Morgunblaðið - 23.05.1969, Side 28
28
MORlGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 23. MAÍ 1960
— Ég var bara svo hrædd. Ég
hef hagað mér svo bjánalega.
— Komdu bara heim, Kay. Það
er það eina, sem máli skiptir.
Ég skal koma á móti þér.
— Þakka þér fyrir. Það verð-
ur dásamlegt að sjá þig aftur.
Síðustu orðin drukknuðu í tár-
um. Ég gat vel hugsað mér,
hvernig Kay mundi líða. En það
voru nú smámunir. Undir eins
og hún væri komin heim, mundi
hún jafna sig.
Ég laigði símann á og þaut út
til að ná í Bob. Hann var á leið-
inni að gefa svínunum. Hann leit
við, þegar ég kallaði í hann og
setti frá sér tvær fötur af svína-
fóðri.
— Kay var að hringja,
sagði ég. Hún er í London og
kemur með lestinni klukkan sjö.
Ég sagðist miutndu koma á móti
henni.
Bob brosti til mín.
— Þá ætti þér að líða betur,
þegar Kay er að koma heim.
— Auðvitað. Augu okkar mætt
ust. Ég gat alveg lesið hugsanir
hans og ég vissi, að hanm gat les-
ið mínar. Bara að eins vel væri
ástatt hjá okkur sjálfum! Undir
eins og vandamálið með Kay
væri leyst, yrði ég að segja Nick
að við Bob gætum ekki gift okk-
ur. Og segja öðru fólki, að ekk-
ert brúðkaup yrði. Við höfðum
ákveðið að gefa engar skýringar
á þessu. Til hvers væri það líka?
Ég fór út í garðinn, tíndi þar
nokkur blóm og setti í vasa. Ég
bar þau upp í herbergi Kay,
sem hafði verið vandlega lagað
til í og beið þess, að hún kæmi
heim.
Ég minntist morgunsins þegar
hún fór að heiman og ég hafði
tekið til í því, og það svo vand-
lega, að ég hafði fundið þennan
50
pappírssnepil, sem hafði komið
öllu upp um þau John. Ég gat
varla trúað því, að ekki væru
nema fáir dagar liðnir síðan.
Mór fannst þaö heil mannsævi.
Mannsævi, full kvíða og kvala.
Eg var komin á stöðina áður
en lestin kom. Kona var að
kaupa farseðil til London við
sölugatið.
Hvenær fer lestin? spurði
hún.
— Sex-fimmtíu, var svarið. —
En hún er nokkrum mínútum of
sein.
Ég horfði á hana, er hún stakk
farseðlinum í veskið sitt. Hún
var hávaxin og svarthærð og
fölleit. Þetta var kona, sem hafði
sýnilega verið mjög lagleg, en
nú var andlitið orðið hrukkótt
og of magurt.
Shór í sveitinu og m. fl.
Strigaskór, gúmmískór, gúmmistigvél, fótlagaskór,
barnaskór, inniskór, kvengötuskór. kvensandalar,
karlmannaskóhlifar og m. fl.
SKÓVERZLUNIN, Laugavegi 96
við hliðina á Stjörnubíói.
MAGGI -súpur
gerðar af sérfræðingum
framreiddar af yður
Svissneskir kokkar eru frábærir matreiðslumenn. Þeir einir kunna
uppskriftir af MAGGI-súpum. En þér getið framreitt þessa kostafæðu
með lítilli fyrirhöfn.
• Matseldin tekur aðeins 5 mínútur
• Þér getið valið um 18 Ijúffengar tegundir.
MAGGI-súpur
frá SVISS
eru beztar.
MAGGI
SNISt
SOUP
MUSHROOM VELOLTÉ OE BOLETS
4 » SEIVINfil ASSIETTif 1
Hún leit út eins og hún hefði
nýlega verið mjög veik.
Allt í einu þóttist ég alveg
viss um, hver hún væri. Ég elti
hana upp á brottfararpallinn.
Ég leit kriingum mig. Þarna
var ekki nema fátt fólk og ekki
mjög nærri mér.
Ég gekk til hennar. — Þér
enuð frú Johnston, efcki sivo?
Konan leit á mig, þreytulega
og fjandsamlega, og mér datt
strax í hug, að hún mundi vita,
hver ég væri.
— Já. En ég veit ekki til, að
ég þekki yður, sagði hún.
