Morgunblaðið - 19.01.1969, Side 28

Morgunblaðið - 19.01.1969, Side 28
RITSTJÓRN • PRENTSMIÐJA AFGREIÐSLA*SKRIFSTOFA SÍMI IQ.IOQ SUNNUDAGUR 19. JANUAR 1969 1 77 00 011 Og Wr I # f KJKJ eru4 tryggftur ALMENNAR TRYGGINGAR P Reytingsafli hjá Eyjabátum — MBL. hafði samband við nokkr- ar verstöðvar í gær og innti frétta frá sjávarsíðunni. í Vest- mannaeyjum voru um 40 bátar á sjó með línu, net og troll. Afli var mjög misjafn, en t.d. landaði línubátur 8 tonnum í gær og troll bátur 18 tonnum. Annars var bræla á miðunum hjá Eyjabátum og lítið við að vera. Við töluð- um við Sigurgeir Ólafsson skip- stjóra á Lunda VE þar sem þeir voru staddir inn af Þrídröngum, Sigurgeir sagði að það væri straumur og bræla og enginn fiskur á meðan þetta veður héld ist, en á var norðaustan streng- ur. „Nú er verkfallið að skella á hjá okkur“, sagði Sigurgeir, „en vonandi komumst við aftur út fyrir páska.“ Hann hló við í lok- in, en það merkilega er að hvort sem það er bræla eða ekki bræla, fiskur eða fiskleysi, þá eru skipstjóramir yfirleitt alltaf bjart sýnir. í Keflavík voru 11 bátar á sjó í gær. Allt línubátar. Landlega hafði staðið yfir í eina viku í Keflavík áður en gaf á sjó í gær. Verkfallsverðir vélstjóra úr Reykjavík stöðvuðu 4 báta, sem ætluðjiá sjó frá Keflavík í fyrra- dag, en vélstjórar á þessum skip um voru úr Reykjavík. f Sandgerði voru nokkrar trill ur á sjó og einn dekkbátur. Einn- Framhald á hls. 27 Skul dareign verði hlutafé Tillaga skiptaráðanda um Sana hf. Akiureyri, 18. janúar. öllum aðgerðum af hálfu bæj- arfógetaembættisins á Akureyrj í gjaldþrotaskiptamáli Sana hf. hefur nú verið frestað fram í næsta mánuð, meðan unnið er að athugun á framkvæmd miðlun- artillögu skiptaráðanda. Tillagan er á þá leið, að stofnað verði nýtt hlutafélag um rekstur verksmiðj unnar og kröfuhafar leggi fram skuldakröfur sínar sem hlutafé í hinu nýja félagi. Bæjarsjóður Akureyrar mun eiga um 400 þúsund krónur hjá fyrirtækinu í óinnheimtum gjöld um og bæjarstjórn Akureyrar hefur samþykkt að leggja þá skuldareign fram sem hlutafé í nýju félagi, ef aðrir kröfuhafar gera hið $ama. Undirtektir þeirra Halldór Laxness. eru mjög jákvæðar. Stærsti kröfuhafinn er ríkissjóður og stendur nú yfir könnun á því, á hvern hátt stuðningi ríkisins við þessa hugmynd verður bezt hag- að. Rekstur Sana hefur ekki stöðv azt, en hefur verið haldið áfram samkvæmt kröfuhafa undir eft- irliti skiptaráðanda. Sv. P. Þannig munu nýju Fossarnir líta út. Eimskip semur um smíði tveggja Fossa - íslenzkir aðilar athuga möguleika á smíði skips fyrir félagið — Dettifoss settur á söluskrá Á FÖSTUDAGINN er liðin voru 55 ár frá stofnun Eimskipa- félags íslands, voru undirritaðir í skrifstofu þess smíðasamningar á tveim næstu Fossum félagsins við hina víðkunnu dönsku skipa- smiðastöð, Aalborg Værft í Ála- borg. Hefur áður verið skýrt frá því að samningaumleitanir við skipasmíðastöðina stæðu yfir. Undirrituðu smíðasamninginn þeir Einar B. Guðmundsson stjórnarformaður Eimskipafélags ins og framkvæmdastjóri þess, Óttarr Möller og fyrir skipasmíða stöðina, S. M. Krag, forstjóri. f gær sendi