Morgunblaðið - 10.01.1969, Side 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 10. JANÚAR 1069.
Drukkin undir stýri -
drottinn minn dýri!
DRUKKIN stúlka stjórnaði benz
íngjöfinni — drukkinn maður
hélt um stýrið og svo óku þau
á þrjá kyrrstæða bíla. Þetta var
á nýársnótt.
Fólk þetta var að skemmta sér
á veitingahúsinu Röðli. Þegar
skemmtunin var úti bað maður-
inn stúlkuna að aka fyrir sig en
hún kvaðst aldrei hafa setzt und
ir stýri og kunna þar af leiðandi
líltt til verka. En maðurinn lagði
þá þeim mun harðar að henni
og svo að stúlkan settist undir
stýri. Ekki kunni hún til verka
á gírstöngina og tók maðurinn
þá að sér að sjá um hana. Sam-
vinnan tóksit þó ekki betur en
svo, að þau óku strax á einn kyrr
stæðan bíl fyrir utan veitinga-
húsið og sá maðurinn þá, að við
svo búið mátti ekki standa. Tók
hann þá einnig að sér að halda
um stýrið en lét stúlkuna stjórna
benznígjöfinni.
í Nóatúni óku þau á annan
kyrrstæðan bíl og við Háteigs-
veg 23 á þann þriðja. Sá þá mað
urinn, að seint yrði stúlkunni
kennt að aka bíl og settist sjálf-
ur í ökumannssætið. Hafði hann
þá einn stjórn á öllum taekjum
og tókst að aka slysalaust síð-
asta spölinn heim til sín.
Myndin sýnir rússneska móðurskipið, sem er um 20 þús. lestir að stærð og utan á því er haf-
rannsóknarskip. Ljósmynd: Adolf Hansen.
Sauðfé drepst úr kop
areitrun í Danmörku
Koparinnihald í fóðurbœti lífshœttulegt
sauðfé segja tveir danskir dýralœknar
Geimfararnir
Kaupmannahöfn. —
SAUÐFÉ í Danmörku er nú talið
í lífshættu víða, og er hugsan-
legt að sama gildi um sauðfé í
öðrum löndum. Tveir dýralækn-
ar, Mogens G. Simesen og Tage
Möller, hafa uppgötvað, að sjúk-
dómur, sem orðið hefur fjölmörg-
um kindum að bana, þar á meðal
lembdum ám, stafar af miklu
koparmagni í lifur og blóði. Hafa
skepnurnar drepizt af króniskri
lifrareétrun, sem valdið hefur
breytingum á lifrinni sjálfri,
milti og nýrum. Ennfremur komu
fram blæðingar í hálsi.
í fóðurbæti, sem sauðfé hér er
gefið, finnst kopar, og ennfrem-
ur er kopar að finna í fóðurbæti
Sjónvnrpið
slæmt í
Sondgerði
Sjónvarpið og Sandgerðingar 4
í GÆR var útvarpsstjóra afhent
skjal frá 127 sjónvarpseigendum
í Sandgerði, þar sem óskað var
lagfæringar á móttökuskilyrð-
um sjónvarps í Sandgerði. Sjón-
varp mun hafa komið illa
fram í tækjum Sandigerðinga frá
því að íslenzka sjónvarpið tók til
starfa. Menn hafa verið mjög
óánægðir með þetta ástand, þar
sem eigendur hafa lítil, sem eng-
in afnot haft af tækjum sínum.
ÞAÐ voru persónuleg strokin,
sem Hafliði Hallgrímsson, celló-
leikari, aló upp G-dúr svítu
Bachs með á tónleikum Tónlist-
arfélagsins I Austurbæjarbíói sl.
þriðjudagskvöld, og þau lofuðu
góðu um framhaldið. Þættir
svitunnar voru og skemmtilega
mótaðir, svo að sem bezt heyrð-
ist það, sem ólíkt var með hverj-
um dansi. Hafliði gleymdist ekki,
(þótt minnið væri annars ekki
alveg óskeikult), að þetta eru
stílfærðir dansar og gerði sér
því ekki upp neinn gerilsneydd-
an hátíðleik, eins og svo oft
heyrist. Það þarf ekki annað en
að líta á handritið — segja
kunnugir — af sónötu Schuberts
í a-moll fyrir arpeggione, (sem
síðan var umskrifuð af ýmsum
fyrir t. d. fiðlu, víólu, klarínett,
celló eða gítar og píanó), til að
sjá, hve lítið Schubert þótti
handa öðrum búfénaði, en nú hef
ur komið á daginn, að fóður með
koparinnihaldi, sem önnur hús-
dýr þola, er sauðfé lífshættulegt.
