Morgunblaðið - 27.11.1968, Blaðsíða 8
8
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGU'R 27. NÓV. 1968
Þurfa íslenzkir unglin gabókahöf undar að
sækja viöurkenningu til útlanda?
Rœtt við Ármann Kr. Einarsson um barna- og unglingabœkur
Nýkomin er á markaðinn enn
éin Óla og Magga bókin eftir
Ármann Kr. Einarsson og heitir
hún „Óli og Maggi finna gull-
skipið". í tilefni þessarar nýju
bókar rabbaði blaðið við höfund
inn um eitt og annað í sambandi
við barna og unglingabækur.
— Um hvaða efni fjallar nýja
bókin?
— Sagan styðst við sannsögu-
legan atburð, strand Indíafars
fyrir 300 árum við sandana í
Skaftafellssýslum. Til eru skjal-
legar heimildir um þetta strand í
skjalasöfnum í HoOlandi. Enskip
ið sem hér ræðir um, var hol-
lenzkt, og var að koma frá Bata-
víu á Jövu, og herma sagnir, að
það hafi verið hlaðið gulli og
gimsteinum.
— Teljið þér þetta hyggilegt
efni í barna og unglingabók?
— Já, ég tel þetta mjög for-
vitnilegt efni, en börn eru yfir-
leitt fróðleiksfús og langar til að
fræðast um al'la skapaða hluti
milli himins og jarðar. Þau vilja
líka, að sögur sem þau lesa séu
skemmtilegar og uppörvandi og
auk þess tekur heilbrigt æsku-
fólk það iesefni fram yfir ann-8
að, sem er jákvætt og bjarsýni
gætir í, eins og það er sjálft
gert í innsta eðli sínu. Ungling-
ar vilja líka gjarnan geita dregið
lærdóm af því, sem þeir lesa, og
geta tekið söguhetjurnar sér til
fyrirmyndar.
— Þér hafið skrifað mikið.
— Ég hef skrifað 23 barna og
unglingabækur, en fjórar fyrir
ftfllorðna, og auk þess hefi ég
gert nokkur útvarp-sleikrit eftir
svokölluðum Árnabókum.
— Hvemig hafa bækumar
selzt?
— Ég kvarta ekki undan því.
Tlókunum hefur verið vel tekið,
og börnin hafa verið þakklátir
lesendur.
— En foreldrarnir?
— Það get ég ekki dæmt um
sjálfur, en margir foreldrar hafa
látið í ljósi ánægju yfir bókun-
um. Ég álít, að það sé mjög mik-
ilsvert að vanda vel til þess les-
efnis, sem mótar lestrarvenjur
barna. Foreldrum brygði, ef
börnunum væri gefið ómeti til
að seðja hungur sitt. Það er 1
rauninni ekki minna vert að þau
fái holla andlega fæðu. Margir
foreldrar skilja þetta, en þá
skortir tilfinnanlega leiðbeining-
ar um val lesefnis handa börn-
um sínum. Sama vanda standa
skólabókasöfnin andspænis. Blöð
i2i hafa, að undanskyldu Morg-
unblaðinu, sem hefur haft for-
ystu með bókmenntagagnrýni
barna og unglingabóka, brugðizt
með leiðbeiningu þessara bók-
mennta. Útvarpið hefur flutt
töluvert af efni við hæfi bama,
en gert lítið af því að kynna ís-
lenzkar barnabækur. Á vegum
útvarps eru ýmsir þættir um bæk
ur, sem eru góðra gjailda verð-
ir, en aldrei kemur samt fyrir
að minnzt sé þar á barna og ung-
lingabækur.
— En í bókakynningum fyrir
jólamarkað?
— f þættinum lestur úr nýjum
bókum, hefur mér vitandi aldrei
verið lesið úr barna og unglinga
-fcókum. En í þess stað skotið inn
nokkrum lestrum í bamatímunum
rétt fyrir jólin. Minni skil eru
milli bafna og unglingabóka og
fullorðinsbóka, en margir vilja
vera láta. Margar fullorðinsbóka
geta einnig verið fyrir börn, og
unglingabækur fyrir fullorðna.
Sama er ekki hægt að segja um
sjónvarpið, það hefur þegar
kynnt unglingabókahöfund, með
lesfri framhaldssögu. Bæði ung-
ir og aldnir vilja gjaman sjá
höfunda, sem þeir hafa lesið
bækur eftir.
