Morgunblaðið - 25.03.1969, Síða 21
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 25. MARZ 1999
21
SIEEÁJV HALLDÓnSSON
á slódum œskunnar
TRAUSTIVALSSOHI
MARY HOPKIN hefur loksins
ákveðið hvaða lög eiga að vera
á naestu tveggja laga plötu, en
ekki gat hún gert upp á milli
þeirra tveggja, sem bezt þóttu.
Þess vegna eru bá'ðar hliðar
nýju plötunnar jafngildar og
verða sennilega líka jafnvinsæl-
ar. Annað lagið er eftir Bítilinn
Paul og heitir „Goodbye". Hitt
lagið heitir „The Sparrow“ og
er samið af tveim lagasmiðum,
sem vinna hjá APPLE-fyrir-
tækinu. Heita þeir Gallagher og
Lyle.
Mary Hopkin hefur einnig
sent frá sér hæggenga hljóm-
plötu, sem ber heitið „Postcard".
Hefur sú plata hlotið góða dóma
gagnrýnenda. Þar er m.a. að
finna þrjú lög eftir Donovan og
ýmis gömul, vinsæl lög.
FLÓTTAMANNAHJÁLP Sam-
einuðu Þjóðanna hefur gefið út
nýja hæggenga hljómplötu,
„World Star Festival", til ágóða
fyrir starfsemi sína. Þeir lista-
menn, sem leika á plötunni eru:
Diana Ross and the Supremes,
Dionne Warwick, Ray Charles,
Herb Albert, Simon and Gar-
funkel, Tom Jones, Sonny and
Cher, The Bee Gees, Shirley
Bassey, Andy Williams, Julie
Andrews, Paul Mauriat, Sammy
Davis, Dusty Springfield, Frank
Sinatra og Barbra Streisand.
Flóttamannahjálpin hefur áð-
ur gefið út h'ljómplötur til styrkt
ar flóttamönnum og er sú þekkt-
asta þeirra án efa „AU Star
Festival“. Seldist hún í meira
en milljón eintökum urn allan
heim, og var miUjónasta eintak-
ið selt hér á landi.
EQUflLS VILJfl
HERVERND
UM þessar mundir eru the
Equals í ísrael á hljómleika-
ferðalagi, og munu þeir koma
fram í stórborgum eins og Haifa
og Tel Aviv, að ógleymdri Jerú-
salem, en þar eiga þeir að troða
upp í Arabaihverfinu. Sennilega
er þetta fyrsta hljómsveitin með
meðlimi af tveimur kynþáttum,
sem kemur til ísraels, og þess
vegna hafa Equals krafizt vernd
ar ísraelska hersins, þegar þeir
leika í Jerúsalem. En nú er ann-
að vandamál komið til sögunnar.
Leikhúsið í Jerúsalem, sem nota
átti undir hljómleikana, var
lagt í rúst í síðustu viku. Hafði
einhver óvinur Ísraelsríkis eða
þá Arabanna í hverfinu komi'ð
fyrir sprengju í leikhúsinu. Sú
skoðun hefur einnig komið
fram, að það hafi verið einhver
ákafur aðdáandi blues-tónlistar,
sem stóð fyrir sprengingunni, en
það virðist vera samnefnari
blues-a’ðdáenda, að þeir hata
Equals allra hljómsveita mest.
SMALL FACES
AÐ HAETTA?
SMALL FACES sendu nýlega
frá sér nýja tveggja laga plötu
með aðallaginu „Wham Bam
Thank You Man“. Daginn eftir
léku þeir svo í síðasta skipti op-
inberlega a'ð því, er talið er. Mik
il óvissa ríkir um framtíð hljóm-
sveitarinnar, en talið er', að
Steve Marriott, söngvari, gítar-
leikari og aðaldriffjöðrin, muni
stofna nýja hljómsveit með Pet-
er Frampton, fyrrverandi söngv-
ara, gítarleikara og aðaldrif-
fjöður hljómsveitarinnar Herd.
Hver verður söngvari, gítarleik-
ari og aðaldriffjöður þeirrar
hljómsveitar, vitum við ekki.
Og enn hættir Dave
MASON, CAPALDI, Wood og
Frog, hljómsveitin, sem tók við
af hljómsveitinni Traffic, hefur
hætt. Dave Mason, gítarleikari
og söngvari, er hættur og
hyggst fara til Ameríku. Hann
vakti á sínum tíma mikla at-
hygli fyrir að hætta í Traffic
og byrja síðan aftur, aðeins til
að hætta í annað sinn.
