Morgunblaðið - 25.03.1969, Qupperneq 28
AUGLYSINGAR
SÍMI SS*4*8Q
ÞRIÐJUDAGUR 25. MARZ 1969
Fylltistafvatnioggufu
MIKIÐ TJÓN Á LÆKNIS-
BÚSTAÐNUM Á REYKHÓLUM
Miðhúsuim, Reykhólasveit
24. marz.
ÞAÐ var ófögur aðkoma í lækn-
isbústaðnum á Reykhólum er
Jóhann Guffmundsson lækna-
nemi, sem hingaff kemur viku-
lega tii læknisstarfa kom vest-
ur sl. föstudag. 1 kjallara !húss-
ins var 60—70 sm djúpt vatn,
um 40 gráffu heitt, og í öllu hús-
inu var eins og í gufubaffi.
Hafði heitavatnsleiðsla sprung-
ið, sennilega fljótlega eftir að
læknaneminn var hér síðast
fyrir um 10 dögum.
í kjallara hússins eru lækna-
stofur og apótek og munu lyf
fyrir 20—30 þúsund krónur hafa
skemmzt. Skrifborð og innrétt-
ingar læknastofunnar eru ónýt
og var óttazt að röntgentækin,
sem eru fullkomin og mjög dýr
hefðu skemmzt, en við fljótlega
athugun virðist ekki svo vera.
Mikil hætta er á að einangrunin
sé ónýt, a.m.k. í kj allaranum.
Einangrunin er tex á trégrind
og er hætt við að hún verpi sig
er hún þornar. Málning er ónýt
í öllu húsinu vegna guifu. Er
ljóst að hér hefur orðið mikið
tjón og verður viðgerð kostnað-
arsöm. Tvo síðustu dagana hefur
verið unnið að því að þurrka
húsið og í dag komu hingað
tveir menn frá landlæknis-
embættinu til þess að kanna
skemmdir. — Sv. G.
Kastaöist
tólf metra
ÖKUMAÐUR mótorhjóls kastað
ist tólf metra eftir harðan á-
rekstur við bíl á mótum Hverf-
isgötu og Barónsstígs í gær. Hann
meiddist á fótum en hjáimur,
sem hann var með, er talinn hafa
forðaff honum frá enn frekari
meiðslum.
Mótorhjólsmaðurinn, sem heit-
ir Örn Karlsson, 25 ára, til heim
Framhald á bls. 27
Þessa dagana er verið að leggja síðustu hönd á innréttingu SKAUTAHALLARINNAR, en hún
verffur opnuð n.k. laugardag. í Skautahöllinni, sem er til húsa í Iðngörðum, verffur 1400 fer-
metra skautasvell með aðstöðu til ísknattleiks. Þessa mynd tók Ól. K. M. í gær er verið var
að leggja plaströr frá Reykjalundi í gólfið, en um þær mun frystivökvinn renna og frysta
v^-.iið, sem sprautað verður yfirrörin.
Heildoiloðnunfli
Sandgerði, 24. marz
UM helgina bárust á land 466
lestir af bolfiski, og var það að-
allega þorskur, en nokkuö af
ufsa. Fékkst þessi afli í 84 sjó-
ferðum. Hæsti línubáturinn var
Jón Gunnlaugsson með 9,2 lestir
á laugardag. Hæsti netabáturinn
á laugardag var Þorsteinn Gísla-
son með 17,2 lestir en á sunnu-
dag var Andri hæstur netabáta
með 18,6 lestir.
Engin loðna barst á land um
helgina þar sem bátarnir eru all-
ir komnir austurfyrir. Landaði
Jón Garðar t.d. um 270 lestum
af loðnu á Norðfirði á laugardag.
Alls hafa borizt hér á land á
vertíðinni 6500 lestir af loðnu.
Páll Ó.
Horfur á að framkvœmdum við Búrfell og Straumsvík verði hraðað:
Búrfellsvirkjun og álverið starfandi með
fullum afköstum árið 1972
— í stað 7975 eins og áður var ráðgert — Ríkisstjórnin óskar
heimildar til að ábyrgjast lántöku vegna framkvœmdanna
ALLAR horfur eru nú á, að
álverið í Straumsvík verði
komið í fulla stærð með 60
þúsund tonna afköstum á ár-
inu 1972 og jafnframt að
Ungir ávísanafalsarar
TVEIR piltar, 13 og 14 ára, hafa
viffurkennt aff hafa stoliff ávís-
anahefti og falsaff og selt úr því
nokkrar ávísanir.
Piltarnir brutust inn hjá fyrir-
tæki einu í fyrrahaust og stálu
þá m.a. ávísanahefti með nokkr-
um eyðublöðum í og sagði for-
stjóri fyrirtækisins eftir innbrot-
ið, að ávísanaheftið hefði ekki ver
ið notað í 14 ár.
