í Mat fsraelsmanna á hinu / spennta ástandi í Austurlönd- / um nær 16 mánuðum eftir \ sex daga stríðið byggist á í þeirri dapurlegu staðreynd, / að leiðtogar Araba hafa ekk- / ert lært Qg engu gleymt. \ Arabar hafa að nýju lýst yfir trú sinni á ofbeldi, einu leið- inni til þess að leysa vanda- mál sín og ísraelsmanna, enda þótt hinir síðarnefndu hafi sigrað þá í þremur styrj- ölduim, — 1948, 1956 og 1967. „Þegar Arabar segja, að styrjöld sé óhjákvæmileg, þá meina þeir það‘, sagði yfir- maður herráðs ísraels, Haim Barlev hershöfðingi, rétt áður en nýár fsraelsmanna hófst. Hann bætti samt sem áður við á sinn venjulega varkára hát’t, að hann gæti ekki vitað, hvort eða hvenær Arabar myndu þykja&t sannfærðir um, „að þeir séu nægilega öflugir til þess að sigra fsrael: Ég er aðeins sann- fræður um eitrt, að ef þeir reyina, þá mun þeim mistak- ast aftur“. Moshe Dayan vamarmála- ráðherra gekk lengra og hét blóði og tárum. fsraelsmenn skyldu ekki hugsa um fyrri sigra, sagði hann, heldur búa \ sig undir það, að ný styrjöld -kynni að skella á. Þetta yrði löng og erfið leið, en ef til stríðs kæmi, yrði að tryggja „algjöran sigur“, en það er orðtak ísraelsmanna á því að knýja Araba til þess að hefja formlegar og raunverulegar friðarviðræður. Dvínandi vinir ísraels- manna á pólitískri lausn á næstunni byggist á tveimur mikilvægum atriðum: í fyrsta lagi eru það vaxandi hernað- araðgerðir meðfram landa- mærunum og skemmdarverk innan landamæra ísrael og í öðru lagi stöðugt herskárri ummæli arabiskra leiðtoga, sem eru að skapa eins konar stríðsmóðursýki á meðal Araba. Alvarlegir í bragði safnast ísraelsmenn í kringum ferða- útvörp á götuhornum, í kaffi- húsum og annars staðar, þegar fréttir eru lesnar. Það kemur fyrir, að sjá má andlit einhvers hlustandans fölna af ísrael og Arabalöndin umhverfis. skelfingu og síðan gengur hann burtu vélrænum skref- um, er nöfn fallinna her- manna eru lesin upp. Mögu- leikinn á því, að einbver, sem særzt hefur eða verið drep- inn, sé gamail skóiafélagi, ættingi eða kunningi, er vissu lega raunverulegur hjá þess- ari þjóð, sem ekki er fjöl- mennari en 2,5 millj. Nær 300 ísraelsmenn hafa misst lífið í þeirfi hálfgerðu styrjöld, sem ríkt hefur frá lokum sex daga stríðsins í fyrra. f hópi þeirra eru 53 sjó- liðar, sem voru á ísraelskium tundurspilli, sem Egyptar sökktu með flugskeytum, er þeir höfðu fengið frá Rúss- landi. Ef þetta er borið sam- an við ibúatölur Bretlands og Bandaríkjanna myndu sömu tölur vera 600 ungir menn drepnir í Bretlandi á 15 mánuðum og 24.000 í Bandaríkjunum. Það kom 110 sinnium til átaka í síðasta mánuði einum og voru þau oftast undirbúin í Jórdaníu, en nokkru sinnum stóðu Egyptar að baki þeirra og beindu skeytum sínum að her flokkum ísraelsmanna á aust- urbakka Súezskurðar. fsraelsmenn halda því fram, að þessi brot á vopna- hléinu, séu framkvæmd með samþykki æðstu valdhafa í Arabalöndunum. Nasser for- seti Egyptalands, Husseiin lands hafa hvað eftir annað lýst yfir samúð sinni og stuðn ingi við E1 Fatah og aðr- ar hermdarverbahreyfingar Araba. Neitun Öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna á að fordæma árásir Egypta hefur eflt þá sannfæringu í ísrael, að ísraelsmenn verða að reiða sig á sjálfa sig, ef þeir ætla að lifa, en ekki á Sameinuðu þjóðirnar, eins og ýmsir vel- viljaðir vinir þeirara ráð- leggja. Þrátt fyrir þessa ömurlegu þróun, hafa ísraelskir stjóm- málamenn