Morgunblaðið - 10.01.1969, Page 8

Morgunblaðið - 10.01.1969, Page 8
8 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 10. JANÚAR 1969. Hljóðfrá farþegaþota reynd í Sovétríkjunum Fyrsta hljóðtráa farþegaþotan sem reynd hefur verið ÞAÐ vakti gífurlega athygli um heim allan þegar tilkynnt var í Moskvu á gamlársdag að ný sovézk farþegaflugvél hafði farið í reynsluflug fyrr um daginn, og að reynslu- flugið hafi í alla staði gengið mjög vel. Flugvél þessi er hljóðfrá þota, það er hún á að fljúga hraðar en hljóðið, og er fyrsta hljóðfráa farþega þotan, sem reynd hefur verið. Fieiri hijóðfráar farþegaþotur eru í smíðum, og er hrezk- franska Concordeþotan lengst komin. Henni verður þó ekki flogið fyrr en í næsta mánuði, ef allt gengur að óskum. Bandaríkjamenn hafa einnig undirbúið smíði hljóðfrárrar farþegaþotu — Boeing 2707 — en hún verður varla reynd fyrr en eftir sex ár. Nýja sovézka farþegaþotan nefnist TU-144, og er smíðiuið í Tupolev-tflugvélaiscmiðjíunuim í Zhukovs'ky sikamim.t fyrir utan Mos'kvu. Flugvélasmiðjur þessar eru nefndair etftir ein- um þekktasta flugvélasmið Sovétríkjanna, Andrei Tupo- lev, sem nú er á níræðisaldri, en sonur hans, Alexei Tupo- lev, hetfur að mestu teiiknað nýju þotuna. Var hann við- staddur þegar reynsluflugið var farið á gamlársdag. TU-144 er gerð fyrir 120— 130 farþega, og á að geta flutt þá um 6.500 kílómetra án við Flugvélasmiðurinn Alexei Tupolev ræðir við reynsluflugmann- inn Eduard Elyan að reynslufiugi loknu. komu á 2.500 kílómetra meðal- hraða. Er búizt við því að þotan hefji áætlunarflug fyrir næstu áramót, og verður hún fyrst motuð á flugleiðinjni Moskva—Khabarovsk. Síðar verður þotan tekin til motk- unar á flugleiðinni yfir At- lants(hafið. FlugmaðUr í reymsluflugimu var Eduard Elyam. Hanm er 42 ára, og þekktur reynslu- flugmaður í heimalandi sínu. Flaug Elyan nýju þotunni í ajils 38 mínútur, og sagðd að fluginu loknu að öld tæki þotuinniar hafi reynzt afbragðs vel. „Það er mun auðveldara að fljúga nýju vélinmi en görmlu þotunum, sem eru hæg- fleygiari," sagði flugmaðurinm. „Lét nýja þotan mum betur að stjórn em gert haifði verið ráð fyrir.“ Eimmig skýrði fkng- maðurinn frá því að Tupolev- þotan væri búin tölvum, sem gætu stjórnað henmi alÍLt til lendingar. Að reynislutfluginu loknu ræddi Alexei Tupölev við fréttamienin og var hinm kát- asti. „Við erum að mimms'a kosti ári á undam startfisbrœðr- um okkar í Bniglandi og Frakklandi, eem eru að vinna að smíði Concorde-þotunmar“, sa'gði hann. Tupolev skýrði einmig frá því að sovézkir flugvélasmiðdr gætu hæglega smáðað farþegaþatu, sem gerð væri fyrir 600—700 farþega, „em það væri ekfci hagkvæmt fyrir o'kfcur. Heppilegasta stærðim virðist vera þoa, sem tekuir 150—200 farþega," sagði hamm. Talsmaður útfilutningisideild- ar sovézfca flugvélaiðm'aðairins, Boris Kharehenko, forstjóri Tupolev þotan nýja, TU-144 í reynsluflugi á gamlársdag. Aviaexport, sagðist væmta þess að nýja þotam ættd eifitir að verða vinsæl víðar em í Sovétríkjuinum. Sagði hamm að Aviaexport hetfði til þessa seiit úr lanai rúmlega tvö þús- umd flugvélar, og fcvaðst vona að TU-144 ætti eftir að auka útflutninginm. Kharchenlfco tjáði blaða- möninum eimmig að á árimu 1968 'hefði sovézka flugfélagið AerofHot Jflutt 62 mdllljónir farþaga, og væri það um 