Morgunblaðið - 18.02.1969, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 18.02.1969, Qupperneq 2
2 MOKGUN’BLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 18. FEBRÚAR 1969. Mokafli smá- báta við Eyjar UNDANFARNA daga hafa verið góðar gæftir hjá Eyjabátum, sem hafa getað róið vegna verkfalls. Þar er mest um að ræða trillur og smærri báta. Afli hefur verið mjög góður hjá þessum bátium á handfæri, línu og troll. Mestur var aflinn sl. laugardag, en þá komust handfæratrillurnar upp í 4 tonn hjá tveim mönnum. Til dæmis var trillan Hlýri með 4 tonn, trillan Sleipnir með 3 tonn og Rán með tæp tvö tonn, einn maður. Mestur hluti aflans síðustu daga hefur verið ufsi, en þó hef- ur einnig verið dágóður þorsk- afli. Línubátar hafa verið með ágætan afla og trollbátar hafa komist upp í 10 tonn á sólarhring með þriggja manna áhöfn. í gær var að lifna yfir athafna- lífinu við höfnina í Eyjum og sjómenn að búa bátanna til róðra af fullum krafti, en þá hafði Trillan Sleipnir hefur aflað vel við Eyjar að undanförnu eins og aðrar trillur Þ»r. Á myndinni eru tveir handfærasjómenn, þeir Sig- urjón Gottskálksson og Unnar Guðmundsson, báðir að innbyrða fisk. Ljósm. Mbl. Si|gurg. Jónass. fréttzt að róðrar gætu hafist hið bráðasta. Fréttir hafa borist af mikilli loðnu nærri Eyjum. Eindæma blíða var í Eyjum í gær og hefur verið undanfarna daga, enda hafa trillubátar getað róið upp á hvern dag í nokkurn tíma. Logn var á Stórhöfða í gær. KEFLAVÍK Sjálfstæðiskvennafélagið Sókn heldur aðalfund sinn fimmtudag inn 20. febrúar kl. 9 í Æskulýðs- húsinu. Að loknum aðalfundar- störfum verður kaffidrykkja og spilað verður bingó. Góðir vinn- ingar. Félagskonur beðnar að fjölmenna. Frá fundi menntaskólaæskunnar í gærkvöldi. — Ljósm. Kr. Ben. Fjölmennur fundur mennta skólaæskunnar — með ráðherrunum í gœrkvöldi Nemendur Menntaskólans í Reykjavík, Menntaskólans við Hamrahlíð og Kennaraskóla ts- lands, efndu í gær til almenns fundar um fræðslukerfið að Hótel Sögu og var þangað boðið menntamálaráðherra, fjármála- ráðherra, rektorum, skólastjór- um og öðrum forustumönnum menntamála í landinu. Framsögumenn voru fjórir, einn frá hverjum áðumefnöra skóla og að aiuki frá Mennta- skólamum að Laugarvatni. Því- næst taiaði Gylfi Þ. Gíslason, menntamálaráðherra. Nefndi hann nokkur mikilvæg nýmæli, sem fyrirhugúð eru á næstunni, svo sem t.d. áætlun að framtíðar uppbyggingu Háskóla íslands, en nefnd, sem til þess verkefnis var skipuð, mun slti'la áliti nœsta sumar. Nefndi hann atriði, sem þar eru til atíhugunar, svo sem að lögfesta kennsluskyldu prófess- ora svo sem annarra kennara í skólakerfinu. Síðan ræddi ráðherra um menntaskólastigið og húsnæðis- sikort menntaiskólanna. Það sem í rauninni hefði verið til vansa á liðnum áratugum, væri að upp- bygging menntaskólahúsnæðis hefði algjörlega veri'ð vanrækt. Árið 1966 hefði mikil sókn verið hatfin í þessum efnum með 6,6 milljón króna fjárveitingu, heiÚi hún aukizt ár frá ári og í ár væri fjárframlag til bygginga- mála menntaskóla 38,9 mililjónir króna. Ráðherrann sagði, að til mála kæmi að taka einhvem skóla í Reykjavík undir mennta- skólakennslu og væri það mál í athuigun. Beindist athugun þessi einkum að Gagnfræðaskóla Aust- urbæjar eða Gagnfræðaskólan- um við Vonarstræti. Hann gat þess, a’ð framkvæmdum við 4. áfanga Hamraihlíðarskólans hefði verið frestað á sl. ári, vegna þess að nauðsynlegt hafi verið að flýta framkvæmdium við stækkun Menntaskólanis á Akur- eyri. Hafizt yrði handa við fjórða áfanga Hamrahlíðarskól- ans aftur í surnar. Ráðherrann ræddi um aukið lýðræði í skólum, þ.e. aukin áhrif nemenda á stjórn skóJanna. Hann hvaðst reiðubúinn að veita há.sikóla&fcúdentum fleiri fulltrúa í húskólaráði, en andetaða gegn þessu innan þess væri mikil. Hann kvaðst þó ekki vilja taka ákvörðun þar um nema að fengnu leyfi háskólaráðs. Að- spurður um það, hvort nemendur fengju að ráða skipun rektora, kvað hamn það koma tiil álita í Háskólanum, þar sem Háskóla- rektor væri þegar kjörinn af meðprófessorum sínum, en urn áhrif nemenda á veitingu rekt- orsembætta á menntaskólaistig- inu kvað hann ekki mundu koma tiil greina þar sem þeir væru skipaðir af veitingavaldi rikisins. Það yrði ekki skert. Hins vegar kvaðst hann hlynntur auknum áhrifum nemenda á stjórn sfcól- anna í formi samstarfsnefnda kennara og nemenda. Hann minnti nemendur á að auknu lýð ræði fyigdu auknar skyldur: „Eg vil,“ sagði ráðherra, „að þeir fái hvorttveggja, réttinn og skyld- umar.