Morgunblaðið - 23.04.1969, Qupperneq 24
24
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 23; APRÍL 1969
um, þar sem Kay og Nick vor-
um beðin að gera þá ánægju að
koma á dansleik í Chalfont Park
sem haldin var í tilefni af átján
ára afmæli Emmu, dóttur Lips-
combhjónanna, eftir um það bil
mánuð. Við höfðum þegið boðið
um hæl og sýndum spjaldið uppi
á arinhillunni, eftir að okkur
barst það.
En nú var þessi mánuður lið-
inn og við vorum í óða önn
að búa okkur undir þetta mikla
samkvæmi. Enda þótt ég hlakk-
aði mikið til, fékk ég samt fyr-
ir hjartað við tilhugsunina um
að- verða að skilja Lucy eftir
heima. Veslings Lucy litlu, sem
gat aldrei farið á dansleik. Það
virtist svoddan ranglæti. Því að
nú var hún einmitt á þeim aldri.
að hún hafði haft ánægju af
því.
Ekki svo að skilja, að við Kay
færum oft út að dansa. Eins og
við lifðum rólegu sveitalífi buð-
ust okkur ekki mörg tækifæri til
þess. Og þá hafði nú Kay ekki
haldið mikið kyrru fyrir, í seinni
tíð. Sannast að segja, fannst mér
hún aldrei vera heima á kvöld-
in. En að minnsta kosti virtist
hún hafa tekið til greina aðvör-
un mína um það, að of miklar
útivistir á kvöldin væru ekki
heppilegar fyrir hana, og ekki
hafði verið frekar minnst á það,
að John færi að kosta hana i
tízkuskólann og útvega henni
nóga peninga til þess að vera í
London alla vikuna. Og ég von-
aði, að til þess kæmi aldrei. Ég
vonaði meira að segja, að hún
skildi, að ég var að ráða henni
heilt.
Meðan ég var að bursta hár-
ið á mér til þess að fá það til að
gljá, velti ég því fyrir mér, hvort
ég mundi skemmta mér vel um
kvöldið. Mér leið aldrei verulega
vel innan um ríka fólkið þarna
í sveitinni, en það yrði þarna
áreiðanlega í meirihluta. Ég ann
svo vel aðstöðumuninn, að ég var
dálítið utan við þetta allt sam-
an. Og ég treysti mér ekki til að
vera skemmtileg og fyndin eins
og þetta fólk.
En annars yrði Rupert nú
þarna og ég kunni vel við hann.
Við höfðum hitt hann talisvert oft
síðan veðhlaupadaginn góða. Og
hann hafði gert ýmislegt okkur
til ánægju. Hann hafði oft rek-
izt inn til okkar og fært Lucy
bækur og ávexti, ekki sízt ávexti
sem voru torgætir eftir árstíðum
Mér datt stundum í hug, að
Lucy væri uppáhaldið hans. Og
áreiðanlega meir en Kay, og það
vissi ég, að fór dálítið í taugarn-
ar á Kay. Enda þótt hún færi
jafnmikið og raun var á með
John, þá vissi ég vel, að hana
langaði til að Rupert byði sér
út Iíka, en að því er ég bezt
vissi, hafði hann aldrei orðað það
Nokkrum míntúum seinna þeg
ar mér fannst ég orðin alveg
tilbúin, heyrði ég dyr opnaðar
hinumegin í ganginum og þegar
ég leit fram, sá ég að Nick flytti
sér niður.
— Kemurðu ekki með okkur,
Nick? spurði ég.
Hann stanzaði, leit á mig og
mér datt í hug, hvað hann væri
laglegur í smókingfötunum, sem
einusinni höfðu verið í eigu föð
ur míns, en höfðu verið -gerðar
upp hjá klæðskeranum á staðn-
um.
— Nei, ég lofaði að fara til
27
hennar Debóru og aka henni
síðan til Libscomb í bílnum henn
ar. Ég hitti ykkur þar. Ég þarf
að flýta mér, annars verð ég
of seinn.
Svo var hann þotinn og rétt
að hann gaf sér tíma til að
kveðja Lucy, sem sat á legu-
bekknum í setustofunni.
Kay var fallegri en nokkru
sinn, í hvítum kjól, sem ég hafði
ekki séð áður. Nú kom hún út
úr herberginu sínu, rétt um leið
LÖGMANNAFÉLAG ÍSLANDS
AiALFDNDDB
félagsins verður haldinn í Átthagasal Hótel Sögu, miðvikudaginn
23. apríl 1969, kl. 16.
DAGSKRÁ:
Venjuleg aðalfundarstörf.
í framhaldi af aðalfundi verður árshátíð félagsins haldin á sama
stað og hefst með borðhaldi kl. 19,30.
Skorað er á félagsmenn að fjölmenna með konur sínar og gesti.
Samkvæmisklæðnaður.
STJÓRNIN.
Ný kúafóðurblanda
„BiíhoIlu-kúoíóðurblanda“
um 102 FE í 100 kg.
Meltanlegt hráprótín
um 110 g. í kg.
Kr. 7.955.00 pr. tonn
— 359.00 — sekk á 45 kg.
Höfum einnig áfram okkar gömlu
M. R. kúafóðurblöndu á sama verði
og áður.
Vöruafgreiðslan opin daglega eins
og venjulega.
