Morgunblaðið - 25.07.1969, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 25. JÚLÍ 1'968
5
Embœttismannanefndin um Nordek:
Fiskveiðasjóður stofnaður og sam
eiginlegur landbúnaðarmarkaður
Osló, 23. júlí. NTB.
EMBÆTTISMANNANEFND sú,
sem skipuð var af ríkisstjórnum
Norðurlandanna til að undirbúa
stofnun norræns efnahagsbanda-
lags (Nordek) hefur skilað áliti
og' tillögu að samningi um slíkt
bandalag. Þar er m.a. gert ráð
fyrir að tollabandalagi Norður-
landanna verði komið á laggirn-
ar þann 1. janúar 1972 og einnig
að stofnaður skuli sameiginlegur
norrænn fiskisjóður. Mikilsvert
atriði í tillöguupkasti nefndar-
innar er og, að auk samvinnu
á sviði fiskveiða er gert ráð fyrir
að samræmdur verði markaður
Norðurlandanna fyrir landbún-
aðarvörur þeirra.
FISKIMÁLIN
Seirn fyrr segir á að koma á
samvinnu í fislkimálum með því
að stofna samnorrænan markað,
er Skapi stöðugt verðlag á fisiki
og auðveldar löndun. Geta sjó-
menn frá Norðurlöndum þannig
landað afla sínum hvar sem er
á þessum löndum og notið sömu
kjara og sjómenn viðkomandi
lands. Þá Skal skipuð samnorr-
æn stjórn sem fjalli um útflutn-
ing og ákveði lámarksverð á
fiski. Þá verður komið á fót
sameiginlegum fiskisjóði Norð-
urlandanna. Samkomulag hefur
ekki niáðst um, hver.su stór sjóð-
ur sá verði, né heldur hve stór-
um hluta han.s verði varið til
að tryggja stöðugt verðlag og
hve miklum hluta til rannsóikna
og nýjunga í sjávarútvegi. Þá er
lagt bann við því að einstök að-
ildarlönd styrki fiskiveiðar og
figkiðnað sinn í svo ríkum mæli,
að það hefði ákaðvænleg áhrif
á samkeppnisaðstöðu þessara
greina í hinum löndunum.
SAMNINGSFRAMKVÆMDIN
Hvað varðar greinda stofnun
norræns tollabandalags er rétt
að taka fram, að Danir hafa ekki
viljað samþyklkja það endan-
lega, fyrr en lausn hafi verið
fundin á landbúnaðarmálunum,
en samvinna í þeim hefur verið
ákveðin frá 1. janúar 1972. Áður
en svo verður skal ráðherra-
nefnd Nordeks að hafa skipulagt
til fulls samstarfið um fiskút-
flutning og aifnám löndunair-
bannsins í aðildarlöndunum.
Einnig þarf ráðherranefndin að
hafa markað ákveðna stefnu í
opinberum styrkveitingum til at
vinnulífsins fyrir 1. janúar 1972.
Áætlun um landbúnaðarmálin
á að vera tilbúin fyrir 1. janúar
1974 og þá jafnframt ákveðin
stefna í iðnaðanmálum, ákatta-
málum og ýmsum fleiri aðkall-
andi málum.
Allar takmarkanir um til-
færslu fjármagns eiga að vera
fallnar úr gildi fyrir 1. janúar
1975 og þá er gert ráð fyrir því
í samningsuppkastinu að gengið
hafi verið frá framkvæmdaratrið
um um samvinnu Norðurlanda
í ftæðslumálum.
Samkomulag ríkti um ýmsa
þætti, sem snúast um stefnu
Noi'ðurl an'd a.nn.a a.llra í efnahaigs-
málum, viðskiptum, iðiniaði, sam-
eiginlegain vinniumarkað og ai-
mannatryggiingar, sigiingar,
fræðslumál, vísmdairaninsóifcnir
og tilfærslu fjár. Hvað varðar
verzkrn með iðnaðar og landbún-
aðarvörur, fiskveiðar og sam-
vinnu um fjármál, hefur endan-
leg lausn ekki fenigizt enn. Stjórn
hins fyrirhugaða baindalags mun
kveða á um framkvæmd samn-
ingsins og hefur nefndin lagt til
að veittur verði ákveðinn frestur
til að koma þessari samvinnu á.
