Morgunblaðið - 01.04.1969, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 01.04.1969, Blaðsíða 14
14 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 1. APRÍL 1969 Hvernig er umhorfs í ríki Ulbrichts? Eftir John Izbicki EF til vill er það vegna þess, að sonur minn er aðeins tæp lega 4 ára gamall, og ég er nú að sjá hugarheim hans þróast, að ég sýndi fræðslu- málakerfi Austur-Þýzka- lands sérstakan áhuga. Hvert sem ég fór á 3,000 km. ferð minni reyndi ég að heimsækja skóla og barnaskóla, sjá börnin læra að leika sér, og bera fjöl- skyldulífið bak við Múrinn saman við það, sem gerist í Bretlandi. Ég viðurkenni fúslega að mér þótti mikið til umbóta þeirra koma, sem A-Þjóðverjar eru að fram- kvæma í skóla- og háskóla- málum sínum — enda þótt ég væri undrandi og nær skelfingu lostinn yfir því, hve auðvelt er að hnoða barnsheilann eins og deig, svo hann falli að línum sós- íalismans. Á auðu svæði í A-Berlín, skammt frá Checkpoint Char- lie, horfði ég á börn að leik, og varð satt bezt að segja órótt. Tveir drengir, báðir um níu ára gamlir, h'öfðu bundið snæri milli trjáa, og voru um tveir metrar á milli þeirra. Sver trjá grein var síðan látin hallast upp að öðru trénu. Sex önnur börn, á aldrinum 5-9 ára, voru umhverfis, „vopnuð“ leik- fangabyssum rifflum og hand- vélbyssum. „Jæja strákar, þetta hérna er Múrinn“, sagði einn af eldri drengjunum og benti á snærið. „Og þetta (trjágreinin) eru landamærin. Allt í lagi?“ Leik- ur barnanna hófst. Tveir hinna smærri drengja léku Austur- Þjóðverja, sem voru að reyna að flýja til vesturs, hinir léku „Vopo“ (Volkspolizei — Al- þýðulögreglan). Litlu strákarn- ir hlupu ,,yfir“ snærið. Skamm byssum, rifflum og handvél- byssum var brugðið á loft. „Rat-tat-tat-tat tat....'..“ öskr uðu drengirnir og litlu dreng- irnir féllu, og létust deyja á hroðalega kvalafullan hátt. Stærri drengirnir drógu þá aft- ur „til baka“ yfir „landamær- in“ og sami leikurinn hófst enn á ný. Ég horfði á þetta skelfingu lostinn. Þetta var þá austur- þýzka útgáfan af kúreka og indíánaleikjum. Gamall mað- ur, sem stóð í nokkurri fjar- lægð, hafði einnig fylgzt með leiknum, og kom nú til drengj- anna. „Heyrið þið drengir mín- ir, stríð er ekki eins einfalt og þið haldið. Ég var í síðasta stríði. Það var hræðilegt, og mjög sársaukafullt. Dauðinn er hræðilegur. Þið ættuð ekki að leika ykkur á þennan hátt“. Drengirnir litu á 'hann undr- andi. „En þetta er bara leikur. Við skjótum þá bara í þykjust- unni. Þeir eru ekki raunveru- Lega dauðii“, útskýrði einn drengjanna í vingjarnlegurr tón. Svo virtist sem gamli mað- urinn ætlaði að segja eitthvað meira, en hann hætti við það, hristi höfuðið hryggur á svip, snerist á hæli og gekk burt. „Þetta er það, sem þeir læra í skólunum nú“, sagði hann við mig. „Hvað í ósköpunum getur maður sagt við þá? Ekkert mundi hafa hin minnstu áhrif“. „Verður að kenna stjórn- má!“. Ég sneri einnig baki við leiknum. Aðeins fáum dögum áður hafði ég rætt við prófess- or Herbert Becher, glaðlyndan forstjóra hins fagra og háa Haus des Lehrers (Kennara- húsið), sem gnæfir yfir Alex- andersplatz, en allt umhverfis torgið fer nú fram endurbygg- ing, og þar er hæst turn Ber- línar, Funkturm. Hann viður- kenndi af hreinskilni, að stjórn málalegt nám væri einn viða- mesti hlutur af lífi barna í DDR. „Það verður að kenna börn- um okkar stjórnmál", sagði hann við mig. „Látið mig skýra þetta nánar. Ekki alls fyrir löngu sá lítill drengur, sem var á göngu með smábarnaskóla- kennara sínum, tvær fallegar hænur í húsagarði einum. Fjaðr ir hænanna glitruðu í öllum regnbogans litum í sólskininu. Barnið