Morgunblaðið - 01.04.1969, Blaðsíða 28
28
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 1. APRÍL 1969
er hér um bil alltaf léttlynt, því
hef ég oft tekið eftir.
Ég gekk léttstíg út úr bank-
aiium. Fór til Dawson, pantaði
kornið og tók dálítið af því með
mér. Svo keypti ég eitthvað
fleira til heimilisins, gekk síðan
að bílastæðinu og tók litla, ves-
ældarlega bílinn minn og
ók heimleiðis, í betra skapi en
ég hafði nokkurntíma verið í
síðasta hálfa mánuðinn. Ég gat
varla beðið eftir morgundegin-
um, þegar ég gæti afhent John
fjögur hundruð punda ávísun-
ina.
Ég drakk te þegar ég kom
heim. Við drukkum það í garð-
inum undir kastaníutrénu. Mark
sem var kominn úr skólanum,
NATHAN & OLSEN HF
hámaði í sig hverja brauðsneið-
ina af annarri, eins og hann
hefði ekki smakkað mat vikum
saman. Svo réðst hann að rús-
ínukökunni, sem ég hafði bak-
að um morguninn.
— Þú ert öndvegiskokkur Mel
issa, sagði hann um leið og hann
fékk sér þriðja stykkið. — Ég var
að synda í dag. Og það gefur
svei mér matarlyst.
Ég brosti vingjarnlega til hans
Ég var fegin, að Mark skyldi
alltaf hafa svona góða matar-
lýst. Ég hafði aldréi þurft að
hafa neinar áhyggjur af honum,
hvað það snerti. Ég minntist þess
ekki, að hann hefði nokkurn-
tíma verið lystarlaus. Jafnvel
þegar hann lá í mislingunum,
fyrir nokkrum mánuðum, hafði
hann borðað með beztu lyst.
Ég var rétt að ljúka við upp-
þvottinn í eldhúsinu, þegar ég
leit upp og sá, að Bob stóð í
dyrunum.
— A ég ekki að hjálpa þér,
Melissa?
— Nei, þakka þér fyrir Ég
er búin með þetta.
— Gekk þér vel í búðunum í
Rye í dag?
14
— Já, þakka þér fyrir. Ég
kom með þrjú pund af méii með
mér, og hitt kemur á morgun.
— Gott. Ég ætla að fara út
á fimm ekra akurinn og líta eft-
ir þessum kvígum. Þær voru eitt
hvað fjörugar þegar ég lét þær
þangað í morgun.
Ég setti síðasta bollaparið á
sinn stað í leirtauskápinn og
hengdi upp handklæðið. Ég leit
út í gluggann, sem var allur í
sólskini og nýútsprungnum blóm
um.
— Á ég að koma með þér
þangað, Bob?
Það glaðnaði yfir honum.
— Vitanlega vildi ég, að þú
gerðir það.
Við lögðum af stað saman. Ég
kallaði til Lucy, sem sat enn í
garðinum, sem við gengum gegn
um og svo til Marks, að gleyma
ekki lexíunum sínum.
— Nei, ég geri það ekki. Þú
þarft ekki að reka á eftir mér,
ég hef nógan tíma.
Ég leit á Bob, sem gekk við
hliðina á mér, og hugsaði, hvað
ég væri fegin, að við skýldum
Iðnfyrirtæki
Vil kaupa lítið iðnfyrirtæki, mjög
margt kæmi til greina. Einrng
hugsanlegt samstarf við dugleg-
an og áreiðanlegan mann, með
stofnun iðnfyrirtækis í huga.
Hef góða tæknimenntun og get
lagt til iðnaðarhúsnæði á góðum
stað. Skrifleg tilboð sendist af-
greiðslu Mbl. merkt „Iðnfyrir-
tæki — 2649".
Tökum að okkur
VEIZLUR
fermingarveizlur,
brúðkaupsveizlur
og veizlur við öll tækifæri.
Höfum 40 manna sal.
Kaldur og heitur matur.
Smurt brauð og snittur,
brauðtertur og kalt borð.
Sendum heim.
CAFÉTERIA
STRANDGATA 1 - HAFNARFIRÐI
SÍMI 51810- 52502
-----------v-------------
.JM.n
,\\lu dl’:
Þetta er einkennilegt
A J > I
•»'i Vi»»*
‘ ;,4ll »■..*, v * "• *
CðSPER
klárinn va rhér rétt í þessu!
vera orðin vinir afur. Því að það
virtumst við vera orðin. Enda
þótt ég vissi ekki, hvernig það
hafði .gengið til. Ég vissi bara
hitt, að í dag var hann orðinn
sami gamli Bob, sem hafði kysst
mig þarna um morguninn, en síð
an horfið mér sjónum, og annar
og ólíkur Bob komið í stað hans.