Til gamans má geta þess að í
Noregi var skoðanakönnun fyrir
nokkrum árum meðal unga fólks-
ins á því, hvaða manni það hefði
mestan áhuga fyrir. Thorbjöm
Egner, sem gerði Kardemommu-
bæinn, og fleiri góðar barnabæk
ur og leikrit var langhæstur á
vinsældalistanum. Hærri en sjálf
ur Noregskonungur.
— Hvað vilja börn og ungling
ar helzt lesa?
— Ég get bezt svarað því með
því að vitna til greinar í Les-
bók Morgunblaðsins, um rann
sóknir sem hafa farið fram í
Þýzkalandi um val bama á les-
efni, og útkoman var sú að þau
vildu helzt hafa eitthvað skemmti
efni, fullt af lífsgleði, og uppá-
halds rithöfundur þeirra var
Mark Twain. Prófessor Símon
Jóh. Ágústsson hefur í nokkur
ár unnið að slíkum rannsóknum
hér á landi og hefur nú hlotið
styrk til þessara rannsókna úr
hugvísindasjóði.
Sum dagblöðinhafa tekið upp
þá skemmtilegu nýbreytni að hafa
koðanakannanir um ýmis má'lefni
sem ofarlega eru á baugi hverju
sinni. Fróðlegt væri ef kannað-
ar væru skoðanir fólks um gildi
barna- og unglingabóka fyrir
æskuna. Einnig mætti kanna hér
hvaða bækur unga kynslóðin
hefði mestan áhuga fyrir að
lesa?
— Hvað með þýðingar á barna-
Bókum?
— Sem betur fer höfum við átt
okkra ágæta þýðendur, sem þýtt
afa úrvals barna og unglinga-
ækur, en þær bækur eru þó
Ut of fáar, og miklu meira af
því sem teíjast má rusl. En rétt
er að taka fram að margir út-
gefendur hafa á síðari árum
vandað meira val sitt á barna-
og unglingabókum.
— Eru íslenzkir bamabóka-
höfundar háir á metaskálunum?
— Þeir eru heldur lítils metn-
ir. ýmsir ágætir höfundar hafa
hætt að skrifa fyrir börn og
unglinga vegna þess tómlætis,
sem þeir hafa mætt. Ég veit ekki
nema rétt sé að leggja árar í
bát.
— Nei, því trúi ég ekki, þér
hafið þó fengið viðurkenningu
erlendis.
— Já, margar bóka minna hafa
verið gefnar út í Noregi og
nokkrar í Danmörku og hafa þær
fengið ágætar viðtökur hjá þess
um nágrannaþjóðum okkar.
— En fékk ekki bók eftir yður
verðlaun í Noregi?
— Jú, fyrir nokkrum árum
efndi Noregs Boklag til Verð-
launasamkeppni meðal norrænna
bama og unglingabókahöfunda.
Sendi ég handrit að „Víkinga-
ferð tiíl Surtseyjar“ og hlaut
sagan verðlaun. Hart er það að
þurfa til Skandinavíu til að
hljóta viðurkenningu.
— Nonni er lang þekktastur
ísl. unglingabókahöfunda erlend
is!
— Jú, það má með sanni segja
að hann sé okkar annað Nobels-
skáld. En örlögin höguðu því
þannig til að hann skrifaði á er-
lenda tungu. í þessu sambandi
dettur mér í hug annar góður
bama og unglingabóka höfund-
ur, Sigurbjörn Sveinsson. Hann
skrifaði á íslenzku og hlaut
aldrei neina viðurkenningu
hvorki fjárstyrk né annað, utan
þesis að hann var gerður
skömmu fyrir andlát sitt að heið-
ursborgara lítils kaupstaðar úti
á landi.
— Er erfitt að fá ísl. bækur
þýddar á erlend máil?
— Já, og þar standa unglinga-
bókahöfundar enn verr að vígi
en þeir sem skrifa fyrir full-
orðna. Þýddar eru þær bækur
höfundunum að bostnaðarlausu,
sem lagðar eru fram í hina ár-
legu samkeppni bókmenntasjóðs
Norðurlandaráðs. ísl. unglinga-
bókahöfundar njóta ekki hlið-
Iptæðra hlunninda og fá ekki bæk-
ur sínar þýddar til að leggja
Ármann Kr. Einarsson,
rithöfimdur.
þær fram í samkeppni um H.C.
Andersens verðlaunin, en þau
eru veitt annað hvert ár og þyk-
ir mesta viðurkenning sem ungi-
ingabókahöfundur getur hlotið.
