Morgunblaðið - 19.01.1969, Síða 16

Morgunblaðið - 19.01.1969, Síða 16
16 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 19. JANÚAR 1969 - DJILAS Framhald af bls. 10 ræða hernaðarlega ofbeldis- stefnu. Þessi stefna hlýtur fyrr eða síðar að vera skaðleg mik- ilvægum hagsmunum Vestur- veldanna og því verður að stemma stigu við henni utan- frá... jafnvel með vopnavaldi. Eins og nú er ástatt þurfa Sovétríkin ekki að hrifsa tii AUGLYSINGAR SÍMI SS*4*8Q sín stjómartaumana í Austur- Þýzkalandi, Póllandi, Ungverja landi eða Búlgaríu. Þessi ríki eru ofurseld valdi sinnar heima gerðu nýju stéttar, en hún á allt sitt vald undir nýju stétt- inni í Sovétríkjuunm. Lítum á forinigjana í þessum löndum. Til dæmis Todor Zhivkov í Búlgar íu. Hann telur þjónslund sína sinn höfuðkost. . . enda ekki öðrum kostum búinn. Janos Kad ar í Ungverjalandi veit fullvel, hversu nauðsynlegur stuðning- ur sovézka hersins er honum. Sá her kom honum í valdastól- inn og sovézka hernum er það að þakka, að hann situr þar emn. í Austur-Þýzkalandi teiLuir Walter Ulbricht það ekki eftir sér að halda áfram að arðræna þjóð sína til hagsbóta fyrir Moskvuvaldið. Hann er sjúk- lega hræddur við frelsi til handa fólki í nokkurri mynd, enda studdur 20 sovézkum her deildum. Wladyslav Gomulka er einangraður og umgirtur vopn- uðu lögregluliði og steinrunn- um kennisetningum. Hann er fús ti'l þess sama í Póllandi. En £ Rúmeníu hafa menn reynt að koma á viðskiptasam- böndum við Vesturlönd og auknu frelsi í utanríkismálum. Rúmenía er því í hættu. Sovét ríkin geta hvenær sem er tekið í stjórnartaumana þar. Júgóslavía er þó mestur þyrn ir í augum frumkvöðla hinnar nýju sovézku árásarstefnu. So vézku valdhafarnir geta aldrei verið fullkomlega öruggur um stórveldi sitt á meðan Júgóslav ar halda sjálfstæði sínu, því Júgóslavía er lifandi vottur öðr Útsolan heldur ófram Buxnadragtir, síðbuxur, úlpur, peysur, greiðslusloppar og margt fleira. — Mikil verðlækkun. Siggabúð Skólavörðustíg 20 STÚR-ÚTSALA Úrvalsvara — Ófrúlega lágt verð FYRIR BÖRN: PEYSUR í úrvali SAMFESTINGAR BUXUR KJÓLAR UNGBARNAFATNAÐUR VÖGGUGJAFIR o.fl. o.fl. FYRIR DÖMUR: PEYSUR í úrvali. STRETCHBUXUR GREIÐSLU SLOPP AR UNDIRFATNAÐUR NÁTTKJÓLAR HANDKLÆÐI o. fl. o. fl. Komib — sjáið og Jbér gerið áreiðanlega reyfarakaup — Útsölunni lýkur um mánaðamót — Hrannarbúðin Hafnarstræti 3. Grensásvegi 48. ■wwwipii iii iwii«»i rm um Austur-Evrópuþjóðum, að lausn undan Moskvuvaldinu er möguleg, æskileg og afar hag- kvæm. Auðvitað er ég ekki samþykk ur öllu því, sem gert hefur ver- ið í landi mínu, síðan við brut- umst úr hópi leppríkja Sovét- rikjanna árið 1948. Þó hefur margt orðið til bóta. Við höfum komið upp hagkvæmum við- skiptasamböndum við Vestur- lönd. Við höldum áfram ýmsum tilraunum efnahaginum tilbóta og sumar hafa gefizt vel. í • borgum okkar er frjáls aðgang ur að bókum, tímaritum og dag- blöðum frá Vesturlöndum. Vesturlandabúar geta farið frjálsir ferða sinna um land okkar og okkur er heimilt að blanda við þá geði. Enda þótt við séum ekki eins vel iðnvædd þjóð og sumar nágrannaþjóðir okkar, eru lífskjör okkar þó betri en þeirra. Allt frá zar-tímanum ogfram á þennan dag hafa Rússar á- gimzt yfirráð í J úgóslavíu Vesturveldin hafa á hinn bóg- inn óttast rússnesk yfirráð í Júgóglavíu aif sömu hemaðar- legu ástæðu. Ef Rússar her- nema Júgóslavíu, veður rússn- eskur her staðsettur við landa- mæri ftalíu að vestan og Grikk lands að sunnan. Skarð væri þá rofið í varnir Vesiturveld- anna. Við Júgóslavíuströnd gætu Rússar koniið sér upp ör- uggu herskipalægi og mundu með því ógna yfirráðum Vestur veldanna á Miðjarðarhafi. Og allt landsvæði í Júgóslavíu mundi verða sem herstöð fyrir rússneskar innrásarsveitir til landa fyrir botni Miðjarðarhafs og Afríku. Vlð MUNUM GRIPA TIL VOPNA Við munum grípa til vopna ef til innrásra kemur. Það hefðu Tékkóslóvakar líka átt að gera. Hefðu þeir gert það, hefði um- heiminum orðið ljóst, að þarna voru ekki eingöngu átök milli kommúnista, heldur var þarna unninn hemaðarlegur sigur yf- ir sjálfstæðu ríki. Ef þjóðinvill