Morgunblaðið - 30.03.1969, Blaðsíða 24
24
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 30. MARZ 1069
- ÚR VERINU
Framhald af bls. 3
hafa stóraukið bílasöluna, þegar
hinir mörgu dreifðu hluthafar
fóru að halda með „isínu“ félagi.
Hér er ekki hægt að tala um
neitt almenningshlutafélag í
í þeim skilningi, en næst því
kemst Eimskipafélagið. Forsenda
þess, að almenningur leggi fé i
atvinnufyrirtæki, er, að hér komi
kauphöll. Menn verða að geta
treyst því að geta fengið sann-
virði fyrir bréfin og geta selt þau
hvenær sem er.
Fyrir löngu er búið að lög-
leiða, að hér megi koma á fót
kauphöll, en það er engu líkara
en forráðamenn þjóðarinnar
bæði í stjórnmálum og fjármál-
um vilji ekki stofna kauphöll,
hver svo sem ástæðan er. Skyldu
þeir óttast, að fólkið færi með
féð úr bönkum og sparisjóðum?
Það væri mjög eðlilegt að opna
hér ýmis félög fyrir almenningi,
svo sem tryggingafélögin, olíufé-
lögin, skipafélög, svo að eitthvað
sé nefnt, og þá skrá hlutabréf
þessara félaga á kauphöll. Sjálf-
sagt mætti selja þar hlutabréf í
álfélaginu. Einnig mætti hugsa
sér, að mynduð væru stór útgerð-
arfélög eða fiskverkunarhlutafé-
lög. En það þyrftu vafalaust að
allar byggingavörur á einum stað
ÞILPLÖTUR
í miklu úrvali.
Spónaplötur 10—12—13—16—19—22 mm.
Hampplötur 10—12—16—18—20 mm.
Plasthúðaðar spónaplötur 13—16—19 mm.
Gabon 12—16—19—22 mm.
Harðtex — birkikrossviður.
Harðplast I úrvali.
Asbestplötur.
BYGGINGAVÖRUVERZLUN
KÓPAVOGS síivii4ioio
Einangrun
Góð plasteinangrun hefur hita-
leiðnistaðal 0,028 til 0,030
Kcal/mh. °C, sem er verulega
minni hitaie.ðni, en flest önn-
ur einangrunarefni hafa þar á
meðal glerull, auk þess sem
plasteinangrun tekur nálega eng-
an raka eða vatn í sig. Vatns-
drægni margra annarra einangr-
unarefna gerir þa i, ef svo ber
undir, að mjög lélegri einangrun.
Vér hö'um fyrstir allra, hér á
landi, framlaiðslu á einangrun
úr plasti (Polystyrene) og fram-
leiðum góða vöru með hagstæðu
verði.
REYPLAST H.F.
Ármúla 26 — sími "0978.
vera stór félög og uppfylla vissi
skiiyrði til þess að öðlast rétt til
sölu á hlutabréfum sínum á kaup
höll. T.d. um visst fjármagn,
tryggilega endurskoðun, birtingu
reikninga opinberlega o.s.frv. En
á kauphöllinni yrði að sjálfsögðu
einnig seld ríkistryggð skulda-
bréf, sem m.a. er töluvert af í
sambandi við byggingarfélög og
sveitarfélög.
Almenn þátttaka í atvinnulíf-
inu myndi stuðla að auknum
skilningi fólksins í landinu á mik
ilvægi þess, að staða þeirra, sem
fást við atvinnureksutr, sé fjár-
hagslega sterk. Hér verður alltaf
kotbúskapur, nema fyrirtækin
hafi rúm fjárráð til endurnýjun-
ar, hvort heldur véla eða skipa,
og þurfi ekki að stynja undir
mikilli vaxtabyrði o.s.frv.
KASSAR í FISKISKIP.
Það hefur vakið nokkra at-
hygli, að norskur skipstjóri hef-
ur komið hingað á vegum Asíu-
félagsins, sem einkum hefur selt
hingað fiskkassa til þess að
kenna mönnum í Sandgerði með-
ferð þeirra hjá Miðnes h.f. Það
er nú ekki alveg nýtt, að menn
kaupi kassa með það fyrir aug-
um að fá bátana til þess að ísa
fiskinn í kassa í stað stía. En það
hefur gengið illa. Ein stærsta
tilraun í þá átt var, þegar Hrað-
frystistöð Vestmannaeyja keypti
síðla sumars 1968 500 kassa, sem
tóku 70 lítra hver. Þó nokkrir
bátar fengust til þesis að fara
með þessa kassa, einkum undir
ýsuna. Mestan áhuga sýndi skip-
.-tjórinn á Eiliðaey, Gísli Sig-
marsson, á þessari nýjung.
I sumar komust síldarbátarnir
að raun um, að þeir fengu
kannske 50% ihærra verð fyrir
þá síld, sem þeir komu með í
kössum. Kassarnir, sem voru úr
tré, fylgdu með í kaupunum, þeg-
ar síldin var seld.
Nú hafa frystihúsin í Vest-
mannaeyjum ákveðið að fá
norska skipstjórann til Eyja, þeg-
ar hann hefur lokið starfi sínu í
Sandgerði, og búa út einn eða
tvo báta með fiskkössum.
