Morgunblaðið - 27.11.1968, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 37. NÓV. 1968
27
NámuslysiÓ * Bandaríkjunum:
Ekkert hefur enn
heyrzt til 78
námumanna
ENN hefur ekki tekizt að finna
mennina 78, sem lokuðust inni í
brennanði kolanámu í Manning-
ton, Vestur-Virginiu á fimmtu-
daginn var. Sprengingamar, sem
urðu þrjár alls og komu hver á
eftir annarri, urðu til þess, að
allt samband við mennina niðri í
námunni rofnaði.
Al'lis voru 99 m«nn við vinin.u
nilðri í máaniunmi, er fyrsita spreng
inigin varð og eyðiliagði lyfitiuinia
niðnr í niámuigöinigm. Átta mönm-
uan tókst a@ koxnasit iupp á yfir-
borðið með því að takast í Ihiend
ur og 'hiaild/a tover í aminian og
brjóita ®ér feið að lofltihöliu niður í
n'ámiunia. Öðruim óitta mönniuim
tókst að bjiangia sér með því a@
Stíg.a í fötiu á enidainiuim á 'krana,
sem dró þá 'tivo og 'tvo saman
upp á yfiirbcrrðið n-eðiain firá öðr-
uim námiuigönigium. All«s tókst að
■niá 21 mamini upp á yfiirborðið.
Tveir björgumanPlakkar hafa
unnið að því að bora göng nið-
ur í nánmmia í þeirri von að finna
menninia enn á 'lífi, en ennþá
geiisaæ mi'k'ill eldiur í niámiunnii.
Prófanir á lofti, sem tekizit hef-
ur að sjúga neðain úr nánmiigönig-
unum, leiddu í Ijós, aið þar hefur
safnazt samam banvænt miagn af
carbon monoxid gaai.
— Hvorki þið eða ég mj’nd-
um geta ili'fiað í því, sagði John
Corcoran, formialður stjórnar
niámiafélaigsins, sem rekur nám-
una, á fundi með fróttamönnum
í diaig.
Nú um helgina uinmu fveir
björgunairfloktear að því að bora
gönig ni'ður í niámiuina í þeirri von
að fininia mennilnia enm á lífi, en
enmþá geisaði milkillll eildux í nám-
umni. Wiili'am Poundstonie, vara-
formaðu'r stjórinar námiafélaigains,
lét hiafia efitir sér: „Unidir þessum
kringumistaeðum, getum við eikki
verið of bjairtsým, en við verð-
um að reitema með öll'um mögu-
lei'kium.
Milli vonar og ótta. Ættingjar námuverkamannanna, sem lokaðir hafa verið niðri í brenndandi
námunni síðan á fimmtudag, bíða með óþreyju í grennd við námugöngin eftir fréttum af björg-
unarstarfinu.
Börn vistuð á einkaheimilum
Sjö slik fósturheimili eru nú hér i Reykjavik
Tvö flugvélarán til
Kúbu á sólarhring
Miami, 25. nóvember.
NTB-AP.
BANDARÍSKA flugmálaráðu-
neytið skýrði frá því á sunnu-
dagskvöld, að tveimnr bandarísk-
um flugvélum hefði verið rænt
á einum sólarhring. Báðar voru
flugvélamar á venjulegu áætlun-
arflugi, er þeim var rænt og flug
mönnunum skipað að fljúga til
Kúbu.
Fyrtiit var Boeiin'g-þotu af gerð-
inni 797 í eigu Pan Amiarioan
World Airwayis ræmit iaf þremur
vopniuðium Kúlbumönmum,
skömimiu efitir að filuigvéliin hafði
hafi'ð sig á lofit firá John F.
Kenitnedy-fiLugvélli í New York
á teið tál San Juian í Fuento Rico.
í filiuigvéMinni voru 96 fairþegar og
7 manma áhöfin. Kúbumiennirnir
þrír skipuðu að filfjúga vóliinni til
Háiviainia. Gerðist þetta yfir Atl-
antshafi íyrir ultan strönd Norð-
ur-Karolimu.
