Morgunblaðið - 30.03.1969, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 30.03.1969, Blaðsíða 14
14 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 30. MARZ 1960 VIOBÚNAÐUR Það var vissulega ekki af ástæðu- lausu sem lögreglan í Reykjavík hafði í frammi nokkurn viðbúnað er áður- nefnd þingsályktunartillaga kom til um- ræðu á Alþingi. Kommúnistar sem far- ið höfðu hamförum næstu daga á und- an, höfðu í málgagni sínu, Þjóðvi’ljan- um, beinlínis gefið í skyn að störf Al- þingis mundu verða hindruð með of- beldi. Stóryrðum og áróðri beittu þeir til hins ýtrasta. Gera átti upp við þá sem samþykkir voru inngöngu íslands í Atl- antshafsbandalagið, jafnskjótt og Rúss ar næðu yfirráðum í heiminum. Komm- únistar vissu sem var, að þeir voru í algerum minni hluta innan Alþingis, og þeir voru ekki aldeilis á þeim buxun- um að beygja sig undir hann, — hafa sennilega líka talið mátt sinn ærinn, þar sem bak við þá stæðu 800 mil'ljón- ir manna allt frá Berlín til Kyrrahafs, eins og Brynjólfur Bjarnason orðaði það í útvarpsumræðum. Lögreglan í Reykjavík var ekki fjöl- menn á þessum árum, og óvön að fást við meiri háttar skærur, eins og við mátti búast, ef kommúnistar gerðu al- vöru úr hótunum sínum. Því var kallað til nokkurt varalið, ungra manna, sem átti að vera til taks ef til alvarlegra átaka kæmi, auk þess sem lögreglu- þjónar mættu til gæzlustarfa sinna, bet- ur útbúnir en dags daglega, þ.e höfðu hjálma á höfðum og kylfur. Greinilegt var að kommúnistar voru búnir að reikna út hvernig lögreglan mundi mæta árás þeirra, þar sem 29. marz, daginn fyrir aðalóeirðirnar, mátti lesa á forsíðu Þjóðviljans, eftirfarandi rammagrein: ,,Þar sem fyrirsjáanlegt er, að lögreglan og hvítaliðasveiti fasista ætla að beita gasárásum á friðsamleg mótmæ'li Reykvískrar alþýðu skal hér vakin athygli á því að gasárás er auð- velt að verjast með því að bregða rök- um vasaklút fyrir vit sér — sérstak- lega augun — þá stund sem gasið helst í loftinu. LÖGREGLUVÖRÐUR VIÐ ÞINGHUSIÐ Þegar tillagan kom til umræðu á Al- þingi árdégis 29. marz stóðu nokkrir lög regluþjónar vörð við þinghúsið, auk þess sem þeir gættu þess að ekki yrðu troðningar á þingpöllum og að þangað færu þeir einir, er hefðu áðurgreind aðgönguspjöld. Hinn almenni borgari, sem ekki renndi grun í að kommúnist- ar mundu gera alvöru úr hótunum ■'n- um, kom spánskt fyrir sjónir að sjá lögregluvörð við þinghúsið, og margir lögðu því leið sína um Austurvöll fyr- ir forvitnis sakir. GRJÓTKASTIÐ HEFST En það var ekki langt að bíða að til tíðinda drægi og hinir fáu lögreglu- menn fengju verkefni. Degi var tekið að halla og enn stóðu harðvítugar um- ræður í þingsölum. Allstór hópur manna var samankominn á Austurvelli og þar ræddu menn við kunningja sína og nutu góða veðursins, sem var kær- komið eftir kalda og umhleypingasama tíði. En í hópnum leyndust nokkrir menn sem voru komnir niður á Austur- völl í allt annan en frfðsömum erinda- gjörðum. Þeir höfðu ákveðið að gera lokaæfingu fyrir þau átök sem þeir áttu von á daginn eftir — þreyfa fyrir sér og sjá hversu langt þeim mundi verða óhætt að ganga. Beðið var myrkursins, en strax og skjól þess naut við fór að heyrast brot- hljóð í rúðum. Það hafði gerzt, sem fæstum hafði dottið í hug. Alþingi ís- lendinga var orðið að skotspæni þeirra manna sem ekki vildu sætta sig við að lýðræðið fengi að njóta sín. Til lítilla átaka kom þó að þessu sinni. Kommún- istar fengu vissu sína fyrir því að rúð- urnar í Alþingishúsinu