Eimskip fréttatil- kynningu af þessu tilefni, svo- 'nljóðandi : Eimskipafélag íslands hefir nú um 8 mánaða skeið leitað tilboða um smíði tveggja til þriggja skipa að stærð 3600/3800 Dw- tonn. Fóru útboð um hendur norska miðlarafyrirtækisins R.S. Platou A/S í Osló. Var Eimskipa félaginu nauðsynlegt að fá þessi skip byggð sem allra fyrst og eigi síðar en á árinu 1970. Eftir að fram komin tilboð höfðu verið gaum- gæfilega metin, kom í ljós að bagkvæmustu tilboðin bárust frá Aalborg Værft A/S í Álaborg um verð, afhendingartíma og greiðluskilmála. Engrar ábyrgð- ar, hvorki íslenzkra banka eða ríkissjóðs var krafizt. Var því samþykkt að áskildu leyfi ís- lenzkra stjórnvalda, að taka til- boði frá þessari skipasmíðastöð um smíði tveggja skipa. Þess má geta, að Aalborg Værft hefir Vísindamenn kanna hafís frá ýmsum hliöum — — á fyrstu hafísráðstefnunni á íslandi Flytja 30 erindi 27. janúar — 7. febrúar FYRSTA vísindalega ráðstefnan um hafís, sem haldin er á fs- landi, hefst mánudaginn 27. jan- úar. Þar munu 23 vísindamenn fiytja 30 erindi, þar sem fjallað rerður um hafís á breiðum grund velli, haffræðiiega, veðurfræði- Iega, sögulega, jarðfræðilega o.s.frv. Hafa um 70 manns til- kynnt þátttöku. Er ráðstefnan helguð minningu Jóns Eyþórs- sonar veðurfræðings, sem var manna fróðastur um hafís við ís- land. Halldór Laxness fékk silfurhestinn BÓKMENNTAVERÐLAUN dag- blaðanna, silfurhesturinn, voru í gær veitt Halldóri Laxness fyr- ir skáldsögu hans: Kristnihald undir Jökli. Bókmenntagagnrýn- endur blaðanna hafa því kjörið Kristnihald undir Jökli beztu bók ársins 1968. 1 dómnefnd áttu sæti eftirtald ir menn af hálfu blaðanna: And- rés Kristjánsson frá Tímanum, Árnj Bergmann frá Þjóðviijan- um, Eiríkur Hreinn Finnhogason frá Vísi, Jóhann Hjálmarsson frá Morgunblaðinu og Óiafur Jóns- son frá Alþýðublaðinu. Nánar verður sagt frá veitingu verðlaunanna í blaðinu á þriðju- daginn. Að hafísráðstefnunni standa Jarðfræðafélag íslands, Jökla- rannsóknarfélag íslands, Sjó- rannsóknardeild Hafrannsóknar- stofnunarinnar og Veðurstofa ís iands, og hefur hún verið í und- irbúningi síðan snemma á árinu 1968. f framkvæmdanefnd eru einn frá hverju þessara félaga, próf. Trausti Einarsson, próf. Sig urður Þórarinsson, dr. Unnsteinn Stefánsson og Hlynur Sigtryggs- son veðurstofustjórL Og fram- kvæmdastjóri er Markús Á. Ein- arsson veðurfræðingur. Markú® tjáði Mbl., að fyrir- lestrar yrðu haldnir annan hvern dag í tvær vikur. Fyrstu dagana mundu veðurfræðingar og haffræðingar aðallega fjalla um málið út frá sínum sérgrein- um, yrði þá aðallega rætt um þessa öld og það tímabil, sem mælingar ná til. Fyrri hluta Nýtt blað í VIKUNNI hótf göngu sína nýtt blað, „Nýtt laind — Frjáls Þjóð“ og er ritstjóri þess Ólatfur Hanni balsson. Blaðstjórn skipa Hanni- bal Valdimarsson, Haraldur Henrysson og Maignrús Torfi Ólaís soin. seinni vikunnar væri fjallað um sögulegar heimildir um hafís og veðurfarssveiflur, og á seinuistu fundunum um hin raunhæfu vandamál nú, áhrif hafíssins á atvinnuvegina, landbúnað, fiski- veiðar og ísingu skipa. Sést á þessu, að ráðstefnunni er ætiað að