Morgunblaðið - 19.01.1969, Page 15

Morgunblaðið - 19.01.1969, Page 15
MOBGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 19. JANÚAR 1969 15 Afbragð 1 útvarpinu sl. sunnudag voru tveir þættir, sem hiklaust má telja meðal þess merkasta, er þar hefur verið flutt. I sjálfu út- varpinu, eða hljóðvarpinu, sem stundum er kallað , var síðari hluta dags endurtekinn nokkur hluti dagskrár frá 1. des. sl. Þar voru viðtöl við þá Þorstein M. Jónsson, Pétur Ottesen, Jörund Brynjólfsson og Sigurð Nordal. ÖU voru viðtölin athyglisverð, en þó skar sig úr samtalið við Pétur Ottesen, einkum sfðari hluti þess, sem fjallaði um sjálfan hann og hans eigin viðhorf. Kom þar allt til: Iðandi líf og f jör, sem lýsti sér í orðum Péturs, stórmannlegt mat hans á eigin ferli og þroska og karlmainnleg eggj unarorð hans til hinnar ís- lenzku þjóðar, sem nú hafa þeim mun meira gildi sem þau reynd- ust vera hans kveðjuorð. Him samtölin voru sem sagt góð, þar á meðal samtalið við Sigurð Nordal, en þó var þa'ð ekki nema svipur hjá sjón miðað við samtal þeirra séra Emils Björnssonar og Sigurðar í sjónvarpinu á sunnu- dagskvöldi. Það er sammæli manna að betra íslenzkt sjón- varpsefni hafi þeir ekki séð. Ómetanlegt er, að ókommar kynslóðir geti ætíð heyrt rödd slíks skörungs sem Péturs Otte- sens, einmitt þegar honum tokst svo vel sem að þessu sinni og séð Fjaran inn við Sund — á fögrum vetrardegi. — Ljósm. Mbl. Ól. K. M. REYKJAVÍKURBRÉF ——^Laugardagur 18. jan. og heyrt Sigurð Nordal, mesta andans mann okkar kynslóðar, þegar hann af mikilli hreinskilni rifjar upp helztu lærdóma langr- ar ævi. Óvíst fyrirfram Menn þurfa ekki að vera sam- mála öllu því, sem þesisir snill- ingar sög*ðu til þess að þykja mikið til orða þeirra koma. í hljóðvarpsviðtali Sigurðar Nor- dals gætti t.d. um of þeirrar hugsunar, að veg.na þess að raunin varð sú, að slitið var sameigin- legu konungdæmi við Danmörku, hafi frá upphafi samþykktar sam bandslaganna verið einsýnt, að svo hlyti að fara. Skýrt skal fram tekið, að Sigurður odðaði þetta ekki svo, en rökstuðningur hans virtist mjög stefha í þessa átt. Slíkt öruggt orsakasamband var hinsvegar alls ekki fyrirfram sjáanlegt, og eftir á er einnig hægt að færa rök að því, að önn- ur harla óviss atvik hefðu getað leitt til allt annarrar niðuirstötðu. Yfirlýsingar Dana fyrr og síðar um, að þeir kærðu sig ekki um sameiginlegt konungdæmi, ef utanríkismál og hernaðarmál héldust ekki sameiginleg, voru vitanlega tímabundnar eins og aðrar slíkar yfirlýsingar, og engan veginn ólíklegt, áð viðhorf þeirra hefðu breytzt með breytt- um aðstæðum. Sbr. breytingu á aðstöðu brezku krúnunnar frá yfirráðatíma Bretlands eins til alríkisins brezka og síðan tiil sam- veldisins nú á dögum. Þess vegna má færa að því gild rök, að ef íslendingar hefðu ekki slitið sam bandinu til fulls á árinu 1944, heldur beðið eftir því, að „við- ræ'ður gætu átt sér stað“, eins og á sínum tíma var deilt um, þá mundi konungdæmi vera hér enn, hvað sem um sambandið hefði orðið að öðru leyti. Auðvit- að er þýðingarlitið að tala um það, sem orðið hefði, ef atvik hefðu reynzt öll önnur en raun varð á. Öðruvísi gat farið En getur nokkrum kunnugum komið annað til