Morgunblaðið - 27.11.1968, Blaðsíða 7
MORGUNBL<AÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR XI. NÓV. 1968
7
Jón Eyjólfsson hjá líkani sínu af Gullfossi. (Myndina tók ljósm. Mbl. Ól. K. M.9
Vestur á Sólvallagötu býr ’Jón
Eyjólfsson, sem smíðar skips-
líkön í tómstundum sínum.
Við hittum hann á dögunum
á förnum vegi, þegar hann var
að leggja síðustu hönd á líkan
af flaggskipi íslenzka flotans,
Guilfossi.
„Er hann búinn að vera lengi
í smíðum, Jón“?
,Ég hef verið að dunda við
þetta sJ. 3 ár. Ég hef aðeins
gripið í þetta í tómstundum mín
um og stundum hafa liðið
langir tímar sem ég hef ekki
snert á smíðinni. Þetta Hkan er
einn og hálfur metri á Iengd
og 30 cm. á breidd. Ég held
það haldi réttum hiutföllum
sæmiiega miðað við skipið
sjálft.
Ég fékk lánaSa útlitsteikningu
af Gullfossi hjá Eimskip, og svo
hef ég stundum farið niðureftir
til þeirra og skoðað „modelin"
frá skipasmíðastöðinni. Og auð
vitað hef ég svo gengið niður
að höfn, þegar Gullfoss hefur
legið við „kajann‘“ og gefið
honum auga“.
„Hvaða efni hefur þú nú not-
að í þetta líkan?"
,Það er nú mest fura, en
margt smávegis t.d. á þilfar-
inu varð ég að smíða úr áli eða
kopar, en sumt fékk ég tilbúið
frá Danmörku".
„Er þetta fyrsta skipið sem
þú smíðar, Jón?“
,Nei nei langt þvl frá. Ég
hef eiginlega alltaf verið að
smíða skip frá því ég man
fyrst eftir mér austur á Seyðis-
firði, sem smápatti, var ég að
tálga til báta með sjálfskeið-
ungium. Þessari iðju minni hef
ég eiginlega alltaf haldið áfram"
„Og hvaða skip er þér svo
minnisstæðast?"
„Ætli það sé ekki smíðin á
fimmmastraða barkskipinu
með rá og reiða og seglum. Það
var mikið verk á því skipi,
líklega meira verk en á Gull-
fossi. Þessi barkur fór síðan
upp á Akranes".
„Og hvað á næst að smíða,
Jón?“
.Eiginlega er mér það efst I
huga núna að smíða líkan af
gamla Gullfossi, en mig vantar
teikningar eða góðar myndir af
honum, og væri ég þakklátur
þeim, sem gæti léð mér þær. Og
þá verð ég víst að gefa upp
heimilisfangið, en ég á heima á
Sólvallagötu 33.“
Og með það kvöddum við
þennan „skipasmið" og óskuð-
um honum góðs gengis við smíð
arnar.
FORNUM
VECI
Smíðar skiplíkön í frístundum sínum
FRÉTTIR
Systrafélag, Ytri- Njarðvík
Saumafundur í barnaskólanum i
kvöld kl. 8.30 Aðeins tveir sauma-
fundir fyrir basar.
Kvöldvaka ungs fólks
Ungt fólk, 18 ára og eldra, held-
ur kvöldvöku í Safnaðarheimili Hall
grímskirkju (nyrðri turnálmu) laug
ard. 30 des kL 20.30. Þar verður upp
lestur og söngur. Próf. Jóhann Hann
esson rabbar um byltingar unga
fólksins og skeggrætt verður yfir
kaffi og kökum.
Kvenfélag Óháða safnaðarins
Basarinn verður sunnudaginn 1.
des kl. 3 í Kirkjubæ. Félagskonur
og aðrir velunnarar safnaðarins,
sem ætla að gefa á basarinn, góð-
fúslega komið munum í Kirkjubæ
laugardag 4-7 og sunnudag 10—1
IOGT, stúkan Framtiðin
heldiu- fund í kvöld kl. 8.30.
Myndasýning frá Galtalækjarskógi,
vinnu og móti og fl. Allir Reglu-
félagar velkomnir í Templarahöll-
ina. Æ.T.
