Morgunblaðið - 18.02.1969, Blaðsíða 28
0£ lágt tryggt..
•E lágar bætur
ALMENNAR
TRYGGINGAR í
ÞRIÐJUDAGUR 18. FEBRUAR 1969
INNIHUBÐIB
ilandsins
mesta úrva 4.M.
SIGURÐUR ELÍASSON HF.
AUÐBREKKA 52—54, KÓPAVOGI.
Frá Búnaðarþingi. Fulltrúar hlýða á mal landbunaðarraðherra, Ingolfs Jonssonar.
Lœknisvélin
teppt vestra
F.INSHREYFILS flugvél frá
Birni Pálssyni er nú teppt á
flugvellinum að Reykhólum, en
þangað fór vélin á laugardag
með lækni. Er slík ferð farin
einu sinni í viku vegna læknis-
Ieysis vestra.
Á laugardag, þegar komið var
vestur, var veður hið ágætasta
og var þá ákveðið að láta flug-
vélina bíða eftir lækninum.
Skyndilega lokaðist völlurinn í
Reykjavík vegna þoku og gat
flugvélin því ekki farið að vest-
an, þegar læknirinn hafði lokið
erindi sínu og næsta morgun
hafði veðrið vestra 'spillzt og gert
ófært þar. Situr við það enn.
— af skaðabótakröfum dansks frí-
merkjakaupmanns
HÆSTIRÉTTUR staðfesti nýlega
dóm Sjó- og verzlunardóms
Reykjavikur í skaðabótamáli,
sem danskur frímerkjakaupmað-
ur, Robert Bechsgaard, höfðaði
á hendur Póst- og símamála-
stjórninni vegna „vanefnda á
loforði um sölu og afhendingu“
Evrópumerkja; útgefinna 18.
september 1961. í málshöfðun
sinni krafðist Bechsgaard skaða-
bóta að fjárhæð 591.600 danskra
króna ásamt 8% ársvöxtum frá
1. janúar til greiðsludags og máls
kostnaðar að mati dómsins.
Stefndi krafðist sýknu af öllum
kröfum og að stefnandi yrði
URANUS
BJARGAR
TOGARA
TOGARINN Úranu® kom aðfara-
nótt sunnudags að brezka togar-
anum Ross David, þar sem hann
var á reki vélvana og með biluð
loftskeytatæki út af Færeyja-
banka. Gátu brezku skipverjarn-
ir látið Úranusmenn vita af sér
með því að kynda neyðarbál á
þilfari togarans. Úranus tók
brezka togarann í tog, og kom
með hann í Trangisvoig um há-
degi í fyrradag.
dæmdur til greiðslu málskostn-
aðar. Dómsorð féll á þá lund, að
Póst- og málamálastjórnin skyldi
vera sýkn af kröfum Roberts
Bechsgaard. Málskostnaður var
látinn falla niður.
f júlímánuði H961 fékk Bech-
gaard umburðarbréf frá Frí-
merkjasölunni í Reykjavík, sem
rekin er af Póst- og símamála-
stjórninni, þar sem skýrt var frá,
að 18. september 1061 yrðu gefin
út „Evrópufrímerki 1961“, og
skyldu pantanir hafa borizt
fjórtán dögum fyrir útgáfudag.
19. ágúst ritaði Bedhsgaard
Frímerkjasölunni bréf, þar sem
hann sagði m.a. að hann gerði
ráð fyrir að þurfa að nota milli
30-50 samstæður og spurðist fyr-
ir um, hvort hann gæti fengið
„minni háttar afslátt" við kaup
á þessum eintakafjölda. Einnig
fór Becihsgaard þess á leit, að
Frímerkjasalan sendi frímerkin
til Sendiráðs íslands í Kaup-
mannahöfn svo að hann gæti vitj
að merkjanna þar á útg’áfudegi.
Loks bauðst hann til að greiða
merkin fyrirfram.
í svarbréfi Frímerkjasölunnar
frá 25. ágúst 1961 sagði, að skráð
hefði verið pöntun Bechsgaard á
allt að 50.000 samstæðum, að
enginn afsláttur yrði veittur og
að ekki væri hægt að afgreiða
merkin fyrr en á útgáfudegL
Átjánda septemfoer bárust Frí-
Framhald á bls. 27
Búnaðorþing hólst í gær
BÚNAÐARMNG 1969 var sett í
Bændahöllinni kl. 10 í gærmorg-
un. Formaður Búnaðarfélags ís-
lands, borsteinn Sigurðsson,
bóndi á Vatnsleysu, setti þingið,
en að því loknu flutti landbún-
aðarráðherra, Ingólfur Jónsson
ávarp. Er ræða hans á bla. 15 í
dag svo og ágrip af ræðu f>or-
steins.
