Morgunblaðið - 18.02.1969, Síða 1
28 síður
40. tbl. 56. ár. ÞRIÐJUDAGUR 18. FEBRUAR 1969 Prentsmiðja Morgunblaðsins
Flotinn lætur úr höln
Ríkisstjórnin ieysir deiluna meö löggjöf
I GÆR lagði ríkisstjórnin fram
frumvarp á Alþingi um lausn
kjaradeilu útvegsmanna og yfir-
manna á bátaflotanum. Kveður
frumvarpið á um að miðlunar-
tillögur, er sáttasemjari ríkisins
hefur lagt fram í vinnudeilunni
verði lögfestur sem samningur
milli deiluaðila frá gildistöku lag
anna til ársloka 1969, þó til 1. maí
1970, að því er varðar samkomu-
lag um söitunarlaun.
Frumvarpið var lagt fyrir efri
deild Alþingis í gær, og hafði
hún lokið afgreiðslu sinni
skömmu fyrir kl. 7. Neðri-deild
tók síðan málið fyrir á kvöld-
fundi, og var gert ráð fyrlr því
að málið yrði afgreitt sem lög
í nótt. Munu því róðrar geta
hafizt í dag.
I frumvarpinu eru einnig
ákvæði þess efnis, að verkföll,
þar á meðal samúðarverkföll, í
því skyni að knýja fram aðra
skipan kjaramála en lögin
ákveða, skuli óheimil, svo og
framhald verkfalla yfirmanna á
bátaflotanum, sem hófust í janú-
ar 1969. Með brot gegn lögunum
skal farið að hætti opinberra mála
og varða þau sektum.
Við afgreiðslu málsins, lýstu
Framsóknarmenn þegar yfir því,
að þeir mundu ekki leggjast gegn
samþykkt þess, og sátu þeir hjá
við atkvæðagreiðsluna. Þingmenn
Alþýðubandalagsins greiddu at-
kvæði gegn frumvarpinu, en
lýstu því þó yfir, að mjög nauð-
synlegt væri að leysa deilu þessa
þegar í stað.
Frumvarpið kom til umræðu
á Alþingi um kl. 3 í gær og var
það lagt fram í efri-deild. Mælti
Eggert G. Þorsteinsson, sjávar-
útvegsmálaráðherra fyrir því.
Sagði hann í ræðu sinni, að verk
föllin hefðu staðið í mánaðar-
tíma og þrátt fyrir víðtækar og
umfangsmiklar sáttaumleitanir
hefði tekizt að leysa þau enn.
Ekki þyrfti að fara orðum um
hvað verkfall þetta hefði alvar-
leg áhrif fyrir þjóðarbúið. Það
ætti mesitan þátt í miklu atvinnu
leysi, sem væri á íslandi núna,
og á sumum stöðum væri það
eina orsök atvinnuleysisins.
Frumvarpið miðaði að því að
firra algjöru vandræðaástandi,
sem mundi skapast ef atvinnu-
Framhald á bls. 17
í dag mun bátaflotinn hefja róðra að nýju, eftir mánaðarhlé vegna verkfallanna. Myndin er tek-
in á vertíðinni í fyrra um borð í Huginn VE., þar sem hann er á veiðum á Eyjamiðum. Eru sjó-
mennirnir að greiða „þann gula“ úr netatrossunum. í fjarska sjást fieiri skip á veiðum. (Ljósm.
Mbl.: Sigurgeir Jónsson).
Ungverjaland:
Dómor yfir
unglingum
Búdapesit 16. febr. AP.
FIMM ungversk ungmenni,
hafa verið dæmd til fangelsis'
vistar af herrétti fyrir þátt-
töku í samsæri gegn ríkinu |
og samvinnu við útvarpsstöð- ,
l ina Frjáls Evrópa. Það var
málgagn hersins sem sagði frá '
' þessu um helgina. Að sögn I
þess er starfandi bandarisk ,
útvarpsstöð í Munchen og á.
. hún að hafa sent leynimerki
til hópsins í æskulýðsdagskrá I
sinni þann 14. janúar 1968.
Blaðið saigði eikki frá því,
, hversu þuniga fangelsisdóma
ungmennin hefðu fengið né 1
heldur, hvenær þessi dómur
í bef ði verið kveðinn upp.
r
Arnngursluus
leit uð þotu
Las Vegas, Nevada 17. febr.
— AP. —
MIKILL fjöldi flugvéila hefur
leitað árangurslaust að F-llla
sprengjuiþotunni, seim hvarf
skyndiiega í æfingarflugi á mið-
vikudagiinn. Þotan, sem kostair
sex milljón dali í framleiðtslu og
hefur hreyfanlega vængi, haifði
tveggja manna áihöfn. Þotan var
í tilraunaiflugi til að ganga úr
skugga um, hvort hún gæti kom-
izt hjá því a'ð sjást í ratsjá og
beitti við það flóknum ratsjár-
búnaði.
