Morgunblaðið - 30.03.1969, Blaðsíða 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 30. MARZ 1069
Guðrún Pétursdóttir
Kárastöðum -Minning
Er ég frétti lát minnar kæru
vinkonu og frænku Guðrúnar
Pétursdóttur, reikaði hugur minn
eins og hann raunar oft gerir,
til dvalar minnar í 8 sumur á
heimili þeirra sæmdarhjóna Guð
rúnar heitinnar og Alberts Jóns
t
Bróðir minn
Geir Jónsson
Hringbrr-.it 82,
andaðist 20. marz í Land-
spítalanum. Jarðarförin hefur
farið fram í kyrrþey eftir ósk
hins látna. Þökkum auðsýnda
samúð og vinarhug.
Fyrir hönd systkina.
Viktoría Jónsdóttir.
t
Bróðir minn
Sumarliði Kr. Andrésson
vatnsafgreiðslumaður
verður jarðsunginn frá Frí-
kirkjunni í Hafnarfirði mánu-
daginn 31. mara kl. 2.00 e.h.
Þeim sem vildu minnast hans
skal bent á líknarstofnanir.
Kristján Andrésson.
t
Útför eiginmanns míns og
föður okkar
Kristjáns Gunnarssonar
skipstjóra,
Miðbraut 6, Seltjarnarnesi,
fer fram frá Fossvogskirkju
mánudaginn 31. marz kl. 10.30
f.h. Blóm afþökkuð.
Emma Guðmundsdóttir
og börn.
t
Eiginmaður minn
Gunnar Árnason
frá Þverárdal,
sem andaðist á Akureyrar-
spítala 22. marz, verður jarð-
sunginn frá Akureyrarkirkju
miðvikudaginn 2. apríl kl.
13.30. Þeim sem vildu minnast
hans er bent á Akureyrar-
spítala.
Fyrir mína hönd og barnanna.
tsgerður Pálsdóttir.
t
Minningarathöfn um móður
okkar, tengdamóður og ömmu
Ástríði Jónínu
Eggertsdóttur
frá Haukadal í Dýrafirði,
fer fram frá Fossvogskirkju
þriðjudaginn 1. apríl kl. 13.30.
Jarðað verður frá Þingeyrar-
kirkju laugardaginn 5. apríl
kl. 14.00.
Börn, tengdabörn og
barnabörn.
sonar, sem þá bjuggu að Öl-
valdsstöðum, Borgarhreppi, Mýra
sýslu.
Útför hennar fór fram í gær.
Minningarnar, sem ég geymi
frá þeim æskusumrum í fagurri
sveit, eru og verða mér dýr-
mætar.
Þessi eljusömu og glaðlyndu
hjón kunnu svo gott lag á börn-
um og unglingum, að allir sem
hjá þeim dvöldu vildu þar áfram
vera eins lengi og þess var
kostur.
Guðrún Pétursdóttir fæddist
19. sept. 1895, á Tjörn í Nesjum,
Vindhælishreppi, Húnavatns-
sýslu. Foreldrar hennar voru
Pétur Björnsson, bóndi þar, og
kona hans Guðrún Guðmunds-
dóttir. Þau áttu 12 börn, 8 dæt-
ur og .4 syni. Af þeim eru nú á
lífi, Sigurlaug og Kristín á Ak-
ureyri, Halldóra ög Guðmundur
á Skagaströnd, Soffía húsfreyja
á Holtastöðum í Langadal, Jón
inna í Reykjávík og Pétur í Kópa
vogi.
Guðrún’ var heimá á Tjörn til
fermingaraldurs, en þá fór hún
suður til Reykjavíkur og vistað-
t
Jarðarför
Bergþórs ívarssonar
frá Kirkjuhvammi,
Bollagötu 12,
fer fram mánudaginn 31.
marz frá Fossvogskapellu kl.
3. Blóm afþökkuð, en þeim
sem vildu minnast hins látna
er bent á líknarstofnanir.
Guðríður Helgadóttir,
Jóhannes Haldórsson.
t
Eiginmaður minn, faðir,
tengdafaðir og afi
Guomundur Magnússon
Önundarholti,
verður jarðsunginn frá Vill-
ingaholtskirkju þriðjudaginn
1. apríi kl. 2. Kveðjuathöfn
fer fram frá Fossvogskirkju
mánudaginn 31. marz kl. 1.30.
Kristín Björnsdóttir
og aðrir vandamenn.
t
Jarðarför föður okkar og
tengdaföður
Guðlaugs Jónssonar
Reykjahlíð 14,
fer fram frá Fossvogskirkju 1.
apríl kl. 10.30 f.h.. Þeim sem
vildu minnast hins látna er
bent á líknarstofnanir.
