Morgunblaðið - 19.01.1969, Page 11
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 19. JANÚAR 1969
11
Haukur Ingibergsson skrifar um:
HUÓMPLÖTUR
Plata ársms 1968
HLJÓMAR — þetr gerðu beztu plötu ársins 1968.
VIÐ ÁRAMÓT er það venja
margra að líta yfir farinn veg
liðins árs og gera sér grein fyr-
ir gangi mála þessa tímabils.
Mun 'h 1 j ómpl öt ugagm.rýinainid i
Mbl. haga sér skv. þessari venju
og reyna að gefa lesendum sín-
um yfirlit yfir plötuútgáfu ís-
lenzkra aðila á nýliðnu ári.
Fyrst ber að skýra frá þeirri
nýjunig, að við Beniedifct Viggós-
son, sem fjallar um hljómplöt-
ur í Tímanum, höfum komið sam-
an og valið þær 7 plötur, út-
komnar á síðasta ári, sem að
okkar áliti eru beztar úr garði
gerðar, og gefið plötu nr. 1 tit-
ilinn Plata ársins 1968. Einnig
höfum við valið lagahöfund árs-
ins 1968, textahöfund ársins
1968 svo og það plötuhulstur,
sem bezt er útlits.
Fyrir valinu sem plata ársins
1968 varð LP plata Hljóma, sem
gefin var út sl. haust af SG
hljómplötum en miklu var til
kostað að gera hana sem bezta,
og það gleðilega var, að sá
kostnaður bar ávöxt. En listi yf-
ir 7 bezt unnu plöturnar er
þannig:
1. Hljómar LP SG
2. Sextett Ólafs Gauks, Svan-
hildur og Rúnar LP SG
3. Savanna tríóið LP SG
4. Flówers EP Tónaútg.
5. Sextett Ólafs Gauks, Svan-
hildur og Rúnar EP SG
6. Kristín Ólafsdóttir EP
Tónaútg.
7. Með beztu kveðju (Haukur
Morthens) LP Faxafón
Það skal tekið fram, að ým-
issa hluta vegna nær þetta val
aðeins til dægurlagaplatna að
þessu sinni, hvð sem síðar kann
að verða. Gunnar Þórðarson var
valinn lagahöfundur ársins 19687
Þorsteinn Eggertsson, textahöf-
undur ársins og hulstrið um LP
plötu Hljóma var valið plötu-
hulstur ársins. Má með sanni
segja, að það sé LP plata
Hljóma og aðstandendur henn-
ar, sem standi með pálmann í
höndunum, því að Gunnar og
Þorsteinn koma meir en lítið
við sögu hennar, þar sem Gunn-
ar samdi lögin á aðra plötu-
síðuna, og Þorsteinn alla text-
ana. Óskum við Hljómum, Gunn-
ari Þórðarsyni, Þorsteini Egg-
ertssyni og SG hljómplötum til
hamingju.
Á áriruu 1968 kom út á ís-
landi 31 hljómplata. Af þeim
flokkast 18 undir dægurlagaplöt
ur, og verður gefið yfirlit yfir
þær í dag, en um 13 plötur til-
heyrandi öðrum flokkum verð-
ur rætt í næsta þætti. Þessar 18
skiftast niður á 5 útgáfufyrir-
tæki, en 2 þeirra gáfu út að-
eins eina plötu hvort um sig.
SG hljómplötur gáfu út 8
dægurlagaplötur:
Halena og Þorvaldur ásaimt
hljómsveit Ingimars Eydal EP
Hljómar EP
Hljómar LP
Hljómsveit Magnúsar Ingimars-
sonar Þuríður og Vilhjálmur
EP
Ragnar Bjarnason EP
Savanna tríóið LP
Savanna tríóið LP
Sextett Ólafs Gauks, Svan-
hildur og Rúnar EP
Sextett Ólafs Gauks, Svan-
hildur og Rúnar LP
Tónaútgáfan á Akureyri sendi
6 plötur frá sér:
Flowers EP
Kristín Ólafsdóttir EP
Pónik og Einar EP
Póló og Bjarki
Sextett Jóns Sig og Stefán EP
Söngtríóið 3 háir tónar EP
Hljómplötuútgáfan gaf út 2
plötur tilheyrandi þessum
flokki:
Ríó tríó EP
Sigrún Harðardóttir EP
Ólafur Gaukur — Sextett hans
á tvö af fimm beztu plötum
ársins 1968.
Frá Faxafón kom ein plata:
Með beztu kveðju (Haukur
Morthens) LP
Ebba Guðmundsdóttir gaf
einnig út eina plötu:
Sverrir Guðjónsson og hljóm-
sveit Guðjóns Matthíassonar
BP
Þegar litið er á þetta yfirlit,
kemur í ljós, að SG hljómplöt-
Þorsteinn Eggertsson — texta-
höfundur ársins 1968.
ur og Tónaútgáfan eru afkasta-
mestar, en þau afköst virðast
ekki vera á kostnað gæða, því
að til samans eiga þessar útgáf-
ur 6 af 7 plötum á gæðamats-
listanum. í EP plötum hefur
Tónaútgáfan heldur vinninginn,
með 6 á móti 5 plötum SG hljóm-
platanna. Einnig á Tónaútgáfan
efstu EP plötuna. Dæmið snýst
hins vegar við, þegar litið er á
LP plötur. Þar gaf Tónaútgáf-
an enga út, en SG þrjár. Raða
þær sér í efstu sæti listans, og
sýnir það, að ekki hefur verið
kastað til höndunum við gerð
þeirra.
Þótt þessar plötur hafi hér að
framan verið kallaðar dægur-
lagaplötur, skiftast þær í ýmsa
undirflokka. Þarna getur að
heyra pop af nýjustu gerð,
gömlu dansana, þjóðlög, gaman-
vísúr og sitthvað fleira.