hugar, ef lýð- veldi hefði ekki verið á komið fyrir stríðslok, en gerð hefði verið rækileg tilraun til þess að viðhalda konungdæminu og bregðast ekki hinum gamla, mikilsvirta þjððhöfðingja á hans efstu dögum, eftir að hann hafði gengið í gegnum eldraum stríðs- áranna? Og hver er kominn til þess að segja, að þvílíkar rök- ræður hefði ekki átt töluverðan hljómgrunn hér á landi? Við skulum ekki gleyma vanköntim- um á því, að hafa eigin innlend- an þjóðhöfðingja í jafn fámennu landi og okkar. Og heldur ekki hinu, að hvað sem um Kristján X. annars verður sagt, þá fóir hann óáðfinnanlega með sitt ís- lenzka þjóðhöfðingjavald frá setningu sambandslaganna 1918 fram til þess að flytja varð þjóð- höfðingjavaldið inn í landið 10. april 1940, eftir hernám Dan- merkur. Slíkar bollaleggingar eftir á eru sem sagt harla þýð- ingarlitlar. Þó má nokkuð af þeim læra, og menn skyldu var- ast að halda að vegna þess, að atburðarás hefur orðið með viss- um hætti, hafi hún verið með öllu óhjákvæmileg. Með setningu sambandslaganna var Islending- um opnuð leið til fulls frelsis. Það er óumdeilanleg staðreynd, og þess vegna var þá um mjög mikil og merk tímamót að ræða. En þar með var ekki sagt, að ís- lendingar notuðu sér þá mögu- leika, sem þarna opnuðust, enda sagði Sigurður Nordal sjálfur, að Islendingar hefðu getað skilið við Dani strax 1918, einungis ef þeir hefðu sjálfir viljað. Það er einnig hæpið að halda því fram nú eftir á, að á íslandi hafi einungis verið deilt um leiðir til fulls frelsis. Ætíð voru uppi þær skoðanir, að íslendingar væru enn of fámennir og veikburða, til þess áð geta haldið uppi fullu sjálfstæði. Þeir menn, sem þessa skoðun höfðu, þurftu ekki að vera minni þjóðvinir eða íslend- ingar en aðrir. Þeirra mat á að- stæðum var einungis þetta, enda skulum við ekki gleyma því, að enn eigurn við eftir að sjá okkur farborða til frambúðar í við- sjálum heimi. Treystu a^skuimi Þessar bollaleggingar varða einungis liðinn tíma. Hið eftir- tektarverðasta í ummælum beggja, Péturs Ottesens og Sigurð ar Nordals, var hinsvegar traust- ið, sem báðir lýstu á íslenzkum æskulýð nú á dögum. Hvorugur fór þó dult með, að eitthvað mætti að honum finna. Báðir vöruðu við hinu sama, of miklum drykkjuskap. En misbrestirnir uxu hinum glöggskyggnu öldungum ekki svo í augum, að þeir þar fyrir misstu traust sitt á hinum glæsilega ís- lenzka æskulýð. Það er og vafa- laust rétt, að ungu fólki á ís- landi er nú meira af Guði gefið heldur en nokkurri annarri kyn- slóð, sem á undan því hefur lifað í landinu. Þáð hefur til að bera meiri Mkamsburði, glæsileik og menntun og býr við auðveldari ytri aðstæður, en ménn hafa áður þekkt hérlendis. Hættumar eru að vísu margar, en þær eru til þess að forðast þær og yfir- vinna. en ekki láta þær buga sig eða gera að minni mönnum. Óttast ekki Ekki fer á milli mála, að Sigurður Nordal er allra manna er uppi hafa verið, kunn- ugastur íslenzkri menningu fyrr og síðar, veikleika hennar og styrkleika, kostum og göllum. Þáð var þess vegna mjög lær- dómsríkt, þegar hann sagðist ekki óttast erlend áhrif. Að hans skoð un eru íslendingar menn til þess að standa þau af sér, velja þar og hafna, eftir því sem hyggi- legast