Morgunblaðið - 25.03.1969, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 25. MARZ 1969
Rætur íslenzkrar menningar — heims-
mynd Skjöldunga
Atta fyrirlestrar Einars Pálssonar
í Norrœna húsinu í páskavikunni
EINAK Pálsson, B.A., for-
slöðumaður Málaskólans Mím
is, kynnti í gær blaðamönn-
um fyrirlestra, sem hann mun
halda í páskavikunni í Nor-
ræna húsinu. Efni þessara
fyrirlestra er um táknmál is-
ienzkra fornsagna og nefnir
Einar fyrirlestraflokkinn:
Rætur íslenzkrar menningar.
Einar segir táknmálið gefa
eíndregnar ábendingar um
sióð menningarinnar til Norð-
urlanda, um stofn Njálssögu
og fleiri sagnminna íslend-
inga, um hugmyndafræði
rúna og eðli íslenzkra goð-
sagna.
Mbl. ræddi í gær við Einar
í tilefni þessa og spurðum við
hann fyrst um upphaf þessara
rannsókna hans.
— Þetta hefur verið mitt
aðaláhugamál um 20 ára
skeið og fyrir 6 árum, árið
IS'63, þá gerði ég það upp við
mig, að við mundum aldrei
komast lengra, fyrr en við réð
umit til atlögu við sjálft tákn
má'ið. Og síðan hef ég unnið
við það á hverjum degi í 6
ár — að i.eyna að komast að
me:'kingu hinna einstöku
tákna. Smátt og smátt komst
ég að því, að heiðindómur-
inn var ekki, eins og hingað
til hefur verið ríkjandi skoð-
un, tvístringurinn einn, held-
ur þæði kerfisbundinn og fast
mótaður. Það er þetta kerfi,
sem ég ætla að sýna í 69
myndum, sem fylgja fyrir-
lestrunum.
— Hvað er það, sem kerfið
skýrir?
—- Það skýrir m.a., að ása-
trúin íslenzka var ekki ein-
angrað fyrirbæri heldur 'hluti
af evrópskri menningar'heild.
Það skýrir ennfremur það
baksvið, sem unnt er að bera
ísiendmgasögur og Eddur við
og auk þess sjálfan búning
bugtakanna, mál goðsagnar-
innar, notkun þess máls og
merkingu. Kerfið er fast
tengt vi;sum kennileifcum í
Danmörku og það er stikað
út í samræmi við vissa talna-
speki, sem er fastur hluti trú-
arbragðanna. Þetta kerfi er
byggt utan um heilagt kon-
ungdæmi Dana og miðdepill
þess er konungssetrið í Jell-
ing á Jótlandi.
— Þú gazt þe = s, að unnt
notað þetta
Jótlandi og á
Talnakerfið
væri að nota þetta kerfi við
áttamiðanir?
— Flest bendir til, að vik-
ingar hafi notað rúnirnar sem
áttamiðanir. Sömuleiðis hafa
þær verið notaðar sem eins
konar klukka og er þá sjón-
deiidarhringurinn allur notað
ur til þess að miða við Sól og
Tungl.
— Hefur þú
sjálfur?
— Já, bæði a
Rangárvöllum.
sjáift er alveg fast og hvergi
frá því brugðið. Þetta er g'eysi
lega þægilegt og ætti að taka
það upp aftur. Ef maður kann
sjálft kerfið veit maður alltaf
nákvæmiega hvar maður er
staddur innan kerfisins.