gátu brotnað eins og annað gler, og það var þeim nóg að sinni, enda var umræðu einnig lokið í þingsölum. En það eru fleiri hús við Austurvöll en Alþingishúsið. Við hann vestanverðan stendur Sjálfstæðishúsið, og að unnum afrekum við Alþingishús- ið um kvöldið héidu grjótkasts mennirn- ir þangað og tóku til við þar sem frá var horfið. Voru flestar rúðurnar í framh'lið Sjálfstæðishússins brotnar. FUNDARBOf) 30. marz rann upp. Bjartur og fagur dagur, sem mun þó verða skráður ísögu landsins sem dimmur dagur — dagur- inn sem kommúnistar köstuðu grímu sinni, og reyndu með ofbeldi að hindra störf Alþingis. Um morgunin fengu borgarbúar Mynd þessi sem tekin er daginn eftir óeirðirnar sýnir Ijóslega hvernig kommúnistar rifu upp hraungrjótið sem lá meðfram gangstéttunum að styttu Jóns forseta. Þá má einnig sjá hvernig rúðurnar í Alþingishúsinu voru útleiknar. venjulega sendingu inn um bréfalúgur sínar. Þetta var Títill miði með eftirfar- andi áletrun. ÚTIFUNDUR við Miðbæjarskólann kl. 1 í dag. Full- trúaráð verkalýðsfélaganna í Reykja- skora á allan almenning í bænum að taka sér frí til að mæta á útifundinum í Lækjargötu (við Miðbæjarbarnaskól- ann) kl. 1 e.h. í dag. Fundurinn er boðaður af Fulltrúa- ráði verkalýðsfélaganna til þess að Reykvíkingum gefizt tækifæri til þess að krefjast þjóðaratkvæðagreiðslu um inngöngu íslands í hernaðarbandalag Norður-Atlantshafsríkja enn einu sinni áður en Alþingi hefir tekið fullnaðar- ákvörðun um málið. ANNAR FREGNMIðl Varla þarf að geta þess að fundar- boðendum þótti engin ástæða til að leita leyfis fyrir útifundi þessum, svo sem jafnan verður að gera fyrir slíkar samkomur. Skömmu síðar var öðrum fregnmiða dreift um bæinn, og var það gert í tii- efni af fyrrnefndu fundarboði. Var miði sá svohljóðandi: Reykvíkingar! Kommúnistar hafa án þess að leita leyfis boðað til útifundar í dag og skorað á menn að taka sér frí frá störfum. Við viljum því hér með skora á frið- sama borgara að koma niður á Austur- vö'll milli kl. 12 og 1, og síðar, til bess með því að sýna, að þeir vilji, að Al- þingi hafi starfsfrið. Undir fregnmiðann rituðu nöfn sín Öl- afur Thors, form. þingflokks Sjálfstæðis flokksins, Eysteinn Jónsson form. þing- flokks Framsóknarflokksins og Stecán Jóh. Stefánsson form. þingflokks Al- þýðuflokksins. Á vinnustöðum í borginni gegndu menn störfum sínum eins og ekkert hefði í skorizt fram að hádegi, en mik- ið var um það að menn bæðu um leyfi eftir hádegi, einkum eftir að fregnmiða stjórnarflokkanna hafði verið dreift og samhljóða tilkynning lesin í útvarp- inu. ÚTIFUNDURINN . Þegar klukkan tók að hálla í eitt, fóru nokkrir menn að safnast safan í Miðbæjarskólaportinu. Mátti þar fyrst og fremst kenna þá sem mest höfðu haft sig í frammi gegn aðild að banda- laginu og mun ekki nema lítill hluti fund- armanna hafa verið verkamenn, þótt til þessa fundar væri boðað í nafni þeirra samtaka. Þá komu líka nokkrir á fund- inn fyrir forvitni sakir, en snéru þaðan brátt aftur þegar þeir litu hjörðina. Fundurinn stóð ekki langan tíma. Les in var upp í flaustri tillaga sú sem vik- ið er að hér að framan, og var tillag- an auðvitað samþykkt „mótatkvæða- laust“ með viðeigandi orgum og látum. Eftir að það var fengið var ekki beðið boðanna heldur fundi slitið og forsvars- menn fundarins skálmuðu galvöskum skrefum í átt til Alþingishússins, og fast að baki þeirra fylgdu liðsmenn þeirra hinir vígalegustu ásýndum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.