Morgunblaðið - 18.02.1969, Side 11

Morgunblaðið - 18.02.1969, Side 11
MORGUlNfBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 18. FEBRÚAR 1960. 11 Alþjóðabankinn hefur sýnt Islandi traust og velvilja — segir Vilhjálmur Þór, sem hefur átt sœti í stjórn bankans sl. 4 ár VILHJÁLMUR Þór, sem heí- ur verið einn af bankastjór- um Alþjóðabankans í Wash- ington sl. 4 ár, kom heim að- faranótt sl. sunnudags. Morgunblaðið ræddi í gær við Vilhjálm og spurði hann um starf hans hjá bankanum. Vilhjálmur sagði: — Ég hóf starf hjá Alþjóða bankanum 1. nóvember 1964 og lét af því 31. október 1968. Kjörtímabilið er tvö ár í senn og hefst 1. nóvember. Frá því ég hætti hjá Alþjóðabankan- um hef ég dvalizt vestanh-afs í einkaerindum, m.a. dvald- ist ég um tíma hjá dóttur minni, sem er gift í Bandaríkj- unum. — Það er mjög lærdóms- ríkt og fróðlegt að vera í stjórn Alþjóðabankans. Hann veltir geysimiklum fjárhæð- um. f þau 22 ár, sem bankinn hefur starfað, hefur hann lán að yfir 11 milljarða dollara. Á síðasta 9tarfsári lánaði bank inn 847 milljónir doUara. — Það er mjög merkilegt við starfsemi Alþjóðabankans, að hann hefur aldrei tapað fé á útlánum. Hann hefur ætíð fengið öll lán og vexti endur- greidda með skilum. Við síð- ustu reikningsskil voru vara- sjóðir bankans orðnir 1.160 milljónir dollara. — Tvö önnur fyrirtæki heyra undir stjórn Alþjóða- bankans, annað þeirra er IDA (International Development Association). Það er eins kon ar systurfyrirtæki, sem rekið er fyrir gjafafé 18 auðugra þjóða. Alls eru 98 þjóðir að- ilar að IDA, en af þeim eru aðeins 18, sem hafa séð sér fært að leggjá fram árlegt framlag. Stofnunin lánar fá- tækum þjóðum, sem ekki geta tekið lán í Alþjóðabankanum. Lán IDA endurgreiðast á 50 árum og eru engir vextir af þeim greiddir. Auðvitað er ís- land alltof ríkt til að fá lán hjá IDA. — Hitt systurfyrirtæki Al- þjóðabankans er IFC (Intema tionál Finance Corporation), sem starfar með fé frá bank- anum, en lánar aðeins til einka framtaksfyrirtækjá. — Ég vil gjarnan geta þess, að í yfirstjórn bankans eru fulltrúar 20 ríkja, menn frá ýmsum stöðum á hnettinum og af ýmsum litarhætti. Þessi hópur vinnur saman á mjög ánægjulegan hátt og þar rík- ir samhugur um að reyna að lyfta heiminum til meiri fram fara. Það er mjög ánægjulegt, að hafa haft tækifæri til að taka þátt í þessu starfi og Vilhjálmur Þór. vera með í því að stuðla að vali framkvæmda í hinum ýmsu löndum, ekki sízt þró- unarlöndunum. — Aðalbankastjóri Alþjóða bankans nú er Robert McNam ara, fyrrum varnarmálaráð- herra Bandarikjanna. Hann tók við starfinu á sl. ári. Ég ttel það mikið happ fyrir Al- þjóðabankann að geta hagnýtt þann mikla starfskrait sem McNamara býr yfir. Þeir bankastjórar, sem gegndu em bætti á undan honum, voru einnig afbragðsmenn. Má þar ekki sízt nefna George D. Woods, sem var aðalbanka- stjóri í 5 ár og lagði inn á margar nýjar brautir. Mc- Namara hefur þegar sýnt, að val hans var skynsamlegt, gott og æskilegt. — Alþjóðabankinn hefur sýnt íslandi traust og velvilja og Veitt mörg lán til lands- ins. Ekki sízt sýndi bankinn fslandi velvilja með því að lána 18 milljónir dollara til Búrfellsvirkjunar. 