14% aukmimg frá árinu gður. Til saimanburðar má geta þess að ölil 103 aði'ldartfélög alþjóða- samtafca flugtfélaiga, IATA, fluttu á árinu 1968 um 200 miljóndr farþega. Þaikkaði Kharchenlfco þessia fanþega- aufcndinigu Aeoroílot tveimur staðreynd’um. í fyrsta lagi nýjum þotum, sem tefcnar voru í miotkun á árimu, og í öðru lagi láguim flugfairgjöld- um. En fargjölid hjá Aeroflot eru að jatfnaði aðeins 33%— 50% aif fargjöldum IATA á svipuðum vegalengdum, sagði Kharcheniko. Jón Sigfússon Fæddur 21. apríl 1890 Dáinn 1. janúar 1969. Á nýársdag er mér tilkynnt um andlát eins bezta vinar míns og eins þess traustasta og niæt- asta manns, sem ég hefi kynnzt, Jóns Sigfússonar, á Borg í Gler árhverfi á Akureyri. Jón var fæddur á Krakavöll- um í Flókadal., 21. apríl 1890, sonur hjónanna Margrétar Jóns dóttur og Sigfúsar Bergmanns Jónssonar, bónda þar en ætt Iþeirna var frá Svarfaðardal. Hann var næst elztur fjögurra systkina, elzt þeirra var Hólm- fríður, nú búsett á Sauðárkróki, þá Ingibjörg, síðast búsett á Siglufirði, dáin fyrir nokkrum árum og Þorsteinn, sem dó barn að aldri. Auk þeirra átti Jón tvo hálfbræður, Sæmund og Sig trygg, sem báðir eru dánir. Allar gerdir Myndamóta Fyrir auglýsingar Bœkur og timarit Litprentun Minnkum og Stœkkum OPÍÐ frá ki. 8-22 MYJVÐAMÓT hf. simi 17152 MORGUNBLAOSHIÍSINU Jón fluttist með foreldrum sín um um 5 ára gamall að Höfn á Siglufirði, og nokkrum árum síð ar fluttist fjölskyldan á Siglu- nes. Innan tvíutgs aldurs fór Jón til Páls Kröyers á Siglu- firði og lærði hjá honum skipa- smíði í um 3 ár. Að loknu námi stundaði hann sjóróðra á smærri og stærri skipum, frá Bolungar- vík, Skagaströnd og fleiri stöð- um. Um 1916 fluttist Jón til Við víkursveitar í Skagafirði, og stundaði þar búskap um mörg ár, fyrst ^ með Hólmfríði systur sinni í Ásgeirsbrekku og síðar í Ásgarði (Langhúsum) og þar hóf hann búsbap með eiginkonu sinni, sem síðar verður nánar sagt frá. Jafnframt búskapnum stundaði hann um mörg ár fisk veiðar á árabátum og var ætíð formaður, síðar jafnframt eig- andi þess báts, sem hann lengst og síðast réri á. Jón var flestum þeim kostum búinn, sem prýða mega einn mann, fríður og glæsilegur að vallarsýn, karlmenni mikið, mjög vel gáfaður og svo hagur að allt virtist leika í hendi hans. Hann var skapfestu maður mikill, ljúf- menní og snyrtimenni svo af bar. Móðir mín, sem þekkti hann vel og var talin mannþekkjari, sagði oftlega að aldrei hefði hún kynnst jafnmiklu prúðmenni, sem Jóni og að allt sameinaði hann er prýða mætti einn mann. Jón vakti fyrst verulega eftir tekt mína þegar ég var um 13 ára, en þá vann hann að smíði árabáts hjá föður mínum í Kolkuósi, þetta var 6-æringur og þótti hið glæsilegasta og traustasta far, en á þeim báti, sem hét Svanur og faðir minn og Jón áttu saman, réri Jón á í allmörg ár að hausti og vori frá Kolkuósi, og þótti flestum stjórn endum fremri og hvað traustast- ur er mest á reyndi. Og við- frægt varð um Skagafjörð þegar Jón bjargaði árabáit og áhöfn, sem hann var formaður á og haldið var út frá Brimnesi í Viðvíkursveit. Var það í aftaka sunnan eða suðveistan roki að Jón var að veiðum á fyrrnefndum bát ásamt 6 manna áhöfn innarlega á Skagafirði, að hleypa varð undan sjó og vindi út allan fjörðinn og allt út fyrir Þórðarhöfða. Var það álit allra þeirra, er