Jóna Guðlaugsdóttir,
Jón Stefánsson,
Guðrún Guðmundsdóttir,
Ragnar Guðlaugsson,
Guðlaug Guðlaugsdóttir,
Gunnar Vilhjálmsson.
t
Innilegar þakkir fyrir auð-
sýnda samúð og hlýhug vi’ð
andlát og útför
Baldurs Teitssonar
húsasmiðs.
Fyrir hönd vandamanna.
Ásdís Elísabet Petersen,
ist þar og víðar, eins og títt var
um ungar stúlkur í þá daga.
29. ágúst 1920 réðst Guðrún
ráðskona til Alberts Jónssonar,
sem þá bjó með foreldrum sín-
um Jóni Guðmundssyni og Odd-
fríði Jónsdóttur að Ölvaldsstöð-
um, og 1926 gengu þau Guðrún
og Albert í. hjónaband. Þau eign
uðust 2 syni Pétur, sem ætíð hef
ur búið með foreldrum sínum og
annan dreng síðar, sem dó í fæð
ingu. Áður hafði Guðrún eign-
ast son, Gunnar Svanhóím, sem
ólst upp hjá þeim hjónum. Hann
er kvæntur Rósu Kolbeinsdóttur
og eru þau búsett í Reykjavík.
Guðrún og Albert áttu_ einnig
tvær fósturdætur, Gyðu systur-
dóttur Guðrúnar og Soffíu,
frænku Alberts. Þær eru nú báð
ar giftar og býr önnur í Vest-
marmaeyjum en hin í Borgarnesi.
Ótalin eru þau mörgu börn,
bæði skyld og óskyld, sem um
lengri eða skemmri tíma dvöldu
hjá þeim hjónum og eiga þaðan,
eins og sú sem þetta ritar ó-
gleymanlegar endurminningar.
Oft var margt í heimili að Öl-
valdsstöðum á sumrin, bæði
kaupafólk og krakkar til snún-
inga. í þá daga voru störf hús-
freyju í sveit margbrotnari og
t
Þökkum innilega sýnda samúð
við andlát og jarðarför
Sigurlínar Sigtryggsdóttur
Sigríður, Emilía, María,
Petrea Sigtryggsdætur.
t
Þökkum af hjarta aúðsýnda
sámúð við andlát bg jarðar-
för mannsins míns, föður
okkar, tengdaföður, afa og
langafa
Sumarliða Gíslasonar
Hverfisgötu 104 a
Bóthildur Jónsdóttir,
Lára Sumarliða Gaseh,
Gíslína Sumarliðadóttir,
Gunnar Sumarliðason,
Sigríður Sumarliðadóttir,
Unnur Sumarliðadóttir,
Hildur Sumarliðadóttir
Waterman,
Ingibjörg Sumarliðadóttir,
Gísli Sumarliðason,
Asgeir Sumarliðason,
Birgir Sumarliðason,
tengdabörn og bamabörn.
erfiðari en nú gerist. Þetta var
á kreppuárunum og víða þröngt
í búi. Aldrei var vinnuharka
á því heimi'li, en hjónin unnu
sjálf hörðum höndum. Þar ríkti
sönn vinnugleði.
Guðrún var greind kona, fríð
sýnum, glaðvær og ljúf í lund.
Hún var svo vel stillt, að ég
man hana aldrei hafa haft orð-
inu hærra, þrátt fyrir ærsl okk-
ar krakkanna á stundum. Hún
var stjórnsöm og dugleg til allra
verka, en þótt hún væri önnum
kafin, gaf hún sér ætíð tíma til
að tala við okkur og létta lund
okkar, ef eitthvað bjátaði á. Hún
var skilningsrík og hlý sem
bezta móðir.
Oft var gestkvæmt á heimili
Guðrúnar og Alberts. því að þar
var gott að koma og öllum tek-
Sumarliði Kristjánsson And-
résson, eins og hann hét fullu
nafni, var fæddur í Hafnarfirði
2. júlí 1913. Foreldrar hans, sem
bæði eru látin, voru Andrés verzl
unarmaður, síðar á Drangsnesi
og María Kristjánsdóttir, fædd
á Stokkseyri, sem var í fimmta
lið komin af hinni kunnu Bergs-
ætt í beinan kvenlegg (1. Þóra
Bergsd. hreppstj. i Brattsholti
Sturlaugssonar, 2.. Guðríður
Snorrad., 3. Guðrún Magnúsd.,
4. Þórdís Símonard., 5. María
Kristjánsd.).