Á laugardagskvöld var Boeing-
Framhald af bls. 1.
tilgangurinn með töku stúdenta-
hússins hafi fyrst og fremst ver-
ið sá, að koma af stað umræðu
um stúdentafélagið og Helsing-
forsháskóla og afstöðu þessara
stofnana til samfélagsins.
„Valdið til stúdentanna“
„Valdið í háskólanum á heima
hjá starfsmönnum þeirra — stú-
dentum og kennurum“, segir í á-
lyktuninni. Ennfremur segir, að
tilgangur stúdenta sé ekki að
breyta stúdentafélaginu og há-
skólanum heldur að endurnýja
allt þjóðfélagið í samvinnu við
aðra hópa og í samræmi við
þessa meginreglu, svo að hið raun
verulega vald í þjóðfélaginu
komist á hendur hinna vinnandi
stétta.
í einni af samþykktum stú-
dentanna segir, að í öllum deild
um háskólans skuli komið á fót
nefndum, er skuli afhjúpa það
sem ólýðræðislegt sé í kennsl-
unni og beri vott um borgara-
lega afstöðu. Nefndirnar skuli
taka fyrir mál, ræða um þau og
gera tillögur um nýjar leiðir,
einnig meðan á fyrirlestrum
stendur.
Hvað viðvíkur stúdentafélag-
þotiu aif gerðinnii 727 í eiigu East-
ern Airlineis rænit á lei'ðiinini milii
Ohicaigo og Miiaimi. í þessari filiuig-
vél voru 57 farþegar. Var filiug-
möninunum skipað að filljúga til
Kúbu og lenrti vélin í fierðatmjamna
bænium Vardaivero.
í AP-firétrt í daig var skýrrt frá
því, að báðar þortiurnar hefðu
fienrgið að fljúga burt frá Kúbu í
dag rtiií Miaimi, en teigufliuigvél á
vegum baindarídka uitainrílkisráðiu-
nieytisino niáði í farþegama.
Fliugsitj'órinin í Pain Amierican
þotiunni, Aliviin Walteer, 52, sagði,
að sá, isem hefði verið forimgi
rænimgj'aninia, „hefði sertið með
bam sitJt á 'hmjámum og hafrt
byssu í hendiinini“.
Þessi filuigvélarán nú um helg-
ima voru 17. og 18. riámið á fluig-
vélum í áætliuiniarfliugi á þetseu
ári. Alls 'h'atfa 23 flliugvéliar verið
neyddiar rti'l þess að lenida á Kúbu
af .möninium, sem miðuðu elkamim-
byssum að flu'gmöninuinum.
inu krefjast stúdentar þess, að
afnumið verði það ákvæði, að
öllum stúdentum beri að ganga
í félagið og að almennir fundir
félagsmanna fái æðsta ákvörðun
arvald. Lagt er til, að stúdenta-
félagið gangi í Verkalýðssam-
band Finnlands og þess er kraf-
izt að ritstjóri stúdentablaðsins
verði rekinn.
Lögreglan lét töku stúdenta-
hússins afskiptalausa.
Dr. Björn Björnsson, fram-
kvæmdastjóri barnaverndar-
nefndar Reykjavíkur, sagði í er-
indi, er hann flutti á ráðstefnu
Sambands íslenzkra sveitarfé-
laga, að vistun barna á einka-
heimilum hefði víða verið gerð
að megin vistunarúrræði, jafn-
framt þvi, sem mjög lítil barna-
heimili, með 5-6 börnum, hafi
rutt sér til rúms, hin svokölluðu
f j ölsky lduheimili.
Um þetta sagði hann m.a. í er-
indi sínu:
„Á s.l. ári ákvað barnavernd-
arnefnd Reykjavíkur að hlutast
til um fóstur barna á einkaheim-
ilum með öðrum hætti en tíðkast
hefur hér á landi til þessa. Á
undanförnum árum hefur sú
skoðun mjög látið að sér kveða
á meðal erlendra sérfræðinga um
barnaverndarmál, að vistun
barns á einkaheimili sé, að öðru
jöfnu, bezta úrræðið, sem völ er
á, verði að taka barn út af for-
eldraheimili á annað borð. Fóst-
ur barna er að sjálfsögðu eng-
in nýlunda, hvorki hér á landi
né erlendis. En fóstri má beita
á fleiri en einn veg. Mikill hluti
þeirra barna, sem dveljast á vist-
heimilum Reykjavíkurborgar,
dveljast þar sökum tímabund-
inna erfiðleika á foreldraheimili,
t.d. sökum vanheilsu, læknisað-
gerða á sjúkrahúsum, dvalar móð
ur á hvíldar- og hressingarhæli,
sökum hjónaskilnaðar o.s.frv.