Háteigskirkja
Jólakortin hafa runnið út, síð-
ustu forvöð fyrir safnaðarfólk að
ná í þau. Seld milli 3 og 5 daglega
og við allar helgiathafnir.
Kvenfélagið Fjóla, Vatnsleysuströnd
Basar félasgins verður laugar-
daginn 30. nóv. kl. 2.30 í Glað-
heimum Vogum. Margt góðra muna
Sjálfstæðiskvennafélagið Sókn,
Keflavík
heldur basar flmmtudaginn 38.
nóv. kl. 9 I Sjálfstæðishúsinu. Allur
ágóði rennur til góðgerðarstarfsemi
fyrir jólín.
KFUK I Reykjavík
minnir félagskonur og velunn-
ara félagsins á basarinn, sem verð
ur haldinn laugardaginn 7. des.
Kvenfélag Hallgrímskirkjn
Hinn árlegi basar verður haldinn
1 félagsheimiU kirkjunnar 7. des. Fé-
lagskonur og aðrir, er vilja styrkja
gott málefni sendi gjafir sinar til
formanns basarnefndar Huldu Norð-
dahl, DrápuhKð 10 og Þóru Einars
dóttur, Engihlíð 9, ennfremur í Fé-
lagsheimilið fimmtudaginn 5. des.
og föstud. 6. des kl. 3-6.
Flugbjörgunarsveitin
Dregið hefur verið í merkjasölu
happdrættinu. Upp komu þessi
númer: 10737 (ferð til New York)
og 19579 (ferð til Kaupmannahafn-
ar). Cinninganna sé vitjað tii Sig-
urðar M. Þorsteinssonar, Goðheim
um 22, sími 32060.
Frá félagi skrúðgarðyrkjumeistara
Þeir sem óska að ganga í félagið
sendi inntökubeiðni og upplýsingar
um störf til formanns félagsins
Björns Kristóferssonar, Blönduhlíð
11, Reykjavík.
Prentarakonur
Basarinn verður 2. des. Gjörið
svo vel að skila munum sunnu-
dag 1. des. miili kl. 3—6 í Félags-
heimili HÍP.
Konur í Styrktarfélagi vangefinna.
Basar og kafflsala verður 8. des.
í Tjamarbúð. Vinsamlegast skilið
basarmunum sem fyrst á skrifstofu
félagsins, Laugavegi 11
Sjálfstæðiskvennafélagið EDDA,
Kópavogi, heldur námskeið í tau-
prenti. Félagskonur athugið. Ekk-
ert kennslugjald. Mörg önnur nám
skeið verða síðar I vetur. Sími:
41286 og 40159.
Basar Sjálfsbjargar
verður í Lindarbæ sunnud. 8. des.
1. 2. Velunnarar félagsins eru beðn-
ir að koma basarmunum á skrifstof
una eða hringja I síma 33768 (Guð
rún).
Kvenfélag Hallgrímskirkju
hefur hafið fótaaðgerðir fyrir aldr-
að fólk I Félagsheimili kirkjunn-
ar alla miðvikudaga kl. 9-12. Síma-
pantanir í síma 12924.
Kvenfélag Kópavogs
heldur basar í Félagsheimilinu
laugardaginn 30. nóv. kL 3. Félags-
konur og aðrlr velunnarar félags-
ins geri svo vel að koma munum
til Rannveigar, Holtagerði 4, Helgu
Kastalagerði 5, Guðrúnar, Þinghóls
braut 30, Arndísar Nýbýlavegi 18,
Hönnu Mörtu, Lindarhvammi 5 eða
Lineyjar Digranesvegi 78, eða
hringi í sima 40085 og verða þá
munirnir sóttir.
I Kvenfélag Grensássóknar
heldur basar sunnudaginn 8. des
j I Hvassaleitisskóla kl. 3. Tekið á
móti munum hjá Gunnþóru,
! Hvammsgerði 2. s. 33958, Dagnýju,
Stóragerði 4, 38213 og Guðrúnu
Hvassaleiti 61, sími 31455 og I
Hvassaleitisskóla laugardaginn 7.
des. eftir kL 3.
Kvenfélag Nessóknar
Aldrað fólk í sókninnl getur
fengið fótaaðgerð í félagsheimilinu
á miðvikudögum frá kL 9-12 Pant-
anir í slma 14755
LÆKNAR
FJARVERANDI
Eyþór Gunnarsson fjv. óákveð-
ið.