Ef við lítum á listamennina,
sem spila inn á þessar 18 plöt-
ur kemur í ljós, að þar er um
16 aðila að ræða því að bæði
Hljómar og Sextett Ólafs Gauks
eiga 2 plötur, LP og EP. 6 að-
ilar koma fram með sína fyrstu
plötu, 4 hjá Tónaútgáfunni og
2 hjá Hljómplötuútgáfunni, og
að öðrum ólöstuðum vöktu Flow
ers mesta eftirtekt, enda fátítt,
að fyrsta plata sé eins góð og
raun varð á hjá þeim félögum.
Haukur Morthens gaf út LP
plötu eftir 4urra ára hlé, og á
hann vissulega erindi á hljóm-
plötumarkað, þótt liðin séu 16
ár síðan hann kvaddi sér fyrst
hljóðs á þeim vettvangi.
Á þessum 18 plötum eru 109
lög. 46 þeirra eru af erlendri
rót en 63 íslenzk, sem skiftast
niður á 26 höfunda. Ekki eru
öll þessi ísl. lög þó ný af nál-
inni, og munar þar mest um Odd-
geir Kristjánsson, en öll þau
lög, 14 að tölu, sem eru á LP
plötu Ólafs Gauks, sem hafnaði
í 2. sæti, eru eftir hann. Næstur
í röðinni kemur Gunnar Þórðar-
son, lagahöfundur ársins, en eft-
ir hann liggja 9 lög á 3 plötum.
Síðan koma Magnús Eiríksson
með 6 lög á 3 plötum, Guðjón
Matthíasson með 5 lög á 1 plötu
og Þórir Baldursson með 4 lög á
1 plötu. Ekki er þessu yfirliti
þó gerð góð skil, svo að ekki sé
minnst á Rúnar Gunnarsson, en
hann gerði 2 lög sem bæði urðu
vinsæl og það af verðleikum.
39 skáld sömdu texta við 108
lög, en eitt lag var aðeins spil-
að ekki sungið. Þar var afkasta-
mestur með 17 texta Þorsteinn
Eggertsson, sem kosinn var texta
höfundur ársins, að vísu ekki
fyrir þessi afköst, heldur vegna
þess, að hann er um margt sér-
stæður í sínum skáldskap og yrk
ir gjarna um hluti, sem önnur
skáld láta afskiftalausa. Þ.e.a.s.
Þorsteinn er maður nýs tíma og
nýrra sjónarmiða.
^ Næstflestir textar eru eftir
Ása í Bæ við lög Oddgeirs Krist-
jánssonar 8 talsins. Ómar Ragn-
arsson samdi 6 texta, en hlutur
hans er þó ekki upptalinn, því
hann gerði einnig alla þá texta,
sem finna má á jólasveinaplötu
nokkurri, sem hann sendi frá sér
nú fyrir jólin, en um hana verð-
ur rætt síðar. 5 textar eru eftir
Loft Guðmundsson, Jóhönnu
Erlingsson, Magnús Eiríksson,
Birgi Marinósson og síðast en
efciki sázt Davíð SteÆánssion, og
sýnir það, að þótt ljóð hans séu
ekki ný af nálinni ná þau samt
til ungmenna bítilaldar, og tel
ég það vera meðmæli. Ljóð
margra skálda hafa misst sam-
band við umheiminn á styttri
tíma.
Er þá að víkja að ytra um-
búnaði. Flestar eru þessar plöt-
ur hljóðritaðar hér á landi, ann-
aðhvort í hljóðvarpinu eða sjón
varpinu, en það eru einu stað-
irnir með tæki og aðstöðu til
þeirra hluta. Sennilega verð-
ur þó einhver breyting hér á,
jafnvel á yfirstandandi ári. Hafa
Pétur Steiogirímssan (Wjóðvarp)
og Jón Þór Hannesson (sjónvarþ)
annast flestar upptökurnar. 5
plötur voru þó hljóðritaðar
erlendis 4 í Englandi og 1 í Dan
mörku. Eru 3 þeirra í stereo, en
slíkar upptökur hafa af tækni-
legum ástæðum ekki verið fram-
kvæmanlegar hér til skamms
tíma. Á því er þó að verða breyt
iintg, og fyrsta ísl. stereo platan
kom á markaðinn um mitt sum-
ar. Upptöku framkvæmdi Pértur
Steingrímsson. Plötuhulstur eru
flest framleidd hérlendis og geta
a.m.k. 4 fyrirtæki séð um þá
hliðina.
Ekki liggur enn Ijóst fyrir,
hvernig plötusala hefur gengið
á liðnu ári, en vonandi getur
þátturinn skýrt frá því síðar.
Það liggur þó ljóst fyrir, að með
minnkandi kaupgetu minnkar
sala á plötum. Tvennt einkenn-
ir markaðinn sl. ár öðru frem-
ur: Harðnandi samkeppni, sem
stafar af fjölgun útgefenda,og
því, að nú var hægt að tala um
plötuflóð fyrir jólin sbr. bóka-
flóð, enda er plata ekkert verri
gjöf en hvað annað, svo fremi
sem viðtakaradi hafi tæki til að
hagnýta sér gjöfina.
Hefur þá verið getið um flesta
drætti dægurlagaplötum viðkom
andi, og svo sem áður sagði, verð
ur fjallað um aðra plötuflokka í
næsta þætti.
Haukur Ingibergsson.
22-24
SiMAiid 02 80-322 GZ
LITAVER
Pilkingtons keramikveggflísar
komnar aftur, mikið úrval.
Kjörverð.
DRENGJA- OG KARLMANNA
KULDASKÓR
SKOSALAN
LAUGAVEGI I