Morgunblaðið - 25.03.1969, Side 20
20
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 25. MARZ 1969
Aðalfundur Flugvirkjafélags íslands
verður haldinn fimmtudaginn 27. marz 1969 að Brautar-
holti 6 kl. 19.30.
Fundarefni: Venjuleg aðalfundarstörf.
Önnur mál.
STJÓRNIN.
Nú er kominn tími til að
vekja blómin eftir vetrarhvíldina
og flýta fyrir þroska þeirra með
töframætti SUBSTRAL sem inni-
heldur m.a. hið bráðþroskandi
Bl. vitamin.
SUBSTRAL er viðurkennt af vís-
indamönnum og fagmönnum á
sviði blómaræktunar.
SUBSTRAL fæst í öllum blómaverzlunum.
Islenzka verzlunarfélagið h.f. — Laugavegi 23. Sími 19943.
Nauðungaruppboð
Eftir kröfu tollstjórans í Reykjavík og Eimskipafélags
íslands h.f., verða seldar ýmsar ótollafgreiddar vörur
á opinberu uppboði, sem fer fram að Ármúla 26, laugar-
daginn 29. marz n.k. og hefst það kl. 10.30.
Ennfremur verða seldar eftir kröfu ýmissa lögmanna
margvíslegir munir, sem teknir hafa verið fjárnámi, svo
sem sjónvarpstæki, útvarpstæki, ísskápar, margvísleg
húsgögn í stofu og borðstofu, skrifborð, skjalaskápar,
ritvél, reiknivél, bókhaldsvél, þvottavél, saumavél,
hnappagatavél, sniðhnífur, fatapressa, þykktarhefill, af-
réttari, beygivél, alfræðibækur o. fl. Einnig vörur eftir
kröfu skiptaréttar Reykjavíkur úr vörubirgðum verzl-
unarinnar Edinborgar.
Skrá yfir vörurnar verður til sýnis í skrifstofu toll-
stjóra Arnarhvoli frá 26. til 28. þ.m., og verða vörumar
til sýnis, eftir því sem við verður komið eftir hádegi
28. þ.m. á uppboðsstað.
Greiðsla við hamarshögg.
Borgarfógetaembættið í Reykjavík.
- LEÓ JÓNSSON
Framhald af bls. 18
hverju vandamáli sem upp kom.
Yrði ágreiningur við yfirtöku
verkaðrar síldar á milli síldar-
seljanda og kaupanda, þá lét
síldarmatsstjóri starfsmenn sína
rannsaka nákvæmlega allt í því
sambandi, gæti hann ekki ein-
hverra hluta vegna gert það
sjálfur. Og í slíku tilfelli gerði
hann kröfu til að nákvæm
skýrsla lægi fyrir um ásigkomu-
lag og gæði vörunnar, sem úr-
skurður í málinu væri byggður
á. Þannig kom nákvæmni og
samvizkusemi ávallt fram í öll-
um störfum Leós. Hann var líka
laginn við að koma á sáttum, ef
þess þurfti með. Hann leit jafn-
an á starf sitt þannig, að hann
væri fulltrúi tveggja aðila. Ann-
arsvegar seljanda vörunnar, hins
vegar kaupanda hennar. Á hvor-
ugan þessara aðila mátti halla í
störfum og mati. í þeim efnum
varð rétt að vera rétt.
Ég á líka margar mæta og
skemmtilegar minningar frá
síldarmatsnámskeiðunum, sem
haldin voru undir handleiðslu
síldarmatsstjóra, þar sem ég
aðstoði hann við kennslu, því
eins og að framan er sagt, þá
gjörþekkti Leó allt, sem viðkom
síldarsöltun og góðri verkun á
þessari vöru. Honum var líka
umhugað um að síldarmatsmenn
hefðu næga þekkingu á síldar-
verkun og síldarsöltun og taldi
það grundvöll þess, að þeir væru
starfi sínu vaxnir.
Síðustu árin gekk Leó Jóns-
son ekki heill til skógar, því
sjúkleiki þjáði hann. Hinsvegar
gekk hann trúr að starfi með
karlmennsku og æðruleysi, en
varð af þessum sökum oft að
leggja hart að sér.
Nú þegar þessi góði drengur
hefur kvatt okkur samferða-
mennina og lagt upp í sína
hinztu ferð, þá vil ég þakka hon-
um okkar góða samstarf og liðn-
ar stundir í blíðu og stríðu. Konu
hans og öðrum ástvinum votta
ég mína innilegustu samúð.
Biivélavirkjar
Óskum að ráða bifvélavirkja. — Upplýsingar hjá verkstjóra,
ekki í síma
Hemlaverkstæðið STILLING H.F.
Skeifan 11.
Hentugasta veggklæðningin á markaðnum, hvort sem er á
böð eða forstofur.
Þykktin er 2.5 mm. og hylur því vel sprungna og hrjúfa veggi.
Hljóð- og hitaeinangrarar. Mikið litaval.
í dug og n moigun frn kl. 14—18
Kynntir verðo ýmsir vinsælir ostnréltir
OSTfl- OG SMJÖRBÚÐIN
Snorrabraut 54.
HÆTTA Á NÆSTA LEITI eftir John Saunders og Alden McWilliams
ON THE CONTOAR?/, MR.RAVENÍ ^
I SHALL RETURN TO BEACH CITy
TO COMPLETE MY PLANS...PLANS
THAT WILL DOUBLft MV FORTUNE !!