Allt er kerfið tengt árstíð-
unum og mætti raunar kalla
það Hjól Árstíðanna. Þetta
hjól er grundvöllur heims-
myndar Skjöldunga. Þeir
menn, sem færðu þetta með
sér til íslands hafa því vænt-
anlega talið sig Skjöldunga-
ættar. Ég hef fundið sams kon
ar kerfi í trúarbrögðum menn
ingarsamfélaga, sem þróuðust
við fljótin Indus, Efrates og
Níl, en þar skal þó tekið fram,
Ijóst, að þetta er sameiginleg-
ur indó-evrópskur arfur, en
um hitt er of snemmt að spá,
hvort eða hve mikið af þeim
arfi er runninn beint frá Súm
er eða Egyptalandi. Sá mögu-
ieiki er til í stöðunni, að arf-
urinn sé jafnvel eldri en
menningarsamfélag Mesopóta-
míu og Nílardals. Það sem við
getum sagt með nokkurri
vissu með aðstoð dönsku forn
leifafræðinnar er, að heims-
mynd þess indó-evrópska
fólks, sem nefnist Stríðsöxar-
menn í fornleifafræðinni og
rann inn í Suður-Jótland um
2000 fyrir Krist, var byggð á
sömu tölvísi og sömu megin-
stuðlum og heimsmyndir þess
fólks, sem bjó frá 3600 til 2000
fyrir Krist við Indus, Efrates
og Níl. Verk fornleifafræðinn
Hugmyndafræði rúna var
geymd á fingrum — líkt og
fingrarím siðar. Þeir sem
kunnu rúnir sáu flest í
hendi sér cða kunnu allt
upp á sína tíu fingur.
að ég hef að sjálfsögðu ekki
fundið teng lin við sjálft land
ið, en álít hins vegar vafalaust
að þau muni finnast, þegar
menn taka að leita þeirra.
— Hvaðan álíturðu að
þetta sé upprunnið?
— Það er nokkurn veginn
Heiðin jól — ein hinna 69
skýringamynda Einars.
ar er ómetanlegt, því að frá
þessari undirstöðu má svo
rekja þræði menningarinnar
bæði aftur og fram í tímann.
— Hvernig tengist þetta
Njálu?
— íslenzka kerfið er, ef svo
má segja vettvangur Njáls
sögu, og áhrif þess sjást víða
í sögunni, þannig að ljóst er
að sá sem ritaði Njálu þekkti
kerfið vel og notfærði sér það,
sagði Einar Pálsson að lokum.
Morgunblaðinu er kunnugt
um að meginefni fyrirlestr-
anna verður væntanlega flutt
við háskólana í Toronto, Ro-
éhester og Pennsylvania næsta
vetur. Hafa prófessorar í
mannfræði og trúarbragða-
sögu metið vhindalegt gildi
verksins og kveðið upp þann
dóm, að það standist ítrustu
kröfur sérfræðinga í þessum
greinum.
Helztu niðurstöður fyrir-
lestranna eru:
„1) Kjarni þe-s heiðindóms,
sem íslenzkir landnámsmenn
fluttu með sér frá Noregi er
byggður á menningarháttum
síðsteinaldar, akuryrkju og
Einar Pálsson.
kvikfjárrækt.
2) Þjóðir sem töluðu indó-
evrópsk mál fluttu þennan
kjarna til Norðurlanda.
3) Sá kjarni heiðindómsins,
sem nú er yfirleitt nefndur
Ásatrú, er runninn af — eða
r.áskyldur — heimsmynd
fornra samfélaga, sem þróuð-
ust við fljótin Indus, Efrates
og Níl.
4) Ætla má, að nokkrar
leifar þeirra trúarbragða,
sem fyrir voru á Norðurlönd-
um, þegar Ásatrú hélt innreið
sína, hafi sameinast og aðlag-
ast Ásatrú. Þá má einnig ætla,
að leifar annarra trúarbragða
ýmissa tímaskeiða fyrirfinnist
á fornum bókum íslendinga.
5) Æsir og Vanir voru tvær
hliðar sama heiðindóms alR
frá upphafi Ásatrúar á Norð-
urlöndum.
6) Ásatrú var fastmótuð og
kerfisbundin.
7) íslenzkir landnámsmenn
bundu stuðla trúarbragðanna
vissu landssvæði, vissu tíma-
tali og áttavísan. Landnámið
bundu þeir talnaspeki, er í
megin atriðum studdist við
einingarnar:
a. 1728 — 1296 — 864 — 432
b. 432 — 288 — 216 — 144 —
72
Kenning þessi er miðuð við
landnámsmenn, sem töldu sig
„danska" eða „Skjöldunga"
— ekki í landfræðilegri merk
ingu, heldur í merkingu ætt-
ar, blóðs, trúarbragða éða
samfélags, og bundu landnám
sitt tölvísi Skjöldunga. Það er
þá rannsókarefni út af fyrir
sig, hvort reglan gilti einnig
um aðra.