RÁÐHERRAR HAFI MEST
VALD í BANDALAGINU
Saimkomuilag hetfúr tekizt um
skipulag baindalagsins og stofn-
ainir, sem hafa innan verba/hriings
síns að efla samskipti landan-na.
Ráðherranefndin mu-n hafa æðista
valdið og skal það sjá um að
samnimguinum sé framfylgt. I því
á að sitja eimn ráðherra úr ríkis-
stjórn hvers aðildarlands, en til
að samþykktir öðlist gildi þurfa
þær að vera gerðar einiróma. Sett
verður á stofn embættdsmanina-
nefnd, níu samvimnumefndir,
hver á sinu sviði, ráðgjafamefnd
og framkvæmdastjórn. í fram-
kvæmdastjóminni verða fjórir
forstjórar og skulu þeir vera
óháðir ríkisstjómum og þingum
N orðuiri an-d anma.
Þá skal að lökum tefcið fram,
að íslendingar hafa átt áheyrn-
airfulltrúa á flestöllum fundum
embættismianinianief-ndarininar og
eiga kost á að ganga í bamda-
lagið með Skilyrðum, sem sam-
bomuteg nœðist um.
Frá mótinu í Galtalækjarskógi á síðasta ári.
Bindindismót í
Galtalækjarskógi
EINS og undanfarin ár verður
Bindindismótið í Galtalækjar-
ákógi um Verzlunarmannnahelg-
ina og verður dagskrá þess fjöl-
breytt. Það er Umdæmisstúkan
nr. 1 og íslenzkir ungtemplarar,
sem efna til mótsins og hefur
fjöimenn starfsnefnd úr samtök
unum unnið mikið undirbúnings
starf og annast hún framkvæmd
mótsins. — Formaður hennar er
Ólafur Jónsson, umdæmistempl
a-r.
Dagsfcrá bindindismótsins
hefst á laugardag 2. ágúst kl. 20
með ávarpi Gis-surs Pálssonar,
rafvirkjameistara, en áður mun
lúðraflokkur leika. Dans verður
stiginn, bæði gömlu og nýju
dansarnir og leika fyrir dans-
inum fjórar hljámsveitir. Roof
Tops, Sókrates, Tríó Jóns
Sigurðssonar og Diskó.
Á sunnudag hefst dagskráin
kl. 14 með guðsþjónustu. Séra
Bjöm Jónsson, Keflavík prédik
ar og kl. 16.00 hefst sérstakur
barnatími, sem Hinri-k Bjarna-
son, hinn þekkti sjónvarpsmaður
stjórnar. Þá verða flutt ýmis
dkemmtiatriði við hæfi barna.
íþróttakeppni hefst kl. 16.30 og
um kvöldið verður kvöldvaka.
Hefst hún með ræðu Jóhannesar
Sigmundssonar formanns Ung-
mennasambandsins Skarphéðins.
Síöan verða fluttir ákemmti-
þættir, en þá munu m.a. koma
fram leiikararnir Róbert og R.úr-
ik, Keflavíkurkvartettinn syng-
ur, leikþáttur verður sýndur,
þjóðlagasöngur, Kristin Ólafs-
dóttir, Nútímabörn ‘ slkemmta,
sýndir verða þjóðdans-ar, Hjálm
týr Hjálmtýsson syngur ein-
söng og stúlknakvartett úr
Keflavílk syngur. Dans verður
stiginn að lokum, en varðeldar
kveiktir á miðnætti og flugeld-
um skotið.
