Morgunblaðið - 01.04.1969, Qupperneq 4
, 4
MOKGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 1. APKÍL 1969
BfLALEIGANFALURH/i
car rental service <s
22-0-22-
rauðarArstIg 31
Hverf isfötu 103.
Simi eftir lokun 31160.
BIUI
lEIGfl
MAGNÚSAR
sKiPHom 21 sukar21190
eftirlokvnilmi 40381
0 Látið „Pollinn“
okkar í friði
G. Hallgríinsson á Akureyri.
ritar fyrsta bréfið í dag:
Það er stutt á milli válegra at-
burða hér á Akureyri bæði ai
Ináttúrunnair og mannavöldum.
Fyrir skömmu vann fellibylur
mikið tjón á eignum bæjarbúa,
og er það sannarlega mikið þakk
arefni, að ekki skyldu verða meiri
slys á mönnum. Slík tíðindi, sem
þessi, verðum við að sætta okkur
við. Við ráðum ekki yfir nátt-
úruöflunum, en reynum að læra
af reynslunni og verjast duttlung
um þeirra.
En svo eru það hin válegu tíð-
indi af mannavöldum, sem ekki
er hægt að sætta sig við. Slík tíð-
indi var birting framtiðarskipu-
lags hafnar við Akureyri. Ég hef
sjaldan komizt í eins mikið upp-
nám og þegar ég sá skipulag að
fyrirhuguðum framkvæmdum. í
stórum dráttum er um að ræða
stórkostleg spjöll á Pollinum og
útsýni frá honum, svo og eyðilegg
ingu strandlengjunnar við Strand
götu með byggingu stórra vöru
skemma á fallegiasta stað strand-
lengjunnar. Ég skora á alla sanna
Akureyriinga að skoða rækilega
framkomið skipulag og sjá hvort
ég hef ekki talsvert til mínsmáls
Þeir sem hafa haft yndi af því
að ganga niður Strandgötu, hafa
ekki komizt hjá þvi að taka eft-
ir hinu stórkostlega útsýni yfir
skógi vaxinn bæinn með Súlur-
nar og Hlíðarfjallið 1 baksýn.
Þennan stað vilja nokkrir bók-
lærðir tæknimenntaðir menn, að
Akureyringum fornspurðum, leggja
undir vafasaman hafnargarð og
stórar vöruskemmur, sem bæði
munu skyggja á útsýnið frá
þessum stað og einnig til lands
frá Pollinum. Á meðan bæir og
borgir viða um heim reyna að
varðveita sérkenni sín, eins og
t.d. Reykjavík Tjörnina (menn
vilja jafnvel ekki byggja við
hana ráðhús, þótt teiknað sé af
færustu akritektum) ættum við að
byggja stórar vöruskemmur og
bryggjur við Pollinn, sem ómót-
mælanlega mun gjörbreyta útliti
bæjarins til hins verra. Enn einu
sinni á að aka hundruðum bíl-
hlassa í Pollinn til að minnka
hann fyrir höfn, og jafnframt á
að réttlæta þessar aðgerðir með
LITLA
BÍLALEIGAN
Bergstaðastræti 13.
Sími 14970
sjónvarpsloftnet
Viljum selja nokkur dönsk aluminium-sjónvarpsloftnet
á hagstæðu verði.
GlSLI JÓNSSON & CO. H/F.,
Skúlagötu 26 — Sími 11740.
BÍLALEIGAN
AKBRAUT
Mjög hagstætt leigugjald.
SÍMI 8-23-47
því að ekki sé til landrými ann-
arsstaðar.
0 Sumir menn miða
allt við peninga
Okkur íslendinga hefur skort
allt annað en landrými svo að
fullyrðingar um hið gagnstæða er
þvættingur. Það eru næg svæði til
með firðinum fyrir höfn og víða
óvenju góð skilyrði frá náttúrunn-
ar hendi. Ætli sannleikurinnsé
ekki sá að umrætt skipulag hafi
verið samið í svo miklu flaustri
að mönnum, þótt vel menntuðum
séu, hafi bókstaflega sézt yfir
mörg veigamikil atriði þessa máls
Ég hef heyrt því fleygt, að samn-
ingu þessa skipulags hafi verið
hraðað svo mjög og keyrt í gegn
um bæjarstjórn með sliku offorsi
vegna þess, að ef samþykkt fyrir
nýju skipulagi væri fyrir héndi
mætti fá svo og svo margar millj-
ónir til að hefjast handa við
væntanlegar hatfnarframkvæmdir.
Það er reynt að réttlæta þessar
framkvæmdir með því, að það sé
svo ódýrt að byggja þama höfn.