Kopareitrunin er mjög lúmsk, og
getur féð litið vel út í lanigan
tíma. Smátt og smátt safnast eit-
urefnið hinsvegar fyrir í líkama
kindarinnar, og einn góðan veð-
urdag fær kindin riðu og verður
magnvana. Síðan getur það gerzt,
að féð hrynur niður.
Fóðurbætir og steinefni inni-
halda oft kopar, sem t.d. svin
þola, en eru sauðfé lífshættulegt.
Rytgaard.
Morgunblaðið sneri sér til Páls
A. Pálssonar ytfirdýralæknis
vegna þessarar fréttar, og spurði
hann hvort áþekk tilfelli væru
þekkt hér. Páll kvað svo ekki
vera. Enginn kopar væri í þeim
fóðurbæti, sem fluttur væri hing
að til lands. Hann sagði ennfrem-
ur, að koparsjúkdómar væru
ekki óalgengnir erlendis, t.d. í
Bretlandi, en hérlendis væru á
hinn bóginn til sjúkdómar, sem
stöfuðu af koparleysi.
Pólverji líflótinn
Varsjá, 9. janúar. AP
ADAM Maczmarzyk, 28 ára gam
all Pólverji, hefur verið tekiirn
af Iífi, ákærður fyrir að hafa selt
brezku leyniþjónustunni leynileg
ar hernaðarupplýsingar, að því
er skýrt var frá í Varsjá í dag.
Beiðni um náðun var vísað á bug.
sjálfum vænt um þann samsetn-
ing. Það var eins og þeir Hafliði
og Ólafur Vignir Albertsson
væru líka höfundi innilega sam-
mála, þegar þeir nú spiluðu
þetta verk. Hæga þáttinn léku
þeir samt af áberandj innlifun.
Eftir hlé kvað við nýr tónn,
er þeir félagar léku Adagio eftir
Kodály og Cellósónötu Debusys.
Nú vantaði ekki sannfæringuna
í samspilið og óöryggið hvarf
með öllu. Hafliði svaraði mörg-
um kúnstum tillögum Frakkans
með persónulegum athugasemd-
um frá eigin brjósti, og voru
þau vel til fundin. Bezt hefði
verið, ef þeir Ólafur hefðu leikið
sónötuna aftur, það var bæði
tími til þess og áhugi áheyrenda
að heyra meira, þegar tónleikun-
um var lokið.
Þorkell Sigurbjörnsson.
heiðraðir
Tunglfararnir þrír í
Washington, 9. jan — AP—NTB
GEIMFARARNIR þrír, sem fóru
til tunglsins um jólin, þeir Frank
Bormann, James Lovell og Willi
am Anders, heimsóttu í dag
Hvíta húsið í Washington, þar
sem Johnson forseti hafði búið
þeim veizlu. Sæmdi forsetinn
geimfaranna þrjá æðsta heiðurs
merki geimferðastofnunarinnar,
NASA.
í forsendum orðuveitingarinn-
ar segir að geimfararnir þrír
hafi með frábæru afreki sínu gef
ið þjóðinni tækifæri til nýrra
dáða úti í geimnum, en þeir hafi
fyrstir manna lagt upp í ferð til
annarra hnatta. Johnson forseti
Ponto for
til tunglsins
New York, 9. jan. (AP).
UM 200 manns hafa nú pant-
að far hjá Pan American flug-
félaginu með fyrstu ferðum
þess til tunglsins, sagði tals-
maður félagsins í New YorkJ
i dag. Bárust fyrstu pantan- \
irnar fyrir tveimur árum, og í
hefur biðlistinn sifellt verið /
að lengjast síðan. „Við vilj- J
um líta á sjálfa okkur sem 1
brautryðjendur", sagði tals- (
maður flugfélagsins þegv l
hann var spurður um biðlisl- )
ann. Hann sagði að mörg i
vandamál væru óleyst enn
varðandi ferðir til tunglsins,
meðal annars hvernig unnt
væri að tryggja vellíðan far-
þeganna við flugtak. Hann
bætti því við að þótt tekið
væri á móti pöntunum, væru
væntanlegir farþegar ekki
látnir greiða tryggingarfé til
að festa farseðlana.
ÍMeðal þeirra, sem pantað
hafa far til tunglsins, eru Ric-
hard E. Abruscato, kona hans,
tveggja ára sonur þeirra |
i hjóna og fimm mánaða dótt-1
ir. „Þetta er ekkert grín hjá
okkur“, sagði frú Abruscato.
„Það má vera að við hjónin
komumst ekki, en við vonum
að börnin geri það“.
Bob Wishnick, nemandi á
fyrsta ári við Syracuse-'háskól
ann í New York, sagði: „Ég
lít þannig á að þetta geti orð-
ið skemmtilegt, og ég býst við
að það verði einhverntíma úr
ferðinni".
veizlu hjá Johnson
afhenti geimförunum heiðurs-
merkin, og sagði við það tæki-
færi að þeir væru frakkastir allra
könnuða sögunnar, og hefðu rutt
manninum nýjar brautir úti í
geimnum.