sneri sér að kennara sínum, og sagði: — Þessar hæn- ur hljóta að hafa flogið hingað að Vestan. Er kennarinn spurði barnið, hversvegna það héldi þetta, var svarið: — Vegna þess hvað þær eru fallegar og glansandi. Þessa gömlu missögn og misskilning að allt, sem skín, hljóti óhjákvæmilega að koma úr vestri, verður alger- lega að uppræta. Við verðum að skýia fyrir börum okkar, að allur sá áróður, sem þau heyra og sjá í vestrænu útvarpi og sjónvarpi, sé falskur og að okk- ar leið sé hin eina rétta“. Opinberlega er enn ekki bannað að hlusta á „lygar“ úr vestri — og allir þeir, sem ég hitti að máli viðurkenndu að þeir horfðu á vestur-þýzka sjón varpið- vegna þess að það væri „miklu betra“ heldur en það, sem boðið er upp á á hinni einu sjónvarpsrás í Austur-Þýzka- landi. Maður einn í Potsdam sagði við mig. „Við látum ekki heyrait hátt í sjónvarpstækjun- um, og ef barið er að dyrum skiptum við í hasti yfir á A- þýzku stöðina". Prófessor Becher var þeirrar skoðunar að næsta kynslóð A- Þjóðverja, mundi ekki kæra sig um að hlusta og horfa á vestrænar stöðvar. Lagt er fyr- ir kennara, að það sé hluti af skyldum þeirra, að útskýra að fólk eigi aðeins að hlusta á a- þýzkt útvarp og horfa á a-þýzkt sjónvarp vegna þess að vestræn ar stöðvar flytji aðeins lygar og hlutdrægar fréttir. Hann neitaði því hinsvegar, að sá dagur kynni að koma, að börn- in kærðu foreldra sína fyrir að stilla tæki sin á vestrænar stöðvar, en viðurkenndi þó, að „ef til slíks kæmi“ mundi for- eldrunum ekki verða refsað, en hinsvegar kynni „einhver að heimsækja þau og reyna að út- skýra að okkar útvarp- og sjón varpsefni væri miklu betra, og þar væri aðeins sannleikurinn fluttur". „Tékkóslóvakía skýr8“. „Tékkóslóvakíu ,,málið“ væri .fyllilega skýrt“ í öllum skólum landsins. Enda þótt innrás Sov- étríkjanna í Tékkóslóvakíu hafi átt sér stað í miðjum sum- arleyfum skóla og háskóla var kennurum ráðlagt að „gefa börnunum skýringu" jafnskjótt og þau kæmu í skólana. „Að sjálfsögðu vildu börnin vita ná kvæmlega hvað gerðist", sagði prófessor Becher. „Þau hefðu örugglega heyrt eitthvað um þetta 'heima hjá sér, og allt mál ið hlýtur að hafa verið þeim ráðgáta". Hvernig var innrásin skýrð? Hvernig tókst kennurum að sannfæra nemendur sína um að rétt hefði verið að hermenn DDR héldu inn í Tékkósló- vakíu? „Þeim var einfaldlega sagt að þjóðir Varsjárbanda- lagsins væru eins og ein stór fjölskylda, og að einn í fjöl- skyldunni hefði átt við vanda- mál að etja. Vegna þess urðu hinir í fjölskyldunni að koma og bjóða fram hjálp sína við að leysa vandamálin". í Halle-Neustadt, splunku- nýjum bæ, sem verið er að byggja skammt fyrir utan sjálfa borgina Halle, heimsótti ég skemmtilegan smábarna- skóla — einn af mörgum, sem þarna voru — og sá litlu hnoðr- ana leika sér. Hvað vissu þau um stjórnmál? Hvað á nokkurt smábarn að vita um stjórn- mál? „13 ára sósíalistar“. Mér varð hvert við, er mér var sagt, að er börnin væru þriggja ára væri tekið að fræða þau um leið sósíalismans. Bók, sem nýlega var gefin út af Volk und Wissen Volkseigen- erz Verlag í Berlín, er beinlínis ætluð smábarnaskólakennur- um. I bókinni — Bildungs — und Eiziehung.'pian fúr den Kinder garten — (Áætlun um mennt- un og þróun fyrir smábarna- skóla), er skýrt fram tekið, að eitt af því fyrsta, sem kenna verði sérhverju a-þýzku barni, sé að þekkja fána DDR og mynd ir af Walter Ulbricht. Vegna þessa eru myndir af Ulbricht og fánar í nær hverri skóla- stofu. I einu þeirra kvera, sem a- þýzk börn læra fyrst, er byrjað á orðinu „Oma“ (amma) og síð- an kemur „Mama“ (mamma.) Áður en margar síðar eru komn ar