“ Fundurinn stóð enn er Morgun blaðið fór í prentun. Eldur ■ Kelluvíkurbúti — Tveir skipverjar hœtt komnir SÍÐASTLIÐINN laugardag kom upp allmikill eldur í vélbátnum Helga Flóventssyni SÞ-77, sem staddur var í Njarðvíkurhöfn. Eldurinn var í lúkar bátsins og orðinn talsvert magnaður, þegar slökkvilið Keflavíkur kom á vett vang. Nokkurn tíma tók að ráða niðurlögum eldsins. Tveir 9kip- verjar voru í vistarverunum og voru þeir komnir nærri köfnun, en slökkviliðsmönnum tókst að ná þeim upp og voru viðhafðar við þá lífgunaraðferðir og voru þeir farnir að anda, þegar sjúkrabíll inn kom með súnefnistæki og var mönnunum síðan ekið í sjúkra- hús Keflavíkur til frekari með- ferðar. Allt tóbst þetta vel — bæði að lífga mennina við og ráða niður- lögum eldsins. Slökkvilið Keflavíkur er bú- ið góðum tækjum til atlögu við slíkar aðstæður, enda tókst það allt mjög vel. Talsverðar skemmdir urðu á bátnum. — hsj. 15 ára drengur strauk norð ur yfir Þorskafjarðarheiði Á lauga rd ag-smorgun var fimmtán ára drengs saknað frá Djúpadal í Gufudalssveit í Barðastrandasýslu. Var þeg- ar hafin leit að honum og kornu leitarmenn brátt á spor hans í snjónum. Er þau höfðu verið rakin alla lefð norður á Þorskafjarðarheiði, var bænd- um norðan heiðarinnar gert viðvart og fór bóndinn á Kirkjubóli tviisvar um kvöild- ið að Bafckaseli, sem er eyði- býli skammt norðan Þorska- fjarðarheiðar. Um ellefuleytið á laugardagskvöldið fann hann mannisspor hjó veiðimanna- koma þar skammt frá. Safn- aði hann þá fleiri mönnum til leitar og kl. hálf tvö á sunnudagsnóttina fannst pilt- urinn vfð áðurnefndan veiði- mannakofa. Hafði hann hvarfl að þaragað aftur eftir að hafa hugleitt að legigja á Þorska- fjarðarheiði öðru sinni. Þagar drenguxinn fannst hafði hann verið á ferð í yfir tuttugu klukkustundir og gengið að líkindum meira en fimmtíu kílómetra. Hann var þó furðu vel haldinn og virt- ist ekki hafa orðið meint af þessari ferð. Bóndinn í Djúpadal, Samúel Sakaríasson, fór við annan mann á slóð piltsins norður Þorskafjarðarheiði. Lentu þeir þar í þoku og smávillu og gistu aðfararnótt sunnudags- ins í sæluhúsi þar á heiðinni. Komu þeir til byggða um -d. 11 á sunnudagsmorgun. Mbl. hafði í gær samband við Samúel og spurði hann um drenginn og strok hans og leit þeirra félaga. Sagði Sam- úel, að dxengurinn hefði verið í Djúpadal bálft þriðja ár, en hann væri annars úr Reykja- vík. Sl. haust hefði hann gert stroktilraun, og þá verið gef- inn kostur á að flytjast suður til Reykjavíkur, en þá hefði hann beðið um að vera áfram í Djúpadal. Hann hefði áður verið í sveit annars staðar, en lítið tollað þar. Samúel lét lítið af þeim hrakningum, sem hann og fé- lagi hans hefðu lent í, en sagði þó, að betra hefði verið að víkja að í sæluhúsinu, ef þar hefði verið eitthvað þeirra nauðsynja, sem í slíkum hús- um á að vera. Þarna væri ekki sími eða talstöð og jafn- vel ekki teppi, dýnur eða eld- færi. Og einu skóflunni, sem þarna hefði verið, hefði verið stolið nýlega. Drengurinn var í gær stadd ur á Laugabóli í Nauteyrar- hreppi, en þar bíður hann eft- ir ferð til Reykjavíkur. Jón Guðjónsson bóndi á Lauga- bóli sagði í símtali við Mbl. í gær, að sýnilegt væri, að ekki hefði mátt múna nema um tveimur klukkustundum á ferð drengsins norður yfir heið ina til þess að dagar hans hefðu verið taldir. Drengur- inn kom við í sæluhúsinu á leið sinni yfir Þorskafjarðar- heiði og er hann var komirun niður að veiðimannakofanum hafði að sögn hvarflað að hon um að halda aftur á beiðina, og þá hefði hann tæplega bjargazt. Annars sagði Jón, að drengurinn hefði sýnt furðu mikið þrek í þessari ferð, ekki sízt með tilliti til þess, að hann hefði ekkert sofið nóttina áður en harm lagði upp og hefði ekki haft mikinn mat með sér, að- eins nokkrar brauðsneiðar. Hann var sæmilega búinn, en var þó ekki í prjónanærföt- um. Gina skrómnðist Rómaborg 17. febr. AP. ÍTALSKA kvikmyndaleiikkon an Gina Lollobrigida lenti í bifreiðaárefcsitri skammt fyrir utan Rómabong á siunnudag. Meiðsl leikfconunnar voru ekki alvarleg, en hún hnéskelj arbrotnaði og hlaut nokkrar minniháttar skrámur. Bíll stórskemmdist í FYRRAKVÖLD valt bíll með fjórum ungum mönnum skammt frá Geldingaá í Melasveit í Borg arfirði. Fór bíllinn fyrtst á hlið- ina, en síðan á toppinn og er stórskemmdur en piltana sakaði ekki.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.