er. Skoðun Péturs Otte- sens, hinnar margreyndu sjálf- stæðiskempu, var hin sama. Enginn hefur reynst honum skeleggari í því að brýna fyrir mönnum nauðsyn stóriðju á ís- landi og samvinnu við erlenda aðila, til þess að skjóta fleiri stoðum undir atvinnuöryggi landsmanna, Pétur þekkti af eigin raun þörfina á að forðast hinar stöðugu sveiflur, sem reynst hafa samfelldum fram- förum hættulegri hér en flest annáð. Ráð þessara tveggja manna eru byggð á mikilM reynslu, raunsæi og sönnu yfir- liti um þjóðarþörf. Það er og mikiLl munur á málflutningi þeirra og ályktunum eða öðrum eins fjarstæðum og þegar því er haldið fram, að atviinnuleysi á íslandi um þessar mundir stafi af því, að ekki hafi verið nægi- lega hlynnt að hinum „þjóðlegu atvinnuvegum", eins og eitt nöld- urmennið orðar þáð. Óhagiganleg staðreynd er, að aUsstáðar í heiminum eiga fiskveiðar nú við mikla örðugleika að etja. Forsæt isráðherra Noregs lét í haust svo ummælt, að í víðlendum héruð- um í Norður-Noregi hefði legið við landauðn, ef ríkisvaldið heföi ekki hlaupið undir bagga með miklum styrkveitimgum. Norð- menn geta veitt slika styrki af því að fiskveiðar eru þar ein- ungia aukaatvinnuvegur, gagn- stætt því, að þær eru aðalundir- staðan hjá okkur. Sömu sögu er að segja hvarvetna annars staðar að. Bæði í Bretlandi og Kanada er fiskveiðum haldi’ð uppi með stórkostlegum styrkjum af hálfu ríkisvaldsins og hefur þó ekki hrokkið til, svo að öflug útgerð- arfyrirtæki hafa Uðast i sundur eða orðið algerlega að gefast upp. Fálki eða íriðardúfa? Hlálegt er og að heyra tal sumra manna um voðann af er- lendum áhrifum og sainwinnu við útlendinga, manna, sem eru hund flatir fyrir erlendum golþyt, ef hann blæs úr austri. Minnast má smáskáldsins, sem eftir var haft í Þjóðviljanum í fyrra, áð hann væri á móti samvinnu íslands við önnur lönd eða bandalög, en þó horfði hann með hrifningu fram til þess, ef slík samvinna kæmist á, eftir að kommúnismi væri orðinn allsráðandi í þesisum heimshluta! Þá var ekki Mtil hrifning í Þjóðviljanum út af frásögnum af Bamdaríkjamannin um, sem frá var skýrt í siðasta Reykjavíkurbréfi og bersýnilega hafði ferðast um sem atvinnu- upphlaupsmaður. Þar var á ferð- um maður, sem íslendingar gátu mikið af lært, áð dómi Þjóðvilj- ans. Dómgreimd þesea landsihoma manns má hins vegar marka af orðunum, er eftir honum voru höfð: „Ég var á rölti um bæinn á föstudaginn, (20. des. 1968) í leit að safni tij að skoða. I Aust- urstræti mætti ég göngu, sem hafði friðardúfu í fararbroddi, og þótt ég viti ekki enn í dag, hverjir stóðu fyrir göngunni, tók ég þátt í henni. Friðardúfunni fylgi ég hvert á land sem er.. Göngunni lauk við Dómkirkjuna, og þar fór fólkið inn.“ Menn hafa furðað sig á, hvaða ganga það hafi verið, sem upp- hlaupsmaðurinn þarna slóst í för með. Eftir því sem næst verður komizt, getur ekki verið um annað að ræða en kirkjuför menntaskólanema frá skóla þeirra við Lækjargötuna niður i Dómkirkju. Þeir fóm að vísu aldrei um Austurstræti, en höfðu fugl í fararbroddi. Það vair raun- ar ekki friðardúfa, heldur fálk- inn, sem er gamalt tákn memenda í menntaskólanum í Reykjavík. Blessaður Bandaríkjamaðurinn hefur þarna villst á friðardúfu og