Stefán Bogason fjv. frá 25.11—
8.12 Stg. Halldór Arinbjarnar við-
talstlmi 1—3, laugardaga 11—12,
Klapparstíg 25—27
Gengið
Nr. 126 — 12. nóvember 1968.
1 Bandar.dollar 87.90 88,10
1 Sterlingspund 210,00 210,50
1 Kanadadollar 81,94 82,14
100 Danskar kr. 1.169,30 1.171,96
100 Norskar kr. 1.230,66 1.233,46
100 Sænskar kr. 1.698,64 1.702,50
100 Finnsk mörk 2.101,87 2.106.65
100 Franskir fr. 1.772,65 1.776,67
100 Belg. frankar 174,72 175,12
100 Svissn. fr. 2.046,09 2.050,75
100 Gyllini 2.432,00 2.437,50
100 Tékkn. kr. 1.220,70 1.223,70
100 V-þýzk m. 2.210,48 2.215,52
100 Lírur 14,08 14,12
100 Austurr. sch. 339,78 340,56
100 Pesetar 126,27 126,55
100 Reikningskrónur-
Vöruskiptalönd 99,86 100,10
1 Reikningsdollar
Vöruskiptalönd 87,90 88,10
1 Reikningspund
VöruskiptaL 210,95 211,45
Keflavík Til sölu góð 2ja herto. íbúð við Faxabraut, Keflavík. Laus strax. Fasteignasalan Hafnargötu 27, Keflavík, sími 1420. Prestolite rafgeymar Sala, hleðsla og viðgerðir. Tveggja ára ábyrgð. Kaup- um alla ónýta rafgeyma hæsta verði. Nóatún 27. — Sími 35891.
Tökum að okkur alls konar trésmíði úti sem inni. Fagmenn að verki. Uppl. í síma 30886 milli kl. 7—9 á kv. Brotamálmar Kaupi alla brotamálma langhæsta verði, staðgr. Nóatún 27, sími 3-58-91.
Til sölu Alfræðiorðabókasafnið „The American Peoples Encyclopedia" til sölu. — Hagstætt verð. UppL í síma 8-30-19. V erzlunarpláss til leigu. Á 1. hæð neðar- lega við Skólavörðustíg. Laust. Uppl. á skrifstof- unni. Hús og eignir Bankastr. 6.
BEZT að auglýsa í Morgunblaðinu Til sölu nýlegur mjög fallegur barnavagn, einnig barna- vagga á hjólum og tourðar- rúm. Uppl. í síma 20029.
Konur óskast
til sölu happdrættismiða.
Styrktarfélag vangefinna,
Laugavegi 11.
Hringstigi
Notaður hringstigi óskast. Lofthæð 2,7 m.
Vélaverkstæði Jóhanns Ólafs h.f.
Sími 50140.
Rronco
ska eftir að kaupa Bronco. Aðeins góður bíll
kemur til greina.
Tiltooð sendist Mbl. fyrir 1. des. merkt:
„Bronco — 6698“.
Lagerhúsnæði
Óskum eftir að taka á leigu 300—400 ferm. lagerhús-
næði í Reykjavík með góðri aðkeyrslu.
Þarf að vera laust fyrir áramót.
Upplýsingar í síma 1 73 73.
BYGGINGAREFNI HF.,
Laiugavegi 103, Reykjavík.
HÖFUM TIL LEIGU
gott skrifstohihúsnæði
AÐ LAUGAVEGI 172.
Upplýsingar gefur Sverrir Sigfússon.
S'imi 21240 HEKLA hf Laugavegi 170-172
Nauðungaruppboð
Eftir kröfu Sigurðar Helgasonar hdl. verður haldið
opinbert nauðungaruppboð að Auðbrekku 36, jarðh£ð
i Kópavogi í daig, miðvikudaginn 27. nóv. 1968 kL 15.
Selt verður: Hulsuborg af gerðinni Tegle & Sönner,
slípivél af gerðinni Ellma VEB, loftpressa af gerð-
inni Boge. Tæki þessi eru talin eign Sigurðar J. Áma-
sonar. — Greiðsla fari fram við hamarshögg.
Bæjarfógetinn í Kópavogi.