Svo sem kunnugt er hafa Norð-
menn lengi flutt megnið af sín-
um fiski, einkum trollfiski, að
landi í kössum, og segir norski
skipstjórinn, sem hingað er kom-
inn og er að kenna mönnum
meðferð í fiskiskipum, að það sé
úrelt með öllu að nota stíur til
að geyma fisk í.
Fátt eða ekkert myndi betur
stuðla að aukinni vöruvöndun
og hærra fiskverði en ef tekin
væri almennt upp notkun kassa
um borð í fiskiskipunum.
STÓRREKSTUR
HAGKVÆMARI.
Niðurstöður Ross-samsteyp-
unnar brezku, sem hefur ein-
hverja stærstu matvæladreif-
ingu og útgerð í Bretlandi, eru
þær, að stórt nýtt togarafélag,
sem hin ýmsu togarafélög væru
sameinuð í, myndi gefa hag-
kvæmari rekstrarafkomu, og
vantar þó ekki, að þau togara-
félög, sem fyrir eru, séu nægi-
lega stór, með marga tugi tog-
ara hvert. Helzt vill Ross sam-
eina alla brezka togara í eitt fé-
lag.
Ross hefur undanfarið tapað á
togaraútgerð og kennir um lækk
andi verði á fiski samfara aukn-
um tilkostnaði.
Ross bætti við togaraflota
sinn, sem nú er 48 skip og 5
Nýt! fyrir húsbyggjendur frá
Þeir sem eru að byggja eða lagfæra eldri hús ættu
að kynna sér hína miklu kosti sem Somvyl-vegg-
klæðningin hefur. Klæðir vel hrjúfa og holótta veggi.
Hentar vel á böð, e'dhús, ganga og stigahús. Á lager
í mörgum litum.
CARRIDE-HJÓLSACABLOÐ
Höfum fyrirlíggjandi Carbide-hjólsagarblöð, 8"—, 10'
16". Sænsk gæðavara.
— 14"
R. GUDMUNDSSON S KVARAN HF.
ÁRMÍILA 14, REVKJAVÍK, SIMI 35722
TIL SÖLVT
Nýtt glæsilegt einbýlishús á góðom stað í borginni. Fagurt út- sýni. Skiptí kæmu til greina á góðri 5 herb. íbúð með bílskúr.
Málflutnings- og fasteignastofa. Agnar Gústafsson, hrl., Austurstræti 14. Símar 22870 — 21750.
HÆTTA Á NÆSTA LEITI eftir John Saunders og Alden McWilliams
Farðu varlega Troy, efri pípan er svo
heit að það má steikja beikon á henni. En
neðri pipan er köld Danny, þú hefur fund
ið dálitið sem við getum notað til að
stöðva snekkjuna. Þetta er kælikerfið
fyrir vélina. Þetta hlýtur að vera hita-
breytirinn. Þeir nota sjó il að kæla fersk-
vatnið í leiðslunum. 3. mynd) Heitt, kalt,
salt, ferskt? Vinur minn, ég hef engan
áhuga á að fá mér bað, ég vil bara losna
héðan. Þú færð ósk þína uppfyllta rétt
strax.
frystitogarar, aðeins einu skipi á
sl. ári.
ENGAR VORSÍLDVEIÐAR.
Neyðarástand ríkir nú hjá
norska flotanum* sem stundaði
fyrst síldveiðar, sem varð sára-
lítil og vorsíldveiðina, sem varð
blátt áfram engin. Ætla norskir
útgerðarmenn að halda landsráð-
stefnu um þessi mál 14.-19. apríl.
GÓÐUR AFLI. GOTT VERÐ.
Færeyska skipið Sólborg seldi
nýlega 7000 kassa af síld í .Hirts-
hals í Danmörku fyrir tæpar 4
milljónir króna.
SÖLTUNARVÉLAR.
Norski uppfinningamaðurinn
Harald Hovs er kunnur hér á
landi fyrir síldarblakkir sínar,
sem margir hafa tekið fram yfir
eldri gerðir.
Hann hefur nú fundið upp sölt
unarvél og fengið á henni einka-
leyfi. Er það sívalningur eins og
hreistrunarvél í frystihúsi, sem.
veltir síldinni upp úr salti og
kryddi, og við endann á honum
er hristari, víbrator, sem tunnan
stendur á og þjappar síldinni
saman. Tekur tunnan um 12-15
kg. meira á þennan hátt en hinn
venjulega.
Þá hefur Harald fundið upp
aðferð til þess að geyma síld í
50 kg. plastpokum í pækiltönk-
um í skipum. Pokarnir eru fyllt-
ir af pækli og loft dregið úr
þeim, og þekkist þessi aðferð við
humarframleiðslu í frystihúsun-
um. Pækilinn í lestinni er svo
hafður hæfilega sterkur, til þess
áð pokarnir fljóti í pæklinum og
ekki komi þrýstingur á þá. Hefur
hann einnig sótt um einkaleyfi á
þessari aðferð. Þetta er miklu
ódýrara en tunnufyrii komulag-
ið. Blöndunarsívalningurinn er
einnig notaður við að fylla pok-
ana. Það sparar einnig mjög mik-
ið rými í skipunum, þar sem að-
eins nokkur búnt af piastpokum
koma í stað allra tómtunnanna.
mm
ALL SET inniheldur lanólin
— en hvorki vatn né lakk.
ALL SET gerir hárid því lif-
andi, silklmjúkt og gljáandi.
KRISTJÁNSSON h.f.
Ingólfsstrœti 12
Simar: 12800 - 14878