ekki berjast, getur hún ekki vænzt hjálpar. f Júgóslavíu hefur óttinn við innrás lagzt eins og farg á all- an almenning. Á kvöldin safn- ast fjölskyldur saman til að ræða, hvernig skuli bregða við og verjast, hvort sem aðstoð fæst frá Vesturveldunum eður ei. En hræddur er ég um að verði stríð háð í Evrópu, þá verði það ekki á takmörkuðu svæði. Stórútsola ú kvenskóm hefst i fyrramálið. Seljum m.a. fjölmargar tegundir af mjög fallegum kvenskóm fyrir kr. 565, ennfremur fjölmargar aðrar tegundir sem við seljum á mjög lágu verði Skóval, Austurstræti 18 Eymnndssonarkjallora Af þessum ástæðum hlýt ég að komast að þfcirri niðurstöðu að þessi nýja árásar oig ofbeld- isstefna Sovétríkjanna marki tímamót. Á því tímabili sem nú tekur við er stóraukin hætta á gereyðandi stríði. . . en þó mögu legt að varðveita friðinn. Til allrar hamingju geta Vesturveld in enn aukið friðarvouir. Fyrst og fremst verða menn á Vestur- löndum að losa sig við allar tál vonir um að þeir, sem með völd in fara £ Sovétr£kjunum, séu vandir að virðingu sinni og þeir muni sjá að sér. Árið 1967 æstu þessir sömu valdhafar Egypta ttl hernaðaraðgerða. ófriður hófst fyrir botni Miðjarðarhafs og litlu munaði að til kjarn- orkustriðs kæmi. f ágúst sið- astliðnum hleyptu þessir sömu hervirkjar vopnuðum sveitum inn í sjálfstætt, fullvalda ríki og skeyttu engu hvað öðrum þjóðum fannst um þær aðgerð- ir. Þessar staðreyndir gera það að verkum, að við getum á eng- an hátt vænzt þess að forráða- menn £ Sovétríkjunum megi telj ast ábyrgir aðilar i framtiðinni. Vesturlönd verða að samein- ast til varna gegn þessarri heimsvaldastefnu Sovétrikjanna Þegar £ stað verður að endur- skipuleggja og styrkja NATO. Sérstaklega ættu þær þjóðir Vestur-Evrópu, sem eru i hvað mestri hættu, að berjast fyrir þvi. AJlan skoðanamun innan samtakanna, sem hefur hvort eð er ekki verið nema smávægi legur og tímabundinn verður að uppræta. Ef til vill er mest um vert fyrir Vesturveldin að tryggja yfirburði í vígbúnaði. Sú skoð un að jafnvægi á vígbúnaðar- sviðinu nægi, er hættuleg. For sjálir menn kjósa að vera bet- ur vopnum búnir en þeir stiga- menin, sem á þá ráðast. Hem- aðaryfirburðir Vesturveldanna verða að vera svo augljósir, að jafnvel ráðamönnum í Moskvu sé það ljóst. Annars munu þeir halda áfram uppteknum hætti í æ vaxandi mæli og hugmyndir umbótamanna innan Sovétríkj- anna fá aldrei að sjá dagsins ljós. Kostnaður við nægilegan vígbúnaðarstyrk er mikill og állur herbúnaður getur talizt sóun á verðmætum. En sá kostn aður er ekki nema brot af því, sem það mundi kosta Vestur- veldin, ef hernaðaryfirvöld So- vétríkjanna styrkjast stöðugt í þeirri trú að ekkert sé þeim ofvaxið. í öðru lagi verða stofnanir og borgarar á Vesturlöndum, háskólar stéttarfélag, stjórn- flokkar, blaðamenn og mennta- fólk að sameinast um að brýna fyrir fólki, hvílík ógnun Stafar af kúgunarstefnu Sovétríkjanna Valdhöfum í Sovétríkjunum stendur auðvitað á sama þótt fundið sé að siðferðishugmynd- um þeirra. En þeim stendur ekki á sama ef siðferðileg for- dæming verður þeim stjórnmála legur hnekkir. Þegar mannkyni verður Ijóst, hvilík eyðingaröfl siðgæðis og framfara sitja £ valdastó’li í Sovétríkjunum, munu þau einangrast í villu sinni. Þá verður sovézkum vald höfum vandi á höndum. Loks verða Vesturveldin að eiga frumkvæði að skorinorð- um, raunsæjum og réittlátum tillögum til lausnar á höfuð- ágreininigsatriðum við Sovétrík in. Æ ofan í æ skulu Sovét- ríkin tilneydd að taka afstöðu til samikamiuilagsumleitana af al vöru og raunsæi. Að vísu trúi ég því ekki, að þeir sem nú sitja við völd i Sovétríkjunum,glámskyggnir og rigbundnir fortíðinni, muni fall ast á nokkra samninga, hversu sanngjarnir sem þeir eru. En samningaviðleitnin mun leitast eftir friði, og hverjir ekki. Og slík viðleitni mun styrkja afstöðu góðra manna 1 Sovétríkjunum og Austur-Ev- rópu, sem þrá þé sitund, að við getuim rifið niður þvergirðing- una og farið að þjóna sönnum lífsnauðsynjum mannkynsins. .. og þar er frelsi efst á blaðL myndir.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.