Morgunblaðið - 19.01.1969, Síða 19

Morgunblaðið - 19.01.1969, Síða 19
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 19. JANÚAR 1969 19 Dauði Sikorskis fyrir 25 árum eitt helzta umrœðuefnið í Bretlandi nú ÞAÐ var um sumarið árið 1943. Wladyslaw Sikorski hershöfðingi vonaðist til þess að geta dvalizt tveimur eða þremur dögum lengur í Egyptalandi í því skyni að fá tækifæri til þess að skoða merkilegar fornminjar lands- ins. En þá barst í skyndi áríð andi símskeyti frá Winston Churchill forsætisráðherra Bretlands, þar sem hann fór þess á leit við Sikorski, sern var forsætisráðherra póisku útlagastjórnarinnar, að hann héldi fast við ferðaáætl.in sína og kæmi til London 5. júlí. Þess vegna hélt Sikorski þegar til London og kom flug vél hans við á Gibraltar á leið inni. Kl. 11 það kvöld, 4. júlí, settist Sikorski aftur upp í flugvélina ásamt 10 öðrum farþegum, en þeirra á meðal voru dóttir hans og tveir brezkir þingmenn. Flugvélin, sem var fjögurra hreyfla Liberator sprengjuflugvéi, rann af stað, jók hraðann og hóf sig síðan á loft á leið til London. En skyndilega í ekki mílu fjarlægð frá Gibraitar, hrapaði flugvélin í boga til jarðar. Allir, sem í henni voru, fórust nema flugmaður- inn. Rannsókn var látin fara fram á slysinu, en nefndin, sem hana annaðist, komst að þeirri niðurstöðu, að dauði pólska stjórnmálamannsins hefði verið eitt þeirra hörmu legu slysa, sem eiga sér stað í styrjöldum og flestir Bretar voru þeirrar skoðunar, að mál ið væri þar með útkljáð. En reynslan átti eftir að sýna fram á annað. Nú að undan- förnu, aldarfjórðungi eftir dauða Sikorskis, hefir dauði hans verið eitt helzta umræðu efni manna á meðal í Bret- landi, og mjög mikið um hann skrifað. genglinum", tókst Hochhut að vekja reiði rómverk kaþólskra manna um allan heim fyrir gagnrýni sína á Píusi páfa XII, sem, að því er Hochhut heldur fram, lét undir höfuð falla að mótmæla og beita sér gegn morðum nazista á 6 millj ónum Gyðinga í Evrópu. Varla hafði öldurnar lægt vegna ,,Staðgengilsins“, er Hochhut kom fram með „Her- mennina“, heimildarleikrit (?), þar sem hann lýsir Chur- chill sem raunsæismanni, er hafi verið þeirrar skoðunar, að Sikorski hafi verið að spilia Sviðsmenn úr leikritinu „Hermennirnir" chill. Sikorski og Chur- Rolf Hochhut Ástæðan er sú, að í leikriti Vestur-Þjóðverjans Rolfs Hochhuts, sem nú hefur í fyrsta sinni verið sviðsett i Bretlandi, er því haldið fram, að dauði Sikorskis hafi alls ekki orðið vegna slyss, heldur hafi þar verið um pólitískt morð að ræða að undirlagi sjálfs Winstons Churehills. Þetta er ekki í fyrsta sinn, sem styrr stendur um Hochht. Með fyrsta leikriti sínu, „Stað bandalagi Breta og Rússa í styrjöldinni með ásökunum um, að Stalin hafi skipulagt fjöldamorð á 4090 pólskum liðsforingjum, sem drepnir hafi verið í Katyan-skógi í Sovétríkjunum. Til þess að varðveita einingu Banda- manna gegn Hitler, heldur Hochhut ennframur fram í leikriti sínu, hafi Ohurchill látið brezku leyniþjónustuna drepa Sikorski með því að Sikorski og Churchill framkvæma skemmdarverk á flugvél hans. Þar sem um svo viðkvæmt efni, sem þetta var að ræða, neitaði Þjóðleikhúsið í Lon- don Sir Laurence Olivier fyrir tveimur árum um að setja á svið „Hermennina", þrátt fyrir það að Kenneth Tynan, sem er bókmennta- ráðunautur leikhússins og mjög áhrifamikill, væri ein- hver ákveðnasti talsmaður þess, að leikritið yrði fært upp. Og þegar áformað var að setja leikritið á svið í öðru leikhúsi, bannaði siðferðis- vörðurinn „Lord Chamber- lain“ það með því að fá slcrif- lega heimild allra eftirlifandi ættingja þeirra Breta, sem látnir eru koma fram í leikrit inu. Síðan þetta gerðist hefur leikritið ,,Hermennirnir“ ver ið sýnt á mörgum stöðum í heiminum, en það var ekki fyrr en í síðasta mánuði — eftir að eftirlit með leikhús- um hafði verið afnumið í Bret landi — að það var sett á svið í London. UPPNÁM Eins og búast mátti við, olli sjónleikurinn miklu uppnámi þar. Að vanda átti Hodhhut sér marga talsmenn, en mikill meiri hluti almennings og menntamanna, létt hins veg- ar í ljós samúð sína með Win- ston Churchill, sonarsyni Churchills heitins forsætisráð herra, er hann lýsti því yfir, að leikritið væri „svívirðilegt níð“. Til stuðnings þessari ásökun tókst gagnrýnendum Hochhuts meira að segja að hafa upp á Edward Prchal, tékkneska flugmanninum sem komst lífs af, er flugvél Sik- orskis fórst, en hann fullyrti, að það væri alls enginn fótur fyrir því ,sem fram kemur í leikriti Hochhuts um Sir Win- ston Churchill, og í blaðinu Daily Mail krafðist blaðamað- urinn Bernard Levin þess, að Hochhut taki annað hvort til baka, það sem hann segir Churchill hafa gert eða komi fram með sönnunargögn, sem sanni staðhæfingar hans. , Hochhut svaraði þessu og sagði ákveðið, að hann hefði fullkomin sönnunargögn um sekt Churcills, þar sem væri skrifleg eiðfest yfirlýsing fyrr verandi starfsmanns brezku leyniþjónustunnar, er sýndi fram á þátt forsætisráðherr- ans látna í dauða Sikorskis. En Hochhut neitaði hins veg- ar að koma fram með þetta sönnunargagn. Sagði hann að skjalið væri varðveitt í sviss- neskum banka, þar sem það ætti að geymast í 50 ár af til- liti til þess, sem gefið hafði yfirlýsingu þá, sem á skjalinu stæði. Þetta sögðu gagnrýn- endur Hochhuts, að væri tröllslegar vifillengjur. En Winston Churchill yngri átti og háðslegt svar við þess- ari staðhæfingu Hochhuts: — Ef ég ætti skjal i fórum min- um, svaraði hann, — sem sýndi, að afi minn hefði myrt Sikorski, þá hefði ég lagt það Framhald á bls. 26 5 krifs tofuhúsnœði Til leigu er 100 ferm. skrifstofuhúsnæði í Miðbænum. Upplýsingar veittar í síma 21420. Umsóknareyðublöð Umsækjendum um störf hjá íslenzka Álfélag inu h.f. skal bent á að hægt er að fá um- sóknareyðublöð í Bókaverzlun Sigfúsar Ey- mundssonar, Austurstræti 18, Reykjavík og í Bókaverzlun Olivers Steins ,Strandgötu 31, Hafnarfirði. íslenzka Álfélagið h.f., Straumsvík. Bezt að auglýsa í Morgunblaðinu ftFUNA VARI ELDVARNAR MALNING FUNAVARI er plastbundin eldvarnarmálning, er blæs upp við hita og myndar frauð. sem logar ekki en einangrar vel gegn hita. FUNAVARI tefur því mjög fyrir íkviknun í eld- fimum vegg- og loftklæðningarefnum og hindr- ar þannig lengi vel útbreiðslu elds. Á sama hátt einangrar FUNAVARI stálbita og járnhurðir og varnar því að málmurinn hitni og leiði hita til reiðslu elds. H MALIMIINIG f KÓPAVOGI Sími 40460

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.