Mjólkurfélag Reykjavíkur
Kornmjlla — Fóðurblöndun — Símar 11125 og 11130.
— Ég var svo óheppinn að gleyma lyklinum heima á pianóinu.
og Nick skellti aftur hurðinni á
eftir sér.
— Fór Nick til hennar De-
bóru?
— Já.
Hún hló snöggt. — Hann ætl-
ar sér ekki að sleppa henni, eða
hvað? Ég hélt annars ,að hann
væri búinn að komast að því, að
hann hefur enga von, þar sem
hún er annarsvegar. Ég skal
bölva mér uppá, að hún mamma
"hennar lætur hana ekki giftast
öðrum en ríkisbubba. Ekki svo
að skilja að þau séu ekki nógu
rík sjálf. Hvernig lízt þér á kjól-
inn minn?
Hún sneri sér í hring, svo að
ég gæti séð hann í krók og kring
Og enda þótt ég hefði ekki vit
á dýrum fötum — því að hverm-
ig hefði það átta að vera — ÞÁ
þóttist ég viss um, að þessi kjóll
hefði kostað drjúgan skilding.
— Jú, hann er voða fallegur,
sagði ég irmilega. — Þú hstfur
verið að far 1 kring um mig, Kay
Enga hugmynd hafði ég um, að
þú fengir þér nýjan kjól fyrir
kvöldið í kvöld. Hann hlýtur að
hafa kostað einhver ósköp.
— Það gerði hann nú ekki.
Ég náði í hann brúkaðan, eftir
bendingu frá stelpu, sem ég þekki
Enn einu sinni þóttist ég
vita, að Kay var ekki að segja
mér satt, og að John hefði keypt
kjólinn handa henni. En það
mundi hún aldnei fara að segja
mér, þar sem hún vissi, að mér
var illa við það Ég andvarp-
aði. Kannski var ég að gera
henini rangt til. Ég vonaði það
að minnsta kosti þó að ég héldi
það ekki.
Síminn hringdi um leið og ég
kom niður og ég tók hanin og
sagði númerið.
— Það er Melissa, er ekki svo?
spurði rödd sem ég var fljót að
þekkja — Þetta er fantu-'inn í
í,ög. Dti, þ íssí se n ir ið reyna
að fírla hana lit.lu systur þína.
— Er þetta John? spurði Kay
ssim kom niður í aama bili.
Ég rétti henni símann. Nokkr
um mínútum seinna kom hún
inn í stofuna til mín.
— John yill vita, hvort við
viljum að hann komi hérn.a við
og aki okkur til Lipscomb?
— Ég vona að þú hafir sagt
honum, að bað viljum við ekki,
beldur komi hann Rupert og
taki okkur með sér.
— Ég sagði honum það. Ann
ars er ég með skilaboð til þín.
Hann segist vona að hann fái að
dansa við þig í kvöld. Kay setti
upp sorgarsvip — Ég var nú ann
ars að vona, að hann dansaði
ekki yið aðrar en mig í kvöld.
• — Þú mátt hafa hann fyrir
mér, og með ánægju. Mig langar
að minnsta kosti ekkert til að
dansa við hann.
— Nú heyrist mér bíllinn hans
Ruperts komia, sagði Lucy.
Mark þaut út í dyr. Hetju-
dýrkun hans á Rupert var nú á
hámarki. Honum fanmst hann
sýniilaga glæsilegasti maður, sem
hann hefði nokkurntimia séð.
— Eru systur þíniar tilbún-
ar? heyrði ég Rupert spyrja.
— Það ættu þær að minnsta
kosti að vera, sagði Mark. Þær
eru að minnsta kosti búnar að
vera nógu lengi að gera sig
fínar.
Rupert var kominn inn í stofu
dyrnar og horfði á okkur með
aðdáun.
Hrúturinn, 21. marz — 19. apríl
Ef svo ber undir skiltu reyna að liðsinna gömlum kunningja.
Nautið, 20. apríl — 20. maí
Gömul sambönd eru að hressast við. Reyndu að styrkja jiau.
Tvíburarnir, 21. maí — 20. júní
Þú ættir að reyna að líta í eigin barm áður en þú áfeliist aðra.
Krabbinn, 21. júní — 22. júií
Eitthvað nýstárlegt skeður á næstunni, sem veldur þér ánægju.
Ljónið, 23. júlí — 22. ágúst
Af hverju er það, að enginn vill taka visst verk að sér?
Meyjan, 23. ágúst — 22. sept.,
Eitthvað, sem þú hcfur lengi verið í vafa um, skýrist brátt.
Vogin, 23. sept. — 22. okt.
Sá á kvöl, sem á völ. Reyndu að vera ákveðinn.
Sporðdrekinn, 23. okt. — 21. nóv.
Þér fer nú að vegna eitthvað betur, og tími til kominn.
Bogmaðurinn, 22. nóv. — 21. des.
Það er lofsvert, hvernig þú keppir að settu marki.
Steingeitin, 22. des. — 19. jan.
Ef þú ætlar að taka þér frí, skaltu vera viss um að þú eigir ekkert
ógert.
Vatnsberinn, 20. jan. — 18. febr.
Fæstir vildu vera í þinum sporum núna, en stattu við orð þín.
Fiskarnir, 19. febr. — 20. marz
1 dag skaltu taka mikilvæga ákvörðun, og reyna að rétta við.