Óverjandi að láta fámennan hóp
manna valda því mikla tjóni
— sem leitt hefði af áframhaldandi verkfalli
— sagði Bjarni Benediktsson forsœtisráðh. r viðtali við Mbl.
MBL. sneri sér í gær til
Bjarna Benediktssonar for-
sætisráðherra og spurðist fyr-
ir um lausn sjómannaverk-
fallsins. Sagði forsætisráð-
herra að ríkisstjórnin hefði
gert það sem í hennar valdi
hafi staðið til að koma á frjáis
um samningum, og hefði nú
tekizt samkomulag um megin-
atriðin. Óverjandi væri því að
láta þau minniháttaratriði
sem deilt væri um, verða þess
valdandi að allur bátaflotinn
lægi bundinn.
ForsætisráðlherTa sagði:
— Þrátt fyrir að svo illa
hafi gengið að ná samkomu-
lagi, sem raun ber vitni, þá
hefur þó ekki borið ýkja mik-
ið á milli, að því er virðist.
Því heyrist nú haldið frarn, að
verkfallið hafi orðið wegna
isj ávarútvegslaganna, sem sett
voru fyrir jólin og þangað sé
ei'ngöingu orsakanna að leita.
Þess vegna er athyglisvert, að
samningar hafa allir átt sér
stað á grundvelli þessarar
Bjarni Benediktsson,
forsætisráðherra.
löggjafar, og hún hefur þar
með verið viðurkennd í meg-
inatriðum, enda er hún for-
senda þess að hér sé fjárihagis-
grundvöllur fyrir fiskveiðum.
Úr því að ekki ber meira
á milli, má segja að furðulegt
sé að ekki skuli hafa tiekizt
samningar. Ríkisstjórnin hef-
ur gert það sem í hennar valdi
hefur staðið til þess að koma
samningum á, og af hennar
hálfu voru gerðar þær tillög-
ur um meginatriði kjaradeil-
unnar, matargreiðslunnar, sem
aðilar hafa nú komið sér sam
an um.
Torveldasta atriðið í allri
samningagerðinni virðist líf-
eyrissjóðurinn hafa verið, en
eftir að samkomulag hafði
náðst um það atriði og mat-
argreiðslunar þá voru atriði
sem um var deilt, svo óveru-
leg, að óverjandi var að láta
alilan fiotann liggja þeirra
vegna. Ekki sízt vegna þess
að yfirgnæfandi meirihluti há
seta og annarra þeirra sem
tekið hafa þátt í atkvæða-
greiðslum, svo og útgerðar-
menn hafa samþykkt tiilögum
ar. Er það aðeins um fjórði
hluti yfirmanna sem nú hetf-
ur staðið á móti samningagerð.
Er ekki verjandi að láta svo
fámennan hóp valda öllu því
tjóni sem áframhaldandi verk
fall mundi hafa í för mieð sér.
Þriggja ára neyð-
arástandi aflétt
Morðtilraun á Ali Bhutto fyrrum utan-
ríkisráðherra Pakistans sl. laugardag
Karachi, 17. febrúar
NTB-AP.
NEYÐARÁSTANDI því, sem
sem verið hefur í gildi í Pakist-
an í þrjú ár, var aflétt í dag, en
í Austur-Pakistan óttast yfirvöld
in nýjar óeirðir og hefur herliði
verið skipað að vera viðbúnu.
Þá er gert ráð fyrir nýjum ráð-
stöfunum af hálfu Ayub Khans
forseta til þess að reyna að ná
stjórn á ástandinu í landinu.
Að minnsta kosti tveir menn
biðu bana, er lögreglan hóf skot-
hríð á mannfjölda, sem í voru
um 10.000 manns og réðust á iög-
reglustöðina í borginni Liquata-
bad — einni af útborgum Kar-
achi.
Útgöngiubann það, sem lagt var
á í giærkrvöldi í Dacaca, höfuðborg
Auistur-Pakistans var framlengt
um nokkrar klukkustundir í
morigun, en að minnsta kœti
tveir menn biðu bana og 36 særð
Framhald á bls. 27
Fannfergi um
alla Evrópu
London 16. febr. NTB.
MIKINN snjó setti ni'ður víða í
Evrópu um helgina, einkum í
Ausiturríki, Tékkóslóvakíu og í
Austur-Þýzkalandi. I norður-
hliuta Portúigai var nærri meters
þykkur snjór oig í Norður ítalíu
kiomst frostið niður í 3'0 stig. Á
Korsitou biðu fjögur börn bana,
er þau lentu í snjóskriðu. Frá
Vín bárust þær fréttir, að snjó
hefði kingt þar niður í fjömtíu
klukkustundir samfleytt og flest-
ir þjóðvegir væru lokaðir.
1 Austur Þýzkalandi var ástand
ið einn verst og þar hefur utn-
ferð nær ailveg lagzt niður. Mikil
snjókoma hefur einnig ver'ð í
Hollandi, Beligíu og í Englandi
og Skotlandi.