— En hvað um bókasöfnin?
— Þótt merkilegt megi virðast
eru engin lög til enn um skóla-
bókasöfn og bókakostur í skól-
unum verður að teljast mjög af
skornum skammtL Mikill kost-
ur væri, ef börnin ættu völ á
fjölbreyttara lesefni. Við flesta
skóla vantar gott safn barna og
unglingabóka.
Víða erlendis hefur verið kom
ið á stofn sérstökum bókasöfn-
um með barna og unglingabók-
um, t.d. hefur slíkt safn verið
sett á stofn í Kaupmannahöfn,
þar sem bækur frá hinum Norð-
urlöndunum og víðar • eru til í
fjölbreyttu úrvali. Það værimik
ilsvert að slíkt safn væri til
hérna og gætu þá ísl. höfund-
ar fýlgzt betur með því, sem er
að gerast annars staðar meðal
nágrannaþjóðanna. Einangrun er
hættuleg. Á Norðurlöndum eru
árlega haldnar sérstakar vikur
til kynningar á barnabókum, þar
sem þekktir höfundar lesa upp
úr bókum sínum, og eru þær bæði
kynntar í blöðum, útvarpi og
sjónvarpi.
Væri mjög æskilegt að koma
slíku á hér. Eitthvað hefur verið
hér á undanförnum árum um
bókmenntakynningar í gagn-
fræða og menntaskólum. En hví
á ekki hefja bókmenntakynningu
strax í barnaskólum? Mér dett-
ur t.d. í hug að skólarnir gætu
fengið barna og unglingabókahöf
unda til þess að lesa úr verkum
sínum. Fyrir nokkrum árum hélt
Kennaraskóli fslands sýningu á
barna og unglingabókum, en
hún var því miður ekki nógu vel
auglýst, og vakti ekki verðskuld-
aða athygli, en hún var samt
merkileg tilraun.
i— Hvað er fleira til úrbóta á
þessum sviðum?
— Mér kemur það til hugar
að það mætti koma því á hér
eins og á Norðurlöndum að
fræðsluyfirvöld mæla með og
AUGLYSINGAR
5ÍMI 22*4*50
láta stimpla góðar barna og
unglingabækur. Fyrsti vísirinn í
þá átt er kannski, að bókaútgáf-
an Örn og Örlygur hafa sent
Stjórn kennarasamtakanna fjár-
upphæð til að stofna sjóð er hafi
það hlutverk að flokka barna og
unglingabækur og verðlauna
þær beztu. Kennarasamtökin
þurfa að láta meina til sín taka
á þessu sviði en þau hafa gert
að undanförnu.
Á Norðurlöndum tíðkast það,
að árlega efna forlög til verð-
launasamkeppni um barna- og
unglingabækur. Þetta örvar
mjög höfunda til að leggja sig
fram um, að skrifa athyglisverð-
ar og listrænar bækur handa
ungu kynslóðinni. Engar slíkar
verðlaunaveitingu eða viður
kenningu er um að ræða hér hjá
okkur, enn sem komið er.
Þá vil ég geta þess að tvö
athyglisverð frumvörp liggja nú
fyrir Alþingi, annað um að
styrkja ísl. höfunda tii að láta
þýða verk sín á erlendar tung-
ur. En hitt um að styrkja leik-
ritaskáld, sem skrifa fyrir Þjóð-
leikhúsið. Okkur vantar alltaf
góð frumsamin leikrit, og á það
ekki síður við um leikrit fyrir
börn en fullorðna.
— Fáið þið ekki liistamanna-
laun eða styrki?
— Eins og kunnugt er, er hin
um svokölluðu listamanna'laun
um úthlutað hér árlega, en held
ur lítið farið fyrir því, að barna
og unglingabókahöfundar hafi
notið þar góðs af. Rithöfundar
bundu miklar vonir við ný lög
um listamannalaun sem sett voru
fyrir tveimur árum. Heitið var
starfsstyrkjum og var stuðning-
ur rithöfunda við þessi lög bund
inn því skilyrði. Það heit hefur
ekki enn verið efnt, og er for-
sendan fyrir stuðningi rithöfund
anna við nefnd lög því brott fall
in. Sannast sagna hefur hlutur
barna og unglingabóka aldrei
verið verri en síðan nýju lögin
komu til framkvæmda. Hinum
vísu mönnum er sitja í úthlut-
unarnefnd listamannalauna hefur
af einhverjum óskiljanlegum á-
stæðum sést yfir þessa mikil-
vægu grein bókmenntanna. Slíkt
er reginhneyksli, og vissulega
gengið í berhögg við vilja ungu
kynslóðarinnar, foreildra og hins
almenna, fordómalausa lesanda.