'Það er stærsta lán, sem bankinn hef- ur veitt einni þjóð, miðað við íbúafjölda að sjálfsögðu. Það var sérstaklega ánægjulegt, hve afgreiðsla þess láns fór fram á vinsamlegan og skemmtilegan hátt á sínum tíma. — Norðurlöndin skipta með sér fulltrúa í stjórn Alþjóða- bankans. Það var Svíi, sem tók við 1. nóvember sl. — Dvölin vestra var mjög ánægjuleg fyrir mig og Rann veigu konu mína. Við kynnt- umst fjölda af ágætu fóUd. Þótt það hafi verið ágætt að vera erlendis þessi 4 ár og við unað vel okkar hag, þá er þó alltaf heima bezt. — Ég er nú kominn á sjöt ugasta aldursárið og það þýð- ir, að ég hef ekki að neinu sérstöku að snúa hér heima. FÉLAG ÁHUGAMANNA UM SJÁVARÚTVEGSMÁL STOFNAÐ MORGUNBLABINU hefur borizt fréttatilkynning, þar sem segir frá stofnun „Félags áhugamanna um sjávarútvegsmál." Formaður þess er Gunnar Friðriksson, fram kvæmdastjóri, Reykjavík. Til- kynningin er svohljóðandi: „Sl. laugardag, 15. febrúar, var stofnað hér í Reykjavík Félag áhugamanna um sjávarútvegsmál. Formaður^ undirbúningsnefndar, Eyjólfur ísfeld Eyjólfsson, fram- kvæmdastjóri, gat þess í upp- hafi fundarins um aðdraganda félagsins, að 15. desember 1968 hafi verið efnt til fundar um sjávarútvegsmál í Sigtúni í Reykjavík. Þar kom fram till. um að efna til stofnunar félags áhugamanna um sjávarútvegsmál og var síðan efnt til slíks fundar á sama stað 8. janúar sl. Þá kom fram, að málið hafði ekki verið nægilega undirbúið, m.a. höfðu ekki verið samin drög að lögum fyrir félagið. Varð þá að ráði að kjósa undirbúnings- nefnd í þessu skyni og skyldi hún efna til framhaldsstofnfund ar, þess er í upphafi getur. Nefnd in hafði haldið nokkra fundi og haft samráð við nokkra aðila ut- an hennar. Starfssvæði félagsins er allt landið og er félagið opið öllum einstaklingum, sem áhuga hafa á sjávarútvegsmálum. Tilgangur Nýtt lyf viö Parkinsons- sjúkddmi vekur athygli Heitir L-dopa — Sjúklingar í Bandaríkj- unum hafa fengið „gífurlegan" bata í tilraunum NÝTT lyf, sem hefur orðið „til gífurlegs bata“ þeirra, sem þjást af Parkinssons-sjúk dómnum svonefnda, hefur verið rómað sem „mikilvæg- asta framlag til læknismeð- ferðar á sjúkdómum í tauga- kerfi í 30 ár“. Þessi ummæli komu fram í ritstjórnargrein í bandaríska læknatímaritinu New England Journal of Med- icine, sem venjulega er íhalds samt í orðfari. Fylgdi ritstjórn argreininni frétt þess efnis að 20 af 28 sjúklingum, höldnum Parkinsons-sjúkdómi, og fengið hefðu meðferð með hinu nýja lyfi, sem heitir L- dopa, hafi fengið „greinileg- an eða jafnvel gífurlegan bata.“ Hið nýja lyf, sem hefur einnig skilað svipuðum árangri við tilraunir víðar í Bandaríkjunum, er enn aðeins fáanlegt til rannsóknarstarfa, en talsmaður Taugakerfissjúk dóma- og heilablæðingastofn- unarinnar bandarísku hefur látið þau orð falla, að Park- inssons-sjúklingar muni Lþrýsta svo mjög á, að lyfið muni verða sett á almennan markað á sumrj komanda. 40.000 Á ÁRI Ekki er lengra síðan en 1966 að læknar töldu að ekki væru á næsta leiti neinar þær að- ferðir, sem dugað gætu við Parkinsons-sjúkdómnum, en um 40.000 Bandaríkjamenn bætast árlega í þann hóp manna, sem haldinn er þess- um sjúkdómi. Parkinssons-sjúkdómurinn er heilasjúkdómur, og eru fyrstu merki has titringur og skjálfti, sem eykst þar til sjúklingurinn missir stjórn á vöðvum sínum, og vöðvarnir verða stífir. í mörgum tilvik- .um er sjúkdómurinn ban- vænn. í fyrrnefndri ritstjórnar- grein í New England Journal of Medicine, segir ritstjórinn, taugasérfræðingurinn dr. Dav id C. Poskanzer frá Boston, að L-dopa sé upphafið að „nýju timabili meðferðar" á Park- insonssjúklingum. Skýrslan um sjúklingana, sem birt var í blaðinu, var eftir þrjá lækna, þá George C. Cotzias, Paul S. Papavasil- iou og Rosemary Gellene, en læknar þessir starfa allir við The Medical Research Center of Brookhaven (NY) National Laboratory. TVEIR HÓFU STÖRF Á NÝ Læknarnir greina frá því, að tveir sjúklingar, trésmiður og lögfræðingur, hafi aftur getað hafið vinnu eftir að hafa fengið meðferð með L- dopa. Læknarnir segja, að til þess að