ekki villjað taka / upp harðari afstöðu gagnivairt J þeim nær milljón Palestínu- 1 Aröbum, sem komust undir stjórn fsraelsmanna eftir júnístyrjöldina í fyrra. ísra- elsmenn eru allharðhentir gagnvart þeim, sem hjálpa hermdarverkamönnum, en í stjórnsýslu er haldið áfram ákveðnum tilraunum í þá átt að koma lífinu í eðlilegt horf á vesturbakka Jórdansfljóts- ins, sem ísraelsmenn her- niumdu og á Gazaræmunni, sem þeir tóku af Egyptum. Atvinnulíf á þessum svæðum hefur verið eflt verulega að nýju á þessu ári. Nú vinna nær 8000 manns frá vestur- bakkanum a'ð austurhluta Jerúsalem innan þess land- svæðis, sem ísraelsmenn réðu fyrir júnístyrjöldina. Stöðugur brottflutnignur Araba tiá Jórdaníu er hættur, / en hann hófst eftir styrjöld- 1 ina í fyrra. Nú fer þeim fjölg- \ andi, sem snúa aftur til þeirra i svæða, er fsraeismenn her- / tóku, þar sem þeir vonast til 1 þess að hitta fyrir fjölskyld- \ ur sínar að nýju. 1 Allt þetta veldur því að sjálfsögðu, að athygli ísraels- manna beinist frá vamarað- gerðum á þremur mikilvæg- um stöðum, þ. e. í fyrsta lagi að gæta vopnahléslínanna að Egyptalandi, Jórdaniu og Sýrlandi, í öðru lagi að berj- ast gegn hermdarverka- mönnum innan sjálfs ísraels og í þriðja lagi að efla vam- arrnátt ísraelsmanna jafnvel enn meir í því skyni að sann- færa Arabalöndin og vald- hafana í Moskvu — að hug- myndin um hemaðarlega lausn ætti endanlega að verða lögð á hilluna. (Observer.öll rttdnii é I (Observer, öli réttindi áskilin). konungur Jórdaníu og helztu ráðherramir í stjóm Sýr- ísskortur ó höfnum Norð-Aust- url. ekkert vundumúl ÍSSKKORTUR gerir mjög vart við sig á höfnum síldveiðiskip- anna á Norð-Austurlandi. Hafa menn sent bíla eftir ís i/tngan veg og jafnvel með skipum að sunnan. Þetta virðist mér vera að sækja vatnfð yfir lækinn. Vegna harðindanna sl. vetur og vor geri ég ráð fyrir að næg- ur snjór sé í fjöllunum í nám- unda við þá staði, sem skipin landa á, og er þá ekki vandinn annar en að senda bíla og menn með skóflur og nota snjó í stað íss. Þetta segi ég ekki út í blá- inn, heldur vegna þess, að ég hef reynslu fyrir því að nota snjó í fiskfarm vegna ísskorts, var það árið 1941, Fyrstu stríðsárin hafði ég fjögur skip í förum með ísáðan fisk til Bretlands. Svo hittust á, að vorið 1941 höfðu togaraeig- endur í Hafnarfirði fest kaup á öllum ís, sem íshús Reykdals gat þá framleitt. ís var heldur ekki fáanlegur í Reykjavík. Afréð ég þá að senda bíla og menn með skóflur austur á Hel-1- isheiði til að ná í rösk 40 tonn af snjó, sem ég notaði til kæl- ingar á 170 tonnum af fiski, sem ég sendi til Fleetwood. Á sjö- unda degi kom skipið á áfanga- stað og seldist farmurinn fyrir ágætt verð. Sölumaður minn, Kelly Ltd., skrifaði mér þakkar- bréf fyrir hvað fiskurinn hafði verið fallegur í snjónuim. Leifi ég mér að skora á skip- stjóra og útvegsmenn síldveiði- skipanna að gera tafarlaust til- raun með snjóinn, þegar ís vant ar, en eyða ekki fé og fyrirhöfn í að sækja ís tugi kílómetra eins og t.d. þegar sóttur var ís frá Raufarhöfn til Akureyrar fyrir nokkrum dögum. Beinteinn Bjarnason, fyrrv. útgerðarmaður, Hafnarfirði verði við allar varnir hér á landi. Þetta er eins mikil fjar stæða og hugsast getur, enda munu allir lýðræðissinnaðir og hugsandi Islendingar gera sér ljóst, að þörfin á aðild ís- lands að vömum vestrænna þjóða er brýnni nú en nokkru sinni fyrr.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.