8) Speki rúnaleturs var
bundin áttavisan, tímatali, töl
visi og reginmögnum.
Framhald á bls. 11
Nýtt borðstofusett fyrir ferminguna
Eitt þúsund og fimm hundruð
krónur út tyrir borðstofuborð
og 6 stóla eftir eigin vali og
1500 á mánuði. Vér bjóðum
yður 10 mismunandi tegundir
af borðstofustólum. Margs konar
hringborð, ilöng borð og köntuð borð
AÐEINS
1500
KRÓNUR
usqgqno Uk
V- <J <J® 22900 LAUC
STAKSTEIHAR
Rætnar átdsir
Kommúnistablaðið hefur att
undanförnu birt rætnar og illyrt
ar árásir á tvo starfsmenn Reykja
víkurborgar og einn fyrrverandi
starfsmann borgarinnar. Þessar
árásir dæma að visu ekki aðra
en þá, sem að þeim standa, en
ástæða er til að vekja athygli
á þeim, ekki sízt vegna þess, að
þær lýsa glögglega því sérstæða
hugarfari, sem ríkir á ritstjórn-
arskrifstofum kommúnistablaðs-
ins. Árásirnar á tvo af núver-
andi starfsmönnum borgarinnar
eru sprottnar af því einu, að þeir
hafa tekið liluta orlofs síns
nú með samþykki réttra aðila, og
í fullu samræmi við ákvæði reglu
gerðar um réttindi og skyldur
starfsmanna Reykjavíkur. í þessu
tilviki er um að ræða tvo unga
embættismenn, sem hafa getið sér
alveg sérstakt orð fyrir dugnað
í starfi. Árásin á fyrrv. starfs-
mann borgarinnar var rætn-
ari en flest af því, sem sézt
hefur á prenti í kommúnista-
blaðinu og er þá langt til jafn-
að. Greinilegt er, að kommún-
istablaðið hafði ekki fyrir því
að kynna sér njálavexti þess
áður en þessi rógsherferð
gegn honum var hafin. Róg-
burður kommúnistablaðsins um
þessa þrjá menn er blaðinu til
skammar og lýsir einkar vel sál
arlífi þeirra manna sem að slík-
um skrifum standa.
Skrýtin kenning
í kommúnistablaðinu á suniMI
daginn segir svo í grein um „úr-
ræði“ kommúnista í atvinnu- og
efnahagsmálum: „Eitt þýðingar-
mesta atriðið við þær ráðstafan-
ir, sem hér hafa verið nefndar
er þó ótalið; með þessu móti
mætti tryggja landsmönnum at-
vinnu til frambúðar við íslenzk-
an atvinnurekstur. Arðurinn af
vinnu islenzks launafólks rynni
til landsmanna sjálfra en ekki
í vasa erlendra peningafursta,
eins og sá arður, sem íslenzk-
ar hendur skapa við álverið í
Straumsvík." Þet+a er skrýtin
kenning. Svo sem kunnugt er,
standa þær tekjur, sem við höf-
um af raforkusölu til álversins
í Straumsvík alejörlega undir
greiðslu vaxta og afborgana af
virkjun Búrfells. Á tilteknu ára
bili eignumst við íslendingar
þetta mikla mannvirki við Búr-
fell, skuldlaust, vegna raforku-
sölunnar til álversins í Straums
vík. Þetta er raunar ekki eini
arðurinn, sem við hefum af ál-
verinu í Straumsvík. Aðrar tek j
ur, sem við höfum af því mikla
fyrirtæki munu renna til upp-
byggingar atvinnulifsins út um
allt land. Verkamenn og iðnað-
armenn í Hafnarfirði og víðar
hafa haft verulegar tekjur af
starfi við þessar framkvæmdir
síðustu árin, svo og fjölmörg at-
vinnufyrirtæki í landinu og starfs
lið þeirra. Er þetta ekki arður
í vasa íslendinga?
MYNDAMÓT hf.
PRENTMYN DAG ERÐ
AÐALSTRÆTI 6
SlMI 17152
22900 LAUGAVEG 26