Talsmaður Island-hljómplötu-
fyrirtækisins sagði um þessa nýj
ust.u ákvörðun Masons:
„Dave vill ekki vera í hljóm-
sveit vegna þess, að hann þarf
að sjá um allan sönginn, en Dave
vill aðeins vera frjáls til að
semja lög og leika inn á plötur
í Ameríku“.
Hinir fyrrverandi félagar
hans hafa ekki látið uppi nein-
ar fyrirætlanir enn, seim komið
er. En af Stevie Winwood, sem
áður var aðalmaður Traffic, er
það að frétta, að hann er að
hefja plötuupptökur ásamt Er-
ic Clapton og Ginger Baker og
jafnframt er þess vænzt að þessi
stórhljómsveit komi fram á hljóm
'leikum í Royal Albert Hall í
London í sumar.
BOOM BANG-A-BANG
NÚ HAFA BREZKIR sjónvarps-
áhorfendur valið lagið, sem söng
konan Lulu á að syngja fyrir
hönd Breta í hinni árlegu dæg-
urlagakeppni evrópskra sjón-
varpsstöðva, Eurovision-keppn-
inni. Heitir lagið „Boom Bang-a
-Bang“. Telja má, að brezkir
sjónvarpsáhorfendur hafi þar
með einnig kosið næsta topplag
í Bretlandi, Danmörku, Noregi
Spáni og Hollandi og að ó-
gleymdu íslandi, ef miða má við
reynslu síðustu ára. Fyrir tveim
árum völdu þeir lagið „Puppet
On A String“ og í fyrra lagið
„Congratulations", og allir muna
hvílíkar vinsældir þessi lög
hlutu hér á landi, sem og ann-
ars staðar. Þess má einnig geta,
að „Puppet On A String" sigr-
aði í Eurovisior keppninni fyr-
ir tveimur árum og „Congratu-
lations“ komst í annað sæti í
fyrra, og höfundar þessara laga
voru þeir sömu.
Lulu má því teljast örugg um
að auka enn vinsældir sínar um
állan heim. Hún hefur að und-
anförnu staðið í ströngu við
gerð sjónvarpsþátta, en gaf sér
þó tíma einn daginn til að ganga
IBÍTLARNR munu ekki taka
) tilboði upp á fjórar milljón-
I ir dollara fyrir að leika á
, fjórum hljómleikum í Amer-
! íku á sumri komanda. Blaða
j fulltrúi þeirra, Derek Tay-
i lor, skýrði frá þessu í síð
ustu viku.
Það var ameríski fjármála
| maðurinn Sid Bernstein, sem
: bauð þeim þessa upphæð fyr
i ir það að troða upp á hljóm-
’ leikum í New York, Los Ang
* eles, Chicago og Miami. Bern
i stein var maðurinn, sem stóð
fyrir hljómleikum Bítlanna í
I Shea Stadium, New York,
I ágúst 1965. Laun Bítlanna fyr
j ir 35 mínútna tónlistarflutn-
ing voru 160 þús. dollar-1
' ar eða um 14 milljónir ísl.
króna, og er það algjört met.
Áhorfendur í það skiptið voru
um 56 þús.
1 Bítlarnir eru, að sögn Tay
| lors, enn þá önnum kafnir við
j upptöku á væntanlegri, hæg-
, gengri plötu og undirbúning
’ sjónvarpsþáitar.
í það heilaga ásamt söngvaran-
um Maurice Gibb.
Þátttaka í kosningunum
um keppnislagið var að þessu
sinni með dræmara móti. Aðeins
125 þús. manns greiddu at-
kvæði um lögin sex, sem voru I
úrslitakeppninni, en í fyrra fékk
topplagið eitt 173 þús. atkvæðL
Petta er hljómsveitin GEISLAR, sem nýlega lék inn á sína fyrstu hljóm-
plötu á vegum S.G. hljómplatna. Parna er um að ræða fjögur lög, þrjá ía-
lenzk og eitt erlent. Islenzku lögin eru öll eftir meðlimi hljómsveitar^-
innar, en það erlenda varð vinsælt i flutningi amerískrar hljómsveitar,
the Box Tops, og hét £að þá ''Choo Choo Train", en hefur núna vafalaust
fengið íslenzkt nafn og texta. (Ljósm. Kr. Ben.)