fálka, og mætti raunar fyrir- gefa honum, ef honum hefði aldrei orðið meiri skyssa á, þótt hingað til hafi verið talinn tölu- verður munur þessara tveggja fugla wÉg er á móti USA64! Um þennan mótmælanda virð- ist svipað og suma aðra, að ákefð in til mótmæla er svo mikil, að þeir hafa ekki hugmynd hvað það er, sem þeir í raun og vem taka sér fyrir hendur Sú var eimnig frásögn fullorðins manns, sem slóst í hóp Æskulýðsfylking- arinnair eitt sinn í haust, þegar hún hafði safnast saman fyrir utan hús eitt, og stóð þar með ópum og grjótkasti Sá fullorðni hlustaði á tal unglinganna og heyrði sér til undrunar, að þeir höfðu ekki hugmynd um hverju þeir voru að mótmæla. Við öðru er svo naumast að búast, þegar óþroskuð börn eru leidd í slíkar fylkingar, svo sem blessað bam- ið, er virtist vera nær 5 árum en 10 og í einhverri göngun/ni á dögunum var látið halda á spjaldi er á stóð: „Ég er á móti USA!“ Slíkt er að vísu skoplegt, en öllu gamni fylgir nokkur alvara, og spyrja mætti hvor\ þvílík læti e.t.v. drægju úr þeirri bjart- sýni, sem gó'ðir menn bera í brjósti um íslenzka æsku. Því fer fjarri. Undantekning ein sannar einungis regluna. Langt leitað einn helzti sjávarútvegsspeking- ur kommúnista hefur fyrr og síðar talið það höfuðhneyksli, áð Sjálfstæðismenn á Alþingi bám fyrir nokkrum árum fram tiil- lögu um að kannaðir yrðu mögu- leikar á fiskveiðum við Afríku- strendur. Þetta átti á sínum tíma að vera ámóta tilræði við „þjóð- legar“ íslenzkar fiskveiðar, eins og bygging álbræðslunnar núna á að vera uppspretta atvinnu- leysis! Það er því fróðlegt að lesa grein í Tromsöblaðinu, „Nordlys“ frá 4. jan. sl„ sem norskur kunn- ingi þess, er þetta ritar, sendi honum nú á dögunum. Þar er á fremstu síðu fjögra délka fyrir- sögn, sem hljóðar svo: „Stórkostleg veiði síldveiðileið- angra við Afríkustrendur. Furðu legt er, að Noregur skuli ekki taka þátt í þeim.“ Fyrsta máls- greinin hljóðar svo: „Það er furðulegt og leitt, áð Noregur skuli ekki hafa komið auga á hina stórkostlegu mögu- leika fyrir sildveiðum í hafinu fyrir utan suð-vestur Afríku. Þar er síld allt frá Góðrarvonar- höfða til strandar Kongó og mikill fjöldi þjóða fær þar geypi- veiði, — sérstaklega Suður- Afríka, Sovétsamveldið, Japan — en einnig Austur Þýzkaland, Búlgaría, Ghana og fleiri. Sem dæmi um möguleikana, get ég nefnt, að „Suiderkreus" leiðang- urinn, sem ég tek þátt í, hefur á 914 mánuði framleitt 103 þús. tonn af fiskimjöli og 180 þúsund „fat“ af oMu. Fiskimjölsmagni'ð nemur 1/4 af allri fiskimjöls- framleiðslu Noregs." Þetta er haft eftir Tromsöbúa, Kristian Jensen, sem er yfir- stýrimaður á Suiderkreus, og gerir hann síðan nánari grein fyrir veiðunum í alllöngu máli. Hann getur þess, að þarna séu veiddar fleiri fiskitegundir en síld, og séu ísraelsmenn á meðal þeirra, sem stundi aðrar veiðar á þessum slóðum en síldveiðar. Frá sjónarmiði Islendinga er þess að gæta um þessar veiðar, hversu fjárfestingin er gífurleg. Suiderkreus er sjálft 15000 tonna síldarverksmfðjuskip, og er kjarn inn í leiðamgri, þar sem 20 síld- veiðiskip með kraftblökk annast veiðarnar og þeim fylgja svo birgða- og flutningaskip.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.