Morgunblaðið - 18.02.1969, Síða 3
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 18. FEBRÚAR 1969.
3
Tveir menn fórust í bílslysi
austur í Biskupstungum
— eftir mjög harðan áreksfur en eigin-
konur þeirra voru fluttar í sjúkrahús
TVEIR menn biðu bana í hörð-
um bifreiðaárekstri skammt
austan Vatnsleysu í Biskups-
tungum sl. laugardag, þeir Einar
G. E. Sæmundsen, skógarvörð-
ur, og Tryggvi Guðmundsson,
verzlunarmaður. Voru þeir á
austurleið í fólksbíl, er leigubíll
úr Reykjavík kom á móti. Varð
áreksturinn á hæð, sem þó er
ekki blind. Ökumenn höfðu of
seint orðið hvors annars varir
á veginum. Skullu bílamir sam-
an með framendana, á mikilli
ferð. Bílstjóri leigubílsins var
rólfær eftir slysið og hljóp heim
að bænum Heiði, sem er þarna
rétt hjá og hringdi á sjúkrabíl.
Konur þeirra Einars og Tryggva,
Sigríður Vilhjálmsdóttir og
Ragna Jónsdóttir, voru með
þeim í bílnum. Slösuðust þær
báðar talsvert, en leið eftir von-
um, er Mbl. spurðist fyrir um
líðan þeirra í gærkvöldi.
Samkvæmt upplýsingum Jóns
Guðmundssonar, yfirlögreglu-
þjóns á Selfossi, varð slysið á
laugardag og barst Selfosslög-
reglunni tilkynning um það ki
14.55. Sendu þeir strax tvo
sjúkrabíla á vettvang, ea- voru
komnir á slysstað 40 mínútum
síðar, en um 60 km. leið var að
fara.
Einar Sæmundsen skógarvörð-
ur ók bíl sínum og var á austur
leið er slysið vildi til. Var ferð-
inni heitið að Bergsstöðum í
Biskupstuhgum, sem þeir Einar
og Tryggvi áttu í félagi við þrjá
ménn aðra. Var upplhaflega ætl-
unin að fara þangað á sunnudag,
en vegna þess hve veðrið var
gott á laugardag, var förinni flýtt
um einn dag.
Á hæðinni þar sem árekstur-
inn varð, var allmikil hálka og
munu ökumenn bílanna, sem
báðir voru á nokkurri ferð,
of seint hafa orðið hvor
annars varir. Hafði Einar heml-
að, er hann sá bílinn koma á
móti, en vegna hálkunnar hafði
bíll hans runnið á fullri ferð á
föstum hjólum. Ökumaður leigu
bílsims kvaðst hafa sveigt aðeins
til vinstri á síðustu stund. Kvað
hann sér hafa verið ljóst, að það
var ekki rétt, en hann hafi tal-
ið það einu leið til að forðgst
árekstur.
Tryggvi og Einar voru báðir í
framsæti fólksbílsins. Voru þeir
báðir látnir er lögregla og sjúkra
bílar komu á vettvang. Konur
þeirra sátu í aftursæti bílsins,
báðar allmikið slasaðar, m.a.
handleggsbrotnaði Ragna, en Sig
ríður lærbrotnaði illa. Voru þær
fyrst fluttar í Sjúkrahúsið á Sel
fossi, þar sem þær voru rann-
sakaðar og gert að sárum þeirra
til bráðabirgða, en síðan voru
Tryggvi Guðmundsson
verzlunarmaður.
þær fluttar á Landa'kotsspítalann
í Reykjavík. Var líðan þeirra eft-
ir vonum í gærkvöldi, var Ragna
Einar G. E. Sæmundsen
skógarvörður.
þá að ná sér, en Sigríður beið
þess, að lærbrot hennar yrði siett
saman, en það er allmikil að-
gerð.
Bílstjóri leigubílsins slasaðist
meira en í fyrstu var talið. Var
hann handleggsbrotinn, síðubrot-
inn og með brotna hnéskel.
Einar Sæmundsen var 51 árs
gamall. Lætur hann eftir sig 4
uppkominn börn, öldruð móðir
hans er á lífi.
Tryggvi Guðmundsson, sem
var starfsmaður O. Eli'lngsen
verzlunar var 55 ára. Hann var
barnlaus.
Leigubifreiðin eftir áreksturinn.
Banaslys við Búrfell
Skurðgrafan dregin upp úr Ióninu. (Ljósm. Mbl. Þ. P.)
Búrfelli 17. febrúar.
Banaslys varð hér við Búr-
fell sl. föstudag, er 26 ára
gamall maðirr, Árni Tómas-
son, Skólavöllum 11, Selfossi,
drukknaði, er hann var að
vinna með skurðgröfu að
brjóta ís hér á Lóninu. Árni
lætur eftir sig konu og þrjú
börn, það yngsta fimm mán-
aða.
Kl. sex á föstudaig fór Arni á
skurðgröfunni að brjóta ís á lón-
inu, en stáfla var í síum, sem
dæla vatni upp í siteypustöðina.
Vitað er, að hann var að vinna
þar fimm mínútum fyrir kl. 7.