Bormann, sem var yfirmaður
Apollo-8 ferðarinmar, þakkaði
forsetanum ummælin og heið-
ursmerkin. Afhentu geimfararn-
ir síðan Johnson forseta afrit af
geimferðasamningum Sameinuðu
þjóðanna, en afritin höfðu þéir
haft með sér til tunglsins. „Svo
erum við með aðra gjöf handa
yður, herra forseti,1 sagði Bor-
mann, „mynd af búgarði yðar.“
Afhenti Bormann Johnson síðan
litmynd, sem þeir félagar höfðu
tekið, og sýnir sjóndeildarhring-
inn á timglinu með jörðina í bak
sýn í um 400 þúsund kílómetra
fjarlægð.
Talað hefur verið um að geim
fararnir þrír verði á ný ændir
til tunglsims í júlí í ár, og verði
fyrstir Bandaríkjamenn til að
lenda þar. Ekki er víst að úr
þessu verði, því Borrnan hefur
verið boðin staða hjá geimferða
miðstöðinni í HO'USton í Texas.
Fylgir þeirri stöðu hershöfðimgja
nafnbót, en taki Bormann við
henni, getur hann ekki tekið þátt
í fleiri geimferðum.
íhalds-
flokknum
spáð sigri
EF BREZKA þjóðin gengi til
þingkosninga um þessar mundir,
ynni Ihaldsflokkurinn yfirburða-
sigur samkvæmt niðurstöðum
nýrrar skoðanakönnunar.
Eru úrslit þessarar nýju könn-
unar birt í blaðinu „Evening
Standard" í dag, og benda til
þess að íhaldsflokkurinn eigi
16% meira fylgi að fagna en
Verkamannaflokkurinn. Þótt
nokkuð hafi dregið saman með
flokknum frá skoðanakönnun í
desember, benda þó þessi úrslit
til þess að Verkamannaflokkur-
inn tapaði helming þingsæta
sinna, ef kosið yrði í dag.
í skoðanakönnuninní lýsa sjö
af hverjum tíu yfir óánægju með
ríkisstjórnina, átta af hverjum
tíu eru óánægðir með ástandið í
landinu yfirleitt, og sjö af hverj-
um tíu telja að íhaldsflokkurinn
fari með sigur af hólmi í næstu
þingkosningum.
Rússneskt
móðurskip við
Glettingomes
Á NÝJÁRSDAG kom varðskipið
Ægir að rússneskum skipum um
15 mílur út af Glettingarnesi.
Eitt af skipunum var stórt móð-
urskip, sem lá fyrir ankeri, en
skipið mun hafa verið um 20 þús.
lestir að stærð. Við skipsihlið
stóra skipsins lágu tvö skip,
minni skip, og mun annað þeirra
hafa verið nýtt hafrannsóknar-
skip um 1500 lestir að stærð, an
hitt var gamalt fiskiskip. Fleiri
skip, rússnesk, voru þarna í
nánd.
Dregið í happdrœtti
Sjálfsbjargar
DREGIÐ hefur verið í happ-
drætti Sjálfsbjargar og kom
vinningurinn, sem er Dodge Dart
bifreið á númer 146. Vinnings-
hafi setji sig vinsamlega í sam-
band við skrifstofu Sjálfsbjarg-
ar, Bræðraborgarstíg 9, sími
16538.
Enn einn nrekst-
urinn þnr
MJÖG harður árekstur varð milli
tveggja jeppa á mótum Kringlu-
mýrarbrautar og Háaleitisbraut-
ar í gær, en á þessum gatnamót-
um hafa orðið margir harðir
árekstrar að undanförmi. Lítill
drengur, sem var í öðrum jepp-
anum, skarst í andliti og var
fluttur í Slysavarðstofuna.
Síld til Norðnr-
stjörnnnnnr
NORÐURSTJARNAN fékk 50
tonn af síld frá Keflavík í fyrra-
dag. Að sögn Péturs Péturssonar
forstjóra nýtist síldin illa vegna
þess hve blönduð hún er og nást
líklega ekki nema 8 tonn af flök-
um út úr aflanum. Miðað við
full afköst vehksmiðjunnar vinn-
ur hún 8 tonn af síldarflöbum á
dag.
Vinnsla hefur legið niðri hjá
verksmiðjunni að undanförnu, en
svo fremi að síld veiðist verður
unnið þar áfram.
RITSTJÓRN • PRENTSMIÐJA
AFGREIÐSLA»SKRIFSTOFA
SÍMI 10»1QQ
TÓNLEIKAR