Morgunblaðið - 19.01.1969, Page 5
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 19. JANÚAR 1969
5
Harðnandi átökum austurs og vestuurs
og vaxandi ólgu innan Bandaríkjanna
JEANE Dixon hefur látið
spá sína um árið 1969 frá sér
fara. Meðal þess, sem í henni
má finna, eru eftirfarandi at-
riði:
Verðandi Bandaríkjaforseti,
Richard Nixon, fær að glíma
við erfiðari vandamál en
nokkur fyrirrennari hans í
embættinu. Nixon hefur til að
bera marga góða kosti, sem
forseta Bandaríkjanna mega
prýða: hann er reyndur mað-
ur og hefur til að bera stjórn
vizku og framsýni. Hann mun
reynast sjálfstæður og sjálfum
sér samkvæmur en ekki reyna
að líkja eftir neinum fyrrifor
seta til að afla sér lýðhylli.
Smám saman mun Nixon
endurnýja stjórnkerfi Banda
ríkjanna og skipuleggja það
á nýjan máta, sem hefur heilla
vænleg áhrif í för með sér.
Nixon mun sýna skynsamleg-
an samvinnuvilja en samt ekki
fá minnihlutaöflin, andstöðu-
flokkinn eða þá verr mennt-
uðu í lið með sér. Nixon mun
reynast réttindabaráttu svert
ingja meiri haukur í horni en
nokkur annar forseti síðustu
hundrað árin. En vegna harðr
ar mótstöðu og eyðandi þjóð
félagsafla mun hann ekki
njóta ávaxtarins af því starfi
sínu sem skyldi.
Útsendarar Rússa munu not
færa sér óeiningu bandarísku
þjóðarinnar til aukinna at-
hafna: þeir munu nota „nyt-
sama sakleysingja“ og að
auki mun koma til virk niður
rifsstarfsemi, sem borin verð-
ur uppi af f jölskyldu, sem hef
ur yfir að ráða sterku póli-
tísku apparati. Þessi niður-
rifsstarfsemi mun skaða Banda
ríkin bæði á innlendum og er
lendum vettvangi, og valda
meiri vandræðum en nokkur
getur nú látið sér í hug falíla!
Nixon mun í innsetningar-
ræðu sinni boða viðleitni til
að láta alls kyns mótmmlaat-
höfnum linna. En hann verð-
ur að fá mestu mögulegu
vernd og scrstakar varnar-
ráðstafanir verður að gera
honum til handa næstu mán-
uðina. Reyndar verður öll
þjóðin að vera vel á verði,
því bylting er undirbúin!
Nokkur hluti fjölmiðlanna
mun reynast stjórn Nixons
fjandsamlegur og finna henni
allt til foráttu. Og áhrifa-
miklir menn í valdastöðum
munu sýna mikla ósáttfýsi og
frekar segja af sér embætt-
um heldur en hlíta pólitísk-
um friði.
Manni einum — ég get ekki
greint nafn hans en stjarna
hans mun hækka ört á hin-
um pólitíska himni — mun
takast að auka mjög hróður
Bandaríkjanna með forgöngu
um áhrifamikinn alþjóðasamn
ing.
Þessi samningur mun
Jean Dixon
breyta afstöðunni til Rúss
lands en samt eiga örðugt
uppdráttar fyrst í stað vegna
misskilnings.
Nýrrar ákvörðunar í Viet-
nammálinu virðist skammt að
vænta, en forsetinn nýi og
varnarmálaráðherra hans
mega einmitt eiga von á al-
varlegu áfálli þar austur frá.
Sem stendur virðiat almennt
álitið, að Bandaríkin séu á
góðri leið með að sigra komm-
únistaöflin í Vietnam en ég
sé fyrir mér mikinn liðssafn-
að þeirra við landamæri Suð-
ur-Vietnam. Þetta lið mun ráð
ast yfir landamærin skömmu
eftir að Nixon tekur við völd
um. Þessi innrás verður þung
og henni mun því aðeins verða
hrundið, að til varnar sé
ekki minni herafli en innrás
arliðið er. Friðarviðræðurnar
í París verða til einskis gagns
því endir verður aðeins bund
inn á þetta stríð í Moskvu og
Vietnam.