Það er ekki prívateign, heldur
fé fó'lksins í þessu landi, sem ver
ið er að úthluta.
Hefi til sölu m.a.
Einstaklingsíbúðir í Kópa-
vogi, í Árbæj arhverfi og í
Vesturbænum. Útb. 200-300
þúsund kr.
3ja herb. íbúð við Lyng-
brekku í Kópavogi. íbúðin
er á neðri hæð í tvíbýlis-
húsi.
3ja herb. íbúð við Ásvalla-
götu. íbúðin er teppalögð
og lítur mjög vel út.
4ra herb. íbúð við Leifsgötu.
Tvö herbergi í risi fylgja.
í smíðum
4ra herb. íbúð við Hraunbæ.
íbúðin selst tilbúin undir
tréverk.
Raðhús í Árbæjarhverfi. Hús-
ið er 147 ferm., 4 svefnher-
bergi, stofur, eldhús og bað.
Kaupendur
Hefi kaupanda að góðri 3ja
* herb. íbúð. Útborgun kr.
600 þúsund kr.
Hefi einnig kaupanða að
4ra—5 herb. íbúð í tví- eða
þríbýlishúsi. Góð útlborgun.
Baldvin Jónsson hrl.
Kirkjutorgi 6,
símar 15545 og 14965.
— Hvað má gera til þess að
bæta úr þessu?
— Fulltrúar kjósendanna, al-
þingismennirnir verða að taka
hér í taumana. Þegar reynslam
af þessum nýju lögum er svo
slæm, sem raun ber vitni, verð-
ur að endurskoða þau frá rótum.
Eðlilegast væri að þessi endur-
Framhald á bls. 20
FASTEIGNAVAL
Skólavörðustíg 3A. 2. hæð.
Símar 22911 og 19255.
Til sölu m.a.
Góð 2ja herb. íbúð í Vestur-
bænum á 1. hæð.
3ja herb. kjallaraíbúð um 70
ferm. í Vesturbænum.
3ja herb. íbúð í gamla bæn-
um, laus strax.
4ra herb. risíbúð við Efsta-
sund. Laus strax.
4ra herb. íbúðarhæð í Hlíð-
unum.
5 herb. íbúðarhæð um 117 fm.
við Es'kihlíð. Sérkælikerfi. í
íbúðinni, laus fljótlega.
6 herb. íbúð á efri hæð í Vest-
urbænum ásamt einu herb.
í kjallara. Bílskúrsréttur.
íbúð óskast
Hef kaupanda að nýlegri 4ra
heib. íbúð, þarf ekki að
vera fullkláruð. íbúðin má
vera í Árbæjarhverfi. Út-
borgun allt að kr. 700 þús.
Jón Arason hdl.
Sölumaður fasteigna
Torfi Ásgeirsson.
16870
3ja herb. 100 ferm. íbúð
á 2. hæð við Eskihlíð.
Herb. í risi og annað í
kjallara fylgja.
3ja herb. 85 ferm. íbúð
á jarðhæð við Glað-
heima. Sérhiti. Snotur
íbúð.
3ja herb. 95 ferm. íbúð
á 3. hæð við Holtsgötu.
í ágætu ástandi.
3ja herb. 90 ferm. íbúð
á jarðhæð við Hvassa-
leiti. Allt sér.
3ja herb. um 70 ferm.
efri hæð við Skeggja-
götu. Ný eldhúsinnrétt-
ing.
3ja herb. 90 ferm. íbúð
á 6. hæð í háhýsi við
Sólheima. Suður- og
vesturíbúð.
3ja herb. 100 ferm. sem
ný íbúð á jarðhæð við
Fögrubrekku, Kópavogi.
Útb. 250 þúsund.
3ja herb. 83 ferm. sér-
hæð við Kópavogsbraut.
Stór timburbíls'kúr.
3ja herb. 86 ferm. íbúð
á jarðhæð við Lyng-
brekku Kópavogi, sér-
hitL
FASTEIGNA-
PJÓNUSTAN
Austurstræti 17 (SiHi& Va!di)
fíagnar Tómasson hdl. síml 24645
sölumadur fasteigna:
Stefán J. fíichler sími 16870
kvöldsfml 30587