Morgunblaðið - 10.01.1969, Síða 1

Morgunblaðið - 10.01.1969, Síða 1
24 SÍDUR 7. tbl. 56. árg. FÖSTUDAGUR 10. JANUAR 1969 Prentsmiðja Morgunblaðsins. Vaculik ræðst á valdaforustuna Höfundur „2.000 orða" hrósar málmiðnaðarmönnum Prag, 9. janúar — AP—NTB — RITHÖFUNDURINN Ludvik Vac ulik, höfundur ávarpsins „2.000 orð“, sem vakti mikla reiði í Sovétrikjunum fyrir innrásina í fyrrasumar, gerði í dag skelegga árás á leiðtoga Tékkóslóvakíu og sagði að barátta almennings fyr- ir því að afstýra brottvikningu Josef Smrkovsky úr embætti þingforseta væri stórkostlegasta stundin frá dögum innrásarinn- ar. Vaculik kvaðst hafa fylgzt af hrifningu með því hvernig millj- | Ráðstefna samveldisríkjanna i er haldin þessa dagana í Lond , on. Myndin sýnir leiðtoga landanna við fundarborðið í I Marlborough House. í gær | vakti mikinn ugg að ókunn- ur maður varaði við því í' síma að sprengju hefði verið I komið fyrir einhvers staðar í ( húsinu. Ráðstefnunni var hald ■ ið áfram eins og ekkert hefði' í skorizt og engin sprengja' fannst þrátt fyrir ítarlega leit. 60 iarast úr kulda Calcutta, Indlandi, 9. jan. (AP) ÓVENJU kalt hefu^verið í Bihar og Vestur-Bengal Illruðum á Ind landi, og hafa að minnsta kostj 60 manns látizt vegna kuldanna. Aldrei hefur þó mælzt frost á þesaum slóðum, en hitinn hefur komizt niður í tvö stig. Eitt flugvélor- Varúðarráistafanir við Aswan-stífluna rúnið enn Miami, 9. janúar NTB FARÞEGAFLUGVÉL af gerðinni Boeing 727 frá flugfélaginu East ern Airlines með 79 mönnum inn anborðs var neydd til að fljúga til Kúbu í kvöld skömmu eftir flugtak frá Miami. Þetta er önn- ur bandaríska flugvélin sem rænt er á þessu ári. Fréttum um að ísraelsmenn ráði yfir kjarnorkuvopnum vísað á bug — Gagnrýni á de Gaulle heldur áfram Kairó, Washington, Tel Aviv, París og Beirút, 9. janúar — NTB—AP — • Gripið hefur verið til víð' tækra varúðarráðstafana við A- swanstífluna í Egyptalandi til þess að koma í veg fyrir hugs- anlega árás ísraelskra skemmd- arverkamanna. Talið er, að síð- an ísraelskir skemmdarverka- menn sprengdu eitt af orkuver- um stiflunnar í loft upp í nóv- ember hafi verið komið fyrir loft varnabyssum umhverfis stífluna, en þess var minnzt í dag að níu ár eru liðin síðan vinna við hana hófst. Að sögn sovézka verka- lýðsblaðsins Trud verður nú að sýna skilríki til að komast inn á stíflusvæðið. • í Washington vísaði talsmað ur ísraielska sendiráðsina þar af- dráttarlaust á bug frétt þeas efn is að ísraelsmenn hefðu komið sér upp kjarnorkpuvopnum eða að þeir mundu bráðlega komast yf- ir kjarnorkuvopn. ísraelski kall- Teknir á bann- svœði við Noreg aði þessa frétt, sem birtist í fréttasendingu NBC-sjónvarps- ins fáránlega, og banda- F1 júgandi diskizm er vísað ú bug Washington, 9. janúar. NTB. NEFND kunnra bandarískra vísindamanna hafnaði í dag kenningunni um að fljúgandi diskar frá öðrum hnöttum séu I á sveimi í geimnum. í skýrslu sem samin var að frumkvæði bandaríska flughersins, segir 1 að engar sannanir hafi fengizt fyrir tilvist fljúgandi diska. rískir sérfræðingar draga hana einnig mjög í efa. ísraelski talsmaðurinn sagði, að slíkar fréttir skytu upp koll- inum öðru hverju, en afstaða ísraelsstjórnar væri enn sem fyrr sú, að ísraelsmenn ætluðu sér ekki að verða fyrstir til að koma sér upp kjamorkuvopn- um í nálægari Austurlöndum. Einn af talsmönnum utanríkis- ráðuneytisins í Washington gerði lítið úr fréttinni, en aðrir embættismenn sögðu að íssaelsk ir vísindamenn réðu ef til vill yfir nógu mikilli tækniþekkingu til að smíða kjamorkuvopn. Is- raelska sendiráðið vildi ekkert segja um tæknimöguleika lands- ins. í NBC-fréttinni sagði, að ís- raeismenn hefðu hafið smíði kjamorkuvopna fyrir tveimur árum. í fréttinni var það hafit efitir ónafingreidnum heimildum í Washington, að ísraelamenn mundu ráða yfir kjarnorku- sprengjum fyrir 1970 