Morgunblaðið - 19.01.1969, Síða 13
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 19. JANÚAR 1969
13
sveitamennsku hans og miðl-
ungsmenntunar komu æ skýrar
í ljós.
í þröngum skilningi stóð John
son sig vel þegar á reyndi.
Hann gat tekið erfiðar ákvarð-
anir í skyndi, tryggt sér svig-
rúm í viðkvæmum milliríkja-
þrætum,skakkað leikinn með
ágætum árangri í flóknum
vinnudeilum. En Johnson var
alltof hörundsár á óáþreifan-
legra sviði. Honum var um
megn að varðveita traust þjóð-
arinnar í sinn garð á hverju
sem gekk, skilja hvert straumar
almenningsálitsins leituðu og að
kveða skorinort andstæðinga
sína í kútinn.
RÁÐVILLT ÞJÓÐ
Enginn rithöfundur og
menntamaður er í eins góðri að
stöðu til að móta almennings
álitið og forsetinn. Hann notaði
sjaldan þes9a góðu aðstöðu
með tilætluðum árangri, þegar
illska hljóp í umræðurnar um
ráðvillt og miður sín vegna
kynþáttaólgunnar. Hann hefði
ef til vill getað staðizt þetta
áhlaup, ef hann hefði fyrir-
fram reynt að beizla það
traust, sem hann naut fyrst
framan af. Það hafði hann
sjaldan reynt. Hann reyndi að
koma fram í hlutverki forset,
sem bregst misjafnlega við
kringumstæðunum og er stór-
brotinn, góðhjartaður og dug-
mikill. Þessar sögur samrýmd-
ust ekki alltof nákvæmum sög-
um, sem sýndu hve hann var
smásmugulegur, miskunnarlaus
við samstarfsmenn sína og ó-
þarflega út undir sig. Skortur
hans á hreinskilni um Vietnam
og langtum þýðingarminni mál
varð ólæknandi.
Þokukennd loforð hans sann
færðu engan nema skamma hríð
í fyrstu yfirlistræðu sinni um
ástand ríkisins hét hann „al-
gerri herferð gegn fátækt“ og
„fleiri heimilum og fleiri skól-
um“ Hann sagði, að þessu væri
hægt að koma til leiðar án auk
inna fjárútláta og á örfáum mán
uðum. Fyrir nokkrum dögum
tilkynnti Orville Freeman land
búnaðarráðherra, að enn vant-
aði 1 milljarð dollara til að
fæða milljónir manna, sem
byggju við svo mikla fátækt
að þeir bókstaflega sveltu.
Alveg fram á árið 1966 hét
Johnson því enn að berjast
kröftuglega, bæði á vígvellin-
um í Vietnam og á heimavíg-
stöðvunum. Ef til vill hefði það
verið hægt. En þá hafði John-
son fyrirgert trausti þjóðarinn
ar. Glæpir og ofbeldi voru orð-
in þjóðarvandamál. Herferðin
gegn fátækt var í mótbyr. Ýmis
legt var athugavert við ýmsar
fjárveitingar til innanlands-
mála varð æ einstrengislegra.
Sigrar repúblikana í þingkosn-
ingunum 1966 gerðu að engu
möguleika Johnsons á því að
ná fram fyrri baráttumálum
sínum.
Á BÁÐUM ÁTTUM
Eftir óeirðirnar í blökku-
mannahverfunum, harðnandi af
stöðu blökkumanna og vaxandi
andúð hvítra manna á baráttu
blökkumanna vegna harðfylgi
þeirra, var Johnson á báðum
áttum, og óviss um, hvað hann
ætti að taka til bragðs. Hann
hélt áfram að berjast fyrir stað
festingu mannréttindalaga, og
sigrar hans verða varanlegur
minnisvarði um einbeittan vilja
Suðurríkjamanns, sem áður fyrr
hafði haft takmarkaðan áhuga
á málstað blökkumanna. En
til ,,Marshallaðstoðar“ til handa
svæðum, þar sem örbirgð rík-
ir, eftir óeirðirnar í Detroit
árið 1967, eyddi Johnson sílku
tali. Og þegar Kerner-nefndin
Félngasomtök
óska að kaupa góðan, lítinn flygil eða píanó.
Tilboð merkt: „Gott hljóðfæri — 6217“ leggist inn á
afgr. Mbl. fyrir 2ö. þ.m.
Óskum eftir að ráða
storfsmenn í steypuskóln
til eftirgreindra starfa:
— Starfsmenn við ofna og álsteypuvélar,
— starfsmenn við sögun á áli,
— starfsmenn við pökkun og flutning á áli,
— starfsmenn við ýmis önnur störf.
Unnin er venjuleg dagvinna svo og vakta-
vinna.
Ráðning væntanlega ýmist frá 15. marz eða
1. apríl 1969.
Auk þess:
— Skrifstofumann til starfa við skýrslugerð
og melmisútreikninga. Góð reiknings-,
vélritunar- og þýzkukunnátta er nauð-
synleg.