L-dopa nái tilgangi sínum, verði skammtarnir, sem sjúkl- ingnunum eru gefnir, að auk- ast smátt og smátt þar til svo sé komið að sjúklingurinn taki mikið magn af L-dopa. Sjúkdómseinkennin tóku að hverfa í öfugri röð við það, er þau komu fram. Fyrst hvarf lömunin, síðan vöðva- stífnin og loks skjálftinn og titringurinn. Af þeim 28 sjúklingum, sem tilraun þessi náði til, sögðu læknarnir að tíu hefðu fengið „gífurlegan" bata, fjórir „töluverðan“ bata og fjórir „nokkurn1 bata. Dr. Poskanzer segir i tíma- ritggrein sinni að þessi tilraun „sýni ljóslega að L-dopa get- ur unnið á flestum þeim sjúk- dómseinkenn.um Parkinsons- sjúkdómsinis, sem valda því að menn verða óverkfærir, og hægt er að gefa lyfið í mjög ríkum mæli í langan tíma, ef skammtarnir eru auknir hægt.“ þess er að vinna að hvers konar framförum á sviði sjávarútvegs, sem stuðlað geti að hagstæðri þróun hans og kynna þýðingu hans fyrir þjóðinni. Skal að því unnið með alhliða upplýsinga- starfsemi. Félagið stefnir að góðri sam- vinnu við öll félagssamtök, sem vinna að hagsmunamálum sjáv- arútvegsins svo og við sjávarút- vegsmálaráðuneytið og stofnanir sem ajávarútvegurinn á sam- skipti við. Samkvæmt félagslögunum á að halda fundi eigi sjaldnar en einu sinni í mánuði, vetrarmánuðina, um ákveðin efni. — Má ætla að félagsstjórnin leitist við að fá ákveðinn framsögumann hverju sinni til að reifa fundarefnið. Auk framanritaðs íjalla félags lögin um ýmis önnur efni svo sem stjórnarkjör, fyrirkomulag atkvæðagreiðslna, félagsgjöld, sem eru 200.00 kr. á ári, o.fl. svo sem venja er. Frumvarp undirbúningsnefnd- ar var samþykkt einróma með einum viðauka. Sjávarútvegsmálaráðherra, Eggert G. Þorsteinsson, sat fund- inn og ávarpaði hann. Fagnaði hann félagsstofnun þessari og árnaði félaginu heilla í störfum. Kvað hann mikils vert, að menn af áhuga efndu til slíkra frjálsra samtaka, mikilvægi sjávarútvegs ins og eining um hagsæld hans væri þjóðamauðsyn og í þeim efnum væri margt að vinna til eflingar honum. — Ráðherrann gerðist einn af stofnendum fé- lagsins, en þeir voru alls 86. Ljóst var af ræðum fundarmanna, að þeir töldu að mikið ætti eftir að fjölga í félaginu. í fyrstu stjórn félagsins vonj kosnir eftirtaldir menn: Gunnar Friðriksson, framkv.stj., Reykja- vík, formaður, Eyjólfur Isfeld Eyjólfsson, framkv.stj. Garða- hreppi, varaformaður og með- stjórnendur Jóhann J. E. Kúld, fiskmatsmaður, Reykjavík, Loft- ur Júlíusson, skipstjóri, Reykja- vík, Jón Þ. Ámason, framkv.stj. Reykjavík, Guðlaugur Tr. Karls- son, hagfræðingur, Reykjavik og Ingimar Einarsson, lögfr. Reykja vík. — í varastjórn voru kosnir: Árni Benediktsson, Reykjavík, Sveinn Benediktsson, Reykjavík, Einar Sigurðsson, Reykjavík, Pét ur Sigurðsson, alþ.m., Reykja- vík, Guðmundur H. Garðarsson, Reykjavík, Grettir Jósepsson, Hafnarfirði og Jón Sveinsson, Garðahreppi. Á stjómarfundi, sem haldinn var þegar eftir stofnfundinn var Jóhann J. E. Kúld kosinn gjald- keri og Ingimar Einarsson, rit- ari. Fundarstjóri á stofnfundinum var Jón Þ. Árnason. Til leigu eða sölu er 4ra herb. íbúð í tvíbýlishúsi í Hafnarfirði. Nánari upplýsingar á skrifstofunni. Hrafnkell Ásgeirsson, hdl., Strandgötu 45, Hafnarfirði, simi 50318. SÝNINGIN „Öst-Grönland og dets kunst“ verður opin daglega frá og með fimmtudeginum 20. febrúar kl. 10—20 í Norræna Húsinu. Á sýningunni er m.a.: Kvenbátur, tmmbur, hunda- sleðar, húðkeipur, leikföng, hvaljárn, fuglaspjót, skartgripir, dansgrímur, eldfæri, hnífar og heimilis- áhöld. — Allir velkomnir. Norræna félagið, Dansk- ísl. félagið, Norræna Húsið.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.