birtist hinsvegar mynd af fána DDR. Sú mynd er birt aft- ur og aftur, með vissu milli- bili. Þegar komið er á bls. 50, eða í miðja bók, er mynd af hermanni í miðjum hóp glað- værra barna. „í dag bíðum við eftir stóra bróður Helgu. Hann er hermað ur í her fólksins. Hann og fé- lagar hans tryggja að við lifum í friði. Okkur langar til að syngja söng fyrir gest okkar. Allir nemendur kunna hann. Hann heitir „Litlu hvítu frið- ardúfurnar". Okkur langar einn ig til að heyra ýmislegt frá gesti okkar. Okkur langar til að vita hvað hermenn okkar verða að gera ... Hvað eigum við að spyrja hermanninn okk ar um?“ Á öðrum síðum er lesefni um samyrkjubú með myndum af litskrúðugum dráttarvélum á ökrum, og efni um 1. maí. „AU- ir hlakka til 1. maí. Göturnar líta þegar fallegar út. Allt fólk- ið í húsunum hefur hjálpað til. Stórt skilti má sjá yfir dyrun- um. Á því stendur: „Lengi lifi verkamanna- og bændaþjóð okkar" ..... 1. maí, við erum svo kát. Við berum rauð blóm, syngjum glaðværa söngva. 1. maí erum við svo kát“. Afmæli Ulbricht. Nokkru síðar er mynd af Ul- bricht. Undir henni stendur: „Walter Ulbricht er formaður Þjóðarráðs okkar. Afmælisdag- ur hans er 30. júní. Walter Ul- brieht býr og vinnur í höfuð- borg Alþýðulýðveldisins Þýzka lands. Hann var eitt sinn tré- smiðúr. Þegar sem drengur sagði hann verkamönnum hvað þeir yrðu að gera til að ekki yrði stríð. Walter Ulbricht og félagar hans tryggja að við get um lifað og leikið okkur í firði ......“. „Hvað vitið þið meira um félaga Walter Ulbricht? Hvað heitir höfuðborg Alþýðlýðveld- isins Þýzkalands?“ Takið eftir hve nafn Ulbr- ichts er endurtekið oft og hversu lagt er að barninu að muna að Berlín sé höfuðborg DDR. Þessar staðreyndir eru hamraðar inn í höfuð barnsins frá því að það kemur í fyrsta sinn í skóia. Ég tjáði þeim em- bættismönnum, að mér þætti þessi kennsluaðferð ógeðfelld í meira lagi, að hún væri heila- þvottur af ómannlegasta tagí, því með þessu væri verið að færa sér í nyt hið barnslega sak leysi. Svarið var einatt hið sama: „Við vitum, að við erum að gera rétt. í öllu falli gerið þið nákvæ.mlega það sama. Þið alið börnin upp til þess að þau fylgi kapítalískum leiðum“. Framfarir? Þrátt fyrir aðferðir þær, sem beitt er, er umbyltingin á skól- unum að byrja að sýna árang- ur. Börn í DDR eru skólaskyld í 10 ár, en í V^Þýzkalandi er skólaskyldan 8 ár. Skyldunám- inu lýkur við 16 ára aldur í DDR, í stað 14 ára. Bygginga- framkvæmdir varðandi barna- heimili og smábarnaskóla er gífurleg. Rúm er nú fyrir 20% allra barna landsins upp að þriggja ára aldri á barnaheim- ilum og fyrir 57% allra barna á aldrinum 4-6 ára í smábarna- ■skólum. Þorpsskólinn með hinu gamla kennslufyrirkomulagi og einum kennara í öllum greinum, er nú sem óðast að þoka um set fyrir skipulögðum ■skólabyggingum, sem þannig eru í sveit settar, að börn úr fimm nærliggjandi þorpum geta sótt þessa svæðis skóla. Þau eru flutt til og frá skóla ókeypis, og kostar þessi þjónusta ríkið 1,000,000 marka árlega. Allt þetta er í framkvæmd þrátt fyrir alvarlegan kennara- skort. Um 70% kennara, sem fyrir voru fyrir 1945, höfðu ver í Austur-Þýzkalandi eru nægir smábarnaskólar fyrir 57% af hverjum 100 börnum. Barnaheim- ili fyrir börn allt að þriggja ára aldrei eru einnig til. Þau eru nauðsynleg vegna þess að lág laun og hár frarnfærslukostnaður krefst þess að báðir foreldrar vinni fulla vinnu. Þessi börn eru að fá sér miðdegisblund. 3 ára verða börn að þekkja Ulbricht og afmælisdag hans Kennslan notfœrir sér hið barnslega sakleysi og er af ómannlegasfa tagi

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.