Langflest þessara barna mætti
vista á einkaheimili, hefði bama
verndarnefnd til taks þann
fjölda af heimilum, sem nauðsyn
krefði.
Víða erlendis hefur markvisst
verið unnið að því að beita fóstri
einmitt til þess að mæta þeirri
þörf, sem hér er drepið á, þ.e.
þegar nauðsyn ber til þess að
viista bam um stundarsakir. Svo
mjög hefur þetta vistunarúrræði
látið að sér kveða, þar sem bezt
hefur verið unnið að skipulagn-
ingu þess, að verulega hefur
dregið úr þörf fyrir uppbygg-
ingu barnaheimila, svo sem upp-
tökuheimila og vöggustofa. Enda
blasir sú staðreynd við þeim,
sem gerst þetekja, að skamm-
tíma fóstur barna á einkaheimili
er hvort tveggja í senn, bezta
vistunarúrræðið, að jafnaði, sem
völ er á frá uppeldislegu sjón-
armiði, og það lang ódýrasta fyr
ir viðkomandi sveitarfélag.
Ástæða er til þess, að vekja á
því sérstaka athygli, að hér er
um skammtíma fóstur að ræða, en
það eitt greinir viðkomandi fóst-
urheimili algjörlega frá heimil-
um, þar sem einu barni er feng-
ið fóstur til langframa. Til að-
greiningar frá fóstri barna í
hinni hefðbundnu mynd hefur
þetta nýja fyrirkomulag skamm-
tíma fósturs verið nefnt fóstrun-
arkerfi.
Segja má, að fóstrunarkerfið
myndi nokkurs konar keðju af
heimilum, sem skuldbinda sig til
þess að taka börn, eitt, tvö, þrjú,
eða jafnvel fleiri, til dvalar um
óákveðinn tíma skv. ákvörðun
barnaverndarnefnda, án tillits
til eigin óska, og annast þau, sem
þau væru þeirra eigin börn.
Þess ætti ekki að vera þörf að
fara um það mörgum orðum,
hversu erfitt og ábyrgðarmikið
starf er unnið á slíkum heimil-
um, en á það skal bent sérstak-
lega, að erfiðleikar með tilliti til
vistunar barna hjá vandalausum
(t.d. á upptökuheimili) eru fyrst
og fremst byrjunarerfiðleikar, þ.e.
aðlögunarvandkvæði í upphafi
vistunartímans, og á þessu tíma-
bili reynir mjög á þolinmæði og
krafta þess aðila, sem ætlað er
að hjálpa barninu, til þess að
horfast í augu við hinn óhjá-
kvæmilega aðskilnað við for-
eldraheimilið. Þessir erfiðleikar
eru ætíð fyrir hendi á heimili,
þar sem eingöngu eru tekin
börn til dvalar um stuttan, óá-
kveðinn tíma.
Sem fyrr segir ákvað barna-
verndarnefnd Reykjavíkur á s.l.
ári að hefja vistanir barna á
þennan hátt og nú eru í starfi 7
heimili í borginni með samtals 10
börn. Greidd eru mánaðarlaun,
kr. 6000 til heimilis með eitt barn,
kr. 10.000 til beimilis með tvö
börn og kr. 14.000 til heimilis
með þrjú börn. Vistgjöld eru hin
sömu og á upptöku og vistheim-
ilum borgarinnar.