með honum voru á bátnum, en það voru allt hinir hraustustu menn, að einungis stjómsnilli Jóns, æðruleysi og frábær karlmennska hefði bjarg að þeim. Árið 1946, fluttist Jón til Ak- ureyrar en þar vann hann lengst af við skipasmíðar. Er mér minn isstæð fyrsta heimsókn mín til hans í gamla slippinn, en þar vann hann þá að smíðum. Hann spurði mig frétta og ræddi við mig um marga hluti, en aldnei á meðan féll honum verk úr hendi. Sannari og trúverðugri mann í starfi hefi ég aldrei kynnst. f félagsmálum þótti Jón, flest- um samvinnuþýðari og tillögu- betri, þó stefnufastur og liðtæk- ur vel, en sennilega hefur þó hans mesti og bezti eiginleiki verið dulinn flestum, en það var hjálpsemi hans við þá, er erfið- aist áttu uppdráttár. F.kki sótti Jón mikið skemmtanir, en var skemmtilegur heim að sækja og gat verið kátur í vinahóp. Hann var hlédrægur og sóttist ekki eftir metorðum. Hófsamur var hann á allt, frjálslyndur í skoð- unum og bókhneigður og fróður og minnugur svo af bar. Á meðan Jón bjó í Viðvíkur- sveit, var hann mörg ár í hrepps nefnd, í skattanefnd og í fleiri trúniaðarstöðum. Eitt mesta gæfuspor ætla ég að Jón hafi stigið 12. desember 1924, er hann gekk að eiga eftirlif- andi konu sína Sigríði Magnús- dóttur, glæsilega konu og ein- hverja þá dugmestu, högustu og ágætustu í alla staði, sem ég þekki. Þeirra sambúð hefur alla tíð verið með ágætum. Þau voru samhennt um flest og dugnaður þeirra, ráðdeild og skörungs- skapur var sérstæður. Nær sam tímis og þau giftust hófu þau búskap í Ásgarði, en árið 1927, fluttust þau að Ytri-Hofdölum og bjuggu þar til ársins 1946, er þau fluttust til Akureyrar, sem áður segir. Þau eignuðust fjög- ur myndarleg og mjög vel gefin böm, sem öll eru á lífi. Þau eru: Þorsteinn Bjöm, verkstjóri og meðeigandi að bifreiðaverk- stæðinu Baugur h.f. Abureyri, hann kvæn'tist Valdínu Stef- ánsdóttur en hún dó fyrir rúmu ári. Magnús kvæntur Gunnlaugu Björk Þorláksdóttur hann er sjómaður og búsettur á Akureyri. Margrét gift Trausta Helga Árnasyni, menntaskóla- kennara á Akureyri. Sigurlína ,gift Þórarni Heiðar Þorvalds- syni, bifreiðarstjóra í Reykja- vík. Ástríki milli foreldra og barna hefur ætíð verið mikið og þung- ur mun nú harmur konu Jóns og barna og barnabarna, en huggun ætla ég þeim það vera að eiga minningu jafn göfugs manns. Jón var heilsuhraustur lengst af ævi og jafnvel þótt hann kenndi einkum hin síðari ár, nokkurs krankleika fáraðist ihann lítt um féll sjaldan verk úr hendi, en fyrir um tveim ár- um tók Jón veiki þá, er síðar leiddi hann til dauða og mun honum hafa verið löngu ljóst að hverju stefndi, en veikindi sín bar hann af slíku æðruleysi og karlmennsku að fátítt mun og við hlið hans stóð kona hans, svo sterk og fórnfús að undrun sætti. En hvað ég man vel okkar síðustu samfundi Jón, í haust þegar ég og konan mín heim- sóttum ykkur hjónin, þá varst þú helsjúkur, en það var eins og við hjónin gleymdum því, svo varst þú æðrulaus og geislandi af góðvild, gestrisni og hlýju. Guð blessi þig og minningu þína. Þér Sigríður færum við hjón- in innilegustu samúðarkveðjur, svo og börnum ykkar og eftir- lifandi systur Jóns Hólmfríði og syni hennar og öðrum þeim mörgu er syrgja nú afa sinn, vel unnara og vin. Ásgrímur Hartmannsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.