Á bindindismótið eru allir vel-
komnir, sem án áfengis vilja
dvelja og skemmta sér í fögru
umhverfi, segja forustumenn
Galtalæfcjarmótsins. Þeir segj-
ast leggja kapp á að mótið sé
ákemimtun fyrir alla fjölskyld-
una, enda hafi reynslan frá fyrri
mótum sýnt, að fjölskyldur hafi
kunnað að meta þessa stefnu,
eins og aðrir sem fjölmennt hafa
til mótsinis. Á sl. ári sóttu mótið
um 5 þúsund manns.
Bindindissamtökin hafa
tryggt sér aðstöðu í Galtalækjar
Skógi til langs tíma og hefur
Skógurinn þegar verið girtur og
margvíslegar ráðstafanir hafa
verið gerðar þar til að búa í hag-
inn fyrir þátttakendur éklki siízt
í s-ambandi við þetta árlega bind
indismót u-m verzlunarmanna-
helgina.
Oft er rætt um hið neikvæða
hjá unga fólkinu, en sjaldnar
getið þess, sem vel er gert. Eins
og fyrr segir, eiga samtök ungra
bindindismanna í þéttbýlinu
m.a. við Faxaflóa, stóran hlut í
þesisu móti í Galtalækjarákógi
og bjóða þau öllu ungu fólki,
sem vill Skemmta sér á heil-
brigðan hátt um Verzlunar-
mannahelgina, að sælkja mótið.
Mótsgjaldi verður mjög í hóf
stillt.
(Frá Umdæmisstúkunni).
UTANHÚSSMÁLNING
FÚAVARNAREFNI FYRIR
ÓMÁLAÐAN VIÐ. MARGIR
LITIR
FEGRIÐ VERNDIÐ
VEL HIRT EIGNER
VERÐMÆTARI
ALLT MEÐ
EIMSKIP
Á næstunni ferma skip vor
til Islands, sem hér segir:
ANTVERPEIM:
Skógafoss 1. ágúst
Reykjafoss 12. ágúst *
Skógafoss 23. ágúst
ROTTERDAM:
Skógafoss 31. júlí
Reykjafoss 11. ágúst *
Skógafoss 22. ágúst
HAMBORG:
Rcykjafoss 25. júlí
Skógafoss 4. ágúst
Reykjafoss 14. ágúst *
Skógafoss 25. ágúst
LONDOIM / FELIXSTOWE:
Mánafoss 2. ágúst
Askja 11. ágúst *
Mánafoss 22. ágúst
HULL:
Askja 25. júlí
Mán-afoss 5. ágúst
Askja 13. ágúst *
Mánafoss 25. ágúst
LEITH:
Gullfoss 25. júlí
Gullfoss 8. ágúst
Gullfoss 22. ágúst
GAUTABORG:
Laxfoss 26. jólí
Tungufoss 14 ágúst *
Skip um 25. ágúst
KAUPMANNAHÖFN:
Laxfoss 28. júlí
Kronprins Frederik
30. júk>
GuMfoss 6 ágúst.
Kronprins Frederik
12. ágúst
Tungufoss 13. ágúst *
Gutlfoss 20. ágúst
Kronpri-ns Frederik 26 ág.
KRISTIANSAND:
Tu-ngufoss 15. ágúst *
NORFOLK:
Brúarfoss 30. júlí
Fjallfoss 8. ágúst
HofsjökuH 22. ágúst
Brúarfoss 8. september.
GDYNIA / GDANSK:
Tungufoss 11. ágúst
TURKU:
Ba-kkafoss 4. ágúst
Laga-rfoss 28. ágúst *
KOTKA:
Bakkafoss 6. ágúst
Ran-nö 18 ágúst
Lagarfoss 29. ágúst *
VENTSPILS
Bakkafoss 27. júl-í
LENINGRAD:
Ba-kkafoss 28. júfi.
* Skipið losar í Reykjavik,
isafirði, Akureyri og Húsa-
vík.
Skip, sem ekki jru merkt
með stjörnu losa aðeins
Rvík.
ALLT MEÐ
EIMSKIP