— Vigtunarmenn til vigtunar og eftirlits
með álsendingum til útflutnings. Nokkur
ensku- og þýzkukunnátta og læsileg rit-
hönd er nauðsynleg.
Ráðning frá 1. apríl 1969.
Umsóknareyðublöð liggja frammi í Bókabúð
Sigfúsar Eymundssonar í Reykjavík og Bóka-
búð Olivers Steins í Hafnarfirði.
Skriflegar umsóknir sendist í pósthólf 244,
Hafnarfirði, fyrir 1. febrúar 1969.
tslenzka Álfélagið h.f.,
Straumsvík.
lagði fram stórhuga tillögur í
fyrra um hjálp til handa
blökkumönnum, lét forsetinn
ekkert til sín heyra, jafnvel þótt
tillögurnar vöru mjög í anda
margs af því, sem Johnson hafði
lagt til í háfleygum ræðum.
Bersýnilegt var, að hann leit
svo á að störf nefndarinnar
fælu í sér áfellisdóm á hann
sjálfan.
Johnson er sannfærður um,
að hann hafi gert sitt bezta.
Þráteflið í Parísarviðræðunum
hefur valdið honum hugarangri
en hann telur að hann hafi
gert allt sem í hans valdi stóð
til að koma á friði, er sam-
rýmanlegur sé bandarískum
hagsmunum. Eftir nokkra daga
hverfur hann til Texas. Þar
mun hann snúa sér að því verk
efni að tryggja sér vilhallan
dóm sögunnar. Hann hefur sent
marga vörubíla hlaðna persónu
legum skjölum til Texas. „Ég
á gögn upp á 31 milljón blað-
síðu“, segir hann, „meira en
nokkur annar forseti sögunn-
ar.“ Hann hefur ef til vill lög
mæla, hvað sem annars sagt
verður um hann i sögunni, þeg
ar hann segir: „Fólk mun líta
aftur til þessara firnm ára sem
mikilvægasta tímabils í sögu
þjóðarinnar."
f september 1963 kom Joihn-
son í h eimsókn til íslands.
Hann var þá enn varaforseti.
Tveimur mánuðum síðar var
Kennedy myrtur og Johnson
tók við forsetaembættinu.
Árið 1967 heimsótti Ásgeir
Ásgeirsson þáverandi forseti
Johnson í Hvíta húsinu. For-
sætisráðherra Bjarni Benedikts
son hafði nokkru áður einnig
heimsótt Johnson í Hvíta hús-
inu.
(Endursagt úr ,,Time“)
Frá Eyfirðingafélaginu í Reykjavík
Evfirðingafé’agið heldur ÁRSHÁTÍÐ í Sigtúni
laugardaginn 8. febrúar nk.
Nánar auglýst síðar.
STJÓRNIN.
Til leigu
Sólrík íbúð í Vesturbænum, 4—5 herbergi. Húsgögn
o. fl. getur fylgt. Tilboð, merkt: „Sólrík — 6319“ send
ist afgr. Mbl. fyrir 25. þ.m.
Frn Breiðfirðingaíélaginu
Félagsvist og dans í Breiðfirðingabúð laugardagirm 25.
þ.m. kl. 9 e.h. — Allir velkomnir.
Breiðfirðingafélagið.
Nýtt húsnæði!
Aukinn vélakostur!
Um leið og víð tilkyhnum, að við höfum flutt í ný húsa-
kynni í Sætúni 8 (O. Johnson & Kaaber h. f.), þá viljum við
geta þess, að við höfum aukið vélakost og fjölbreytni
í letrum, og getum enn bætt þjónuStu okkar við viðskipta-
vini.
Ný bókhaldslög!
Hagkvæmt bókhald!
Um s. 1. áramót gengu í gild.i ný bókhaldslög. M. a. gera þau
ráð fyrir töhisetningu á nótum í bókum og' reikningum, auk
annarra breytinga á bókhaldseyðublöðum. — Við bjóðum að-
stoð við að gera bókhaldið aðgengilegt. Við útbúum nótubæk-
ur, reikninga og Öll önnur' eyðubíöð sem nauðsynlegt er að
hafa í aðgengilegu bókhaldi.
Við eigum ávallt á lager flestar tegundir pappírs, m. a.
sjálfkalkerandi pappír, karton og flestar teguhdir umslaga.
Við eigum sýnishorn af allskonar formum á: — Nótum í bók-
um og blokkum — Reikningum — Bréfsefhum — Kaupseðlum
Kaupumslögum — Vinnunótum — Vinnukortum — Stað-
greiðsluftótum — Umslögum, stórum og smáum, venjulegum
og sjálfiímdum — Gluggaumslögum o. fl. o. fl.
Við reikntim út fyrir yður endanlegt verð allrar prentvinnu
áður en verkið er hafið.
Allskonar prentun í einum og fleiri litum.
Þér eruð velkomin í okkar nýju húsakynni í Sætúni 8 eða
hringja í síma 21650 og við sendum fagmann til að ræða við
yður um fornu og verð.
0
HAGPRENT H.F.
Sími 21650 — Sæfúni 8 — Reykjavík