Kl. 13 mínútum yfir sjö verður
Högglund, forstjóra steypustöðv
arinnar, litið út um glugga í
búsi sínu, en hann býr þarna
rétt hjá, og sér að efcki er allt
með felldu, kraninn var fcominn
otfan í lónið. Hann fór þá út í
mötuneytið og sótti hjálp þang-
að, og 16 miínútum yfir sjö voru
menn komnir á siysstaðinn.
Haíði kraninn stungizt á end-
ann ni'ður í lónið og sneri hurð-
in niður. Var húsið að mestu í
katfi, en mennirnir brugðu sfcjótt
við otg brutu rúðuna í þeirri h!V5
hússdns, sem upp sneri og náðu
Áma þar út. Svo vildi tii, að
þarna var fflokkur manna, sem
daginn áður hatfði lokið nám-
skeiði í hjálp í viðilögum, og hótfu
þeir þegar Mtfgunarti'lraunir, und
ir stjórn Ástu Aðalsteinsdóttur,
hjúkrunarkonu, sem þarna er
startfandi. Héldu þeir lífgunartil-
raunum áfram í klukfc'ustund
unz læfcnir fcom, en þá var sýnt
að þær báru ekfci árangur.
Fréttaritari.
VIÐ BJÓÐUM YÐUR
k Hagkvœmusfu greiðsluskil-
mála sem þekkjast —
■jc Lágt verð
-jc Vandaðar vörur
-jc Cóða þjónustu
r~ta
í-»ö!íirp
-Wh
» I
Simi-22900 Laugaveg 26
STAKSTEINAR
Efling atvinnulífs
Erfiðleikamir í íslenzkum at-
vinnumálum að undanfömu hafa
áorkað þvi, að fleiri og fleiri gera
sér grein fyrir því, hver lífs- v
nauðsyn það er, að atvinnuveg-
irnir séu öflugir og reknir halla
laust Þannig og aðeins þannig
er unnt að tryggja örugga at-
vinnu og góð lífskjör. Jafnvel
stjórnarandstæðingar hafa á
undanförnum mánuðum haft
um það mörg orð, að íslenzkir
atvinnuvegir væru nú illa sett-
ir og þeim þyrfti að bjarga. Að
visu vilja kommúnistar — og
raunar ýmsir Framsóknarmenn
líka —þjóðnýta sem flesta hluti
eða þá að koma á allsherjar sam
vinnurekstri. Þessir aðilar hafa
aldrei haft trú á einkarekstrin-
um og allt viljað gera til að
koma honum á kné. Þess vegna
brosa einkaframtaksmenn, þegar
sósíalistar þykjast allt í einu
vera orðnir aðal baráttumenn s
fyrir heilbrigðu framtaki. En
gott er þó að fá viðurkenningu
fyrir því, að atvinnureksturinn
þurfi að vera öflugur.
Áhiif gengis-
breytingarinnar
Eins og ölium er ljóst, eru
megináhrif gengisbreytingarinn
ar þau, að unnt á að vera að
tryggja sæmilega afkomu út-
flutningsatvinnuveganna, enda
sjást þess nú merki um land
allt, að ný gróska sé að færast
í sjávarútveg og iðnað og mik-
ill framfarahugur er í mönn-
um. Þegar efnahagsaðgerðirnar
voru gerðar 1960, var lagður
grundvöllur að öflugri fram-
leiðslustarfsemi. I kjölfar þeirra ^
ráðstafana voru stöðugar fram-
farir og batnandi lífskjör í hálf-
an áratug, svo að aldrei í sög-
unni hefur íslenzka þjóðin sótt
jafn hratt fram og einmitt á
þeim árum. Nú er nauðsynlegt
að tryggja, að aðgerðirnar, sem
gerðar voru fyrir áramót, beri
sama árangur og náðist í upp-
hafi þessa áratugs. En til þess
að svo megi verða, er nauðsyn-
legt að koma í veg fyrir víxl-
hækkanir kaupgjalds og verð-
lags, þess vegna verður undir
engum kringumstæðum unnt
að bæta mönnum að fullu þær
verðhækkanir, sem orðið hafa,
með vísitölugreiðslum, slikt
væri óðs manns æði.
Verum vel á verði
Á því leikur enginn vafi, að
óheillaöfl í þjóðfélaginu munu
reyna að vinna að því að áhrif
gengisbreytingarinnar verði að
engu gerð, þannig að áfram verði
hér atvinnuleysi og vandræði á
sviði atvinnulífsins. Þetta eru
þau öfl, sem helzt vilja sjá allt
einkaframtak iiggja í valnum,
þótt þau stundum þykist vera
málsvarar atvinnulífsins. Það
hlýtur að vera sameiginlegt
áhugamál vinnuveitenda og laun-
þega að tryggja nú í eitt skipti t
fyrir öll, að sá árangur náist af
gengisbreytingunni, sem að er
stefnt, þ.e.a.s. að öll atvinnu-
tæki verði fullnýtt, framleiðsla
mikil, úttflutningstekjur stórauk-
ist, svo að unnt verði áður en
langt um líður að bæta kjörin
á ný, en hver maður hlýtur að
skilja, að þegar slík áföll verða,
sem við íslendingar höfum orðið
fyrir, þá verða allir að taka á
sig byrðarnar um sinn til þess
að búa í haginn fyrir framtiðina.