KEEP OUT
~athos-“
OEVELOPMent CO.
Dásamlegt siglingaveður, herrar mín-
ir, við verðum brátt komnir út fyrir
þriggja mílna landhelgina. Og hvað
skeður þá Athos? (2. mynd) Ég er
hræddur um að þá verðum við að . . .
um að losa okkur við óæskilegt rusl.
Þér meinið okkur. Svo siglið þér ham-
ingjusamur inn í sólarlagið. (3. mynd).
Þvert á móti, herra Raven, svo sigli ég
aftur inn að Beaeh City og held áfram
með áætlanir mínar .... áætlanir sem
munu tvöfalda auðæfi mín.
Blessuð sé minning Leós Jóns-
sonar. .
Jón Þorkelsson.
í DAG er til moldar borinn Leó
Jónsson síidarmatsstjóri. Hann
var fæddur á Búrfelli í Hálsa-
sveit í Borgafirði, 17. nóvember
1904, sonur Jóns Þórðarsonar
bónda þar og Hólmfríðar Björns
dóttur. Hann andaðist á Lands-
spítalanum 18. marz sl. eftir
stutta legu, en langvarandi van-
heilsu.
Leó dvaldist í föðurhúsum til
5 ára aldurs, en fluttist þá að
Holti í Stokkseyrarhreppi til
Jóns Jónssonar bónda þar og
konu hans, Ingibjargar Grímsdótt
ur, sem hann æ síðar leit á sem
foreldra sína og börn þeirra sem
sín systkipi. Hjá þeim dvaldist
hann til tvítugsaldurs og voru
miklir kærleikar með honum,
fósturforeldrunum og uppeldis-
bræðrunum, en þeir voru Ingi-
mundur Jónsson, síðar kaupmað-
ur í Keflavík og Sigurgrímur
Jónsson, síðari bóndi í Holti Enn
fremur átti Leó nokkur hálf-
systkini, og er mér kunnugt um,
að kært var þar í millum.
Um tvítugt fór Leó norður í
Mývatnssveit. Var hann þar í
vinnumennsku um tveggja ára
skeið, en stundaði nám í Lauga-
skóla á veturna.
Árið 1929, hinn 31. október,
kvænti.-t hann eftirlifandi konu
sinni, Unni Björnsdóttur frá
Keldunesi í Kelduhverfi, og eign
uðust þau einn son, Jón Leósson
netagerðarmann, en hann er
kvæntur Iðunni Elíasdóttur frá
Akranesi og eru þau búsett í
Grindavík. Þau eiga þrjú börn,
sem voru augasteinar afa síns.
Unnur og Leó hófu búskap á
Siglufirði, og vann hann þar við
síidarverkun hjá Ingvari heitn-
um Guðjónssyni og þeim bræðr-
um. Kynntist hann þá öllum störf
um við verkun síldar, sem upp
frá því varð starfsvettvangur lífs
hans. í fyrstu vann hann sem
eftirlitsmaður, en síðar sem verk
stjóri í þessari starfsgrein, en er
Síldarmat ríkisins var stofnað,
varð hann strax starfsmaður þess
og var það til æviloka. Forstöðu-
maður þess varð hann árið 1950,
er Magnús heitinn Vagnsson féll
frá, enda hafði hann orðið hald-
góða þekkingu og mikla reynslu
á þessu sviði.
Það vita allir, sem til þekkja,
að það er vandasamt og van-
þakklátt starf að hafa á hendi
yfirstjórn síldarmats, en Leó var
laginn við að stjórna mönnum
og eins við að ley^a úr ýmsum
vanda, sem óhjákvæmilega kem-
ur upp í svo umfangsmiklu og
ábyrgðarmiklu starfi. Það fór því
ekki hjá því, að hann eignaðist
marga kunningja og vini á þess-
um vettvangi. Annars munu störf
Leós heitins að þessum málum
verða rakin síðar af þeim, sem
betur þekkja til.
Ég, sem þessar línur rita, átti
því láni að fagna að kynnast
þeim hjónum á heimili þeirra ár-
ið 1950, en hafði að vísu nokkur
kynni af Leó áður. Síðasta ára-
tuginn breyttist starf; vettvangur
Leós nokkuð. Dvaidi hann lang-
dvölum sunnanlands og átti
heima í Reykjavík. Á þeim tíma
urðu kynni okkar allnáin, og
reyndust þau hjónin fjölskyldu
minni, foreldrum mínum og
systkinum og þeirra fjölskyld-
um, tryggir og góðir vinir. Rækt-
arsemi Leós heitins og tryggð
við foreldra mína var svo ein-
stök, að hún verður aldrei að
fullu þökkuð.
Unnur, kona Leós, var honum
mikil stoð og stytta í lífinu og
reyndist honum frábærlega vel í
veikindum hans. Fyrir mína
hönd, fjölskyldu minnar og ætt-
ingja, votta ég henni innilega
samúð, ennfremur Jóni syni
hans og fjölskyldu hans, en börn
Jóns og Iðunnar misstu mikið við
fráfall Leós, sem var sannur
mannvinur og einn úr hópi þeirr-
ar kynsióðar, sem hafði sam-
vizkusemina í sérstökum háveg-
um.
Tómas Þorvaldsson.