Ég veit vel að sumir menn miða
allt við peninga og eru jafnvel
reiðubúnir að selja sál sina fyrir
þá. En við kaupum ekki náttúru-
fegurð né sanna lífsfhamingju fyr
ir peninga.Bærinn okkair er af
flestum talinn vera einn fegursti
bær á íslandi og þótt víðar væri
leitað, en þessu vilja ráðamenn
okkar fórna fyrir stundarhags-
muni. Það er enginn vafi á því,
að Akureyri á mikla framtíð sem
ferðamannabær og á Pollurinn eft
ir að hafa mikla þýðingu fyrir
allar sjóíþróttir, en þetta er hægt
að eyðileggja og virðist mark-
Visst að því unnið eins og nú horf-
ir. Ég Skora aftur á allaAkur-
eyringa að íhuga þessi mál gaum
gæfilega, því að mikið er í húfi
og ég vil benda á tillögu Jóns
Rögnvaldsson/ar sem skírskotar til
fegurðar og varðveizlu hinnar
gömlu Akureyrar. Ef við erum
nógu samsttEt I því að mót-
mæla hinni vanJhugsuðu samþykkt
meiri hluta bæjarstjórnar verður
hún að engu höfð. Það sem við
biðjum um er aðeins þetta, Pollinn
og okkar gömlu góðu Akureyri
við Strandgötuna i friði.
Með þökk fyrir birtinguna
G. Hallgrímsson.
0 Varðveita um aldur
og ævi
S.S. skrifar:
Ég hefi notið þess vel og marg
ir fleiri að sjá Borgarættina í
Nýja-bío, hina fyrstu kvikmynd,
sem tekin var á íslandi árið 1919
eftir söguGunnars Gunnarssonar.
Ég er viss um, að margir eru
þakklátir fyrir að fá að sjá
hana, máske í síðasta sinn? Það
má margt sjá á þessari mynd,
sem hefur sögulegt gildi fyrir
seinni tíma t.d. gömul bæjarhús I
sveit og útihús, aldamóta'kynslóð
ina í hversdagsklæðum t.d. ísl.
skó og skinnsokka (Gestur ein-
eygði) Það má lika sjá konur
ganga í kirkju allar i peysuföt-
um. Einnig má sjá ul’larlest og
heybandslest. Ég álít að varveita
þyrfti þessa mynd um aldur og
ævi ef unnt er. En hvaða aðiia
væri bezt að fela það? Sjónvarpi
— Þjóðminjasafni eða Listasafni
Ríkisins?
Þarna má líka sjá í aðaLhlut-
verki hinn fjölhæfa og hugljúfa
listamann okkar, Guðmund Thor
steinsson í blóma lífsins.
Væri ekki fengur í þvi fyrir
Listasafn Ríkisins að geta sýnit
þessa mynd á 100 ára afmæli fæð-
ingar hans árið 1991 (5. sept)?
Svo langax mig að varpa fram
spurningu.
Væri hægt að kvikmynda eftir
filmunni?
Geturekki einhver fróður mað
ur svarað þeirri spumingu í Vel
vakanda t.d. Ósvald Knudsen?
R.vík 25.3 ‘69 S.S.
BAHCO
■
VEGGVIFTUR
ÞAKVIFTUR
STOKKAVIFTUR
BLÁSARAR
HÁ- OG LÁGþRÝSTIR FYRIR
LOFT- OG EFNISFLUTNING.
Aliar stærðir og gerðir.
Leiðbeiningar og verkfræði-
þjónusta.
FONIX
FYRSTA
FLOKKS
FRÁ....
SÍMI 24-420 - SUOURG. 10 - RVÍK
Sýningarsalur
óskast um 1000 — 1500 ferm. í mánaðartíma frá 1. september.
Upplýsingar í símum 16980, 16541 til kl. 7 e.h. daglega út
þessa viku.
Vantar bdt
Óska eftir 8—12 tonna bát, þarf að vera í góðu lagi og gang-
góður, dekkaður með línuspili (sjálfdraga), óska eftir að borga
í prósentum af afla. eða leigja.
Báturinn verður gerður út frá Vestfjörðum
Tilboð sendist Mbl. fyrir 10. apríl merkt: „Vestfirðingur —
2748".
Til sölu
fallegur Saab
árgerð 1966.
Sýningarsalurinn Sveinn Egilsson.
Kaupum notaðar
ól-netobúlur og blý
Verzlun O. Ellingsen hf.
<§> KARNABÆR
TÍZKUVERZLUN UNGA FÓLKSINS TÝSGÖTU 1 — SÍMI 12330.
heiur sjuldun eðu oldrei verið
meiru úrvul sportfatnuður
ú boðstólum í búðum deildum
ÞAÐ
„FERDINANT ER GÓÐUR —
EN HANN VEIT EKKERT UM
TÍZKU OG POP.
VÉFRÉTTIN ER: EINHVER OFSA
ÞEKKTUR UMBOÐSMAÐUR
BlTLANA KEMUR ViST A
HLJÓMLEIKA KARNABÆJAR
15. APRlL.
HANN ER AÐ LEITA EFTIR . . .?
★
★
Dömudeild:
SÍÐBUXUR I MÖRGUM GERÐUM
OG LITUM — NÝTT.
MINI-PEYSUR I MIKLU ÚRVALI
— NÝ SENDING.
KJÓLAR — NÝ SENDING
KAPUR I ÚRVALI O. M. FL.
i
Herradeild:
★ SfÐBUXUR —TERYLENE & ULL
★ NÝJAR GERÐIR OG LITIR.
★ PEYSUR — NÝ SENDING.
★ STAKIR JAKKAR
★ KLÚTAR — SKYRTUR — BINDI.
O. M. FL.
NÝJAR VÖRUR TEKNAR UPP VIKULEG V,