Og nú horfði hann á mig.Augu
okkar mættust. Hann brosti og
tók hönd mína, hélt fast í hana
sem snöggvast en sleppti henni
svo.
— Það er gaman að vera að
ganga með þér aftur, Melissa, og
enda þótt mig langaði til að segja
honum, að það fyndist mér líka,
þá kom ég ekki upp neinu orði.
Hugurinn var of fullur af alls-
konar hugsunum til þess. Léttir
minn yfir því að geta greitt það,
sem John átti hjá Nick, altók
mig. Og það Var mér líka léttir
að vita, að við Bob vorum orðin
góðir vinir aftur.
4.
Ég var að strauja úti í eld-
húsi eitthvað um klukkan sex dag
inn eftir, þegar síminn hringdi.
Kay, sem hafði sýnilega verið
að búast við hringingu, þaut út
úr setustofunni til að svara í
símann.
— Það er til þín, sagði hún.
— Það er hann John.
Ég hafði búizt við þessu. Shyl-
ock var kominn eftir ketpund-
inu sínu. Og mundi ekki búast
við að fá það. Hann skykli verða
heldur betur hissa, þegar ég
rétti honum ávísunina.
— Melissa? sagði hann þegar
ég svaraði. — Ég er kominn aft
ur. Mig langaði að vita, hvort
þú vildir koma og borða kvöld
verð með mér.
— Það get ég ekki John. Ég
hef í svo mörgu að snúast í
kvöld.
— Segðu honum, að ég skuli
fara í staðinn þinn, kallaði Kay
til mín.
— Ég get komið og tekið eitt
glas með þér, sagði ég og lét
sem ég heyrði ekki til Kay.
— Jæja, það er betra en ekki
neitt. En mig hefði langað að
bjóða þér að borðá.
— Já, en það er bara ekki
hægt. En ég skal skreppa snöggv
ast.
Ég rak höfuðið inn í setu-
stofuna, þar sem hin voru að
horfa á sjónvarpið, vegna þess,
að veðrið var drungalegt og þau
gátu ekki verið úti í garðinum.
— Ég ætla rétt að skreppa
til hans Johns. Ég verð ekki
lengi. .
Kay leit á mig, önug á svip-
inn. Ég tók eftir því, að hún
hafði verið í versta skapi síðan
Hrúturinn, 21. marz — 19. apríl
f dag hefst langur gangur upp brattann til meiri vegs og virðingar,
Hvert skref upp á við vísar þér á nýja möguleika.
Nautið, 20. apríl — 20. maí
Kómantíkin kemur fram I dagsljósið. Það kann að gera þér erfitt
fyrir í starfi, en það er þó betra, ef þú byrjar dálítið snemma dags.
Tvíburarnir, 21. maí — 20. júní
Þú getur fengið breytingar, ef þér er mjög umhugað um það. Þú
ert kannski ekki í takt við tímann, en það er þitt mál.
Krabbinn, 21. júní — 22. júlí
Næsta vika færir þér ríkulegan arð af erfiði þínu, en farðu samt
ekki fram á kauphækkun.
Ljónið, 23. júlí — 22. ágúst
Fjárfesting þín má aðeins vcra, þar sem þú ert öruggur um að
eiga fyrir henni. Gættu þess að eyða ekki annars staðar um efni fram.
Meyjan, 23. ágúst — 22. sept.
Þú ert snillingur í að fá aðra til að gera kaupin þér í hag.
Vogin, 23. sept. — 22. okt.
Haltu þig utan við erjur milli annarra, sem stafa af skyndilegum
breytingum á tilhögun.
Sporðdrekinn, 23. okt. — 21. nóv.
Ekki er öll nótt úti varðandi skyldur við vini og ættingja.
Bogmaðurinn, 22. nóv. — 21. des.
Forðastu f járfestingu. Sjá má möguleika á breyttum högum,
kannski verðlaun eða viðurkenningu.
Steingeitin, 22. des. — 19. jan.
Þegar þú sérS fyrtr endann á verkinu, færðu auklð sjálfstraust og
margfaldan kraft, sem fleytir þér áfram. Grendur samverkamaður þinn
eygir þetta einnig, og verður þér óvenju ljúft (ef þú byrjar á því í
dag).
Vatnsberinn, 20. jan. — 18. febr.
Eirðarlcysi er í samstarfsmönnum og mökum. Farðu hægt af stað
til að gcra þeim ljóst, hvert stefnir. Síðan blæs byrlegar fyrir þér.
Fiskarnir, 19. febr. — 20. marz
Þér finnst þú vera útundan, því að samverkamcnn og makar eru
önnum kafnir að láta ljós sitt skína. Láttu þá ekki ganga of langt, því
að það getur dregið dilk á eftir sér.