Þegar ég horfði í þessi kulda-
legu augu, fór ég að hugsa,
hvort það væri ekki vitleysa af
mér að fara að tala við konu
Bobs. Hvað gat ég svo sem sagt,
sem að gagni gæti komið? Eftir
andartak mundi Lundúnalestin
koma. En hún var enn ekki kom-
in og maðurinn hafði sagt, að
hún væri nokkrum mínútum á
eftir áætlun.
— Ég heiti Melissa Grindly,
sagði ég.
Köldu augun urðu enn kaldari,
ef þau gátu orðið það.
— Ég bjóst við því, sagði hún.
— En ég sé ekki, að við höfum
neitt saman að tala.
Ég stóð á öndinni.
— Afsakið. Vafalaust viljið
þér ekki neitt við mig tala, en
ég verð að gera það. Bob hefur
sagt yður af mér, býst ég við?
Um okkur.
— Já, það hefur hann.
— Þá vitið þér, að við elskumst
og viljum gifta okkur.
— Það veit ég. Og ég býst
líka við, að þér vitið, að ég ætla
mér alls ekki að skilja við hann,
og lofa honum að giftast yður.
— Ég sagði í örvæntingu
minni, og án þes's að vega orðin:
— Þér verðið að gefa honum
eftir skilnaðinn, frú Johnston.
Þér getið ekki elskað hann
eins og ég geri. Og þér hafið
aldrei gert það, annars hefðuð
þér ekki hlaupið frá honum eins
og þér gerðuð. Og nú ... ég
þagnaði, er ég sá hatrið, sem
sfcein út úr augum kionunnair.
— Hverndig dirfizt þér tala
svona við mig? sagði hiún, — Ég
neita algjörlega að ræða um
imianninn miinn við yður.
Hún sneri frá mér og stappaði
niður fæti, óþolinmóð, meðan
hún beið eftir lestinni.
En nú herti ég mig upp aftur.
Það hafði verið þaggað niður
í mér í bili, en ég hafði enn
margt, sem ég þurfi að segija við
Hrúturinn, 21. marz — 19. apríl.
Snúðu þér að sölumennsku, eða skiptum á áþreifanlegum verð-
mætum, og vertu snar og haltu vel áfram. í kvöld skipuleggurðu svo
morgundaginn.
Nautið, 20. apríl — 20. maí.
Þú átt víða Tini. Vertu skvnsamur, og láttu tilfinningarnar sitja á
hakanum í dag. Þér standa flestar leiðir opnar.
Tvíburamir, 21. maí — 20. júní.
Það hvílir ekkert sérstakt á þér í dag, svo að þú getur haft þína
hentis-fcmi. Það skín í rómantík og tilfinningasemi.
Krabbinn, 21. júní — 22. júlí.
Nýtt fólk birtist á sjónarsviðinu, og annað hverfur. Lagaðu þig eftlr
aðstæðunum. Farðu þér hægt og reyndu að hrinda síðustu hugmyndum
þínum í framkvæmd.
Ljónið, 23. júlí — 22. ágúst.
Safnaðu þreki fyrir framtíðina og framleiðni komandi tíma. Reyndu
að láta vel fara með þeim, sem hjá þér eru.
Meyjan, 23. ágúst — 22. september.
Vinir og venzlafólk eru ekki alveg eins viðskotaillir í dag. Reyndu
því að komast að samkomulagi við fólkið um allar aðgerðir i fram-
tíðinni.
Vogin, 23. september — 22. október.
Þú ert spenntur í dag. Tilfinningamál og rómantíkin hellast yflr
þig eins og brotsjóir, e.t.v. þannig að óreiða komist á dagleg störf
þín.
Sporðdrekinn, 23. október — 21. nóvember.
Allir í kringum þig eru að orða hjúskap. Athugaðu ástandið hjá
sjálfum þér, og gerðu eitthvað I mállnu, ef þér ekki líkar það.
Bogmaðurinn, 22. nóvember — 21. ðesember.
Þér gengur betur persónulega nú, en fyrr. Gerðu það, sem þú
græðir sjálfur mest á. Þú getur fundið einfaldarl leið til þess.
Steingeitin, 22. desember — 19. janúar.
Haltu áfram því, sem hófst i gær, til að fullkomna allt. Róman-
tíkin er í hávegum höfð af þeim, sem það á við.
Vatnsberinn, 20 janúar — 18. febrúar.
Þú skalt vera með þeim, sem þér eru kærastir. Haltu boð, eða þ.h.
i kvöld.
Fiskamir, 19. febrúar — 20. marz.
Ef þú ert ekki of heimtufrekur, gengur allt vel.