Sumarliði óist upp í Hafnar-
firði og ól þar að mestu allan
sinn aldur. Á sínum yngri árum
tók hann mikinn þátt í félags-
stöirfum og gegndi þar ýmsum
trúnaðarstörfum, t.d. í stjórn-
málafélögum, í Verkamannafél.
Hlíf og víðar. Þá var hann um
skeið formaður Hestamannafél.
Sörla. Lengst af stundaði hann
bifreiðaakstur og kenndi einnig
fjölmörgum á bifreið. Hin síðari
ár var hann vatnsafgreiðslu-
maður hjá Hafnarf jarðarhöfn.
Eg ætla, að mesta ánægja í
lífi hans hafi verið samneyti við
skepnur og skepnuhald, enda
átti hann ætíð eftir að hann
komst til vits og ára, sauðfé og
hross og stundaði útreiðar
af mikilli ánægju, þegar hann
fékk því við komið.
Sumarliði var mikill að vall-
arsýn, þrekmaður og vel á sig
kominn líkamlega. Það má því
se'gja að hann hefði sómt sér vel,
hefði 'hann verið uppi ‘á þeim
tímum þegar hetjur riðu um hér
uð, þó óeirðarmaður væri hann
enginn. Hann var dagfarsprúð-
ur, bóngóður og mjög hjálpfús,
en gekk ekki eftir greiðslu fyrir
viðvik stór né smá, trygglynd-
ur og vinur vina sinna, en fast-
ur fyrir, ef því var að skipta,
og sagði hispurslaust meiningu
t
Öllum þeim mörgu fjær og
nær, sem auðsýndu’ okkur
samúð og innilega vináttu við
andlát og útför
Baldurs Tryggvasonar
framkvæmdastjóra,
vottum við okkar innilegasta
þakklæti. Sérstaklega viljum
við þakka starfsfélögum hans
og stjórn Dráttarvéla h.f.
ómetanlega hjálp, svo og
skójasystkinum hans, vinum
og fjarstöddum ættingjum.
Hjartanlegar þakkir til ykkar
allra.
Björg Agústsdóttir
og böm,
Dóróthea Halldórsdóttir,
Tryggvi Magnússon,
Brynja Tryggvadóttir,
Egill Sveinsson.
ið tveim höndum. Voru hjónin
samhent í því, sem öðru.
Árið 1944 fluttu þau Guðrún
og Albert að Borg á Mýrum
og bjuggu þar í tvö ár. Þá
keyptu þau jörðina Kárastaði og
hafa búið þar síðan.
Á seinni árum átti Guðrún við
mikið heilsuleysi að stríða söik-
um meinsemdar í baki, og sl.
sumar kenndi hún þess sjúkdóms
er varð henni að aldurtila 20.
marz sl.
Ég flyt feðgunum að Kára-
stöðum, Gunnari og fjölskyldu,
fósturdætrunum og þeirra fjöl-
skyldum, svo og systkinum Guð-
rúnar, innilegar samúðarkveðjur
Elsku Guðrún mín, ég kveð
þig með söknuði og hjartans
þökk fyrir liðnar stundir.
Rósa Gestsdóttir.
sína, hverjum sem í hlut átti og
fór þar ekki eftir mannvirðing-
um, nema síður væri. Það fór
ekki á milli mála hver skoðun
hans var á hlutunutn. . .
Sumarliði gekk undir maga
uppskurð í sjúkrahúsi Hvíta-
bandsins sl. sumar og gekk eigi
heill til skógar eftir það, þó svo
að hann gegndi störfum sínurri
fram eftir vetri, enda vissi hann
hvert stefndi. Þótt lífslöngunin
væri mikil, má enginn sköpum
renna. Harin lézt í St. Jóseps-
spítala í Hafnarfirði 22. þ.m. og
verður útför hans gerð frá Frí-
kirkjunni í Hafnarfirði n.k.
mánudag.
Ég veit að á þessum tímamót-
um vildi hann mega þakka öll-
um þeim er styrktu hann og létu
gott af sér leiða í hinum erfiðu
veikindum hans.
Við, sem eftir lifum, söknum
vinar í stað, en biðjum honum
allrar blessunar á æðri tilveru-
stigum og megi Guð, af sinni
miklu miskunn, leiða hann
styrkri hendi á ókomnum tímum.
Ég votta ættingjum og ástvin
um hans mína dýpstu samúð.
Sigurður Þórðarson.
Stærsta og útbreiddasta
dagbíaðið
Bezta auglýsingablaðið
Hjartans þakkir til ajlra vina
og vandamanna er minntust
mín á 75 ára afmæli mínu 21.
marz sl.
Guðrún Guðmundsdóttir
Hólmgarði 6.
Sumarliði Kr. Andrés-
son — Minning