Fljótlega eftir innbrotið kom
fram ein fölsuð ávísun úr þessu
hefti, að upphæð 300 krónur, en
síðan ekki meir fyrr en nú í marz
Framhald á bls. 27
framkvæmdum verði hraðað
við Búrfellsvirkjun þannig
að lokið verði við seinni
áfanga virkjunarinnar á ár-
inu 1972.
Þessar upplýsingar koma
fram í greinargerð stjórnar-
frv., sem lagt var fram á Al-
þingi í gær og gerir ráð fyrir
að ríkisstjórninni sé heimilt
að ábyrgjast lántöku Lands-
virkjunar vegna Búrfells-
framkvæmdanna að fjárhæð
allt að 35,5 milljónir dala. Er
hér um að ræða hækkun á
heimild sem fyrir er í lögum
vegna þess að nú er ætlunin
að hraða framkvæmdum við
Búrfell.
Frv. þetta kemur væntan-
lega til umræðu á Alþingi í
dag og má þá gera ráð fyrir
að fram komi upplýsingar um
það m.a. hve mikil atvinna
skapast við að þessum fram-
kvæmdum er flýtt.
í samningunum um álverið
var gert ráð fyrir að álbræðslan
yrði reist í þremu<r áföngum.
Skyldi hinn fyrsti þeirra verða
tilbúinn í ár og verða árleg af-
köst álversins þá 30 þúsund,
öðrum áfanga átti að ljúka eigi
síðar en 1972 og árleg afköst þá
að verða 45 þúsund tonn og síð-
asta áfanga átti að vera lokið
„Algjörlega magnþrota þegar í land kom“
Tveir brœður syntu 250 m í land, þegar
bát þeirra hvolfdi út af Laugarnesi
LITLUM álbát hvolfdi sl.
sunnudag meff tveimur bræffr
nm innanborffs í Sundunum
— um 200—250 metra út af
aðalafgreiffslu Olíufélagsins í
Laugarneai. Svo heppilega
vildi til aff björgunarbelti
voru í bátnum, og tókst pilt-
unum að koma þeim á sig og
synda í land. Voru þeir mjög
þrekaffir, þegar þeir náðu
landi, en öðrum tókst þó að
komast í hús og sækja hjálp.
Lögreglan kom á vettvang,
og var piltunum ekiff í Slysa-
varðstofuna, þar sem þeir
jöfnuðu sig fljótlega.
Bræðurnir heita Pétur og
Einar Maack — 19 og 17 ára
— synir Viggós Maack, skipa-
verkfræðings hjá Eimskip.
Við náðum tali af þeim eldri,
Pétri Maack, og fengum hann
til að segja okkur frá þess-
um atburði.
— Við vorum þarna á litl-
um álbát með sléttum botni,
sem pabbi á, sagði Pétur, —
og skiptumst við um að róa
honum. Svo var það, að ég
stóð upp til að skipta við
bróður minn, en mér skrik-
aði fótur út á aðra hlið báts-
ins. Við það hallaðist hann
svo, að sjór rann inn í hann,
og honum hvolfdi.
— Björgunarbelti voru í
bátnum og ’flutu þau strax
upp. Okkur tókst að ná í
þau, og æluðum síðari að
reyna að rétta bátinn við, en
það reyndist vonlaust. Þá
var ekki um annað að ræða
en synda í land, en þangað
voru um 200—250 metrar.
— Okkur tókst það, en við
tókum þó ekki land á sama
Framhald á bls. 11
eigi síðar en 1975 og afköst ál-
versins þá að vera 60 þúsund
tonn.
Á sl. hausti fór Jóhann Haf-
stein, iðnaðarmálaráðherra til
viðræðna við forráðamenn
svissneska álfélagsins um mögu-
lei'ka á því að hraða framr
kvæmdum við uppbyggingu ál-
versins í Straumsvík og var af-
staða Svisslendinganna jákvæð.
Framhald á bls. 27
Með 100 tonn
í netin
Norðfirði, 24. marz
BOLFISKVEIÐI er nú tekin
mjög að glæðast hjá bátunum
hér Austanlands. f gær kom
Sveinn Sveinbjörnsson hing-
að með 100 tonn í net eftir
5-6 daga útiveru. Var helming
-r aflans þorskur en hitt
ufsi. f dag kom svo Barði með
40 tonn af þorski úr tveimur
lögnum, og von er á Bjarti í
nó.t með 30 tonn, mest þorsk.
Er því mjög að lifna yfir
I atvinnulífinu hér, þar sem nú
er einnig farin að berast hing
að loðna af Lónsbugt.
Ásgeir.
Lestoði síldor-
lýsi ú Raufnrhöfn
Raufarhöfn, 24. marz.
HAFÖRNINN lestaði í gær
til útflutnings 2500 tonn af
síldarlýsi, sem voru eftirstöðvar
af síldaxframleiðslu Síldarverk-
smiðju ríkisins hér á Raufar-
höfn frá árinu 1967 og 1908. —
Skipið fór héðan til Siglufjarð-
ar og tekur þar fullfermi.
— Ólafur.