Morgunblaðið - 25.03.1969, Blaðsíða 6
6
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 25. MARZ 1989
LOFTPRESSUR Tökui.. að okkur alla lott- pressuvinnu. Vélaleiga Simonar Simonarsonar Slmi 33544. IBÚÐIR 1 SMlÐUM Til sölu eru 3ja og 4ra herb. íbúðir við Eyjabakka 13 og 15. óskar og Bragi sf. Sími 33147 og heimasímar 30221 og 32328.
GETUM ÚTVEGAÐ heitan og kaldan veizlumat. Steikhúsið hf. Simi 42340.
HANGIKJÖT Ennþá bjóðum við nýreykt sauða- og lambahangikjöt á gamla verðinu. Kjötbúðin Laugaveg 32. Kjötmiðstöðin Laugalæk.
HEIMSENDiNGAR Bjóðum eitt fjölbreyttasta kjötúrval borgarinnar. Heim- sendingargj. 25 kr. Kjötmið- stöðin l.augalæk. s. 35020; Kjötb. Laugav. 32. s. 12222.
ARBÆJARHVERFI - HREINSUN Fatamóttaka f. Efnal. Lindina. Pressun, frágangshreinsun, hraðhreinsum allan algengan fatnað samdægurs. Hrað- hreinsun Arbæjar, Rofabæ 7.
UNGHÆNUR Hænsni 88 kr. kg., 10 stk. saman 75 kr. kg, kjúklingalæri 180 kr kg. Kjötmiðstöðin Laugalæk, Kjötbúðin Laugaveg 32.
INNRÉTTINGAR Vanti yður vandaðar inn- réttingar í hýbýli yðar, þá leitið fyrst tilboða hjá okk- ur. Trésmiðjan Kvistur, Súð- arvogi 42, s. 33177 og 36699.
BÓKHALD - SKATTAFRAMTÖL Munið nýju skattalögin, út- vega tilheyrandi bókhalds- bækur. Bókhaldsskrifstofa Suður- lands, Hveragerði, simi 4290.
HEITUR OG KALDUR MATUR Smurbrauð og brauðtertur. leiga á dúkum, glösum, disk- um og hnífap. Útvega stúlkur í eldhús og framreiðslu. — Veizlustöð Kópav., s. 41616.
ÖNNUMST ALLS KONAR ofaníburðar- og fyllingarverð. Seljum 1. flokks fyllingarefni frá Björgun hf. Vörubílastöðin Þróttur. Simi 11471 — 11474.
ER EINN og húsnæðislaus. Vantar 1 herb. og eldh. helzt i Miðb. Get lánað dálitla peninga- upph. gegn öryggri trygg- ingu Tilb. m. „2707" til Mbl. fyrir 1. apríl.
VIL SELJA nokkur veðskuldabr. tryggð með góðu fasteignaveði. — Tilb. merkt: „2705" sendist á afgr. Mbl.
HAFNARFJÖRÐUR Tveir ungir reglusamir menn vilja taka á leigu 1—2 herb. og eldhús í Hafnarfirði. — Uppl. í síma 52215 og 51718
IBÚÐ 2ja herb. ibúð óskast til leigu. Uppl. í sima 34764.
Svona œtti að vera hvert einasta kútmagakvöld
Eins og áður hefur verið
skýrt frá hér í blaðinu, efndi
Lionsklúbburinn Ægir til Kút-
magakvölds fyrir skömmu, eða
6. marz Var súlnasalur Hótel
Sögu þéttsetinn karlmönnum,
sem borðuðu yfir sig (velflest-
ir) af kútmögum, bæði lifrar-
mögum og mjölmögum, marin-
eraðri síld, kryddsíld, sherry-
sRd, karrysíld, hákarli, súrum
hval, skötu, harðfiski, soðinni
og steiktri ýsu, soðinni og
steiktri hámeri, soðnum og
steiktum gellum, heilagfiski,
skarkola, rækjum, þorskkinn-
um, hrognum og lifur, ásamt
brauði, smjöri, flatkökum og
kartöflum, en sem betur fer
stóð ekki í neinum, því að nóg
var til af allskyns munngát og
miði til að skola kræsingunum
niður.
ingu salarkynna, sem öll er stíl
uð upp á sjómennsku og fisk-
veiðar. Lóðabelgir og net upp
um alla veggi og loft, og neðst
við stigann, stendur dyravörð-
urinn algallaður í olíustakk, með
sjóhatt á höfði, í klofbússum, og
tekur við aðgöngumiðum manna.