fjalla um hafís á breiðum grundvelli og frá mis- munandi sjónartiornum. Kemur þar til kasta ýmissa fræðigreina, eins og jarðfræðinga þegar fjall- að er um sveiflur aftur í tím- ann, sagnfræðinga, þegar kann- aðar eru langtímaupplýsingar um hafís, fiskifræðinga, er rætt er um áhrif sjávarkulda á fiski- gegnd og skipaverkfræðings, vegna ísingar skipa. Er ætlunin að gefa út erindin að ráðstefn- unni lokinni og fæst þá undir- stöðurit um hafísinn. Einnig verða vísindalegir fyrirlestrar birtir á ensku í Jökli, tímariti Jöklafélagsins. Hafísráðstefnan verður sett í Framhald á bls. 27 byggt 10 skip fyrir íslendinga, 4 fyrir Eimskipafélagið, 3 fyrir Landhelgisgæzluna, 2 fyrir Skipaútgerð ríkisins og eitt fyrir H/F Skallagrím í Borgarnesi. Eftir að sannreynt var, að eng- in íslenzk skipasmíðastöð gæti byggt þessi skip á framangreind- um tíma, veitti íslenzjca ríkis- stjórnin samþykki sitt til samn- inga við skipasmíðastöðina í Ála- borg og var það staðfest með bréfi Viðskiptamálaráðuneytis- ins, dags. 14. janúar 1969. Afhendingartími fyrra skipsins sem er frystiskip, er í maímán- uði 1970, en hins síðara, sem verður venjulegt flutningaskip með nokkru frystirými, í sept- ember s.á. Þá mun Eimskipafé- lagið geta fengið þriðja skipið byggt hjá skipasmíðastöðinni í Álaborg á föstu verði. Svo sem kunnugt er, leggur ís- lenzka ríkisstjórnin mikla áherzlu á, að þau verkefni á sviði iðnaðar, sem framkvæmanleg eru. innanlands verði fengin íslenzk- um aðiljum til úrlausnar. Vill Eimskipafélagið að sjálfsögðu stuðla að því að svo megi verða, eftir því sem hagkvæmt og fært reynist. Hefir Eimskipafélagið til kynnt Slippstöðinni h.f. Akur- eyri, að félagið myndi ekki taka ákvörðun um byggingu þriðja skipsins fyrr en 1. maí 1969. Er þetta gert til þess, að þessu fyr- irtæki gefist kostur á að athuga hvort það treysti sér til þess aS gera viðunandi tilboð í . skipið á föstu verði. Smíði þessa skips er að sjálfsögðu háð því, að fjár- hagur Eimskipafélagsins og aðr- ar ástæður leyfi. Framangreindar skipasmíðar og bygging vörugeymsluhúsa voru ákveðnar á aðalfundi félags ins 1966 og á síðari fundum. Skipasmíðarnar eru endurnýjun á skipastól félagsins. Var m/s Goðafoss seldur á sl. ári og hefir nú verið tekin ákvörðun um, að setja m/s Dettifoss á söluskrá. Enginn sóttalundur NÝR sáttafundur hetfur ekiki ver ið boðaður í deilu úitgerðainmamma og sjómanma skiv. upplýsingum Torfa Hjartarsonar, sáttasemjaira ríkisins í gær. Verkfall sjómamma hefst 20. janúar nlk. hatfi samn- inigar dkki tekizt fyrir þanin timia. Skipstjórinn á Brandi náðaður BREZKA blaðið Fishing News skýr’ði frá því nýlega, að íslenzk stjórnvöld hafi náðað Bemaird Newton, skipstjóra á Brandi, sem eins og menn minnast var tekinm að ólöglegum veiðum í maí sl. og strauk úr höfn með tvo lögreglu- þjóna imnamborðs. Var Newton dæmdur í sex mánaða fangeM auk 400.000 króna sektar. Baldur Möller, ráðumeytisstjóiri í dómsmálaráðuneytimu staðfesti í saimtali við Mbl. í gær, að rétfct væri, að Newtom hefði verið náð- aður atf fangelsistrefsingunni.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.