Annar fundur þingsins var
settur kl. 14 siðdlegis í gær. Voru
þá kosnir varaforsetar og skrif-
arar þingsins og fastar nefndir
þess.
Á fyrsta fundi þingsins voru
mættir 23 aif 25 fulltrúum, en
þeir tveir, sem ókomnir voru,
voru væntanlegir í dag. Lögð
voru fram sjö mál í þingbyrjun.
Meðal mála, sem lögð verða fyr-
ir þetta búnaðarþing, er frum-
varp til laga um lax- og silungs-
veiði, sem landbúnaðarráðherra
hefur sent búnaðarþingi til um-
sagnar.
Fundur hlefst á búnaðarþingi
kl. 10 árdegis í dag og mun bún-
aðarmálastjóri, Halldór Pálsson,
þá flytja skýrslu um starfsemi
Búnaðarfélagsins á sl. ári.
Tveir menn létu lífið á laugardaginn í bílslysi aust ur í Biskupstungum, Einar G. E. Sæmundsen, skog-
arvörður og Tryggvi Guðmundsson, verzlunarmað ur. Þessi rissmynd, ofan í ljósmyndina sýnir af-
stöðuna á slysstaðnum. A er leigubifreiðin. B bifre ið Einars heitins. — Örvarnar sýna ökustefnu
hvorrar bifr. um sig. Rissið sýnir nokkurn veginn hvernig bifr. stöðvuðust eftir áreksturinn. Bærinn
í baksýn er Heiði. — Sjá frétt á bls. 3.
Hilmar Guölaugsson endurkjör-
inn formaöur Múrarafélagsins
— A-listinn hlaut 739 atkvœði, en B-list-
inn 92 atkvœði
STJÓRNARKJÖR fór fram í
Múrarafélagi Reykjavíkur um sl.
helgi. Tveir listar voru í kjöri,
A-listi stjórnar og trúnaðarráðs,
sem studdur var af lýðræðissinn-
Fimm innbrot
FIMM innbrot voru framiin í
Reykjavíik um helgina. í þremur
þeirra var stolið um 150 lengjum
af vindlinigum en ednskis var
sakna’ð á tveimur stöðum.
um, og B-listi, sem skipaður var
kommúnistum og studdur af
þeim. Úrslit urðu þau, að A-list-
inn hlaut 139 atkvæði og alla
menn kjörna í stjórn og trúnaðar
ráð, en B-listi fékk 92 atkvæði.
Stjórn Múrarafélagsins er
þannig skipuð:
Hilmar Guðlaugsson, formað-
ur; Kristján Haraldsson, vara-
formaður; Brynjólfur Ámunda-
son, ritari; Helgi S. Karlsson,
gjaldkeri félagssjóðs og Sigurður
Jónasson, gjaldkeri styæktar-
sjóðs.
Úrslit stjórnarkjörs árið 1968
voru þau, að A-listinn hlaut 135
atkvæði og B-listinn 77.
Víkingur II. stórskemmdist í eldi
fsaíirði, 17. febrúar.
í MORGUN er menn voru að
fara til vinnu sinnar, urðu þeir
varir við að óeðlilegan reyk lagði
upp úr lúkar vélbátsins Víkings,
II, sem lá í bátahöfninni hér.
Þegar að var gáð, kom í ljós að
kviknað hafði í lúkar bátsins út
frá blásara fyrir eldavél. Var
þegar kallað á slökkvilið og
tókst því fljótlega að ráða niður-
lögum eldsins, en mikiar skemmd
ir urðu á bátnum. Brann dekkið
og dekkbitarnir mikið og er áætl
að að taka muni allt að tvo
mánuði að gera við skemmdirn-
ar. — J.P.H.
Hilmar Guðlaugsson
5 milljónir
| TOGARINN Sigurður seldi
gærmorgun í Cuxhaven 261
1 tonn fyrir 221.328 mörk, eða
I ca. 4.856.000 kr. Fiskurinn var
j blandaður og af heimamiðum
. Þetta mun vera hæsta tog-
arasala í krónutölu þótt ekki
1 sé hún það í mörkum.
Póst- og símamála-
stjórnin sýknuð