Sé talið fullreynt, að fóstur á
einkaheimili henti ekki barni,
sem vista þarf til langframa, og
til þess geta legið ýmsar ástæð-
ur, er mælt með að fá því vist á
fjölskylduheimili. Þessi tegund
barnaheimila sker sig úr að því
teyti fyrst og fremst, að á ytra
borði er fjölskylduheimilið nán-
ast óaðgreinanlegt frá hverju
öðru foreldraheimili. Börnin eru
þá, 5-7, af báðum kynjum og á
ólíkum aldri. Til forstöðu er
mælt með, að fengin séu hjón,
maðurinn vinnur úti eins og hver
annar heimilisfaðir og konan
vinnur sín heimilisstörf sem aðr-
ar húsmæður, nema hvað í þessu
tilviki þiggur hún laun fyrir
heimilisstörfin. Fjölskyldan býr
e.t.v. í einbýlishúsi, en allt eins í
raðhúsi, eða rúmgóðri íbúð í sam
býlishúsi. Á þennan hátt tekst
ekki einungis að skapa þann eðli
lega heimilisbrag, sem hverju
barni er nauðsynlegur í uppvext-
inum, heldur eru jafnframt öll
skilyrði fyrir hendi til þess að
láta þetta heimili, enda þótt
barnaheimili sé, á engan hátt
vekja á sér athygli í umhverf-
inu. Þetta síðara atriði er mikil-
vægt, því að það er þungbær
reynsla fyrir barnið að verða
fyrir því, sí og æ að verw auð-
kennt, t.d. af skólafélögum, sem
barnaheimilisbarn.
Eitt slíkt fjölskylduheimili hef
ur verið starfrækt af Reykjavík
urborg s.l. þrjú ár, og hefur þótt
gefa mjög góða raun. Nú þegar
er langt komið undirbúningi að
opnun annars slíks heimilis í
borginni.
Ég vil að lokum benda
á, að fjölskylduheimilafyrirkomu
lagið gæti vel hentað fyrir vist-
heimili af öðrum gerðum en hér
hefur verið lýst. Þannig er ekki
Víst, að endilega sé nauðsyn á
að reisa mjög kostnaðarsamar
stofnanir, ætlaðar bÖmum og
unglingum með ýmis konar
hegðunarvandkvæði heldur
mærtti vel hugsa sér n.k.
fjölskylduheimili til þes® að
mæta þessum vanda. Að vísu
þarf tvímælalaust sérhæfðar
stofnanir til þess að sinna erfið-
ustu tilfellunum, en þegar við
vandamál er að stríða eins og
slælega skólasókn barns sam-
fara erfiðum heimilisástæðum,
vandamál, sem engu að síður
krefst vistunar barns utan for-
eldraheimilis, þá þykir mér mjög
sennilegt, að bezta úrræðið með
tilliti til sem minnstrar röskun-
ar á tilfinningalífi barnsins, að
ekki sé minnst á tilfinninga-
líf sparnaðarnefnda viðkom-
andi sveitafélags, sé vistun á fá
mennu heimili mjög í líkingu við
fjölskylduheimilið, sem um var
rætt.“
- THIEU
Framhald af bls. 1.
flugvélar hefðu gert loftárásfir á
tvö héruð í Norður-Vietnam í
trássi við fyrirskipun Johnsons
forseta um stöðvun loftáTása. —
Óopinberlega hermdu norður-vi-
etnamskar heimildir í París hins
vegar að áfriamhaldandi árásir
Bandaríkjamanna við hlutlausa
beltið stofnuðu ekki í sjálfu sér
friðarviðræðunum í hættu.
Talsmaður Norður-Vietnams 1
París, Nguyen Tbanh Le, hafði
áður lýst yfir því, að könnunar-
flug Bandaríkjamanna yfir Norð
ur-Vietnam og skotárásir á norð
urhluta hlutlausa beltisins jafn-
giltu árási á fullveldi og öryggi
Norður-Vietnam. Hann sagði, að
Bandaríkjastjórn hefðu verið
send kröftug mótmæli og hún
vöruð við hugsanlegum afleiðing
um þessara „stríðsaðgerða“.
RITSTJÓRN • PRENTSMIÐJA
AFG R EIÐSLA* SKRIFST O FA
5ÍMI 1D‘100
- FINNSKIR