Geysilegt hlaðborð er á miðju
gólfi, sem svignar undir kræs-
ingunum, sem fyrr voru taldar,
ýmsar fagurlegar skreytingar
eru allt í kringum borðið, og í
loftinu. Verzlun O. Ellingsen
sýndi klúbbnum þá miklu vel-
vild að lána allt þetta skraut
endurgjaldslaust.
Borðhaldið hófst, þegar menn
höfðu heilsast að „baróna“-sið,
þakkað hver öðrum fyrir síðast,
þvi að það er staðreynd, að á
kútmagakvöldi koma yfirleitt
allir þeir sömu ár eftir ár, —
Algallaður sjómaður tekur við aðgöngumiðunum við stigann.
Nú mun einhver spyrja? Hvers
vegna að borða öll þessi ósköp?
Er það gert af einskærri mat-
gleði? Ó, nei. Þetta er gert i
góðum tilgangi. Hver sem kaup
ir sig inn á slíkt kútmagakvöld
fær með því tækifæri til að leggja
sinn skerf af mörkum til barna
heimilisins að Sólheimum í
Grímsnesi, en þessi Lionsklúbb
ur hefur einbeitt sér að því að
styrkja þá þörfu starfsemi, sem
þar er unnin undir forustu hinn
ar mikilhæfu forstöðukonu, Sess
elju Sigmundsdóttur.
Með það í huga, vekur það
enga furðu, að menn ganga
þarna glaðir að matborði, smjatta
sleikja út um, taka lagið og
hlýða á góð skemmtiatriði með
sérstakri ánægju.
Strax og komið er 1 anddyr-
ið, verða menn varir við skreyt
Mat, og engar refjar
o? þætti áreiðanlega súrt i brot-
ið að missa af þessari veizlu.
Og það var rösklega tekið til
matar síns, eins og sjá má á
myndunum, sem þessum línum
fylgja. Þá var og gaman að
sjá, hve nosturlega menn völdu
sína kútmaga. Hófust síðan hin
ágætustu skemmtiatriði, enda er
þeim Ægismönnum ekki í kot
vísað, því að bæði Svavar Gests
og Ómar Ragnarsson, eru félag
ar klúbbsins, og var Svavar
veizlustjóri, en Omar skemmti.
Glæsilegt happdrætti var á boð-
stólum, og seldust allir miðarn-
ir.
Björn Pálsson alþingismaður
frá Löngumýri sat fyrir svör-
um hjá Svavari Gests, og flugu
þá brandarar og vísur fjaðra-
laust um allan sal. Ýmsir söng-
kraftar tróðu upp, og ekki má
gleyma almennum söng, en sér
stök söngskrá var prentuð af
þessu tilefni, en svo var góð
stemningin, að ekki tókst að
tæma söngskrána, þótt flestir
diskana undir kútmögunum og
fylgifiskum þeirra væru nær ger
samlega hroðnir.
Guðmundur Guðmundsson, for
maður Ægis, setti bæði og sleit
þessu fyrirmyndarhófi, á skikk-
anlegum tlma, og hvort sem það
er nú að kenna eða þakka því,
að engin koma var þarna til
staðar, — engi.n til að stíga í
vænginn við, þá héldu nú allir
til síns heima, — eða þvi sem
næst, — án allra illinda og ó-
viðurkvæmilegra geðbrigða. Og
heyrðist þá víða um borgina:
„Gæti ekki verið styttra í næsta
kútmagakvöld í ár,“ og það var
andvarpað um leið af söknuði.
— Fr.S-
Svavar Gests osr fleiri hlaða á diskana.
Kútmaginn skal valinn af kostgæfni, jafnvel er gleraugna þörf
Þetta kallast á íslenzku að taka upp í sig. (Sveinn Þormóðsson
tók myndimar)
Minningarspjöld
Minningarspjöld menningar- og
minningarsjóðs kvenna fást I bóka
búð Braga Brynjólfssonar í Hafn-
arstræti, hjá önnu Þorsteinsdóttur,
Safamýri 56, Valgerði Gísladóttur,
Rauðalæk 24, Guðnýju Helgadóttui
Samtúni 16 og á skrifstofu sjóðs
ins, Hallveigarstöðum.
Munið ettir
smáfuglunum
sá NÆST bezti
Mamma: „Nú hafið þið verið svo dugleg að hjálpa pabba með
að þvo upp, að þið eigið sannarlega hrós skilið.“
Litli bró’ðir: „Hvað þýðir hrós?“
Stóri bróðir: „Það þýðir að við fáum ekki grænan eyri.“