ef þeir hefðu ekki þegar kornið sér upp kjarnorkuvopnum. Því var haldið fram, að ísraelskir leyniþjónustu starfsmenn hefiðu keypt efni og hluta er nota mætti til fram- leiðslu kjarnorkuvopna í Banda- ríkjunum. De Gaulle gagnrýndur í París sætti de Gaulle, for- Framhald á bls. 3 ón manna félag málmiðnaðar- manna hefði komið á framfæri eðlilegum óskum sínum og kvaðst velta því fyrir sér hvern- ig Gustav Husak, leiðtogi flokks ins í Slóvakíu, bjargað sér úr klípunni. Þrátt fyrir hömlur þær sem settar hafa verið á starfi- semi fjölmiðlunartækja til að draga úr gagnrýni þeirra á stefnu flokksins var greinin birt í síð- asta tölublaði Listy, vikublaðis rithöfundasambands Tékkósló- vakíu. I greininni virðist Vaculik sam mála þeirri skoðun, sem er al- menn meðal Tékka, að hin al- menna reiði sem aðförin gegn Smrkovsky hefur vakið hafi af- stýrt því að honum hafi verið algerlegra bolað frá völdum. Al- exander Dubcek flokksleiðtogi og aðrir leiðtogar hafia neitað því FramhaM á bls. 21 Réttarhöld undirbúin Los Angeles, 9. jan. AP—NTB VERIÐ er að undirbúa í Los Ang eles réttarhöld í máli Sirhan Bis hafia Sirhans, 24 ára Jórdana, sem sakaður er um morðið á Rbert F. Kennedy öldungadeild arþingmanni í júní sl. Er þees vænzt að val kviðdómenda geti hafizt á mánudag. Lögfræðingar Sirhans fóru í gær fram á að réttarhöldum yrði enn frestað um 30 daga, en dóm ariran, Herbert V. Walker neit- aði að verða við þeirri ósk. Bentd dómarinn á að upphaflega hafi átt að taka málið fyrir í júlílok I fyrra, en verjendur Sirhans hefðu jafnan óskað eftir frest- un og fengið hana. Væri nú kom inn tími til að hefja réttarhöld- in. Búizt er við að val kviðdóm- enda geti dregizt mjög á langirm, og jafnvel að verjendur Sirhans fari fram á að réttarhöld verði haldin utan Los Aneles. Flekkefjord, Noregi, 9. jan. (NTB-AP) NORSKA eftirlitsskipið „Hydro- graf“ kom í dag til Flekkefjord með þrjá sovézka og tvo austur- þýzka togara, sem teknir höfðu verið í gær á bannsvæði út af Lista, einum syðsta tanga Nor- egs. Segja yfirmenn á Hydrograf að einn sovézkur togari til við- bótar og tveir danskir síldarbát- ar hafi einnig verið þarna stadd- ir, en komizt undan. Erlendum skipum hefur verið bannað að sigla um svæði þetta frá síðustu áramótum samkvæmt ósk hernaðaryfirvalda í Noregi, og var sovézkum togaraskipstjór- um tilkynnt um bannið í orð- sendingu yfirvaldanna í Moskvu 27. ágúst í fyrra. Togararnir, sem teknir voru, eru „PP-1270“, „CPT-4471“ og „CPT-419T frá Sovétríkjunum og ,,Nordzee“ og „Skagerak" frá Austur-Þýzkalandi. Arne Sletteböe, yfirmaður sjó- varnadeildar Suður-Noregs Fra-jiaald á bls. 23 Rannsóknin hefur kostað 500.000 dollara og tekið tvö ár. Þrátt fyrir skýrsluna og stuðning bandarísku vísinda- akademíunnar við niðurstöð- um hennar, er búizt við nýj- um mótmælum þeirra mörgu, sem trúa því að fljúgandi disk ar séu til og telja þá ógnun við öryggi Bandaríkjanna. í skýrslunni segir, að í 90 til- vikum af 100 reynist fréttir um óskýranlega hluti eðlileg fyrirbæri, sem séu rangtúlkuð af þeim er þau sjái. Engin ný vitneskja kemur fram í skýrsl unni, þar sem segir m,a. að rannsókn sem þessi sé tilgang9 laus. Kvartað er yfir ýktum fréttum blaða af fljúgandi diskum. Kanada dregur úr þátttöku í NAT0 Rhódesíustefna Wilsons gagnrýnd á samveldisráðstefnu London 9. janúar. AP-NTB. PIERRE Elliott Trudeau, forsæt- isráðherra Kanada, sagði blaða- mönnum á samveldisráðstefn- unni í London í dag, að kanad- ískar íiðssveitir yrðu áfram und- ir yfirstjórn NATO í eitt ár til viðbótar, en eftir það mundi Kan- adastjórn ekkí takast á herðar langtima skuldbindingar um þátt töku í vörnum Evrópu. Hann sagði, að um þessar mundir færi fram athugun á að- ild Kanada að bandalaginu og mundi þessi athugun skera úr Framliald á bls. 23

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.