Nixon mun ekki falla frá
því að vilja semja við and-
stæðinginn í Vietnam en hann
mun ekki á neinn hátt skilja
Suðaustur-Asíu eftir í hönd-
um kommúnista.
Nixon mun í fyrstu eiga
ánægjulegt samstarf við fúll-
trúadeildina en þar mun
koma, að ýmsir löggjafar gagn
rýni hann harðlega, þegar þeir
verða að horfa upp á hann
skera niður fjárveitingar til
ýmissa sérhagsmunamála
þeirra. Aðrir munu aftur á
móti lofa Nixon fyrir hug-
rekki hans.
Nixon mun standa við kosn
ingaloforð sín um strangari
lagaframkvæmd og aukið ör-
yggi á götum úti.
Framhald á hls. 26
Einangrun
Góð plasteinangrun hefur hita
leiðnistaðal 0,028 til 0,030
K.cal/mh. °C, sem er verulega
minni hitaleiðni, en flest önn-
ur einangrunarefni hafa, þar
á meðal glerull, auk þess sem
plasteinangrun tekur nálega
engan raka eða vatn j sig. —
Vatnsdrægni margra annarra
einangrunarefna gerir þau, ef
svo ber undir, að mjög lélegri
einangrun.
Vé. hófum fyrstir allra, hér á
landi, framleiðslu á einangrun
úr plasti (Polystyrene) og
framleiðum góða vöru með
hagstæðu verði.
REYPLAST H.F.
Ármúla 26 - Sími 30978
\mm\
ierðasknfstoia bankastræti 7 símar 16400 12070
travel
Enn sem fyrr ódýrustu og beztu utanlandsferðirnar:
PÁSKAFERÐIR 1969
Mallorcka og London 17 dagar. — Verð frá kr. 14.800,00.
Brottför miðviikudag fyrir skírdag, 2. apríl.. Flogið beint til Palrna. Þér veljið uim dvöl á sömu ágætu
hótelunum, sem þúsundir ísiletndimga þekkj a atf eigin raun úr SUNNUFERÐUM. Páskaíerðin er í ár
fyrsta ferðin aif hálfsmánaðar og síðan vikulegu reglubundnu leigufl'Ugi SUNNU beint til Spánar,
eins og undainfarin ár. Okkur hefir tekizt að halda verðunum ndðri, svo þessar vinsælu utanOands-
ferðir get.i eninþá orðið almenningseign.
íslenzk skrifstofa SUNNU í Palma með eigin síma er farþeguim mikilsiverð og einstök þjówusta.
í þessum mánuði, janúar feliuir ný appelsínuupp -ikera af trjánum á Mallorka. í aprílbyrjun má
reikna með um 28 sitiga hita og sól frá morgni til kvölds. Malliorca er fjölsóttasti og vinsælasti ferða
mannastaður í Evrópu.
Kanaríeyjar og London, 18 dagar, verð frá kr. 22.800,00
Brottför 2. apríl. Dvalið á Tenerife í 15 daga og 2 í London. Kanaríeyjar eru enn sem fyrr vinsœll
dvaLarsitaður, eins og SUNNA hefir sagt í 10 ár. Dvalið á góðum hótelum, sem margir SUNNU-
farþegar þekkja úr hinuim fjöimörgu ferðum SUNNU til Kanaríeyja.
Lærið tnngumál fyrir sumarið.
Munið hin stuttu tungumálaniámskeið SUNNU, sem sérstaklega er ætluð þeim, s>em læra vilja það
nauðsywlegasta tiL að geta betuir notið ferðalaigsin s.
ferðirnar sem folkið velur
KAFFI + KÖKUR
HEITT SÚKKULAÐI
HEITAR VÖFFLUR
HEITAR PYLSUR
GRILL-INN
AUSTURVERI
Háaleitisbraut 68
SMURT BRAUÐ
HEITAR SAMLOKUR
ÍS-RÉTTIR
MILK SHAKE.
Ódýr réttur dagsins allan daginn. Höfum einnig hinn ljuffengu griff-rétti.
NÆG BÍLASTÆÐf
Sendum heim ef óskað er — Sími 82455